Tíminn - 18.01.1972, Page 5
HtHaUDAGUR 18. janúar M1
TÍMINN
i. . > .
Einhvertíma endur fyrir tveim
ur árum eða svo, sögðum við
hérna í speglinum frá því, þeg
ar Jane hans Tarzans brenndist,
er hún var bundin viið tré. Jane
þessi var danska stúlkan Kirst-
en Swanholm, sem kallar sig
Kitty Swan í Hollywood, þar
sem hún starfaði. Eins og
menn muna, skaddaðist hún
mjög mikið í þessum bruna,
sem varð vegna mistaka kvik-
myndagerðarmannanna. En nú
er Kitty að ná sér og er hún
farin að syngja aftur frekar en
ekkert, og þykir það krafta-
verk. Mánuðum saman var hún
svo illa farin, að óttazt var að
áún yrði örkumla ævinlangt. En
svo skrifaði henni júgóslavnesk-
ur grasálæknir og bauðst til að
hjálpa henni. Hann er kunnur
fyrir að hafa gert allt að
því kraftaverk í lækning-
um. Kitty þáði og fór
til Belgrad, þaæ sem hún
lagðist inn hjá þeim gamla.
Hann varð fyrir áfalli, þegar
hann sá hana, því honum datt
ekki í hug, að nokkur mann-
eskja gæti verið svo illa íarin
af brunasárum. En hann ákvað
að reyna samt og eftir nokkra
mánuði fóru sárin a@ gróa, en
það liðu enn mánuðir, áður en
Kitty gat gengið eða hreyft sig
eðlilega. Unnusti hennar Ro-
berto frá Róm sat alltaf hjá
henni og ók henni um í hjóla-
stól, Þegar hún fór að geta
-
Julie Andrews, eða Mary
Poppins, hefur nú sýnt að hún
g'etur ýmislegt fleira en sung-
ið og leikið. Nú hefur hún
skrifað bók. Julie hefur ekki
haft tíma til að leika í nýjum
myndum undanfarið vegna
barneigna, en á meðan notaði
hún tímann til að skrifa bók-
— ★ — ★ —
Ekki er ráð nema í tíma sé
tekið, hugsa Norðmenn og eru
farnir að velta fyrir sér eigin-
mannsefni handa nýju prinsess
unni sinni, sem er rétt hálfs
fjórða mánaðar. Ungi maðurinn
hér á myndinni þykir koma
sterklega til greina, en hann
heitir Johan Frisco og er Hol-
landsprins. Prinsinn veitir
þessu lítið fyrir sér, enda ekki
farinn að líta í kring um sig
í konuleit enn. Hann hefur
mun meiri áhuga á leikfanga-
bilum sínum, sem hann fékk
í afmælisgjöf nýlega, en þá
varð hann þriggja ára.
MEÐ MORGUN
KAFFINU
Hann kallar mig alltaf
Bubba. I>að er leyninafu, sem
. „ . . . . við notum, þegar hann er á
DÆMALAUSI
DENNI
iiuaiimmiuinimifiiiiiuuMmMiiiuimwmmmiiuimiinmininiuuiiMiiiio
ina, sem heitir „Mandy“ og er
nýkomin út í Bandaríkjunum.
— ★ — ★ —
Það hljómar ótrúlega, en það
er víst satt: Hænurnar í ísrael
hafa svo langa fætur, að eggin
brotna, þegar þær verpa. Nú
eru sérfræðingar farnir að
leggja höfuðin í bleyti til að
reyna að kynbæta hænsnin svo
að þau fái styttri fætur.
— ★ — ★ —
setið uppi. Enn er þó talsvert
eftir. Örin um allan lí'kamann
tala sínu máli og það þarf
margar aðgerðir til að fjarlægja
þau. En Kitty er hamingjusöm
og er að hugsa um að helga sig
framtíðinni með unnustanum,
en ekki í kvikmyndunum. Á
minni myndinni sést Kitty,
nokkrum sekúndum áður en
eldurinn læsti sig um hana alla,
en á stærri myndinni er hún
eins og hún er nú.
Caroline Kennedy verður ef
til vill tennismeistari einn góð
an veðurdag, að því er þjálfari
hennar, Hank Fenten, segir.
Hún er afar sterk og högg henn
ar með spaðanum eru jafn-
þung og karlmanns. En upp á
síðkastið, hefur Caroline ekki
verið jafn snör í snúingum
og áður, því Jiún hefur bætt
á sig 7 kílóum. Móðir hennar
hefur áhyggjur af línum dótt-
ur sinnar og hefur nú greitt
Fenton 2400 krónur á tímann
fyrir að láta stelpuna erfiða
meira.
