Tíminn - 10.02.1972, Page 1

Tíminn - 10.02.1972, Page 1
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA SemiBILASTOÐIN HF EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR Bylgja aukinnar hassneyzlu gengur yfir SJ—Rcykjavik. Bylgja aukinnar hass- neyzlu gengur nú yfir meðal unglinga og ungs fóiks i Reykjavik. Auðveldara og ódýrara er nú en áður að afla sér þessa nautnalyfs, og talið er, að ákveðnir aðilar haldi þvi að nemendum gagn- fræðaskóla og annarra fram- haldsskóla. Það er skoðun margra, sem að æskulýðs- málum starfa, að þetta sé ekki orðum aukið. Fyrir fáum árum aekk svinuð býlgja yfir i Sviþjóð. Ung lingar þar höfðu þá mikil peningaráð og áttu auðveit með að fá vinnu. Félags- málastarfsmenn þar töldu jafnvel, að alþjóðlegur glæpahringur hefði hassið af ráðnum hug ódýrara en áður og héldu þvi að yngri aldurs- flokkunum til þess að afla sér tryggra kaupenda siðar meir með þvi að ráðast þar á, sem varnirnar eru veik- astar. Fuilorðnu fólki var yfirleitt ekki boðið efnið. Kennarar, æskulýðsstarfs- menn og aðrir, sem um þessi mál hugsa, hafa látið sér til hugar koma að möguleiki sé á, að slik útbreiðsluher ferð sé nú hafin hér á landi. Timinn leitaði i dag til Kol- beins Pálssonar, fram- kvæmdastjóra æskulýðs starfsins i Tónabæ, og spurði hann um þetta mál: — Það er enginn vafi,að hassneyzla hefur aukizt mjög hér að undanförnu og hætt er við, að hún sé að fær- ast niður til yngri aldurs- flokka. Aður virðist hass neyzlan vera innan ákveðins, tiltölulega lokaðs hóps, en ég óttast að nú sé hún að verða viðtækari, og jafnvel hafi komið til fleiri dreifingar- aðilar. Við, sem að æskulýðsmál- um störfum, gerum okkur grein fyrir, að hér er um hreina áskorun að ræða að aðgerðir gegn eiturlyfja- neyzlu verði samræmdar. Það er knýjandi nauðsyn, að yfirvöld, sem með þessi mál fara taki þau til skjótrar úr- vinnslu. — Hefur þú orðið var hassneyzlu á skemmtistað unga fólksins, Tónabæ? Framhald á bls. 14. 3:}. tölublað— Fimmtudagur 10. febrúar 1972 —56. árgangur. Vegurinn sem sker byggðina Þessi loftmynd af Kópavogi var tekin á mánudaginn, og sýnir hún vel byggðina i Kópavogi, og hvernig Iteykjanesbrautin sker byggðina i 2 hluta, A auða svæð ínu nálægt miðri myndinni er ætlunin að miðhæjarkjarni ÞÓ—Reykjavik. Hornfirðingar skila bezta og fallegasta fisknum á land, en þar fóru 62,5% af heildaraflamagninu á s.l. vetrarvertið i 1. flokk, 24,3% i 2. flokk og 12,7% i 3. flokk. 1 Vest mannaeyjum fóru 49,6% i 1. flokk og i Grindavik var hlutfallið 45,8%. Þetta kemur m.a. fram i nýútkomnu fréttabréfi Fiskmats rikisins. Ennfremur segir i bréfinu, að ekki sé nema hálf sagan sögð með samanburði milli nokkurra útgerðarstaða, þvi ennþá meiri munur er á milli einstakra neta- báta, sem leggja þorskafla á land i sömu verstöð. A Hornafirði voru mestu fiskgæði hjá bát af neta- fiski. Sá bátur, sem landaði mestu i 1. flokk á Hornafirði, fékk 68,7% aflans i fyrsta flokk, en sá sem var með verstu útkomuna var með 43,8% i 1. flokk. 1 Vest- mannaeyjum er bezta útkoman 49,9%, en sú versta 40,3%. 