Tíminn - 21.01.1972, Page 3
FÖSTUDAGUR 21. janúar 1971
TIMINN
3
Innlán Búnaöarbankans
nærri 3.5 milljarðar
Mikil útlánaaukning stofnlánadeildar
Á fundi bankaráðs Búnaðar-
banka íslands hinn 20. þ. m.
fluttu bankastjórar skýrslu um
rekstur bankans og lögðu fram
bráðabirgðareikninga hans og
útibúa fyrir árið 1971. Öraggur
vöxtur varð á starfsemi allra
deilda bankans og útibúa hans
á árinu, innlánaaukning meiri
en nokkra sinni áður og staðan
gagnvart Seðlábanka jákvæð í
árslok.
INNLÁN
Heildarinnlán í Búnaðarbank-
anum námu 3415 milljónum
króna í árslok og höfðu þá auk-
izt um 570 milljónir eða 20% á
árinu á móti 517 milljónum og
22% aukningu árið áður. Af þess
ari aukningu voru 406 milljónir
í spariinnlánum og 104 milljónir
í veltiinnlánum.
í Reykjavík voru innlán 2133
milljónir og aukning 17,1% á
móti 17% árið áður, en innlán
útibúa utan Reykjavíkur námu
1282 milljónum króna og höfðu
aukizt um 25,3% á móti 32,6%
árið 1970.
Innlán Búnaðarbankans í
Reykjavík skiptast þannig, að í
aðalbanka nema innlán 1402
milljónum, en í 5 útibúum í
borginni 731 milljón króna og
sýnir þetta, að almenningur not-
færir sér í vaxandi mæll þá þjón
ustu, sem fólgin er í rekstri úti-
búa bankanna.
Stærsta útibúið í Reykjavík er
Austurbæjarútlbú við Hlemm
með 330 milljónir króna í inn-
lánum, en úti á landi Sauðár-
króksútibú með 228 milljónir
króna innlán.
Vöxtur innlána var nokkuð
jafn allt árið fram til nóvember-
loka og virtust horfur á mun
meiri vexti en raunverulega
varð. Desembermánuður varð
hins vegar mun óhagstæðari en
venja er til og varð þá talsverð:
lækkun innlána.
Bundin innlán í sparisjóði,
sem bera hæstu vöxtu, hafa auk-
izt hlutfallsléga mest á síðustu
árum og námu í Búnaðarbanka
samtals 956 milljónum króna í
árslok. Önnur sparlinnlán námu
1718 milljónum og veltiinnlán
741 milljón króna.
ÚTLÁN
Heildarútlán námu 3092 millj-
ónum króna og höfðu aukizt um
467 milljónir króna á árinu 1971
eða um 17,8% á móti 23,1% aukn
ingu árið áður. Heildarútlán í
Reykjavík reyndust 1750 millj-
ónir króna og höfðu aukizt um
11,5% á árinu, en í útibúum ut-
an Reykjavíkur námu heildar-
útlán 1342 milljónum króna, sem
er 27,1% aukning frá fyrra ári.
í þessum tölum eru öll endurseld
lán bankans að upphæð 582
milljónir króna, en aukning
þeirra frá fyrra ári er 24,8%.
Afurðalán bankans námu 555
milljónum króna í árslok og
höfðu hækkað um 100 milljónir
eða 22%. Hér er að langmestu
leyti um að ræða afurðavíxla
vegna landbúnaðarafurða. End-
urseldir afurðavíxlar í Seðla-
banka voru 460 milljónir, hækk-
un 80 milljónir frá fyrra ári eða
21%. Hlutur Búnaðarbankans í
heildarfjárhæð endurkeyptra
víxla Seðlabankans út á birgðir'
HLLbNA
HÍjKTOR
SNYKTI^
^VÖRURj
^ +Xa +Xa
rj^ rj% rj^ rj^
í %
landbúnaðarafurða nam 43,25%
árið 1971, og hefur hann farlð
hækkandi undanfarin ár._
Til Framkvæmdasjóðs íslands
lánaði Búnaðarbankinn á árinu
samtals rúmar 70 milljónir
króna samkvæmt samkomulagi
við ríkisstjórnina um fj.ármögn-
un framkvæmdaáætlunar.
Afgreiðslufjöldi víxla við aðal-
bankann í Reykjavík, þar með
taldir afurðavíxlar og innheimtu
víxlar, var tæp 65 þúsund og tala
vanskilavíxla í eigu bankans að-
eins 180 um áramót. Vanskila-
prósenta var 1,47 og hefur ekki
verið lægri síðan í árslok 1966.
Stærstu útlánagreinar voru
landbúnaður, verzlun og iðnað-
ur með samtals um 60% útlána.
Til íbúðabygginga fóru 10,8%,
samgangna og þjónustustarfa
(þar með talin ferðamál) 9,2%,
fjárfestingarsjóða 7,6% og ríkis
og sveitarfélaga 6,1%.
STAÐAN VIÐ SEÐLA-
BANKANN
Innstæður í Seðlabanka námu
alls 738 milljónum króna í árs-
lok 1971. Á bundnum reikningi
voru 670 milljónir króna og
hækkuðu á árinu um 131 milljón
króna eða 24,3%. Innstæða á
viðskiptareikningi nam 68 millj-
ónum króna, en miklar sveiflur
voru á þessum reikningi á árinu.