— ★ — ★ —
Leikarinn Dustin Hoffmann,
þessi sæti, sem lék í frú Rob-
inson, greiðir sálfræðingi sín-
um hvorki meira né minna en
50 þúsund ísl. krónur á mán-
uði. — Ég verð stressaður, ef
ég fer ekki til sálfræðings á
hverjum degi, segir Dustin. —
Ég er svo óöruggur og á bágt
með að ákveða mig. Sálfræð-
ingurinn hjálpar mér með betta
allt.
Svo velta menn því fyrir sér,
hvernig á því rtandi, að millj
ónir Bandaríkiamanna geta
ekki lifað án sálfræðiags, eru
Kanat' stressaðri en við hin.
eöa hafa sálfræðíngar heila-
þvegið þá?
— ★ — ★ —
Roger Vadim ber sem kunn-
ugt er, ákaflega rnikla virðingu
fyrir stúlkum, á meðan þær I
eru stúlkur á gamaldags hátt.
Hins vegar segir hann, að ekk-
ert fari eins í taugarnar á sér
og frelsuð kona og bætir því
viö að maður missi allan áhuga
á kynlífi með þeim. Eins og er
sefur hjá honum draumastúlka.
Hún er dásamleg, hefur stór
kaffibrún augu og lítinn totu-
munn. En hún er líka ákveðin
stúlka, þar sem henni hefur
tekizt að fá Vadim til að brjóta
þá reglu sína að vera einn í
svefnherberginu. Hún heimt-
aði að sofa h.iá honum — og
fékk það, með því skilyrði að
þegja á meðan hann les. Hún
heitir Vanessa og er þriggja
ára dóttir Vadims og Jane
Fonda, sem nú er frelsuð og
berst í.vrir jafnrétti i Banda-
rikjunum.
\n
— Nei takk. Ég þckki mín
takmörk og veit, að ég hef feng
ið nóg.
Það eina, sem vitað er um
hraða ljóssins, er að það kem-
ur til jarðarinnar allt of
snemma á morgnana.
— Þegar maður veit, að mað
ur er ekki fallegur, neyðist
maður til að halda að maður
sé „sjarmerandi“.
— Varð það drengur frök-
en. Það verður að að halda
upp á það. Ei.gið þér frí í
kvöld?
— Hefðurðu heyrt það Didda,
að það eru til veitingastaðir
með sérstökum leikherbergj-
um fyrir börn.
— Já, það er ágætt, en hvað
á þá að gera við karlmenn,
sem endilega vilja leika sér?
Einn af eftirlitsbílum lög-
ireglunnar hafði um nokkrun
tíma haft auga með stórum
flutningabíl. Bílstjórinn ók svo-
lítinn spöl, nam staðar, hljóp
út og í kring um bílinn með-
an hann barði hann allan ut-
an. Loks fóru lögreglumennirn-
ji' til mannsins og spurðu hann,
hverju þetta háttaleg sætti. f
ljós kom, að maðurinn var að
flytja dúfur og hann varð að
sjá um, að þær sætu ekki alltaf
á prikunum, til þess að farmur-
inn yrði ekki of þungur.
Faðirinn sló í borðið oð sagði
reiðilega við dóttur sína: —
Fyi'st varstu trúlofuðu Alla,
síðan Bigga. Nú ertu hætt við
Davíð og farin að vera með
Eiríki. Ætlarðu að fara í gegn
um allt stafrófið, eða hvað?
Frúin var frá sér numin af
#le@i, þegar hún loksins var
búm að ná eðlilegri þyngd sinni
eför að hafa fætt þriðja barn
sitt Hún vonaði, að eiginmað-
urinn tæki eftir því, en varð
fyrir sárum vonbrigðum, þegar
hún kom að honum framan við
spegilinn, þar sem hann stóö
og dáðist að sjálfum sér. Hann
strauk sig allan og sagði í að-
dáunartón: — Hver skyldi trúa
Því, að ég væri þriggja barna
faðir?
SBren, fimm ára kom inn til
moðœ: sinnar og spurði; hvar
hún hefði verið, þegar hann
fæddist.
— Ég var á fæðingardeild-
iimi, svaraði hún brosandi.
— En hvar var pabbi?
— Hann var í vinnunni.
— Hvað, var þá enginn
hehna, þegar ég kom?