Tíminn - 22.01.1972, Blaðsíða 12
I
Sunnudagur 23. ianúar 1972
Lokað á
laugardögum
í V.-Skaftafellssýslu,
Rangárvallasýslu og
Neskaupstað
EB—Reykjavík,
Samkamunlaig hefur nú tekizt
milli verzlunarmannafélaga Vest-
ur-Skaftafellssýslu og Rangár-
vallasýslu og atvinnurekenda
þeirra um vinnutímastyttinguna.
Verða verzlanir í þessum sýslum
framvegis lokaðair á laugardögum.
Á mánudögum, þriðjudögum, mið
vikudögum og fimmtudögum
verða verzlanirnar opnar frá kl.
9 — 17,45 og á föstudögum frá
kl. 9. — 19.
í»á tókst á miðvikudaginn sam
komulag milli verzlunarlfólks á
Neskaupstað og atvinnurekenda
þeirra. Verzlanir verða framvegis
lokaðaæ á laugardögum.
TVÖINNBROT
Í REYKJAVÍK
OÓ—Reykjavík, laugardag.
Tvö innbrot voru framin í
Reykjavík s.l. nótt. Var brotizt
inn í verzlunina Búrið við Hjalla
veg og stolið þaðan 10 til 12
þús. kr. í skiptimynt pg seðlum.
Hitt innbrotið var í Bókaverzlun
Snæbjarnar Jónssonar, Hafnar-
stræti 4. Þar var saknað nokkur
þús. kr. sem voru í peningakassa
í verzlunmni.
Hækkun á persónu
frádrætti könnuð
Á fundi fulltrúaráðs Sambands
íslenzkra sveitarfélaga 18. — 20.
janúar var svofelld ályktun gerð
samkvæmt tillögu Magnúsar H.
Magnússonar, bæjarstjóra í Vest
mannaeyjum:
„Fulltrúaráð Sambands íslenzkra
sveitarfélaga telur rétt, að athug
un fairi fram á því, hvaða áhrif
það hefði að hækka persónufrá
drætti, t. d. svo, að þeir nemi
lágmarkslífeyristryggingu almanna
trygginga, í þeim tilgangi, að
örorku- og ellilífeyrisþegar, náms
menn og aðrir, sem lágar tekjur
hafa, greiði almennt ekki útsvar,
þótt það jafnframt hefði í för
með sér hækkun á hundraðshluta
útsvars af brúttótekjum, enda
yrði tekið tillit til slíkrar hækk
unar við ákvörðun tekjuskatts-
stiga.“
Urðu eitt eldhaf
þegar eldingunni
sló niður
EB—Reykjavík.
Páll Þorláksson á Sandhóli í
Ölfusi, sagði í viðtali við Tím-
ann í gær, að enn væri rafmagns-
laust á tveimur bæjum vegna
eldingarinnar, sem laust þar nið-
ur eftir hádegi í fyrradag, og enn
væri símasambandslaust á fimm
bæjum þar.
Það var á bæjunum Arnarbæli
og Króki, sem enn var rafmagns-
Framhakl a bls. 22.
Jóhannes Edvaldsson
til Suður-Afríku
ÞO—Reykjavík.
Jóhannes Edvaldsson, hinn
kunni knattspyrnumaðu.r úr Val,
fer í dag, sunnudag, til Cape
Town í Suður-Afríku og mun
hann æfa o>g leika með 1. deild
ar liðinu Cape Town City FC.
Ef Jóhannesi lízt vel á allar
aðstæður úti og gengur vel í
æfingaleikjum með félaginu,
mun hann að öllum líkind-
um undirrita samning og ger
ast atvinnumaður með Cape
Town City. Sem kunnugt er,
fór Jóhannes til Afríku í
fyrra á vegum þessa sama fé-
lags, en er hann kom út vant
aði einn stimpil í vegabréfið
hans, þannig að hann vató að
snúa heim aftur.
í viðtali við Tíimann sagði
Jóhannes, að framkvæmdastjóri
Cape Town City, Frank Lord,
hefði hringt til sín á mánudag
í síðustu viku og spurt, af
hverju hann kæmi ekki og eftir
hverju hann væri eiginlega að
bíða, hvort hann vantaði far
miða út, og ef svo ,væri, þá
fengi hann farmiða innan fjög
urra daga. Jóhannes sagði Lord
að hann væri tilbúinn að koma,
ef hann fengi sig lausan frá
kennslu, en hann hefur starf
að, sem íþróttakennari í Hafn ■*
arfirði í vetur.