Endurseid lán í Seðlabanka voru
samtals 550 milljónir króna og
jukust um 101 milljón króna eða
22,5%.
REKSTUR BANKANS
Á rekstraryfirliti kemur í ljós,
að til varasjóðs fóru 8,4 milljónir
króna á móti 9,2 milljónum
króna árið 1970. Afskriftir námu
12,8 milljónum króna, en 7,6
milljónum króna. árið áður. Eig-
ið fé bankans í árslok var 85,4
milljónir króna og hafði aukizt
um 10,9%.
Kostnaður við rekstur varð
rúmar 92 milljónir króna á árlnu
og jókst um 21 milljón króna eða
29,6%. Árið 1970 varð kostnaðar-
aukning tæpar 18 milljónir
króna eða 33,0%.
Starfsmannafjöldi var í árslok
201, þar af 46 í útibúum utan
Reykjavíkur, þeim fjölgaði um
15 á árinu. Þá eru taldir með
starfsmenn Stofnlánadeildar
lándbúnaðarins og Veðdeildar
Búnaðarbankans.
* * *
Búnaðarbanki Islands vlð Austurstræti
STOFNLÁNADEILD
LANDBÚNAÐARINS
Fyrlrsjáanlegt var í ársbyrjun
1971 vegna stóraukinna umsókna
um lán á árinu miðað við árið
1970, að mikil aukning yrði á út-
lánum deildarinnar umfranri
getu hennar til þess að standa
straum af aukinrii lánsfjárþörf
án sérstakra ráðstafana. Var út-
lánaáætlun deildarinnar miðuð
við 252 millj. króna og veittu
Framkvæmdasjóður og Seðla-
bankinn samtals 182 milljónir
Framhald á bls. 10.
Lögsögumaður
Umboðsmaður
Ármaður
Þingsályktunartillaga Péturs
Sigurðssonar um stofnun em-
bættis umboðsmanns Alþingis
var til umræðu í Sameinuðu
Alþingi í gær. Þeir þingmenn,
er til máls tóku, lögðu allir til
að tillagan fengi jákvæða af-
greiðslu.
Það var Kristján Thorlacíus,
sem fyrstur flutti þetta mál
inn á Alþingi, er liann flutti
þingsályktunartillögu um stofn
un sams konar embættis á
þinginu 1964 og lagði þá til að
embættismaðurinn yrði nefnd
ur lögsögumaður.
f umræðunum í gær kom
Gunnar Thoroddsen fram með
tillögu um nýja nafngift. Lagði
hann til að þcssi cmbættis-
maður yrði nefndur „ármað-
ur“ eða „ármaður Alþingis“.
Einar Ágústsson, utanríkis-
ráðlierra, minnti á, að það
hefði komið í hans hlut að
mæla fyrir tillögu Kristjáns
Thorlacíus um stofnun em-
bættis lögmanns. Tillagan var
fyrst flutt 1964, en síðan end-
urflutt á þingunum 1966 og
1967. f fyrstu hefði þessi til-
laga ekki fengið neinar undir-
tektir. Enginn hefð tekið til
máls um tillöguna annar en
framsögumaður.
Á þinginu 1966 hefði tillag-
an hins vegar mætt andstöðu
hjá þáverandi þingmcirihluta.
Þáverandi formaður Sjálfstæð-
isflokksins mælti gegn tiUög-
unni. Taldi hann embættið
óþarft, en einkum lagðíst
hann þó gegn embættisheitinu
lögsögumaður. Flutningsmenn
tillögunnar hefðu þó ítrekað,
að nafngiftin á embættinu
væri þeim ekkert atriði held-
ur embættið og verkefni þess.
Einar Ágústsson sagði, að
fagna bæri því, að skilningur
færi nú vaxandi á nauðsyn
þessa embættis.
Heródes og Pílatus
Sérstaklega verður það að
teljast ánægjulegt að það skuli
vera Sjálfstæðismaður, sem
tekur nú málið upp að nýju,
því að andstaðan gegn fram-
gangi þess var fyrst og fremst
í Sjálfstæðisflokknum og for-
ystu hans. En þetta rifjar upp,
að í tímariti Evrópuráðsins
var fyrir nokkrum árum frá
því skýrt og vitnað til ís-
lenzkra ráðamanna, þegar ver-
ið var að kanna viðliorf og
þörf aðildarríkja Evrópuráðs-
ins til sérstakra ráðstafana til
að tryggja rétt einstaklingsins
gegn opinberum aðilum í skrif
finnskubákni nútímaþjóðfé-
lags, að engin þörf væri á
slíkri starfsemi hér á landi.
Hér væri allt til fyrirmyndar.
Var það vissulega í samræmi
við þáverandi afstöðu Sjálf-
stæðisflokksins til þessa máls.
Nú er hljóðið annað og er það
vel.
Vilhjálmur Hjálmarsson
rakti í þessum umræðum átak
anlegt dæmi um það, hve mein
gallað stjórnsýslukerfi okkar
er og hve rík nauðsyn er að
gera það elnfaldara og skil-
virkara. í því kerfi, sem fyrr-
Framhald á bls. 10.