Tíminn - 21.01.1972, Síða 2

Tíminn - 21.01.1972, Síða 2
2 TIMINN FÖSTUBAGUR 21. janúar 1971 Á síðasta ári komu 15 bátar að meðaltali á dag til Þorlákshafnar Brýn nauðsyn á stækkun og endurbótum hafnarinnar Brýn nauSsyn er nú orðin á, að stækka höfnina i Þorláks- höfn, því stöðugt fleiri bátar eru nú gerðir þaðan út, auk þess sem mikill fjöldi báta landar þar afla sínum, sem síðan er ekið til ann- arra verstöðva. Mánudaginn 10. janúar var boðað til fundar í Þorlákshöfn að frumkvæði stjórnar lands- hafnarinnar í Þorlákshöfn, og á Kona slasaðist OÓ-Reykjavík, fimmtudag. Alvarlegt umferðarslys varð í Reykjavik kl. 8,30 í morgun. — Volkswagenbíl var ekið austur Hjarðarhaga og lenti fullorðin kona, sem var aSf ganga yfir göt- una, fyrir honum. Meðal meiðsla, sem konan hlaut voru fótbrot, hún fór úr axlarlið og meiddist á höfði og andliti. Mikil hálka var þegar slysið varð. Ökumaðurinn sá þegar kon an gekk út á götuna og hemlaði, en skall þá utan í mannlausum bíl og af honum á konuna. Lenti hún framan á bílnum og kastaðist upp á farangursgeymsluna og á framrúðuna, sem brotnaði og skarst konan þá einnig í andliti. fund þennan mættu samgöngu- ráðherra ásamt ráðuneytisstjóra, hafnarmálastjóri, þingmenn Suð urlandskjördæmis, hreppsnefnd Ölfushrepps, og fulltrúar útvegs- manna í Þorlákshöfn. Gunnar Markússon formaður stjórnar landshafnarinnar hef- ur sent Tímanum frásögn af fundinum: „Á fundinum kom fram, að á síðasta ári hefðu, að meðaltali komið í höfnina rúmlega 15 bát- ar á dag allt árið um kring. Á vetrarvertíðinni mánuðina marz og apríl hefðu hinsvegar verið, að meðaltali tæplega 38 bátar á dag hér í höfninni. Einnig var upplýst að af tæp- lega 30.000 tonna afla, sem hér barst á land á síðasta ári, hefðu aðeins um 17.000 tonn verið unn- in hér á staðnum en hitt flutt burt og mest á Faxaflóasvæöið eða tæp 11.000 tonn. Árið 1950, sem er fyrsta ár nú- verandi byggðar í Þorlákshöfn, voru hér á vertíð 5 bátar, sam- tals 104 tonn að stærð. Nú, í vetur, verða hér um 20 bátar, sem samtals eru tæplega 1900 tonn. Auk heimabáta hér leita svo bátar úr verstöðvunum austan Ölfusár nokkuð hingað og í ill- viðrum getur skeð að þeir séu hér flestir eða allir, en þeir eru um hálfur annar tugur. Ofan á allt þetta bætist svo nokkuð stór floti Faxaflóabáta A Allt skal jafnt Menn tala I útvarp og skrifa í blöS og vlrSast hafa skoSanir á því sem miSur fer, án þess þó aS þora að halda fram þessari skoðun sinni, nema hafa tryggt i upphafi máls einhverskonar jöfnuð með dæmum um, að þótt þetta sé nú vont þarna, þá hafi það ekki verlð betra í hinum staðnum. Þetta getur leitt menn út I hreinar ógöngur, og þeir geta jafn- vel orðið vísir að því að fara rangt með í hinni smásmugulegu leit að ódæmum á móti ódæmi. Einkum fara menn stundum flatt ij þessu, þegar þeir fara að ræða fram og aftur um elnhver|a þætti mála í Rússlandi, en treysta sér ekki til að fjalla um þá, nema hafa ( upp- hafi nefnt að ekki sé nú ástandið betra i Bandarikjunum. Nýlega urðu þessa dæmi í hljóðvarpinu, þegar kunnur útvarpsmaður gerðl geðvelki dóma yfir rithöfundum í Rússlandi að umtalsefni. Verður að telja þarft verk að vekja máls á sliku atferli. Hins vegar var eins og fyrirlesarinn vildi tryggja sig fyrir ámæli um ein- hliða málflutning, þvi hann byrjaði á því að upplýsa að skáldið Esra Pound hefði verið lokaður inni f geðveikrahæli í