Farmiðana fékk Jóhannes á
föstudag í fyrri viku og gilda
þeir fram og til baka, ef hann
skyldi ekki kunna við sig í
S-Afríku, og eftir helgina tókst
Jóhannesi að fá kennara í sinn
stað. Framhald á bls. 22.
Friwnvarp um
friðun Þingvaiia
í undirbúningi
EB—Reykjavík.
í Sameinuðu þingi á fimmtudag
inn beindi Bjarni Guðnason (SFV)
þeim fyrirspurnum til Ólafs
Jóhannessonaæ, forsætisráðherra,
hvað dveldi eða hversu miðaði
endui-skoðun laiga frá 1928, um
friðun Þingvalla með tilvisun til
þingsályktunartillögu um þetta
efni, sem samþykkt var á Alþingi
1968 — og hvaða nýbygigingar
sumarbústaða einstaklinga hefðu
þar verið leyfðar eða reistar frá
því tillagan hefði verið samþykkt.
Ólafur Jóhannesson, forsætisráð
herra, sagði m. a. að samkvæmt
þeiim upplýsingum sem hann hefði
aflað sér um það, hve margir þeir
sumarbústaðir væru, sem hefðu
verið leyfðir áður en þingsályktun
artillagan hefði verið samþykkt,
en unnið hefði verið að á þessu
tímabili, væru þeir 10 tals-
ins á Þingvallasvæðinu. Þar af
væru 6 í Gjábakkalandi og 4
í Kárastaðalandi. Nánari upplýs
ingar um þessa bústaði, hverjir
væru eigendur o.s.frv., sagðist\for
sætisráðherra ekki hafa.
ASI kynnir landhelgis-
málið / öllum heimsálfum
Forsætisráðheirra sagði, að fyr
irspurn Bjarna hefði hann sent
Þingvallanefnd til umsagnar og
las hann svar nefndarinnar, en
þar er réttilega bent á, að sér-
stakri milliþinganefnd var falið
að endurskoða lögin um Þingvelli
ásamt lögum um náttúruveimdar
ráð. Sem kunnugt er, vann nefnd
in það verk að endurskoða eða
semja lög uim náttúruvernd og
voru þau lög lögð fyrir Alþingi
í fyrra og afgreidd þar þá.
— Hins vegar varð það verk-
efni að enduirskoða lögin um frið
un Þingvalla, útundan hjá nefnd
inni um sinn, en ég hef snúið
mér til fonmanns þessarar nefnd
ar, sem er Birgir Kjaran, og
spurzt fyrir um það, hvað störfum
hjá nefndinni varðandi þetta verk
efni liði. Hann hefur tjáð mér,
að rætt hafi verið um þjóðgarð
á Þingvöllum og fleiri atriði í
því sambandi í starfi nefndarinn-
ar, en frumvarp hafi ekki enn
verið samið. En hann hyggst, tjáði
hann mér nú fyrir áramótin, þeg-
ar ég hafði samband við hann,
kalla nefndina saman til starfa
nú snemima á þessu ári og taka
þá til við samningu frumvarps
um friðun Þingvalla, sagði Ólaf
ur Jóhannesson, forsætisráðherra,
að lokum.
Miðstjórn AÍþýðusambands Is-
lands ákvað á fundi sínum í haust
að taka saman stutt yfirlit yfir
landhelgismáiið og senda helztu
verkalýðssaimböndum og sjó-
mannasamtökum um allan heim.
Fjallaði miðstjórnin um yfir-
lit þetta og samþykkti að loknum
uimræðum. Var því siðai? snúið* á
ensku og sent út í desember s.l.
til nær 100 verkalýðs- og sjó-
mannasambanda í flestum helztu
löndum í öllum heimsálfum. Vænt
ir Alþýðusambandið þess, að
þetta framtak þess geti orðið til
að efla skilning á málstað ís-
lendinga í landhelgismálinu og
samúð með honurn innan hinnar
alþjóðlegu verkalýðshreyfingar,
og vonar að fleiri félagasamtök
hér á landi, sem hafa veruleg
alþjóðleg tengsl, fari að dæmi
þess og leggi sitt af mörkum til
kynningar á þessu lífshagsmuna
máli okkar.
