Tíminn - 18.01.1972, Qupperneq 16

Tíminn - 18.01.1972, Qupperneq 16
Þriðjudagur 18. janúar 1972 Forseíi íslands og utanríkisráð- herra við út- förina Ákveðið heíur verið að forseti íslands dr. Kristján Eldjám verði viðstaddur útför Friðriks Dana- kr,rjmes ásamt Einari Ágústssyni uutiiríkisráðherra. 107 erlend veiðiskip ÞÓ—Reykjavík, mánudag. Núna eru 107 erlend veiðiskip að veiðum umhverfis landið og sem fyirr eru þau brezku flest eða 84 togarar, næst koma 17 þýzkir togarar, þá 3 belgiskir, 2 rússnesk- ir og einn færeyskur línuveiðari. Langflestir brezku togaranna eða 55 eru að veiðum djúpt úti af Austfjörðum og halda þeir sig mest í Seyðisfjarðar- og Noirð- fjarðardýpi. Þýzku togaramir halda sig hins vegar djúþt úti af Suð-austurlandi og Reykjanesi. Lærlingar voru við hárgreiðslu ÞÓ—Reykjavík, mánudag. Samningar náðust ekki á fund- um hárgreiðslusveina og meist- ara um helgina og hefur deilunni nú verið vísað til sáttasemjara. Það, sem mest ber á milli er til- högun vinnuvikunnar, en um marg ar aðrar kröfur hefur þokazt í samkomulagsátt. Á laugardag þurftu hárgreiðslu- sveinar að standa verkfallsvakt og eitthvað bar á því, að þeir þurftu að banna nemum að vinna, en í verkfallinu verða lærlingar að leggja niður vinnu. Bátar heim úr Norðursjó ÞÓ—Reykjavík, mánudag. Nú munu allir Norðursjávarbát- arnir vera á heimleið eftir tveggja vikna veru þar án þess að fá eina einustu síld. Vitað er að fyrstu Norðursjávarbátarnir, koma heim í kvöld og munu þeir væntanlega taka loðnunót strax um borð og nuga að henni. Það sama munu aðrir bátar, gera, sem verið hafa við veiðar í Norðursjó. Mikili fjöldi manna kom í danska sendiráðið í qær, til að rita nöfn sín í minningabók um Friðrik iriunda Danakonung, og á myndinni er Helgi Bergs bankastjóri að rita nafn sitt. Á flaggstöng sendiráðsins blakti danski fáninn í hálfa stöng í snjókomtmni í gær, en snævi þakin trén mynda fallegan ramma um fánann. (Tímamyndir Gunnar) 18 höfundar munu skrifa íslandssðpna - sem kemur út í fjórum bindum árið 1974 EJ—Reykjavík, mánudag. Ritun íslandssögunnar, sem gefa á út 1974, er nú að hefjast. íslandssagan verður væntanlega í fjórum bindum, og munu líklega 18 höfundar skrifa hana. Þetta kom fram á fundi, seim formaður og framkvæimdastjóri Þjóðhátíðarnefndar 1974, Matthías Jóhannessen og Indriði G. Þor- steinsson, áttu mcð blaðamönnum í dag. Þeigar hefur verið veitt hálfri milljón króna til íslandssögunnar, sérstök ritnefnd sér um efni bók- arinnar, val höfunda og niðurröð- un efnis. Sagði Matthías, að sér litist vel á undirbúning þessa verks og ætti íslandssagan að geta orðið góðuir minnisvarði um þjóðhátíðina 1974. Sýningabók um sögualdarbæinn. Þá kom fram á fundinum, að Hörður Ágústsson hefur lokið við að seimja sýningabók um söguald- arbæinn, og er handritið að fara í prentun. Nemendur í Myndlista- og handíðaskólanum sjá um útlit bókarinnar, en hún verður seld þegar bærinn verður sýndur. Enn er óákveðið, hvort eða hvar sögualdarbærinn verður byggður, en það er mál sem al- þingi ákveður. Er sennilegt, að alþingi taki ákvörðun um málið nú í vetur. ' Þeir staðir, sem nefndir hafa verið sem hugsanlegir bygginga- staðir, eru Þjórsárdalur. Borg á Mýrum og Reykjavík, en það er alþingis að taka áikvörðun um byggingarstaðinn. 