Bandaríkjunum ár- um saman upp úr síðustu heims- styrjöld. Satt er það, að Ezra Pound var lokaður Inni f geðvelkrahæli f Bandarík junurn og líkaði flestum stórilla, einnig menningarmönnum vestra. Ezra Pound fór eins og mörg um f heimsstyrjöldinni, að hann vann sér til óhelgi nokkuð. Hann talaði á móti Bandamönnum frá Rómaborg á stríðsárunum, og var talinn f hópi stríðsglæpamanna að striði loknu. Vinum hans bandarísk- um, svo og bandarískum ráðamönn- um fannst hart aðgöngu, að þurfa að meðhöndla skáldið sem strfðs- glæpamann. Sem slíkur átti hann dauðarefslngu yflr höfði sér. Strfðs- glæpamönnum var ekki hlíft í strfðs- lok. Þeir voru skotnir viðhafnariaust og hvíla nú f gleymsku velflestir. Knut Hamsun fékk slíka meðferð hjá Norðmönnum eftir strfðlð, að þeim þykir nóg um í dag, þótt þeir orðuðu aldrei að stytta honum ald- ur. Ezra Pound var leystur undan hinum þunga dómi, brotlegur sem hann var, með tæknllegum brögð- um, sem tryggðu honum vist á hæli, þar sem hann dvaldist sem elns- konar samvizkubit á Bandarikja- mönnum unz Rómar-ávörpin voru fyrnd og gleymd. Ekkert i máli Ezra Pound er sam- bærilegt við þau mál, sem nú eru rekln gegn rússneskum rithöfund- um. Forsendur er allar aðrar. Sá sem vísar til jöfnuðar við Pound þegar hann ræðir um hegðun rúss- neskra yfirvalda, er elnungis að lýsa því yflr að hann þori ekki að hafa þá skoðun, sem honum býr þó í brjóstl. Það er hvorkl gáfulegt né fint, en það tryggir gott veður hjá þeim, sem eiga sálufélag við hlð rauða dómsvald. Svarthöfði. og er af 11 sá, sem fluttur er vest- ur yfir Heiði, órækasta vitnlð um þær landanir. Þegar þess er gætt, að höfnin hér er ekki öruggt lægi nema 15 bátum, af þeirri stærð, sem nú er algengust, og tæplega það ef djúpri lægð fylgir stórstraumur og suðaustan hafrót, gefur auga leið hver vandræði hér geta skap azt. í framhaldi af þessum upplýs- ingum var svo rætt um úrbætur, en þar sem ekki liggja fyrir end- anlegar rannsóknir á stækkun- armöguleikum hafnarinnar var hér aðeins um að ræða skoðana- skipti en engar ákvarðanir tekn- ar. Hins vegar voru allir fundar- menn sammála um að brýn nauð syn væri á úrbótum og það hið fyrsta." LEIÐRÉTTING Launamál póstmanna Póstmannafélag íslands hef ur sent stjórn BSRB eftirfar- andi bréf um launakjör póst- manna og „forskotið á sæl- una“, sem sagt hefur verið að ríkisstarfsmenn hafi fengið í síðustu kjarasamningum: Á blaðamannafundi, sem Halldór E. SigurCsson fjár- málaráðherra efndi til þann 5. janúar 1972, sagði hann m.a. að ríkisstarfsmenn „hafi tekið forskot á sæluna“ með síðustu kjarasamningum. Einnig sagði hann, að með kjarasamningun um hafi verið ætlazt til, að það væri leiðrétt sem opinber ir starfsmenn hefðu dregizt aftur úr. Þá hafi verið reiknað með um 35%, en í ljós hafi komið, að hækkunin varð 42 —44%. Það má vera, að meðalút- gjaldaaukning ríkissjóðs vegna kjarasamninganna nemi 35% þegar samningar hafa að fullu tekið gildi 1. júlí 1972, en ráð herra hlýtur einnig að vera Ijóst, að kúfurinn af þessari Póstaðstoðarmaður: Byrjunarl. skv. Byrjunarl. eldri samn. skv. núg. samn. kr. 16.461.00. 16.973,00 Bréfberi: Kr. 15.714,00 17.690,00 Stjórn P.F.