Alþýðusambandið naut ágætrar
fyrirgreiðslu forsætis- og utanrík
isráðuneytisins í þessu máli.
8*1 P M F F
ijh'U':'''!?*'*' /j'OJI •if'X V*
| Ailí* .%> *>*:*/!
9 jfá »f fó !;? U .
Ífí !'? IH Í?í l!i Íi «
xí zt 25 M 27 :* 2» Mmmr
S M i> M F F L W n .
I 2 .1 4 5
(í 7 n 9 m n íi
a u s * f/i r? m m
M 2i ' 22 25
n > ?■«
tfanuAi.
8 M P M ¥ F r,
» ‘ , , 4 .í x.v,/v.VV ,
« s- M !!' iu r.!.H
n h 25 22 2^ 24 35
p ix. 29 »■ ?! Maræ-,
Oliíifélaglé hf
þíftÖIPPt flriórltrll 0,íuféla9i3 hefu>' 9ef'ð út sérlega fallegt og þjóSlegt dagatal og sendir viSskipta-
** O ö vinum sínum. ÞaS er skreytt þjóðlegum myndum í lltum eftir íslenzka lista-
menn og stórvel prentað í Prentsmiðjunni Eddu, og teiknað í Auglýsingastofu Kristinar. Myndirnar minna á
gömul mánaðanöfn, svo sem mörsug, þorra, góu, einmánuð, hörpu, skerplu, sólmánuð, heyannir, tvímánuð,
haustmánuð, gormánuð og ýli. Myndirnnr sýna til að mynda islenzkan hest i snjó á mörsugi, búr á islenzkum
sveitabae á þorra, bóndann í annarri buxnaskálm hlaupa umhverfis bæinn, vorkomu og hækkandi sól á ein-
mánuði, hörpu og skerplu, heyskap með gömlu lagi á sólmánuði og vetrarmyndir með ævintýrabrag á haust-
mánuði og undir jól.
Höfundur
Hitabylgju
í heimsókn
Rithöfundurinn Ted Willis er
væntanlegur hingað til lands.
Kemur hann á föstudag og verð
ur viðstaddur sýningu á leikriti
sínu Hitabylgju hjá Leikfélagi
Reykjavíkur kvöldið eftir. Hita-
bylgja var sem kunnugt er frum
sýnd i nóvember 1970 og_ hefur
verið sýnd á annað ár. Átti að
ljúka sýningum fyrir áramót, en
tíkkert lát var á aðsókn, og var
þá brugðið á það ráð að geyma
örfáar sýningar fram yfir afmæli
Leikfélagsins, þar til um hægð
ist aftur. Þessar sýningar geta að-
eins orðið þrjár og verður hin
fyrsta laugardagskvöldið 30. jan
úar eins og áður segir. Er það
71. sýninig leiksins.
Ted Willis er kunnur rithöfund
ur í Bretlandi og hef-
ur skrifað mörg leikrit önnur en
Hitabylgju, sem notið hafa vin-
sælda, t. d. Kona í morgunslopp,
sem fjallar um mál, sem nú eru
ofarlega á baugi í flestum löndum,
stöðu konunnar og mat á henni
sem hæfileikum búnum einstakl
ingi í nútíma þjóðfélagi. Þetta
leikrit hefur farið víða um lönd
eins og Hitabylgja, sem fjallar
um kynþátta- og fjölskyldumál og
verkalýðspólitík, svo sem kunnugt
er. — Þá er Ted Willis ekki sízt
vel þekktur fyrir sjónvarpsþætti
sína, sem sýndir hafa verið víða
— meðal annars í íslenzka sjón-
varpinu.
Ted Willis hefur látið stjórn-
mál mikið til sín taka og sat hrigi
sem fulltri'd Verkamannafl&kksins
í neðr: málsiofunni, er, yar sí'j.t
aðlaður fyrir rit- og stjórnmála
störf sín, og situr nú í afri mál
stofunni.