100 þúsund á Þingvöllum? Þjóðhátíðarnefndin stefnir að því, að hátíðin hefjist í ársbyrj- un 1974 og standi út allt árið. Verður gefin út dagskrá um hina mamgvíslegustu atburði ársins, sem á einhvern hátt tengjast þjóðhá tíðarhöldunuim. Settar hafa verið á fót nefndir í hinum ýmsu hér- uðum og landshlutum, og imunu þær sjálfsagt sjá um þjóðhátíða- hald hver um sig. Hins vegar verð- ar svo sameiginleg þjóðhátíð á Þingvöllum, sennilega um m'ánaða- mótin júlí/ágúst, og mun standa í 2—3 daga. Er búizt við, að þangað komi allt að 100 þúsund manns. Þegar hefur fengizt leyfi til að halda þessa aðalhátíð á Þingvöll- um, og eru framundan viðræður við viðkomandi aðila um aðstæð- uir og fyrirkomulag hátíðahald- anna þar. Framhald á Ws. 14. Míkið að gera eftir verkfallið ÞÓ—Reykjavík, mánudag. Þessa dagana er mikið að gera hjá strandferðaskipunum. Guðjón Teitsson, forstjóri Skiptúgerðar- innar sagði í viðtalj við blaðið í dag, að Hekla hefði farið strax á föstudagskvöld til Vestfjarða og væri hún nú að koma úr þeirri ferð. Síðari hluta vikunnar mun skipið fara vestur um land í hringferð. Annað kvötd mun Esja fara austur um land í hrjngferð og í Vestmannaeyjum mun hún taka talsvert magn af beitusíld, sem fara á til Norður- og Vesturlands. Þá er áætlað að Herjólfur fari Framhald á bls. 14. Búiit irið fyrstu bátunum á loðnumiðin fljótlegu ÞÓ—Reykjavík, mánudag. „Loðnan er að byrja að koma inn á Lónsbugtina og þangað er líka kominn mikið af fugli, sem er góðs viti,“ sagði Jakob Jakobs- son, fiskifræðingur um borð i Árna Friðrikssyni er blaðið ræddi við hann í dag. Jakob sagði. að loðnan væri aíls staðar að síga suður með Ausifjörð um, og úr þessu mætti fara að búast við fvrstu bátunum á mið- in t.d. cru allir íslenzku síldveiöi- bátarnir, sem hafa veriö við veið- ar í Norðursjó á heimleið. Ekki er gott að segja til um hvernig loönan mun haga sér að þessu únni, þar sem hitinn í sjónum er óvanalega mikill út af SA landi um þessar mundir. Loðnugangan, sem er komin lengst suður, er nú komin í 5 gráðu heitan sjó og út af Hornafirði er sjórinn í kring um 7 gráðu heitur. Jakob taldi engan vafa á því, nð loðnuveiðin gæti hafizt nú al- vog á næstunni, on reynsla und- anfarinna ára hefur sýnt að frá Hvalbak og inn á Lónsbugt, þar sem loðnan hefur oft veiðzt fyrst, er hún um 10 daga. Þær prufur, sem þeir á Árna hafa tekið, hafa sýnt að hér er um kynþroska loðnu að ræða, en vegna veðurs hafa þeir ekki getað tekið prufur sunn ar en við Papey, en þar er talsvert loðnumagn á leiðinni. Síðast liðinn föstudag fór Ámi Friðriksson inn á Stöðvarfjörð með tvö. tonn af loðnu sem fór í bcitu. I i i 4 \ | ! I ) )

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.