Tíminn - 23.01.1972, Page 11
SUNNUDAGUR 22. janúar 1972
TIMINN
*
11
Í lofti
eða R 102
Maður kemst ekki hjá því a<5
veita því eftirtekt að öðru-
hverju ryðst fólk fra,m á ritvöll
inn og raunar í Útvarpið líka,
og fjallar um væntanleg bygg-
ingaráform Seðlabanka ís-
lands. Koma þar fram mörg
sjónarmið eins og gefur að
sácilja, en flestar þessar ritsmíð
ar eiga það sameiginlegt, að
óska eftir því að Arnarhóli
verði hlíft við væntanlegri ný-
byggingu þessa ágæta banka,
og hann hasli sér völl — jafn
vel Austurvöll — fyrir þessar
framkvæmdir.
Fyrir mann eins og mig, sem
er vikulega „á fjörum“, sæmir
þess vegna ekki annað en
leggja orð í belg — seint verð
ur góð vísa of oft kveðin —
eins og Þar stendur, og bygging
armál Seðlabankans skipta
ekki einungis þá stofnun veru
legu máli — heldur einnig þjóð
ina alla, einkum þá hluta henn
ar, sem alltaf eru á „fjörun-
um“ eftir einhverju.
Mér lízt frekar vel á tillíg
una um að leggja Austurvöll
undir væntanlega byggingu —
en þó eru þar nokkrir van-
kantar á.
Það liggur í hlutarins eðli
að menn, sem gegna jafn
ábyrgðar- og ábúðarmiklum
störfum og þeim, að stýra og
stjórna fjármálum þessarar
þjóðar, þeir þurfa að vera hús
aðir, þar sem útsýnið inspírer
ar þá. Það getur enginn búist
við því að verða fyrir inspíra-
sjónum á æðstu fjármálaplön-
unum með því að horfa á bak-
hliðina á gamla Landsbanka-
um, ellegar út úr gluggunum
yfir steinhúsin við Hafnar-
stræti. Maður getur líka látið
sér detta í hug, að svipuð
vandamál væru fyrir hendi,
ef byggingunni yrði valinn stað
ur á Austurvelli — allir
þekkja til húsaskipunar kririg
um hann!
Það var þess vegna engin til-
viljun að þeir völdu Arnar-
hólinn sem heppilegan bygging
arstað — Esjan og sundin hafa
löngum verið vænleg til in-
spírasjóna — eins og raunar
heyrist bezt í Útvarpinu. En
nú Þykir mörgum og þar á
meðal mér, dálítið vænt um
Arnarhólinn, auk þess sem ég
tel það mikið glapræði að
byggja þarna meðan Sænsk-
ísl. frystihúsið gæti hugsan-
lega verið í sjónmáli banka-
stjóranna. Það inspírerast sko
enginn af því! Hvaða lausn er
þá fyrir hendi?
Ja, það er nú það, eins og
kallinn sagði.
Ég var búinn að klóra mér
í hausnum, og leggja hann í
bleyti mánuðum saman þar að
auki, og lengi vel skeði hreint
ekki neitt. Sennilega yrði Arn
arhóll að verða fyrir valinu —
svo framarlega sem Ingólfur
Arnarson, Sænsk-íslenzka ,Sölu
turninn og annað fánýtt væri
fjarlægt, svo það trufl-ði ekki
hinir háleitu og hástemmdu
hagfræði- og fjármálastjórn-
aráarðanir.
Þarna kom það loksins.
Háleita. Háleitu!
Hvers vegna gat mér ekki
dottið þetta í hug fyrr. Lausn-
in fundin — og mér létti svo
mikið, að ég mntti til að hlaupa
með hana fram á ritvöllinn -
það gengi glæpi næst að. geyma
hana og jafnvel gleyma henni í
daglega amstrinu!
Hún er svona:
Seðlabankinn festir kaup á
aflóga Zeppelin loftfari — eða
bara R 102, seim mér skilst að
ennþá sé til í einhverju skýli í
Bretlandi — hitt brann í lend-
ingu stuttu fyrir stríð. — Loft
förin voru búin glæsilegu far-
þegarými — fólk klæddi sig
upp fyrir dinner í þá daga —
þarna væri hægt að innrétta
skrifstofurnar — útsýnið hlyti
að vera stórkostlegt — þegar
ekki væri skýjað, en Þá væri
bara hægt að hækka skipið —
og svo væri hægt að festa því
um hálsinn á Ingólfi Arnarsyni,
— eða Jóni Sigurðssyni.
Kosirnir? Séðlabankastjór-
arnir gætu haft glugga í skrif-
stofugólfinu hjá sér og horft
niður á þjóðina, þegar þá lang-
aði til, og þjóðin hefði þá
sveimandi fyrir ofan sig, og
gæti Mtið upp til þeirra, þegar
hana langaði til.
En það verður að BANNA
að skera á festina!
Páll Heiðar Jónsson.
Hríseyingar
Hríseyingamót verður haldið í Glæsibæ 11. marz
1972, og hefst með borðhaldi kl. 19,30.
Skuggamyndasýning, myndir frá Hrísey o.fl.
Dans. Sæborgarmarz með tilþrifum.
Önnur ótalin númer.
Hríseyingar, eldri og yngri, mætið vel og stund-
víslega. Þátttaka tilkynnist strax í símum 12504
— 36139 — 35478.
Undirbúningsnefnd.
HÖFUM FYRIR,
LIGGJANDl
HJÓLTJAKKA
G. HINRIKSSON
SlMI 24033.
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu »|
I SH t!p ít jí
GUÐM ÞORSTEINSSON
gullsmiður, Bankastr. 12
ÍTCi RÚMTEPPI
2,20x2,50 m. nýkomin
LITLISKÓGUR
á horni Hverfisgötn
og Snorrabrautar.
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
FÉLAG
JÁRNIÐNAÐAR-
MANNA
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 26. janúar 1972
kl. 8.30 e.h. í samkomusal Landssmiðjunnar v/
Sölvhólsgötu.
DAGSKRÁ:
1. Félagsmál.
2. Samningarnir.
3. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna
Ljósmyndari óskasf
Starfsmaður óskast við tæknilega ljósmynda-
vinnu fyrir kortagerð.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Eiginhandar umsókn sendist undirrituðum fyrir
1. febr. n.k. Þar skal tilgreina m.a. aldur, mennt-
un og fyrri störf.
Upplýsingar um starfið ekki veittar í síma.
Landmælingar íslands,
Ljósmyndadeild,
Laugavegi 178,
Reykjavík.
i|í Að gefnu tilefni
«
er athygli vakin á því að óheimilt er að hefja
byggingu húss eða ráðast í breytingar eða breyta
notkun húss, nema leyfi byggingarnefndar sé
fyrir hendi.
Sektir fyrir slík brot skulu vera samkvæmt lög-
um.
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík.
ÁRSHÁTÍÐIR - ÞORRABLÖT
Tryggið yður
hljómsveitir oc
skemmtikrafta
tímanlega. — Opið frá kl. 2—5
Helldsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Sími 16995
SKEIiniITIiiniBQSJÐ
Kirkjutorgi 6, 3. hæð. Póstbox 741. Sími 15935.