Tíminn - 18.01.1972, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 18. janúar 1971 TIMINN 3
ÁSur en fór aS snjóa, rlgncfi mikiS á höfuðbergarsvæSinu, og viSa höfðu niSurföll ekki undan, eins og hér á Laugaveginum. Þarna og t.d. á Kringlu-
mýrarbraut viS Nesti myndast ætíS tjarnir ef eitthvaS rignir aS ráði, og virSist sem holræsadeild borgarinnar þurfi aS gera þarna einhverjar endur-
bætur á, því ekki er víst aS alltaf séu þarna á ferðinni lögregluþjónar meS kústa, til aS hreinsa niðurföllin ^Tímamynd G.E.)
Meira en 80 bátar verða
gerðir út frá Eyjum í vetur
ÞÓ-Reykjavík, mánudag.
Meira en 80 bátar verða gerð
ir út frá Vestmannaeyjum á
komandi vetrarvertíð, og er
það svipaður fjöldi og gerður
hefur verið út frá þessari
stærstu verstöð landsins und-
anfarin ár. Af þessum báta-
fjölda verða um 40 gerðir út
á net, 26 á botnvörpu, milli
15 og 20 á línu og net, og fram
án af munu 10 bátar stunda
loðnuveiðar.
__ Ingólfur Arnarson, formaður
Útvegsbændafélags Vestmanna-
eyja, sagði er við ræddum við
hann í dag, að ennþá vantaði
menn á bátaflotann, en síðustu
daga hefur eitthvað rætzt úr
mannahrakinu og taldi Ingólf-
ur sæmilegar horfur á að full-
ur mannskapur fengist á bát-
ana. Þrír bátar eru þegar byrj-
aðir með línu, en tíðin hefur
verið frekar stirð og afli treg-
ur þangað til í gær, að einn
báturinn kom með 6 tonn og
var helmirigurinn af þeim afla
þorskur. Þá eru nokkrir bátar
byrjaðir með net og veiða þeir
ufsa, hefur afli netabátanna
verið allgóður annað slagið.
Ingólfur sagði, að nokkrar
breytingar hefðu orðið á Vest-
mannaeyjaflotanum á s.l. ári,
þrír nýir bátar hefðu bætzt
við, nokkrir gamlir bátar hefðu
verið sc'.dir að aðrir keyptir
í þeirra stað. Þá eru tveir að-
ilar búnir að undirrita kaup
á skuttogurum frá Japan og
eiga þeir að koma til landsins
á næsta ári.
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Samningar milli Verzlunar-
mannafélags Skagafjarðar og at-
vinnurekenda hafa ekki enn tekizt
Alþjóðlegt skákmót
hefst í Reykjavík
6. febrúar
ÞÓ-Reykjavík, mánudag.
Hinn 6. febr. n.k. hefst í Reykja
vík alþjóðlegt skákmót, sem ber
nafnið Reykjavíkurmótið. Þetta
mót er hið 5. í röðinni með þessu
nafni, en þau hafa verið haldin
annað hvort ár allt frá 1964.
Margir þektkir erlendir meist-
arar munu taka þátt í þessu móti.
Frá Sovétríkjunu.n koma Stein og
Tupmakov, frá Tékkóslóvakíu
kemur Hort og frá Rúmeníu kem
ur Geourgiu; frá Svíþjóð kemur
hinn ungi Ulf Anderson. Þá kepp
ir einn Englendingur og einn
Frakki. íslenzkir keppendur verða
þeir Friðrik Ólafsson, Guðmund-
ur Sigurjónsson, Magnús Sól-
mundarson, Jón Kristinsson,
Freysteinn ÞoTbergsson, Björn
Þorsteinsson, Bragi Kristjánsson
og Gunnar Gunnarsson.
Alls verða veitt 8 verðlaun á
mótinu og eru hæstu verðlaun
600 dalir og þau næst hæstu 500
dalir. Að auki verða svo veitt ein
fegurðarverðlaun.
Samkeppnin
Firaimhald af bls. 1.
daginn 20. marz. Þær skal ein-
kenna með sérstöku kjörorði,
og skal nafn höfundar og heim
ilisfang fylgja með í lokuðu
ógagnsæju umslagi, merktu
eins og tillögur.
Dómnefndina skipa Birgir á
Finnsson, formaður, Haraldur ;
Hannesson, Helga B. Svein-
björnsdóttir, Hörður Ágústsson
og Steinþór Sigurðsson. Þátt- „
taka er heimil öllum íslenzk- i
um ríkisborgurum. Frjálst er |
að keppa um hvort atriði fyrir
sig, merkið eða myndskreyt-
inguna.
og stendur verkfallið því enn. Eru
verzlanir í Skagafirði því lokaðar,
það er að segja kaupfélgsverzl-
anirnar, því aðrar verzlanir í
liérað’.nu eru ekki það stórar, að
kaupmennirnir sjálfir ráði ekki
við að halda þeim opnum.
Á laugardag sl. var haldinn
samningafundur hjá sáttasemjara
ríkisins, Torfa Hjartarsyni, en
hann vatrð árangurslaus. En verk- 3
fall verzlunarmanna hófst á mið- a
nætti aðfaranótt laugardags.
Nú er komin fram miðlunartil- tí
laga í deilunni og er fundur boð- jfj
aður í Verzlunarmannafélagi Skaga
fjarðar í kvöld, mánudagskvöld.