1 Grindavik var bezta útkoman 53,8%, en versta útkoman er 29,9% i fyrsta flokk. Þegar mismunurinn á gæðahlutföllum kæli- skápar vV ~>'r1p5s JP/1 n ééo/tyéfoA. A/ RAFTÆKJADEILO, HAFNARSTRÆTI 23. SlMI 1139» Kópavogs risi, en útverðir kjarnans verða Kópavogskirkja i vestri og Félagsheimilið i austri. Á myndinni sézt einnig yfir Arn arnes og Alftanes, og allt suður i llafnarfjörð. (Timamynd Gunn- ar). Hornfirðingar eru með bezta fiskinn bátanna er svona mikill, og bátarnir oft með álika heildar- aflamagn, verður mismunurinn á heildarverðmætinu mikill. Rækjuaflinn í Djúpi hraðminnkar en eykst í Húnaflóa Rækjuveiðar hófust á ný i Arnarfirði og tsafjarðardjúpi 17. jan. Siðan hefur afli verið ákaf- íega rýr á báðum þessum veiði- svæðum og rækjan yfirleitt smá. A Húnaflóa hófst rækjuveiðin nokkru fyrr, eða 3. jan. Þar var aflinn mjög góður allan janúar- mán. 75 bátar stunduðu veiðar i jan- úar og varð heildaraflinn 300 lestir. I lyrra voru 72 bátar að rækjuveiðum i jan og varð aflinn þá 403 lestir. Frá Bildudal voru gerðir út 10 bátar til veiða I Arnarfirði og ölluðu þeir 25 lestir i mánuðinum, en i fyrra varafli 15 báta 81 lest, á sama tima. Frá verstöðvunum við Isa- ljarðardjúp voru geröir út 57 bátar og öfluðu þeir 141 lest en i fyrra var afli 46 báta 252 lestir. Frá Hólmavik og Drangsnesi voru gerðir út 8 bátar, sem öfluðu 134 lestir, en i fyrra var afli 1) báta 70 lestir. Aflahæstu bátarnir nú voru Guðrún Guðmundsdóttir með 21,4 lest Birgir 21,4 lest og Sigur- fari 20,8 lestir. A aðalfundi Félags islenzkra myndlistarmanna sem nýlega var haldinn, var eftirfarandi til- laga samþykkt i einu hljóði: F.t.M. mótmælir eindregið þeim hætti, sem hafður er á við opinberar fjárveitingar til lista- manna, að sáralitill hluti þeirra renni til yngri kynslóðar mynd- listarmanna. Félagsmenn telja, að verði hér ekki ráðin bót á hið fyrsta, sé verið að fjandskapast við þróun islenzkrar myndlistar. Innflutningurinn árið 1971 um 50% meiri en árið áður KJ—Reykjavík. Hagstofan hcfur sent frá sér bráðabirgðatölur um verðmæti útflutnings og innflutnings árið 1971, og kemur þar i ljós, að vöru- skipajöfnuðurinn hefur orðið óhagstæður um 5,2 milljarða á árinu 1971, á móti 937 miiljónum árið áður. Allt árið 1971 nam útflutning- urinn 13,1 milljarði, en var allt árið 1970 12,9 milljarðar. Út- flutningurinn bæði árin er þvi mjög svipaöur að krónutölu. Inn- flutningurinn árið 1971 var aftur á móti 18,4 milljarðar, en 13,8 milljarðar árið áður. Er þvi inn- flutningurinn i krónutölu nálega 50% meiri árið 1971 en árið 1970. A árinu 1970 var flutt út ál og álmelmi fyrir 1,7 milljarð, en Allar þrær eru fullar við Faxaflóa ÞÓ—Reykjavik. Löndunarbið er nú alls staðar á höfnum við Faxaflóa og allt austur til Þorlákshafnar. Loðnu- bátarnir sigla þvi þessa stundina með aflann til Vestmannaeyja, en búast má við að allar þrær fyllist þar, ef veiðin heldur áfram af sama krafti. Allar þrær fylltust i Reykjavik i gærkvöldi, og verður ekki hægt að byrja að landa aftur fyrr en á morgun. Sömu sögu er að segja frá öðrum höfnum, alls staðar yfirfullt og löndun hefst sums staðar ekki fyrr en um helgi. Góð loðnuveiði var á miðunum i gær, og fóru flestir bátarnir til Vestmannaeyja, en þangað er um 7 tima sigling frá miðunum. aðeins 887 milljónir áriö 1971. Þessi mismunur gerir vöru- skiptajöfnuðinn óhagstæðan um nærri milljarð. Aftur á móti var innflutningurinn til tsal hálfri milljón meiri (en sá innflutningur er innifalinn i tölunum um heiidarinnflutninginn) eða 1,5 milljarður i stað rúmlega eins milljarðs árið 1970. Skip voru flutt inn fyrir 678 milljónir árið 1971, en 851 milljón árið áður. Mun meira hefur verið flutt inn af fiugvélum árið 1971 en 1970, eða að verðmæti samtals 657 milljónir á móti 5 m'illjónum árið 1970. Munar þarna mest um þotur hluglélagsins, en Loftleiðaþotan Leifur Eiriksson kostaði 393 milljónir króna. Þá hefur inn- flutningur til Búrfellsvirkjunar aukizt mjög, og var á s.l. ári 303 milF á móti 105mill árið áður.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.