Tíminn - 18.01.1972, Side 5

Tíminn - 18.01.1972, Side 5
 HtHaUDAGUR 18. janúar M1 TÍMINN i. . > . Einhvertíma endur fyrir tveim ur árum eða svo, sögðum við hérna í speglinum frá því, þeg ar Jane hans Tarzans brenndist, er hún var bundin viið tré. Jane þessi var danska stúlkan Kirst- en Swanholm, sem kallar sig Kitty Swan í Hollywood, þar sem hún starfaði. Eins og menn muna, skaddaðist hún mjög mikið í þessum bruna, sem varð vegna mistaka kvik- myndagerðarmannanna. En nú er Kitty að ná sér og er hún farin að syngja aftur frekar en ekkert, og þykir það krafta- verk. Mánuðum saman var hún svo illa farin, að óttazt var að áún yrði örkumla ævinlangt. En svo skrifaði henni júgóslavnesk- ur grasálæknir og bauðst til að hjálpa henni. Hann er kunnur fyrir að hafa gert allt að því kraftaverk í lækning- um. Kitty þáði og fór til Belgrad, þaæ sem hún lagðist inn hjá þeim gamla. Hann varð fyrir áfalli, þegar hann sá hana, því honum datt ekki í hug, að nokkur mann- eskja gæti verið svo illa íarin af brunasárum. En hann ákvað að reyna samt og eftir nokkra mánuði fóru sárin a@ gróa, en það liðu enn mánuðir, áður en Kitty gat gengið eða hreyft sig eðlilega. Unnusti hennar Ro- berto frá Róm sat alltaf hjá henni og ók henni um í hjóla- stól, Þegar hún fór að geta - Julie Andrews, eða Mary Poppins, hefur nú sýnt að hún g'etur ýmislegt fleira en sung- ið og leikið. Nú hefur hún skrifað bók. Julie hefur ekki haft tíma til að leika í nýjum myndum undanfarið vegna barneigna, en á meðan notaði hún tímann til að skrifa bók- — ★ — ★ — Ekki er ráð nema í tíma sé tekið, hugsa Norðmenn og eru farnir að velta fyrir sér eigin- mannsefni handa nýju prinsess unni sinni, sem er rétt hálfs fjórða mánaðar. Ungi maðurinn hér á myndinni þykir koma sterklega til greina, en hann heitir Johan Frisco og er Hol- landsprins. Prinsinn veitir þessu lítið fyrir sér, enda ekki farinn að líta í kring um sig í konuleit enn. Hann hefur mun meiri áhuga á leikfanga- bilum sínum, sem hann fékk í afmælisgjöf nýlega, en þá varð hann þriggja ára. MEÐ MORGUN KAFFINU Hann kallar mig alltaf Bubba. I>að er leyninafu, sem . „ . . . . við notum, þegar hann er á DÆMALAUSI DENNI iiuaiimmiuinimifiiiiiuuMmMiiiuimwmmmiiuimiinmininiuuiiMiiiio ina, sem heitir „Mandy“ og er nýkomin út í Bandaríkjunum. — ★ — ★ — Það hljómar ótrúlega, en það er víst satt: Hænurnar í ísrael hafa svo langa fætur, að eggin brotna, þegar þær verpa. Nú eru sérfræðingar farnir að leggja höfuðin í bleyti til að reyna að kynbæta hænsnin svo að þau fái styttri fætur. — ★ — ★ — setið uppi. Enn er þó talsvert eftir. Örin um allan lí'kamann tala sínu máli og það þarf margar aðgerðir til að fjarlægja þau. En Kitty er hamingjusöm og er að hugsa um að helga sig framtíðinni með unnustanum, en ekki í kvikmyndunum. Á minni myndinni sést Kitty, nokkrum sekúndum áður en eldurinn læsti sig um hana alla, en á stærri myndinni er hún eins og hún er nú. Caroline Kennedy verður ef til vill tennismeistari einn góð an veðurdag, að því er þjálfari hennar, Hank Fenten, segir. Hún er afar sterk og högg henn ar með spaðanum eru jafn- þung og karlmanns. En upp á síðkastið, hefur Caroline ekki verið jafn snör í snúingum og áður, því Jiún hefur bætt á sig 7 kílóum. Móðir hennar hefur áhyggjur af línum