Tíminn - 28.01.1972, Qupperneq 1

Tíminn - 28.01.1972, Qupperneq 1
SAMVINNUB A NKINN - - N Jörgensensmálið Eftir fimm ára rannsókn eru málsskjölin 20 þúsund Dóms í málinu er að vænta i vor Loksins er fariö að ryöja götur Reykjavikur af kappi, en þá vill þaö brenna viö aö rutt sé upp á gangstéttirnar, svo hálf ófært verður fyrir gangandi fólk. Myndin var tekin af snjóruöningi, þegar þrir hefla fóru hver á eftir öðrum. (Timamynd Gunnar). 00—Reykjavik. Rúm fimm ár eru nú liðin siðan mál Friðriks Jörgensens var tekið fyrir hjá Sakadómi Reykja- vikur. Enn er ekki búið að dæma i málinu, en vonir standa til að dómur verði kveðinn upp á vori komanda. Og þá er eftir að vita, hvort þeim úr- skurði verður skotið til Hæstaréttar og dregst þá endanlegur dómur enn á langinn. Allt frá þvi að málið kom fyrir,hafa einhverjir aðilar unnið að rannsókn þess, en athugunin er einhver hin yfirgripsmesta, sem gerð hefur verið i sakamáli hér á landi. 15. marz 1971 gaf saksóknari út ákæru á hendur Jörgensen. Er hann ákærður fyrir fjárdátt, gjaldeyrisvanskil og bókhaldsbrot. Þá er honum gefið aö sök að hafa dregiö sér rúmar 27 milljónir kr. af söluand- virði útfluttra sjávarafuröa, sem hann hafði i umboðssölu 1965 og 1966 fyrir ýmsa framleiðendur vfðs vegar um land. Málið var kært til sakadómara rétt fyrir áramót 1966. og i janúar- mánuði 1967 hófst rannsóknin, og reyndist hún mjög timafrek vegna yfirgripsmikillar athugunar á bókhaldi fyrirtækisins og öðrum sakargögnum, skjalaöflunar og yfirheyrslna mikils fjölda vitna. Málið var þingfest hjá Sakadómi 18. marz 1971. Dómsforseti er Olafur Þorláksson. Meödómendur eru Guðmundur Skaftason, hrl. og Hrafn Haraldsson, eru þeir báöir löggiltir endurskoðendur. Vinnur nákvæmlega. Olafur Þorláksson, sakadómari, sagði Timanum, að mál Jörgensens væri tekið fyrir annað slagiö, en verjandi hans, sem er löggiltur endurskoðandi og hæstaréttar- lögmaður, vinnur sitt verk mjög nákvæmlega,og hefur dómurinn séð ástæðu til að gefa honum þá fresti, sem hann biöur um til að afla allra þeirra gagna, sem hann telur að Getrauna- málinu lýkur í næstu viku ÞO—Reykjavík. Nú fer að styttast i það, aö gengið veröi frá Húsavikur- málinu eöa getraunamálinu. Sigurgeir Guðmannsson hjá Getraunum saeði, aö i næstu viku lægi málið ljóst fyrir og kæmi þá i ljós, hvort Hús- vikingurinn Baldur Karlsson fengi stóra vinninginn, eöa hvort hann yrði aö sitja eftir með sárt enniö. máli skipti. Stendur málið nú þannig, að enn frekari frestur hefur veriö gefinn. Umsvifamikill ein- staklingur. Málskjölin eru nær 20 þúsund tals- ins. Er þar um að ræða heilt bókhald stórs útflutningsfyrirtækis um þriggja ára skeið, en Friðrik Jörgensen var á sinum tima einn stærsti útflytjandi sjávarafurða hér á landi, og langumsvifamesti ein- staklingur, sem við þessa verzlun fékkst. Gangur málsins er sá. að fyrst var fariö yfir bókhald og m lskjöl af hálfu Sakadóms, eða endur- skoðenda, sem dómurinn valdi. byggðar voru á iðurstöðum en- durskoðenda Sakadóms. Þær tóku langan tima lika. Þá var málið sent saksóknara rikisins. Þar varð að fara yfir allt lika og semia málshöfðunarkröfu. Allar þær rannsóknir tóku langan tima. Eftir að máliö kom i vörn, sem var i maimánuöi s.l.,hefur verjandinn verið aö fara gegnum gögnin, óg e'r þáð þriðja umferð. Bæði sóknaraðilili og varnaraðili verða að hafa öll sin tækifæri til að kanna málskjöl til hlitar. Þá er enn málflutningur eftir, og verður það dómsins að fara yfir öll gögn, sem sækjandi og verjandi leggja fram, og komast aö sinum niöurstööum. Eftir að málflutn- ingur hefst^ná búast við að þaö taki dóminn allt að tveim mánuðum að komast að niðurstöðu. Er þess vænzt,að hægt veröi aö flytja málið i vor. Myndarlegt átak á Hvammstanga LEGGJA 20 MILU. KRÓNA í HITAVEITU ÞO—Reykjavik. Nú er áform að koma upp hitaveitu á Hvammstanga á sumri komanda, og er nú unnið að fjáröflun til fram- kvæmdanna. Brynjólfur Sveinbergsson, fréttaritari Timans á Hvammstanga, sagði aö hér væri um mikið mannvirki að ræða fyrir svona famennt sveitafélag, og sam- kvæmt áætlun Fjarhitunar hf. er kostaðarverö hitaveitu- framkvæmda.nna áætlaö 20 milljónir. Hitaveitan verður lögð frá Laugabökkum að Hvammstanga. Mjög lélegt atvinnuástand hefur verið á Hvammstanga að undanförnu, enda hefur engin rækjuvinnsla verið þar undanfarið. Nú er hafin garnahreinsun á staðnum og hefur sú verkun veitt þó nokkra atvinnu. Voðaskotið: Kúlan tekin úr kviðarholi mannsins 00—Reykjavik. Liöan piltsins sem varð fyrir voðaskoti á Isafirði s.l. þriðjudag, er sæmileg eftir atvikum. Hann var fluttur til Reykjavikur i sjúkraflugvél og gerður á honum uppskurður á Landakotsspitala samdægurs. Kúlan, sem lenti rétt neðan við nafla, var fjarlægö og gert var aö innri meiðslum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.