Tíminn - 20.01.1972, Side 1

Tíminn - 20.01.1972, Side 1
1 SENDIBILASTODIN HF 15. tbl. — Fimmtudagur 20. janúar 1972 — 56. árg. * * * * * * * * * * * * * * * FRYSTIKISTUR * ^ 0 FRYSTISKÁPAR * * * * * HAFTÆKJADEtLD, HAFNARSTHÆTI 23, SlMl 1S39S Jfi Mikið tjón af völdgm brims á Austfjörðum: Trillur eyðilögðust - hurðir og gluggar brotnuðu og skemmdir urðu víða á hafnarmannvirkjum ÞÓ-Reykjavík, miðvikud. Miklar skemmdir urðu víða á Austfjörðum í for- áttu brimi, sem þar var í nótt. Hafátt hefur verið ríkjandi fyrir austan all- lengi og á stórstraumsflóð- inu í nótt þyngdi sjó mik- ið, og gekk langt á land upp. Ekki fylgdi þessu brimi neitt rok, en sums- staðar var allhvasst. Að sögn kunnugra manna á Austurlandi hefur slíkt brim ekki komið síðan 1930 og sömu menn segja, að ef illviðri hefði geysað með brimrótinu í nótt, hefðu skemmdir af völdum þess vafalaust orðið miklu meiri. Á Höfn í Hornafirði flæddi sjór inn í kjallara fiskverkunarhúsa og trill- ur og nótabátar, sem stóðu á þurru landi, tók á flot í flóðinu. Á Breiðdalsvík rauf sjórinn 5—6 metra skarð í nýja hafnarbakk- ann á staðnum og sjór flæddi inn í síldarverk- smiðjuna og hefur hann vafalaust sken.mt rafmót- ora, sem þar voru. Á Stöðv arfirði braut sjórinn rúður og hurðir í frystihúsinu og til að komast um borð um bát, sem lá við bryggju, þurftu menn að nota 9 tonna jarðýtu, öðrum far- artækjum hefði skolað burtu vegna sjógangs. í Neskaupstað hurfu tvær trillur með öllu, ein til brotnaði í spón og aðra tók út en rak á land aftur. Tvær trillur hurfu Tveir trillubátar hurfu alveg, einn brotnaði í sjón, þar sem hann stóð í f jörunni, annan tók út og rak hann á land fyrir botni fjarðarins, sagði Bene- dikt Guttonmsson, fréttaritari Tímans í Neskaupstað. Mikið austan hvassviðri var í Neskaupsta® í nótt, og fylgdi því foráttu- briim. Brimið mun hafa tekið báða bátana út, sem hurfu og hafa menn ekkert séð af þeim. Framhald á bls. 14. Ytt og spólað í Reykjavík Hætta á að vegir teppist víða OÓ-Reykjavík, miðvikudag. Mikið snjóaði á Vestur- og Suð- urlandi í dag og urðu víða um- ferðartafir vegna fannfcrgis og hríðarveðurs. Annars staðar á landinu var ástandið betra, en lausamjöll lá yfir nær alls staðar og hætta á að vegir lokuðust, ef vind hreyfði og skaflar mytiduð- ust. í Reykjavík og nágrenni urðu miklar umferðartruflanir, aðal- lega vegna illa dekkjaðra bíla, sem stöðvuðu alla umferð á mörg um stöðum í lengri eða skemmri tíma. Um þrjúleytið hætti að Alþingi í dag EB-Reykjavík, miðvikudag. Alþingi kemur saman á nýjan leik á morgun, fimmtudag. Er þingið nú kvatt saman óvenju snemma eftir jólahlé, og er það vegna þess að skattafrumvörp rík isstjórnarinnar bíða afgreiðslu þingsins. Á morgun verður fundur í Sam einuðu þingi. Hefst hann kl. 14, og eru á dagskrá nokkrar fyrir- spurnir og þingsályktanatillögur. snjóa og gekk umferð sæmilega eftir það. Upp úr hádeginu varð umferðar öngþveiti á Hafnarfjarðarvegin- um í Kópavogi. Sérstaklega var ástandið slæmt norðanverðu í hálsinum og mynduðust þar lang- ar bílalestir um tíma. Þar var aðallega hálka sem tafði umferð- ina. Vegurinn gegnum Kópavog var ekki ruddur, en hinsvegar var Vogatungan rudd og yfir Arnar- neshæðina, en þar urðu miklir umferðarörðugleikar. Á móts við Engidal. norðan Hafnarfjarðar, lokaðist vegurinn Framhald á bls. 14. Hér að ofan og neðan ero svipmyndir úr umferðinni í Reykjavlk eftir hádegið í dag. Lögregluþjónar voru víða til taks að ýta á bíla, sem stöðvuðu miklar umferðaræðar, og í dimmustu éljunum veitti ekki af að aka með fullum Ijósum (Tímamynd Gunnar)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.