Tíminn - 27.01.1972, Page 2

Tíminn - 27.01.1972, Page 2
2 TÍMINN FIMMTUDAGUR, 27. janúar 1972. Landbúnaðar- sjóðirnir Frétt, sem birtist í Tím- anum fyrir skömmu um fjármagnsútvegun landbún aðarráðlierra til sjóða Bún aðarbankans, virðist hafa komið við kaunin á Mbl. Hún varð blaðinu tilefni til þriggja greina: Viðtals við Þórhall Tryggvason, leiðara degi síðar og loks skrifar Ingólfur Jónsson laugardagsgrcin um þetta efni. Með skrifum þessum er reynt að láta líta svo út, að fyrrv. landbúnaðarráð- herra hafi skilið við þessi mál öll með prýði og sóma. Að þeim viðskilnaði var þó hvergi vikið sérstaklega í frétt Tímans, heldur aðelns skýrt frá þeirri staðreynd, að sjóði Búnaðarbankans liafi skort verulcgar fjár- hæðir til að geta fullnægt lánsumsóknum bænda og gefnum lánsloforðum bank- ans, þegar Ilalldór E. Sig- urðsson tók við stjórn land búnaðarmála. Þetta fjár- magn, 112 milljónir til Stofnlánadcildar og 20 mill- jónir til Veðdeildar útveg- aði núverandi landbúnaðar ráðherra. Bréf Ingólfs Mbl. gcrir mikið úr því afreki, að Ingólfur Jónsson hafi skrifað Búnaðarbankan um bréf í lok maí, þar sem bankanum er lofað viðbótar fjármagni til Stofnlána- deildar eða 75 milljónir. 21.5 milljónir átti banklnn bá að leggja sjálfur til. Með þessu voru málin alls ekki leyst og þau voru jafn óleyst þegar Ingólfur fór frá völdum. Ingólfur skrif aði einnig bréf til Veðdelld ar. Það mun liafa verið í marz. Lofaði hann 5 millj. króna. Þær voru ókomnar, þegar Ingólfur fór frá völd um, en Ilalldór E. Slgurðs- son útvegaði 20 mllljónir króna til deildarinnar. — Dugnaður Ingólfs var síð- ustu mánuði fyrir stjórnar- skiptin aðallega fólgin í bréfaskriftum og fyrirhelt- um, sem ekki gafst tími til að efna. Ingólfur samþykktl fyrir tveimur árum áætlun, sem gerð var um uppbyggingu sláturhúsanna. Hann hafði ekki staðið við fy'rlrheit um fjármagnsútvegun, þegar hann fór frá völdum. Nú loks cru, fyrir tilhlutan nú- verandi landbúnaðarráðh., 12 milljónir á fjárlögum tll þessara hluta. Á síðustu stjórnardögum sínum skrifaði Ingólfur líka bréf og gaf fyrirhelt um 7,5 milljón króna lán til Hvann eyrarskólans. Lánlð áttl að borgast með fjárveitingu á fjárlögum 1972. Ingólfi tókst f sinni ráðherratíð aldrei að koma fjárveiting- um til Hvanne.vrarskólans hærra en í 5 mllljónlr, en í ár er sú fjárveltlng 15 milljónir. Fleiri dæmi um dugnað Ingólfs í fyrirheitum í bréfaskriftum á sfðustu valdadögunum má nefna sfð ar, en það er svo með þau ÖIl, að það hefur komið í annarra hlut að efna þau. En auðvitað ber Ingólfi þakkirnar fyrir það! — TK Maðurinn sjálfur mesta vandamálið ..Kirkjurækinn” sendir eftirfarandi bréf: „Kæri Landfari. Ég er töluvert kirkjurækinn, og eitt sinn i sumar, er ég brá mér i Dómkirkjuna, barst i hendur minar eintak af Safn- aðarblaði Dómkirkjunnar. 1 þvi var stutt grein eftir séra Óskar J. Þorláksson. Þar var vikið að málum, sem síðan hafa orðið mér ihugunarefni, og af þvi að ég held, að svo gæti orðið um fleiri, en blað þetta kemst liklega ekki ut fyrir söfnuðinn, langar mig til þess að biðja þig, Landfari minn, að birta greinarstufinn, og ég vona, að séra Óskar fyrtist ekki við. Greinin er svona: „Vandamál mannlifsins viirast þvi miður vera mörg nu á dögum, og vandamál þarf að leysa. Spurningin er þessi: Viljum við vera þátttakendur i þvi að leysa þessi vandamál, eða erum við kannski sjálf að einhverju leyti orsök þeirra, eða eigum við þátt i þvi að við- halda þeim? Þvi miður er það svo, að við mennirnir erum oft sjálfir mesta vandamálið, miklu fremur en yrti að- stæður. Aparnir hafa tekið völdin. KVIK MYNDIR Þær fáu mannverur sem þarna eru, fyrir utan geim- farann, firðast alveg skyni skroppnar og gera litið annað en fljúgast á og snikja mat eins og apar i búri. Þær miklu deilur sem urðu þegar Darwin setti fram þróunarkenningu sina, ganga hér aftur og apana vantar ekkert af viðbrögðum manns- ins gagnvat þvi sem hann telur sér ekki henta. Þegar jarðfræðingurinn Cornelius er aö útskýra fyrir hæstvirtum réttinum fund sem bendir ó- tvirætt á lif fyrir daga hegi- sagnanna, tekur einn dómaranna fyrir augun, annar fyrir eyrun og sá þriðji fyrir munninn. Helzt