Tíminn - 25.01.1972, Page 14

Tíminn - 25.01.1972, Page 14
14 TÍMINN ÞHIÐJUDAGUR 25. janúar 1972 Sveinn Gunnarsson: KVON- BÆNA SAGA 21 Ég var að iganga út úr skcmm- unni, þegar að bæjardyrum barði rösklegur og djarflegur maður og viðkunnanlog stúlka stóð við hlið hans. Þetta færði borgfirzka þok- an okkur í það skiptið. Þau voru bæði þreytuleg. Þau heilsuðu mér og okkur feðgum. Eftir nokkrar spuirningar ýmsu viðvíkjandi voru þau ráðin hjá föður mínum allt sumarið. Fór ég svo með þau inn. Sumarið leið og hjú þessi voru hjá okkur og sögðust vcra hjón austan undan Eyjafjöllum. Þegar haustaði sáu menn að kona þessi var vanfær og talaðist þá svo til með föður mínum og kaupaling, sem nefndi sig Án, að þau réðust þar um veturinn með því skilyrði, að hann tæki að sér beitarhúsa- fjárhirðingu. Án þessi var hversdags prúður og afar-hraustmenni. Föður mín- um þótti vænt um þcnnan mann, honum féll eitthvað svo cinstak- lega vel við hann, enda var Án honum fylgispakur og eftirlátur í öllu. Þegar að því kom, að konan skyldi fæða, gekk hcnni erfitt og tveim dögum eftir barnsburðinn dó barnið. Ég stundaði nám á vetrum, en vair heima hjá föður minum á sumrum, þar til ég útskrifaðist af prestaskóla. Dvaldi þá tæpt ár heima og fiutti ég svo á brauð þetta. Öll þessi skólaár mín var Án alltaf undir hendi föður míns og kom sér vel. Ifann hafði átt citt barn til og það dáið. Ilonum hafði auðnazt að græða fé, í bezta máta vel. Litlu eftir að ég hafði útskrif- ast, bauð Án mér að koma ein- hvern tíma til sín, og einn glað- an sunnudagsmorgun gekk ég þangað. Án var heima og tók nú báðum höndum móti mér. Ég var búinn að hugsa mér að láta Án upplýsa mig um ætterni og átt- haga sína. Eftir að hafa setið um stund og jafnað blóðið, fór ég að spyrja þau um uppruna sinn, en það var dauft í það tekið og sótti ég þá fastara á' og sagðist skyldi lofa þeim því, að verða þeiim ekki mótfallinn, hvernLg sem ástæðum þeirra væri varið. Án kvaðst vilja fræða mig á þessu, ef ég handsal- aði þeirn þagmælsku. Ég igerði það og byrjaði Án á þessa leið: — Ég er úr Vestmannaeyjum og heiti Grímur. Faðir minn heit- ir Ólafur og býr hann í fátæklegri sjóbúð á bújörð ríkismanns, sem Brandur hcitir. Við börn Ólafs vor um sex og var ég þeirra elztur. Faðir minn átti erfitt með að hafa ofan í hóp sinn og var ég því ungur látinn stunda sjó og margt annað fleira að gera, sem erfiðisverk var. En þó ég sem barn ynni mikið, dafnaði ég samt vel og kallaður þrekpiltur. Þessi ríki Brandur, landsdrottinn föður míns, átti þrjú börn, eina dóttur og tvo syni. Dóttirin var elzt af börnum Brands. Brandur var áhugamaður og hagsýnn í mörgu. Þessi dóttir hans hét Guðný og þegar hún vair ögn á legg kom- in, lét Brandur hana fara að hjálpa til við fiskinn, að afhausa og fletja. Eftir að Guðný var orð- in þrettán ára, sagði faðir henn- ar að taka einn hlut sinn og gera honum til góða alla tíð, þegar á sjó væri farið. Brandur átti stór- an tLmburhjall nálægt því, sem fiskinum var gert til góða, og var allur fiskur Brands þar inn bor- inn og hengdur á rár. Við Guðný vorum á líkum aldri og hafði ég skylduverk hjá föður imínum að gera að einum hlut. Það var venjan að við Guðný