Í. lýsir því yfir einhuga stuðningi við BSRB í hækkun er vegna hækkana hjá hærri launaflokkunum og jafnframt þeim fámennari, meðan aðeins lítill hluti hefur fallið láglaunamönnum í té. Það væri fásinna að halda því fram, að þeir sem gegna meiriháttar störfum fyrir hið opinbera, störfum sem krefjast langrar skólagöngu og hæfni f starfi, skuli vera greidd lægri laun en gerist á hinum frjálsa vinnumarkaði, en það hlýtur að vera ennþá meiri fásinna að ætla, að vegna þess að þess ir menn hafa nú fengið leið- réttingu mála sinna, þá skuli láglaunamennirnir greiða fyr- ir það. Þess má einnig geta, að stytting vinnuvikunnar hjó þeim sem þess áttu að njóta hefur meira verið í orði en & borði. Til að skýra örlítið við hvað hér er átt eru sýnd tvö dæmi um það „forskot á sæluna“, sem póstmenn hafa tekið við sxðustu kjarasamninga. Hækkun í kr. Hækkun { % 512,00 3,11 1.976,00 12,58 deilu þeirri er nú stendur yfir. Starfsmannafélag Hafnar- fjaröar styður BSRB Sú villa var í frásögn í blaðinu í gær af gjafaveitingum til Hand- ritastofnunar íslands, að sagt var að 16 landssamtök hefðu gefið stofnuninni myndastyttu eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal. Listamaðurinn sjálfur ánafnaði stofnuninni styttuna, sem Páll Ásgeir Tryggvason afhenti henni svo formlega á miðvikudaginn. Er fólk beðið velvirðingar á þess um mistökum. Fjölsóttur fundur í Starfs mannafélagi Hgfnarfjarðar, sem haldinn var þriðjudaginn 18. jan. 1972, samþykkti einróma eftirfar andi ályktanir: 1. Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við aðgerðir stjórnar B.S.R.B. í deilum þess við ríkis- stjómina og hvetur alla oipnbera starfsmenn til þess að standa fast saman og reyna með öllum til- tækum ráðum, að koma í veg fyrir þá rangtúlkun á gildandi lögum, sem stjórnin hefur gert sig seka um. 2. Fundurinn vill vekja athygli á því, að hagsmunir bæjarstarfs- manna og ríkisstarfsmanna fara að öllu leyti saman í þessari bar- áttu. 3. Fundurinn mótmælir harð- lega þeirri ákvörðun bæjarráðs Hafnarfjarðar að peita stjórn fé- lagsins um frekari viðræður um framlagðar kröfur, scm eru í fullu samræmi við nýgerða kjarasamn- inga verkalýðshreyfingarinnar og 6. gr. reglugerðar um kjarasamn- inga starfsmanna sveitarfélaga, sbr. 7. gr. laga nr. 55/1962. 4. Fundurinn vill benda á, að með síðustu kjarasamningum tókst opinberum starfsmönnum að ná raunhæfari samanburði við laun á frjálsum vinnumarkaði en áður hafði verið. Fundurinn harm ar það, að þær áfangahækkanir, sem samið var um í síðustu kjara samningum, skuli nú vera notað ar sem tylliástæða fyrir því að neita opinberum starfsmönnum um hliðstæðar kjarabætur og sam ið var um 4. des. s.l. milli at- vinnurekenda og ASÍ og aðildar félaga þess. 5. Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við stjórn og kjararáð BSRB við að ná fullum samn- ingsrétti. þar með fullum verk- fallsrétti, til handa opinberum starfsmönnum. Vinningaskrá Happdrættis F ramsóknarflokksins 1971 VINNINGASKRÁ 1. Blfreið: nr. 9203. 2. Snjósleði: nr. 31970. 3. Sunnuferð: nr. 9320. 4. Segulbandstæki I, nr. 35155. 5-10. Reiðhjól: nr. 3842, 18365, 23168, 26501, 31574 og 37500. 11-12. Segulbandstækl II., nr. 21949 og 37771. 13-15. Mynd-sýningavélar: nr.6893, 16414 og 43853. 16-25. Sportvörur: nr. 9684, 13343, 18776, 18964, 20750, 26435, 28990 31396, 32607 Og 44859. 26-50. Bækur: nr. 1618, 1824, 3157, 5674, 5967, 7470, 8502, 10130, 11873, 15471, 15795, 16615, 19523, 20629, 23486, 23914, 32980, 34937, 35633, 39896, 40061, 40176, 42204, 42544 Og 43432. (Birt án ábyrgðar).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.