Tíminn - 25.01.1972, Side 20
93 létust
af eitruðu
áfengi
NTB - Nýju Dehli.
Niutiu og þrir Indverjar hafa
nú láíizt af völdum eitraös
áfengis, sem þeir drukku um
heigina. Margir liggja á
sjúkrahúsi og eru I lifshættu.
Leitað var til leynivinsala I
einu af fátækrahverfum Nýju
Dehli á laugardaginn, þegar
vlnlaust var oröið I brúð
kaupsveizlu, sem þar var
haldin. Vinsalinn útvegaöi
miklar birgðir fljótlega og
voru gestirnir snöggir aö inn-
byrða þær. Drykkurinn
reyndist þó enn göróttari en
til var ætlazt, og fóru menn
aö kasta upp og urðu siöan
fárveikir. begar til kom,
reyndist áfengiö mikil
blandað tréspiritus.
Nefnd var sett á laggirnar
til að rannsaka, hvernig slikt
geti komið fyrir, og er nú
beðið eftir niðurstöðum
hennar.
ILO á að
beita sér
gegn
krabba
meininu
- segja krabba-
meinssérfræðingar
NTB - Genf
Alþjóöa vinnumála-
stofnunin (ILO) á að dómi 11
sérfræðinga, sem nýlega
hafa haldið með sér fund, að
taka virkan þátt I baráttunni
gegn krabbameini, meö þvi
að safna upplýsingum um
sjúkdóminn og dreifa þeim.
Sérfræðingarnir eru frá 8
löndum og byggja þeir þetta
álit sitt á þvi, að ILO hafi
sérlega góða aðstööu til að
tryggja samvinnu milli heil-
brigðisyfirvalda, vinnuveit-
enda og starfsmanna. Þá
benda sérfræðingarnir á, að
vitað sé, að mörg efni, sem
notuð eru i iönaði, geti
framkallað krabbamein, og
reyna veröi að takmarka
notkun þeirra, ef mögulegt
sé, til aö vernda verkafólk.
Hús 20 flug-
félaga brann
NTB - Manila
Flugstööin á alþjóöaflug-
vellinum I Manila á Filipps-
eyjum brann á laugardags-
nóttina og er stöðin gjörónýt
eftir. Eldurinn virtist koma
upp með dularfullum hætti,
að þvi er sjónarvottar segja,
og er ekki taliö útilokaö, að
kveikt hafi veriö i. Sjö lik
hafa fundizt i rústunum.
Tuttugu alþjóöleg flug-
félög höfðu skrifstofur sinar i
byggingunni, og segir flug-
vallarstjórinn, aö tjóniö
muni nema allt að 40
milljónum dollara. Ekkert er
hægt aö segja um, hvenær
umferö getur hafizt um flug-
stöðina á ný.
Séra Jón Auðuns, dómprófastur, flytur minningarræöuna um Friðrik IX Danakonung I Dómkirkjunni I gær. (Timamynd—Gunnar)
Konungsins minnzt í Dómkirkjunni
EB - Reykjavik.
Minningargúðsþjónusta um
Friðrik IX Danakonung, fór fram I
Dómkirkjunni i Reykjavlk I gær, á
sama tima og útför konungs var
gerð frá Dómkirkjunni I
Hróarskeldu, þar sem konungurinn
var lagöur til hinztu hvildar. Hófst
minningarathöfnin I Dómkirkjunni I
Reykjavlk kl. 13.30. Biskup tslands,
herra Sigurbjörn Einarsson, fór
með trúarjátninguna og las ritn-
ingarorð og séra Jón Auöuns, dóm
prófastur,flutti minningarorð. Enn-
fremur talaöi Birger Kronmann,
ambassador Danmerkur. Einar
Vigfússon, sellóleikari, lék einleik á
selló og Ragnar Björnsson, dóm-
kantor, Iék á orgel sorgarmarsa
eftir Hartmann og Mendelssohn og
stjórnaði sálmasöng Dómkórsins.
Voru sungnir sömu sálmar og I
Dómkirkjunni I Hróarskeldu. Að
minningarathöfninni I Dóm-
kirkjunni stóöu danska sendiráðið
hér á landi og færeysku og dönsku
félögin.Útvarpað var frá athöfninni
- og á eftir var leikin dönsk tónlist af
hljómplötum I útvarpinu.
1 minningarræðu sinm um
Friðrik IX Danakonung, fór séra
Jón Auðuns nokkrum orðum um
þann hlýhug, sem viö Islendingar
bærum I brjósti til hins látna
konungs, sem hefði verið krónprins
lands okkar I rúmlega 35 ár. Frá
heimsóknum Friðriks IX hingað,
sem krónprins íslands, ættum viö
fagrar minningar, en fegurstu
minningar um konunginn ættum
við frá heimsókn hans og drott-
ningar hans 1956. Þá enn einu sinni
hefðu dönsku konungshjónin ’sigrað
hjörtu allra meö framkomu sinni.
Séra Jón Auðuns minnti einnig á
þann hlýhug, sem Friðrik IX heföi
borið til Islenzku þjóðarinnar og þá
miklu gleði, sem konungurinn hefði
borið I brjósti yfir þeim vináttu-
böndum, sem rikt hefðu milli ís-
lands og Danmerkur I valdatlð
hans. Minnti séra Jón á heimkomu
handritanna i vor I þessu sambandi.