átt- um mikið eftir við skylduveirk okkar, þegar aðrir voru búnir og heim farnir. Brandur fékk vana- lega dóttur sinni hjalllykilinn og sagði hcnni að henigja upp fisk- inn, læsa og koma með lykilinn. Að öðru leyti var ckkert skipt sér af okkur. Á haustvcrtíðum var Guðnýju svo kalt, að henni var ómögulegt að geta fullnægt ætlun arverki sínu, en Brandur sagði að það væri leti, deyfð og linka. Það var hans úrskurður. Skammdegis- forstkælan meintók litlu hendurn ar hennar Guðnýjar, og hún þvoði möngurn steininuim imeð tárum sín um. Þessi stóri þorskur bar þrek hennar ofurliða. Fyrst framan af var ég seinn og því jafnan varð ég cftir hjá Guðnýju í fjörunni. Við vorum þar tvö ein að herja á þorskinn og ætlaði hann sífellt að brjóta okkur á bak aftur í hólmgöngunuim. Guðný var á knjánum að höggva og leggja, en þegar kuldinn var búinn að gera fingurnar svo tilfinningalausar, að vopnin féllu úr greipum hennar, bað óg hana að fara heim til mín, sem ekki var langt, og bíða á meðan óg kláraði hlut hennar, af því hún var nær því frosin til skaða. Þáði hún það vanalega, og kom þá faðir minn og hafði gadda kylfu í höndum, tréðst móti þorsk inum og stóðst þá engin sjávar- skepna högg hans. Féll þá hver um annan og að lítilli stundu lið- inni var sigurinn fenginn og fisk urinn kominn á sinn stað og hjall urinn læstur. Þanniig gekk það til, þar til við höfðum einn um tvít- ugt, þá var Guðný látin hætta fiskvinnu svona að staðaldri. Um það leyti fór ég að eiga með mig og gerðist lausamaður. Fisk minn lagði óg inn hjá kaupmanni á Eyrarbakka og hafði öll skipti við hann. Þannig var ég lausamað ur í fjögur ár. Um þessar mund- ir var biðlað til Guðnýjar, af myndarlegum og efnuðum manni og hét Brandur honum stúlkunni, án þess að spyrja hana um það. En barnæskan hafði laðað okkur saman og við vorum heitin hvort öðru í þegjanda hljóði. Móðir hennar sagði svo dóttir sinni frá gjaforðinu og nóttina eftir fann hún mig og sagði mér frá og gat þess líka um leið, að hún væri ekki kona ein og það væri mér að kenna. Ég hefi aldirei kjark- maður verið, enda eyðilagðist ég þá um stund. Eftir að hafa brot- ið út ýmsar setningar viðvíkjandi ástæðum okkar, spurði ég hana, hvað hún vildi að fyrir yirði tek- ið, því þessi mín helga fylgja, fá- tæktin, hefir hamlað mér frá að biðja þín og héðan af hugsa ég ekki til þess. Nú ertu öðrum heit- in og þar rnieð allar mínar fram- tíðarvonir helfjötruim bundnar. Guðný sagði að líkindi væri á því, að ekkert yrði úr hjónabandi mill um sín og biðils síns, vegna þess að hún væri vanfær. En aftur kveið hún fyrir vondri viðbúð for eldra sinna undir þessurn ástæð- um, sem hún væri nú í. Þegar allt og allt væri orðið ljósi ljósara, kvaðst hún heldur vilja ráfa um jökla íslands, en búa við kúgun þá, sem sín mundi bíða í föðurhúsum. Hún kvaðst heldur vilja fæða fóstur sitt und- ir stórum steinum á stálköldum hraunbrúnum, en láta sitt mun- rðairlausa fóstur falla í freraðar hendur föður síns. Eftir umhugs- un spurði ég: — Viltu að við reynum að strjúka? Að fjórum döguim liðn- um verður sjóferð til Eyrarbakka og bið þú þá föður þinn að iofa þér að fara með að gamni þinu, Krossgáta dagsins Lárétt I) Liflát. — 