Tíminn - 28.01.1972, Blaðsíða 1
SAMVINNUB A NKINN
- -
N
Jörgensensmálið
Eftir fimm ára rannsókn
eru málsskjölin 20 þúsund
Dóms í málinu er að vænta i vor
Loksins er fariö að ryöja
götur Reykjavikur af kappi,
en þá vill þaö brenna viö aö
rutt sé upp á gangstéttirnar,
svo hálf ófært verður fyrir
gangandi fólk. Myndin var
tekin af snjóruöningi, þegar
þrir hefla fóru hver á eftir
öðrum.
(Timamynd Gunnar).
00—Reykjavik.
Rúm fimm ár eru nú liðin siðan mál Friðriks
Jörgensens var tekið fyrir hjá Sakadómi Reykja-
vikur. Enn er ekki búið að dæma i málinu, en vonir
standa til að dómur verði kveðinn upp á vori
komanda. Og þá er eftir að vita, hvort þeim úr-
skurði verður skotið til Hæstaréttar og dregst þá
endanlegur dómur enn á langinn. Allt frá þvi að
málið kom fyrir,hafa einhverjir aðilar unnið að
rannsókn þess, en athugunin er einhver hin
yfirgripsmesta, sem gerð hefur verið i sakamáli hér
á landi.
15. marz 1971 gaf
saksóknari út ákæru á hendur
Jörgensen. Er hann ákærður
fyrir fjárdátt, gjaldeyrisvanskil
og bókhaldsbrot. Þá er honum
gefið aö sök að hafa dregiö sér
rúmar 27 milljónir kr. af söluand-
virði útfluttra sjávarafuröa, sem
hann hafði i umboðssölu 1965 og
1966 fyrir ýmsa framleiðendur
vfðs vegar um land.
Málið var kært til sakadómara
rétt fyrir áramót 1966. og i janúar-
mánuði 1967 hófst rannsóknin, og
reyndist hún mjög timafrek vegna
yfirgripsmikillar athugunar á
bókhaldi fyrirtækisins og öðrum
sakargögnum, skjalaöflunar og
yfirheyrslna mikils fjölda vitna.
Málið var þingfest hjá Sakadómi
18. marz 1971. Dómsforseti er
Olafur Þorláksson. Meödómendur
eru Guðmundur Skaftason, hrl. og
Hrafn Haraldsson, eru þeir báöir
löggiltir endurskoðendur.
Vinnur nákvæmlega.
Olafur Þorláksson, sakadómari,
sagði Timanum, að mál Jörgensens
væri tekið fyrir annað slagiö, en
verjandi hans, sem er löggiltur
endurskoðandi og hæstaréttar-
lögmaður, vinnur sitt verk mjög
nákvæmlega,og hefur dómurinn séð
ástæðu til að gefa honum þá fresti,
sem hann biöur um til að afla allra
þeirra gagna, sem hann telur að
Getrauna-
málinu
lýkur í
næstu viku
ÞO—Reykjavík.
Nú fer að styttast i það, aö
gengið veröi frá Húsavikur-
málinu eöa getraunamálinu.
Sigurgeir Guðmannsson hjá
Getraunum saeði, aö i næstu
viku lægi málið ljóst fyrir og
kæmi þá i ljós, hvort Hús-
vikingurinn Baldur Karlsson
fengi stóra vinninginn, eöa
hvort hann yrði aö sitja eftir
með sárt enniö.
máli skipti. Stendur málið nú
þannig, að enn frekari frestur hefur
veriö gefinn.
Umsvifamikill ein-
staklingur.
Málskjölin eru nær 20 þúsund tals-
ins. Er þar um að ræða heilt
bókhald stórs útflutningsfyrirtækis
um þriggja ára skeið, en Friðrik
Jörgensen var á sinum tima einn
stærsti útflytjandi sjávarafurða hér
á landi, og langumsvifamesti ein-
staklingur, sem við þessa verzlun
fékkst.
Gangur málsins er sá. að fyrst
var fariö yfir bókhald og m lskjöl
af hálfu Sakadóms, eða endur-
skoðenda, sem dómurinn valdi.
byggðar voru á iðurstöðum en-
durskoðenda Sakadóms. Þær
tóku langan tima lika. Þá var
málið sent saksóknara rikisins.
Þar varð að fara yfir allt lika og
semia málshöfðunarkröfu.
Allar þær rannsóknir tóku langan
tima. Eftir að máliö kom i vörn,
sem var i maimánuöi s.l.,hefur
verjandinn verið aö fara gegnum
gögnin, óg e'r þáð þriðja umferð.
Bæði sóknaraðilili og varnaraðili
verða að hafa öll sin tækifæri til
að kanna málskjöl til hlitar.
Þá er enn málflutningur eftir, og
verður það dómsins að fara yfir öll
gögn, sem sækjandi og verjandi
leggja fram, og komast aö sinum
niöurstööum. Eftir að málflutn-
ingur hefst^ná búast við að þaö taki
dóminn allt að tveim mánuðum að
komast að niðurstöðu.
Er þess vænzt,að hægt veröi aö
flytja málið i vor.
Myndarlegt átak á Hvammstanga
LEGGJA 20 MILU.
KRÓNA í HITAVEITU
ÞO—Reykjavik.
Nú er áform að koma upp
hitaveitu á Hvammstanga á
sumri komanda, og er nú
unnið að fjáröflun til fram-
kvæmdanna. Brynjólfur
Sveinbergsson, fréttaritari
Timans á Hvammstanga,
sagði aö hér væri um mikið
mannvirki að ræða fyrir svona
famennt sveitafélag, og sam-
kvæmt áætlun Fjarhitunar hf.
er kostaðarverö hitaveitu-
framkvæmda.nna áætlaö 20
milljónir. Hitaveitan verður
lögð frá Laugabökkum að
Hvammstanga.
Mjög lélegt atvinnuástand
hefur verið á Hvammstanga
að undanförnu, enda hefur
engin rækjuvinnsla verið þar
undanfarið. Nú er hafin
garnahreinsun á staðnum og
hefur sú verkun veitt þó
nokkra atvinnu.
Voðaskotið:
Kúlan tekin
úr kviðarholi
mannsins
00—Reykjavik.
Liöan piltsins sem varð fyrir
voðaskoti á Isafirði s.l. þriðjudag,
er sæmileg eftir atvikum. Hann
var fluttur til Reykjavikur i
sjúkraflugvél og gerður á honum
uppskurður á Landakotsspitala
samdægurs.
Kúlan, sem lenti rétt neðan við
nafla, var fjarlægö og gert var aö
innri meiðslum.