Tíminn - 21.01.1972, Síða 6
TIMINN
FÖSTUDAGUR 21. janóar 1911
Rætt við Jóhann K. Sigurðsson, framkvæmda-
sfjóra Síidarvinnslunnar í Neskaupstað
Útgerð Síldarviunslunnar hf.
í Neskaupstað var stofnuð ár-
ið 1964, og 10. marz 1965 kom
fyrsta skipið, sem útgerðin
festi kaup á Barði NK 120 og
14. maí sama ár kom annað
skipið, sem útgerðin eignaðist,
til landsins hlaut það nafnið
Bjartur NK 121, cn bæði þessi
skip voru smíðuð í A-Þýzka-
landi. Árið 1966 bættist þriðja
skip útgerðarinnar við, kom
það frá Noregi og hlaut það
nafnið Börkur NK 122. í júlí
,
Jóhann K. SigurSsson
1967 kom svo fjórða skip út-
gerðarinnar, scm einnig var
smíðað í Noregi, hlaut það
nafnið Birtingur NK 119.
Allan tímann, sem útgerðin
hefur verið starfrækt, hefur
einn og sami maðurinn séð um
rekstur hennar, en það er Jó-
hann K. Sigurðsson Öllum ber
saman um, a'ð Jóhann hafi hald
ið vel á málum útgerðarinnar,
en Jóhann sagði, er við rædd-
um við hann fyrir skömmu, að
velgengi útgerðarinnar væri
ekki sízt að þakka góðum skip-
stjórum og góðum mannskap.
Við spurðum Jóhann fyrst
að því, livað aflaverðmæti fjög
urra skipa útgerðarinnar væri
orðið mikið frá upphafi.
—Frá upphafi til áramóta
1971 er aflaverðmætið orðið
403,428 milljónir og býst ég
við að útflutningsverðmæti
þess afla sé orðið um einn
milljarður og segir það ekki
svo lítið. En þess má geta að
afli skuttogarans Barða er hér
reiknaður með, en allt frá ár-
inu 1960, eða eftir að sfldin
brást algjörlega héæ við land
fórum við að hafa áhuga á skut
togarakaupum, og í fyrra seld-
um við eldri Barða, en skut-
togarinn Barði kom til lands-
ins þann 12. des. 1970.
Þar sem að þurfti að breyta
skipinu nokkuð, þá gat það
ekki hafið veiðar fyrr en um
rniðjan febrúar 1971 og núna
um jólin er skipið búið að afla
2663 lestir og aflaverðmæti
þess er orðið 34.939 millj. Há-
setahluturinn á skipinu er orð-
inn 692 þús. á þessum 10 mán-
uðum. Við getum víst fullyrt
að þetta skip hafi reynzt vel
og má þar líka þakka mann-
skapnum mikið.
— Á ekki Síldarvinnslan
von á öðrum skuttogara?
— Jú, nú fyrir stuttu sömd-
um við um kaup á nýjum skut-
togara frá Japan, verðuir sá
togari 47 metra langur og 9.5
metrair á breidd. Áætlað er að
'þessi togari verði tilbúinn í
desember á næsta ári, en veið-
ar getur hann ekki hafið fyrr
en á árinu 1973, þar sem
það tekur 6 vikur að sigla skip
inu heirn. í skipinu verður
2000 ha. Nikata aðalvél og áætl-
að verð skipsins komið til
landsins er 106 millj.
— Hvað er mesta vandamál
útgerðarinnar?
— Það má segja að það
vanti sífellt rekstrarfé, afborg-
anir eru mjög stífar, og viðhald
og veiðarfæirakostnaður er
þungur baggi, ef á að halda
skipunum og veiðarfærunum
sómasamlega við. Þetta bjarg-
ast yfirleitt þar sem, vel geng-
ur, en þar sem afli hefur verið
tregur er erfitt að gera úit.
Nú segja sumir að það sé
erfiðara að gera út frá Austur-
landi en öðruim landshlutum,
er þetta rétt?
— Það er helzt yfir vetrar-
tímann, þegar netaveiðar eru
stundaðar. ■ Netaútgerðin er
ákafleiga erfið frá Ausitfjörð-
um, sigling á miðin tekur oft
16—18 tíma, bátamiæ eru úti
nokkra daga í einu og era svo
frá í meira en tvo sólarhringa
þegar þeir fara með aflann
heim og er það mjög bagalegt
að netin þurfi að liggja svona
lengi í sjó. En þessi útgerð er
rekinn með það fyrir augum að
afla hráefnis fyrir Neskaup-
stað og það sama má segja um
einstaklingsútgerðina hér í bæ,
því stærri bátar í eigu einstakl-
inga, hér á staðnum leggja hér
mikið upp.
— Hverjir eru skemmtileg-
ustu tímarnir, sem þú hefur
átt við þessa útgerð?
— Óhætt er að fullyrða að
skemmtilegustu timarnir hafi
veirið á síldarárunum. Þá fóru
bátarnir kannski út að morgni
og voru komnir að landi, að
kvöldi og okkar bátar voru allt-
af í fremstu fylkingu. Hinsveg-
ar má segja að erfiðustu tím-
ar sem ég hef átt í útgerðar-
máluim hafi verið 1967 og ’68.
.
' ^
Skuttogarinn Barði NK 120
— Ég tel að við höfum bjarg
að okkur úr sfldarleysinu 1968
með þv£ að breyta nógu fljótt
um veiðiaðferð og fara yfir á
togveiðar. Þær veiðar reyndust
okkur strax vel, en hinsvegar
var okkur fljótt ljóst, að við
þurftum að fá stærra skip, til
Gemgisbreytingamar höfðu stór
kostleg áhrif á útgerðina, þó
svo að hún hafi rétt mikið úr
kútnum.
Þú minntist áðan á góð-
ærið á sfldarárunum, en þegar
sfldin hvarf, var þá ekki erf-
itt að gera út fyrir austan, þeg
ar við bættust gengisfellingair
og aðrir erfiðleikar?
Börkwr NK 122
að stunda þær veiðar og upp
úr miðju ári 1969 fórum við
að kanna kaup á skuttogara,
og endaði það með því að í
deseanber 1970 kom skuttogar-
inn Barði, og sannaði hann
fljótt yfirburði sína hvað veiði-
getu sneirti, miðað við fyrri
skip okkar, sem voru nú reynd
ar ekki upphaflega smíðuð fyr-
(Ljósmynd G.S.)
ir togveiðar. Og eins og fyrr
segir þá erum við nýbúnir að
semja um kaup á skuttogara
frá Japan, sem við eigum að
fá að ári.
— Að lokum spurðum við
Jóhann hvað væri stærsta mál
útgerðarinnar • í dag. Svaraði
(Ljósmynd G.S.)
hann því til, að landhelgismál-
ið væri mál málanna um þess-
ar mundir. Með útfærslu land-
helginnar gæfist okkur kostur
á að nýta okkar eigin mið sjálf
ir og þá ætti að vera hægt að
koma við betri nýtingu á þeim
og um leið að fá betra hráefni,
með betri skipulagningu.
Þ.Ó.
Birtingur NK 119 á leiö til lands meö fullferml af loönu
(Ljósmynd H.V.)