5) Æröa. — 7) Úrskurð. — 9) Lausung. — II) Þófi. — 12) Röö. — 13) óþrif. — 15) Gyðja. — 16) Fisks. — 18) Yfirhöfn. — Lóörétt 1) Gamall. — 2) Auð. — 3) Nhm. — .4) Frostbit. — 6) Frumbyggi. — 8) Strákur. — 10) Mjólkurmat. — 14) Dropi. —• 15) liát. — 17) Tónn. — —Sagðistu hafa skoðað Ranger Jim? —Ég skoðaði mann, sem sagðist hafa misst minnið. Hann vissi ekki hvaö hann hét. Tonto lýsir Ranger Jim... —-Var þetta sami maðurinn? Ef svo, þá er hann i hættu. —Já, það var hann, en ef þeir vita, aðég hef sagt frá, þá erég i hættu. A meðan,... —Eins og læknirinn sagði, þá skulum við lofa honum að hvila sig til morguns og sjá hvort minnið kemur aftur. Ef ekki, þá reynum viðað „hjálpa” þvi. ÞRIÐJUDAGUR 25. janúar 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45. Morgunleikfimi kl. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.15 Húsmæðraþáttur 13.30 Eftir hádegið Jón B. Gunnlaugsson leikur létt lög frá ýmsum tímum. 14.30 Ég er forvitinn í þættinum er fjallað um húsmóðurina, heimilisstörf og mat á þeim. Umsjónar- maður: Vilborg Harðardóttir 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 Miðdegistónleikar ifil5 Vf'ðurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir. 17 10 Framburðarkennsla þýzka, spænska og esper- anto. 17 40 Útvarpssaga barnanna: .Högni vitasveinn" eftir Óskar Aðalstein Baldur Pálmason les (9) 18 00 Létt lög. Tilkynningar. 18 45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 10 00 Fréttir. Tilkynningar. 19 30 Heim'smálin Magnús Þórðarson, Tómas Karlsson og Ásmundur Sigurjónsson sjá um þátt- inn. 20.15 Lög unga fólksins Ragnheiður Drífa Stein- þórsdóttir kynnir. 21.05 íjiróttir Jón Ásgeirsson sér um þáttinn. 213i Utvarpssagan: „Hinum megin við heiminn" eftir Guðm. L. Friðfinnsson Höfundur les (5) •’2.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. „Ekki kvíði ég ellinni“ Jónas Jónasson talar við Ragnheiði O. Björnsson, kaupkonu á Akureyri. 22.45 Harmonikulög Heidi Wiid og Renato Bui leika ásamt New Sounders- hljómsveitinni. 23.00 Á hl.jóðbergi „The Strange Case of Dr Jekyli and Mr. Hyde“ eftir Robert Louis Stevenson. Anthony Quayie les síðari hluta sögunnar. 23.40 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. Þriðjudagur 25. janúar 1972. 20.00 Fréttir. 20 25 Voður og auglýsingar. 20.30 Ashton-fjölskyldan. Brezkur framhaldsmynda- flokkur um líf miðstéttar- fjölskyldu í Liverpool á styrjaldarárunum. D R E K I 1 klefa Bellu leitar Dreki vel og vandlega. — Ekkert þar. Kannski ekki á réttri slóð, hver veit?!!! — Þarna kemur það, hann er á eftir okkur! — Biddu, Clem. Viö skulum segja Bellu það fyrst. 2. þáttur. Tilganurinn helg- ar meðalið. Þýðandi Kristrún Þórðar- dóttir. 21.20 Setið fyrir svörum. Umsjónarmaður Eiður Guðnason. 21.55 Nætur í görðum Spánar. Mynd frá spánska sjónvarp- inu, gerð í minningu um tón- skáldið Manuel de Falla, sem látinn er fyrir rúmum aldarfjórðungi. Hér er tón- verk hans, Nætur í görðum Spánar. flutt, meðan brugð- ið er upp myndum úr spánsku landslagi, í sam- ræmi við tónverkið. 22.20 En frangais. Frönskukennsia í sjónvarpi. 22. þáttur endurtekinn. Umsjón Vigdís Finnbogad. 22.50 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.