Á að leggja sáttatillöguna þar fyr- -
ir og greiða um hana atkvæði. En U
vafasamt er að úr því geti orðið. |
Hætt er við að þeir aðilar E
að deilunni, sem fóru suð-
ur til að sitja samniniga-
fundina, komist ekki norður í
tæka tíð. Til stóð að þeir færu
með flugyél til Sauðárkróks síð-
degis í dag, en flugveður er ekk-
ert, og komast þeir því ekki norð-
ur með sáttatillöguna upp á vas-
ann. En vera má að hún verði sím-
send og veirði rædd og greidd um
hana atkvæði á fundinum í kvöld. i
Kröfur ver zlunarmanna í Skaga a
firði eru — að fá frí á laugardög- f
um. Þegar samið var um 40 stunda
vinnuviku töldu verzlunarmenn
einsætt að um væri að ræða fimm K
daga vinnuviku. en ekki að fá frí
hálfan mánudaginn, eða að stytta
vinnutímann um hálfa klukku- j
stund á dag eins og vinnuveitend- J
ur hafa boðið upp á.
ÁVIÐA
WffiKKSD
Verðlagsmál
: landbúnaðarins
f viðtali, sem Tíminn átti við
S Jónas Jónsson, aðstoðarland-
3 búnaðarráðherra, kemur fram
að öll höfuðatriði landbúnaðar-
Ilöggjafar eru nú í endurskoðun.
Eitt meginatriði þessarar
endurskoðunar eru verðlags-
málin. f september skipaði
Iandbúnaðarráðherra nefnd er
lýtur • formennsku Sveins
Tryggvasonar, framkvæmdastj.
Framleiðsluráðs landbúnaðar-
ins, til að endurskoða lögin um
Framleiðsluráð, verðskráningu
og verðmiðlun. Þessi endur-
skoðun er gerð í samræmi við
ákvæði málefnasamnings rík-
isstjórnarinnar, sem kveða á
um að lögin skuli endurskoð-
uð í samráði við Stéttarsam-
band bænda og að því stefnt
að Stéttarsambandið semji við
ríkisstjórnina um kjaramál
bændastéttarinnar og verðlagn
ingu búvara og að því stefnt
að kjör bænda verði sambæri-
leg launakjörum annarra vinn-
andi stétta.
Stéttarsamband bænda á
þrjá fulltrúa í þessari nefnd
og er Gunnar Guðbjartsson,
formaður Stéttarsambandsins,
einn þeirra.
Nefndin hefur þegar unnið
mikið starf og hefur nú lagt
fruindrög að frumvarpi fyrir
ráðlierra. Frumvarpið mun síð
an verða lagt fyrir aukaþing
Stéttarsambandsins, svo hon-
um gefist kostur á að gefa um
sögn um málið. Búizt er við
að þessi aukafundur Stéttar-
sambandsins verði kallaður
saman bráðlega. Hér er um
mjög veigamikið og mikilvægt
mál bændastéttarinnar að
ræða og raunar fyrir löngu
Ijóst, að hið gamla verðlagn-
ingarkerfi var gengið sér til
húðar. Sú breyiing, sem vænt-
anlega verður gerð, mun mjög
í átt við það, sem ríkir í ýms-
um nágrannalöndum um þesgi
efni.
Gylfaginning
í síðasta tölublaði Nýs lands
er m.a. fjallað um afstöðu Al-
þýðufloklcsins til ríkisstjórnar-
innar og þeirrar breytingar,
sem á hefði orðið síðan Gylfi
kom heim úr „endurhæfing-
unni“. Meðan Gylfi var úti
studdi Alþýðuflokkurinn öll
mál ríkisstjórnarinnar. Gylfi
kom lieim með nýtt hljóð i
strokkinn. Um það segir Nýtt
land:
„Eftir að Gylfi kom heim,
hcfur það komið í ljós, að
hann veit manna bezt hversu
gífurlega ógnvekjandi „hroll-
vckjan“ var orðin og hann trú
ir því ekki að ríkisstjórninni
takist að ráða við hana.
Ilann treystir á, að hennl
mistakist eða að honum og
Sjálfstæð' flokknum takist að
magna svo andsnúin þjóðfé-
lagsöfl, að hún verði ekki
langiíf.
Um hagsmuni verkalýðs og
vinnahdi stétta varðar hann
ekki í þessu máli og þess
vegna eru Alþýðuflokksmenn
REIÐIR. Þeir vita að dáðleysi
flokksins í tryggingamálum og
öðrum málum er varða kjör
lágtekjumanna, er nú öllum
Framhald á bls. 14.
Verkamann vantar
Okkur vantar verkamann til starfa. Upplýsingar
gefur verkstjóri, Njáll Guðnason.
Afurðasala S.Í.S.
------------------------------------------i
Snæfellingar - Snæfellingar j
Síðari þriggja kvölda spilakeppni framsóknarfélaganna hefst að í
Breiðabliki, 22. janúar. Spilað venður að Lýsuhóli, 12. febrúar I
og síðasta spilakvöldið verður að Lindartungu 26. febrúar. j
Dansað verður eftir spilakvöldin. Heildarverðlaun eru ferð til j
Kaupmannahafnar og vikudvöl þar, en auk þess verðlaun fyrir j
hvert kvöld. Frámsóknarfélögin. J
KEFLVfKINGAR
Samkvæmt ósk forráðamanna framsóknarfélaganna í Keflavík
geta félagsmenn þeirra fengið aðgöngumiða á lpiksýningu í Þjóð-
leikhúsinu, þriðjudaginn 25. janúar. Sýnd verður Nýársnóttin
eftir Indriða Einarsson. Venjulegt hópsýningarverð. Margrét
Haraldsdóttir tekur við miðapöntunum kl. 12—6, sími 1911.
Pantanir þurfa að vera komnar í síðasta lagi kl. fimm síðdegis
fimmtudaginn 20. janúar.
Verkfall verzlunarmanna í
Skagafirði stendur enn