Fréttablaðið - 13.05.2004, Síða 1
allt
ión Kr. Ólafsson:
Melódía minninganna
í Bíldudal
ferðir • tílboð
► í MIDIU BLAÐSINS
Ellý Ármanns:
Fædd undir stjömu nautsins
og óheillatölunni 13
• 34 ára í dag
SÍÐA 26 ►
FRÉTTABLAÐIÐ
15. maí 2004 - 130. tölublað - 4. árgangur
MEST LESNA DACBLAÐ Á ÍSLANDI
Skaftahlfð 24, 105 Reykjavík - sími 515 7500
úl
MÁLÞÓF Stjórnarandstaðan sakar stjórn-
arflokkana um handvömm og sýndar-
mennsku við meðferð fjölmiðlafrumvarps-
ins. Ég vil ekki Berlusconi-ástand á íslandi,
segir Hjálmar Árnason. Sjá síðu 2
BRAUT JAFNRÉTTISLÖC Fræðslumið
stöð Reykjavíkur braut að mati kærunefndar
jafnréttismála jafnréttislög þegar ráðið var í
starf tölvunarfræðings. Sjá síðu 4
ÞJÓÐARÁTAK Stjórnendur Landspítala
ætla ekki að láta deigan síga þótt stjórn-
völd hafi kallað eftir frekari sparnaðarað-
gerðum. Þeir ætla að stækka barna- og
unglingageðdeildina við Dalbraut og kalla
eftir stuðningi landsmanna. Sjá síðu 6
KÁ BJARGAÐ Héraðsdómur Suðurlands
hefur staðfest nauðasamninga KÁ. Mikill
léttir fyrir marga, segir lögmaður KÁ, enda
tilfinningamál fyrir Sunnlendinga að tryggja
að félagið færi ekki í þrot. Sjá síðu 8
jVEÐRIÐ í DACj
+3 é* +8 * *
Fremur hægur
vindur
•sCb Xi'
ÞURRT AÐ KALLA SUNNAN TIL
Rigning eða skúrir á Norðurlandi. Fremur
þungbúið á öllu landinu. Sjá síðu 6
HAUKAR CETA TRYCCT SÉR
SICUR Þriðja viðureign Hauka og Vals
um íslandsmeistaratitilinn í handbolta fer
fram í kvöld. Haukar hafa unnið báðar
viðureignir liðanna og geta því með sigri í
kvöld tryggt sér titilinn. Viðureignin fer
fram að Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst
klukkan 19.15.
Kvikmyndir 50 Myndlist 48
Tónlist 48 Iþróttir 42
Leikhús 48 Sjónvarp 52
Fréttablaðið Morgunblaðið J
Meðaltestur á höfudborgarsvæði
A TRÖPPUM BESSASTAÐA Forsetinn svaraði stuttlega örfáum spurningum frá blaðamönnum sem biðu hans en sagðist ekki mundu
halda blaðamannafund í anddyri Bessastaða.
Ovænt heimkoma
forseta veldur spennu
Forsetinn segist hafa ákveðnar skyldur og þær hafi forgang. Óljóst hvort
hann verður við brúðkaup danska ríkisarfans. Vangaveltur ágerast um hvort
forsetinn hyggist skjóta fjölmiðlalögum til þjóðaratkvæðis.
forsetinn Forseti íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, ræddi örstutt
við blaðamenn á tröppum Bessa-
staða er hann kom
heim úr opinberri
heimsókn til
Mexíkó síðdegis í
gær. Aðspurður
um hvort heim-
koma hans tengd-
ist fyrirhugaðri
lagasetningu um
eignarhald á fjölmiðlum sagði
Ólafur Ragnar: „Forsetinn hefur
auðvitað ákveðnar skyldur eins og
allir vita og þær hafa forgang."
Heimkoma forsetans var
óvænt en eins og Fréttablaðið
jyForsetinn
hefur auðvit-
að ákveðnar
skyldur eins
oq allir vita.
greindi frá í gær var dagskrá for-
setans breytt á þriðjudag. Upp-
haflega stóð til að hann færi beint
til Danmerkur frá Mexíkó til að
vera viðstaddur konunglegt brúð-
kaup danska krónprinsins. Forset-
inn vildi ekki svara því hvort hann
yrði viðstaddur brúðkaup krón-
prinsins og sagði að það yrði að
koma í ljós. Stefán L. Stefánsson
forsetaritari staðfesti við Frétta-
blaðið að ferðaáætlun forsetans
næstu daga væri óákveðin. „For-
setinn er kominn heim og það hef-
ur ekkert verið ákveðið um frek-
ari ferðir,“ sagði Stefán.