Undirritun samnings Bretlands við EBE víða mótmælt:
Poka af prentsvertu varpað
i andlit Heaths um helgina
Forsætisráöherrar landanna fjögurra, sem sótt hafa um aöild að Efna
hagsbandalagi Evrópu, undirrituöu bandalagssáttmálann I Brússel, sið-
degis á laugardag. Fyrstur undirritaði Heath fyrir Bretland, þá Lynch fyrir
trland, Krag fyrir Danmörku og loks Bratteli fyrir Noreg.
Samningur þessi er þó ekki endanlegur, þvl eftir er að samþykkja hann á
þingum Iandanna og með þjóðaratkvæðagreiöslu I Danmörku. Hann gengur
I gildi um áramótin nk.
Undirritunarathöfninni I Brussel seinkaði um 50 minútur, vegna þess að
Heath þurfti að þvo sér I framan og um hárið, og hafa fataskipti eftir að
kona nokkur hafði kastað að honum poka af prentsvertu við innganginn I
Egmont - höllina.
Viðar var efnt til mótmæla vegna undirritunarinnar. í Kaumannahöfn
komu 700 manns saman á fund og eftir fundinn var birt áskorun til dönsku
þjóöarinnar að segja skýrt nei, við þjóðaratkvæðagreiösluna.
1 London hrópaði mannfjöldi „Heath svikari” og „Neitum Evrópu”,
þegar hópur þingmanna afhenti mómælaskjal, stilað á fulltrúa Evrópu-
nefndarinnar I London. Fólkið hafði safnazt saman viö heimili sendifull-
trúans og báru margir skilti, sem á mátti lesa m.a.: „Látum ekki selja
okkur skilyrðislaust” og „Það er fasismi að hafa ekki þjóðaratk-
væðagreiðslu.”
Leiðtogi mótmælendanna, Douglas Jay, sagöi við blaðamenn, aö til-
gangurinn með þessu væri aö reyna aö koma öllum I skilning um, að meiri
hluti almenningsálitsins i Bretlandi væri á móti aðildinni..
1 siðari fréttum segir, að Heath hafi tjáö belgisku stjórninni, að hann
myndi ekki leggja fram ákæru á hendur konunni, sem kastaöi að honum
prentsvertunni. Hún heitir Marie - Louise Kwiatkowski og er af þýzkum
ættum.
Marie situr nú i varöhaldi i kvennafangelsi og viljá belgisk yfirvöld ákæra
hana fyrir likamsárás á forsætisráðherra. Verði hún sek fundin, á hún yfir
höfði sér tveggja ára fangelsi.
Rangæingar - Rangæingar
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu efnir til 3ja kvölda spila-
keppni I Félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli.
Keppnin hefst sunnudagskvöldið 30. janúar n.k. kl. 21.30. Heildar-
verðlaun er*fcrö til Kaupmannahafnar fyrir tvo og vikudvöl þar.
Auk þess eru góð verðlaun fyrir hvert kvöld.
Ávörp um Uokksstarfið og þjóðmálin flutt á hverju spilakvöldi.
verðlaun eru ferð til Kaupmannahafnar fyrir tvo og vikudvöl þar.
Marie komst að Egmont höllinni á laugardaginn með þvi að sýna sænskt
blaðamannaskirteini. Hún segii) að árásin á Heath hafi ekki verið I mót-
mælaskyni við undirritun samningsins, heldur þær áætlanir forsætisráð
herrans, að láta byggja i Covent Garden. Marie er leiðtogi hreyfingar, sem
berst fyrir varðveizlu garösins.
Vinkona Marie segir, að þær hafi fengið hugmyndina um prentsvertuna,
er þær voru aö drekka kaffi á veitingahúsi i Brussel á miðvikudagskvöldið.
Hún bætti þvi við, að þær væru reiðubúnar að biðja Heath afsökunar á
þessu, ef hann gerði ráöstafanir til aö Coventgarðurinn yröi varðveittur.
Sænsk lögregla
í skotbardaga við
hasssmyglara
NTB—Malmö
Sænskum lögregluþjónum
tókst á föstudaginn eftir
stuttan skotbardaga, að yfir-
buga þrjá bandariska her-
menn, sem grunaðir voru um
eiturlyfjasmygl og frelsa tvo
sænska tollverði, sem
Bandarikjamennirnir höfðu
tekið sem gisla.
Það var á fimmtudags-
kvöldið, að tollyfirvöld, i
Malmö uppgötvuöu 95 gr. af
hassi I bil meö þýzku númeri.
1 bllnum voru fimm far-
þegar, og fundust auk þess á
einum þeirra 17.000 norskar
krónur i margskonar gjald-
miðli. Tveir farþeganna,
konur, fengu að fara leiðar
sinnar, en þrir bandariskir
hermenn voru handteknir.
Þegar öðrum þeirra var
sagt, aö hann yröi hand-
tekinn fyrir hasssmygl, dró
hann upp byssu, tók tvo toll-
verði meö sér og flýði i bil
sinum. Hann reyndi aö
komast með ferju til Dan-
merkur, en lögreglan náði
bllnum 80 km. norðan viö
Malmö, með þvi að skjóta
sundur hjólbarðana. Banda-
rikjamennirnir skutu á móti,
en gáfust loks upp. Siðar
kom i ljós, að konurnar voru
lika vopnaðar og voru þær
handteknar.