til mikið er gert hér úr ofurmennsku geimfarans Taylors,en annars er myndin mjög sérstæð og forvitnileg. Einkum er áhugavert að heyra rætt um manninn, þennan drottnara jarðarinnar, eins og lægri veru, eins og við höfum meðhöndlað dýrin, notað þau til tilrauna, sett þau i búr i dýragörðum svo fólk geti haft ánægju að horfa á, valið þeim maka af handahófi til þess að þau eignist af- Frh. á bls. 14. Tökum t.d. áfengismálin. Þau eru vissulega mikið vandamál i þjóðlifinu, og oft er um það talað, að eitthvað þurfi að gera i þessum málum, þvi að það eru ótrúlega margar fjölskyldur, sem stynja undir þvi böli, sem áfengið veldur. En flestir virðast furðu úrræðalitlir i þessum málum. Rikisvalið hefur eins og kunnugt er einkasölu á áfengi, og hefur af þeirri sölu mikinn hagnað. Þess verður furðu litið vart, að rikisvaldið geri yfirleitt nokkrar ráöstafanir til þess að halda áfengissöl- unni i skefjum, heldur bryddir þvert á móti á tilhneigingu i þá átt að koma hér upp visi að áfengisiðnaði og auka fjöl- breytni i þessum verzlunar- háttum. Ef rikisvaldinu væri nokkur alvara i þessum málum, mundi áfengiseinka- salan geta gert nokkuð til þess að halda áfengissölunni i skefjum, eða jafnvel draga eitthvað úr henni. En hér er vissulega við ramman reip að draga, og þetta vandamál er ekki fyrst og fremst ytra vandamál, heldur persónulegt vandamál. Bindindissemi hvers ein- staklings er það eina, sem getur að fullu leyst áfengis- vandamál hans, en til þess að það takist þarf festu i skap- gerð, trúarlega og siðferðilega alvöru, guðs hjálp og stuðning góðra manna. Ef menn vilja ekki vera bindindismenn eða leggja til hliðar þá ánægju,- sem þeir kunna að hafa sjálfir af hóf- legri nautn áfengis til þess að geta orðið öðrum til hjálpar, þá heldur áfengsibölið áfram i ýmsum myndum og mun fremur aukast en minnka. Afengið er lúmskara en flest önnur nautalyf, vegna þess að það býður upp á stundargleði, en menn gera sér ekki ljósa þá hættu, sem i þvi felst. Þetta er vissulega ihugunarefni fyrir alla, sem vilja hugsa um heil- brigt lif og lifsgæfu”. Landfari þakkar fyrir bréfið, og vissulega eru þessi orð prestsins hollt ihugunarefni hverjum sem er, jafnt þeim, sem telur áfengis- bölið ekki koma sér við, sem hinum er hjálpar þurfa. Apaplánetan á frummálinu The planet of apes Leikstjóri: Frank J. Schaffncr Kvikmyndari: Leon ShamiF' mroy. iónlist: Jerry Gold- smith. Iiandrit byggt á samnefndri bók eftir Pierre Boullej U. Wilson og R. Lenling. Bandarisk frá 1969 Sýningarstaður: Nýja bfó, islenzkur texti. Höfundur bókarinnar Pierre Boulle hefur fengið góða hug- mynd þegar hann skrifaði þessa visindaskáldsögu „Pláneta apanna”. Úrvinnsla Schaffners er nokkuð góð, helzt er hægt að finna að gervi apanna, sem er full stirönað. Fjórir geimfarar eru sendir út i geiminn til að finna aðra plánetu, þrir karlmenn og ein kona, á meðan á ferðalagi þeirra stendur liöa fjögur þúsund ár eftir timatali jarðarinnar. Þegar þau svo lenda er konan látin og þeir þrir bjarg- ast naumlega frá drukknun og komast á land á eyðimörk. Eftir mikið harðræði komast þeir loks að gróðurvin og sjá mannskepnur dauðskelkaðar og mállausar, flokkur apa gerir árás á þá og eftir ójafnan leik er Taylor (Charlton Heston) færður i böndum til apaborgarinnar. Þar eru mennirnir leiknir eins og við meðhöndlum dýr. Þetta er pláneta apanna, þeir hafa öðlazt mannlega greind og samfara henni aðra mannlega eiginleika. Kaldhæðni myndarinnar liggur einmitt i þvi hvernig allt tal sem tiðkazt hefur um „skynlausar skepnur” og sú meðferð sem viðtekin er i skjóli þess að þær séu öðruvisi en við, er hér snúið uppá manninn. INNIHURÐIR - ÚTIHURÐIR FRÁ KÁ SELFOSSI Sáuð þið nýja happdrættis- húsið frá DAS. Hurðirnar í því hafa vakið óskipta athygli. Þær eru frá K.Á. ÚTIHURÐIR úr tekki, Oregon-pine, furu og afrómosíu. Hægt er að velja um 9 gerðir. INNIHURÐIR úr gullálmi, ask, eik og furu. Afgreitt fullunnið heim að húsi. Hér er enn hægt að fá gömlu, traustu grindina, sem tryggir, að enginn vindingur á sér stað. HÁTÚN 4A VIÐ NÓATÚN. o SÖLUSKRIFSTOFA KÁ í REYKJAVÍK SÍMI 2 18 £0.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.