Óvænt heimkoma forsetans
hefur valdið ákveðinni spennu í
tengslum við afgreiðslu Alþingis
á fjölmiðlafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar. Þeir þingmenn sem
Fréttablaðið ræddi við í gær-
kvöld voru á báðum áttum um
hvaða þýðingu heimkoma forset-
ans hefði en allir voru sammála
um að heimkoman tengdist af-
greiðslu Alþingis á fjölmiðla-
frumvarpinu. Einn þingmaður
stjórnarliðsins orðaði það þannig
að Ólafur Ragnar væri til alls lík-
legur en ef hann léti verða af því
að beita neitunarvaldi við þessar
aðstæður yrði það upphafið að
endi forsetaembættisins.
borgar@frettabladid.is
Sjá nánar síðu 2
Aftaka vekur hörð viðbrögð umheimsins:
Villimannsleg framkoma
aftaka Aftaka bandaríska gísls-
ins Nick Berg af samtökum
tengdum al-Kaída hefur vakið
harkaleg viðbrögð víða um heim
og hver stjórnin af fætur annarri
hefur fordæmt verknaðinn sem
villimannslegan. Aftakan var
tekin upp á myndband en Berg
var hálshöggvinn eftir að hafa
gefið yfirlýsingu um hver hann
væri. Myndbandinu hefur verið
dreift víða á vefnum og vakið
óhug og viðbjóð hjá flestum.
NICK BERC
Aftaka hans hefur vakið viðbjóð og mikil
viðbrögð víða um heim.
Yfirlýsing fimm grímuklséddra
manna sem sjást einnig í mynd-
bandinu gefur til kynna að aftak-
an hafi verið hefnd fyrir illa
meðferð Bandaríkjamanna á
íröskum föngum í Abu Ghraib-
fangelsinu. Hóta þeir öllum öðr-
um vestrænum aðilum sömu ör-
lögum og Berg hlaut. Hans hafði
verið saknað í nokkrar vikur
áður en lík hans fannst um helg-
ina við þjóðveg einn nálægt
Bagdad. ■
FANCELSIÐ ILLRÆMDA
Skipt hefurverið alfarið um allan mann-
skap sem gætir fanga í þessu mesta
öryggisfangelsi Iraka.
Bretland:
Fleiri her-
mennjáta
misþyrmingar
dacblöd Breska dagblaðið Daily
Mirror heldur áfram að birta
myndir og frásagnir af meintum
misþyrmingum íraskra fanga í
fangelsum undir stjórn Breta og
Bandaríkjamanna þrátt fyrir að
liggja undir ámæli um að hafa vís-
vitandi falsað fyrri myndir sem
birst hafa í blaðinu. Segir blaðið að
tveir hermenn til viðbótar hafi við-
urkennt að hafa tekið þátt í því að
gera föngunum vistina erfiða og
yfirmenn hafi alla tíð vitað hvað
gengi á. Segja þeir að fangar hafi
reglulega verið barðir og niður-
lægðir á versta mögulega máta. ■
Allt er klárt fyrir Eurovision-söngvakeppn-
ina sem haldin verður á laugardagskvöldið
kemur.
Undankeppni
Eurovision:
Danir úr leik
söngvakeppni Framlag Dana til
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva féll ekki í kramið hjá
þeim fjölmörgu sem greiddu at-
kvæði en í gærkvöld fór fram í
fyrsta sinn sérstök undankeppni
sem ekki hefur verið haldin áður.
Áður höfðu fjórtán þjóðir þegar
tryggt sér keppnisrétt en aðrir að-
ilar þurftu að heyja sérstaka und-
ankeppni. Meðal þeirra sem
komust gegnum niðurskurðinn
voru Malta, Grikkland, Úkraína,
Holland og Króatía en íslending-
urinn Tómas Þórðarson sem söng
fyrir hönd Dana féll ekki í kramið
og er úr leik í þetta skipti. Úrslita-
keppni Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva fer fram í Istan-
bul í Tyrklandi á laugardag og þar
verður Jónsi, Jón Jósep Snæ-
björnsson, fulltrúi íslands og flyt-
ur lagið Heaven. ■