dótt- ur sinnar og hefur nú greitt Fenton 2400 krónur á tímann fyrir að láta stelpuna erfiða meira. — ★ — ★ — Leikarinn Dustin Hoffmann, þessi sæti, sem lék í frú Rob- inson, greiðir sálfræðingi sín- um hvorki meira né minna en 50 þúsund ísl. krónur á mán- uði. — Ég verð stressaður, ef ég fer ekki til sálfræðings á hverjum degi, segir Dustin. — Ég er svo óöruggur og á bágt með að ákveða mig. Sálfræð- ingurinn hjálpar mér með betta allt. Svo velta menn því fyrir sér, hvernig á því rtandi, að millj ónir Bandaríkiamanna geta ekki lifað án sálfræðiags, eru Kanat' stressaðri en við hin. eöa hafa sálfræðíngar heila- þvegið þá? — ★ — ★ — Roger Vadim ber sem kunn- ugt er, ákaflega rnikla virðingu fyrir stúlkum, á meðan þær I eru stúlkur á gamaldags hátt. Hins vegar segir hann, að ekk- ert fari eins í taugarnar á sér og frelsuð kona og bætir því viö að maður missi allan áhuga á kynlífi með þeim. Eins og er sefur hjá honum draumastúlka. Hún er dásamleg, hefur stór kaffibrún augu og lítinn totu- munn. En hún er líka ákveðin stúlka, þar sem henni hefur tekizt að fá Vadim til að brjóta þá reglu sína að vera einn í svefnherberginu. Hún heimt- aði að sofa h.iá honum — og fékk það, með því skilyrði að þegja á meðan hann les. Hún heitir Vanessa og er þriggja ára dóttir Vadims og Jane Fonda, sem nú er frelsuð og berst í.vrir jafnrétti i Banda- rikjunum. \n — Nei takk. Ég þckki mín takmörk og veit, að ég hef feng ið nóg. Það eina, sem vitað er um hraða ljóssins, er að það kem- ur til jarðarinnar allt of snemma á morgnana. — Þegar maður veit, að mað ur er ekki fallegur, neyðist maður til að halda að maður sé „sjarmerandi“. — Varð það drengur frök- en. Það verður að að halda upp á það. Ei.gið þér frí í kvöld? — Hefðurðu heyrt það Didda, að það eru til veitingastaðir með sérstökum leikherbergj- um fyrir börn. — Já, það er ágætt, en hvað á þá að gera við karlmenn, sem endilega vilja leika sér? Einn af eftirlitsbílum lög- ireglunnar hafði um nokkrun tíma haft auga með stórum flutningabíl. Bílstjórinn ók svo- lítinn spöl, nam staðar, hljóp út og í kring um bílinn með- an hann barði hann allan ut- an. Loks fóru lögreglumennirn- ji' til mannsins og spurðu hann, hverju þetta háttaleg sætti. f ljós kom, að maðurinn var að flytja dúfur og hann varð að sjá um, að þær sætu ekki alltaf á prikunum, til þess að farmur- inn yrði ekki of þungur. Faðirinn sló í borðið oð sagði reiðilega við dóttur sína: — Fyi'st varstu trúlofuðu Alla, síðan Bigga. Nú ertu hætt við Davíð og farin að vera með Eiríki. Ætlarðu að fara í gegn um allt stafrófið, eða hvað? Frúin var frá sér numin af #le@i, þegar hún loksins var búm að ná eðlilegri þyngd sinni eför að hafa fætt þriðja barn sitt Hún vonaði, að eiginmað- urinn tæki eftir því, en varð fyrir sárum vonbrigðum, þegar hún kom að honum framan við spegilinn, þar sem hann stóö og dáðist að sjálfum sér. Hann strauk sig allan og sagði í að- dáunartón: — Hver skyldi trúa Því, að ég væri þriggja barna faðir? SBren, fimm ára kom inn til moðœ: sinnar og spurði; hvar hún hefði verið, þegar hann fæddist. — Ég var á fæðingardeild- iimi, svaraði hún brosandi. — En hvar var pabbi? — Hann var í vinnunni. — Hvað, var þá enginn hehna, þegar ég kom?

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.