Tíminn - 13.02.1972, Blaðsíða 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
s
SCMDIBIL ASTOÐIN HF
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Rækjubátur
strandaði
og sjómaður
drukknaði
HM - Súðavik.
Um miðnætti aðfaranótt
laugardags drukknaði ungur sjó-
maður frá Isafirði. Datt hann.út-
byrðis af rækjuveiðibátnum Arna
Magnússyni, er hann strandaði i
Skötufirði. Maðurinn hét óskar
Gunnarsson, 27 ára gamall Hann
lætur eftir sig konu og eitt barn.
Skipstjórinn á Arna Magnús-
syni, Hjalti Hjaltason, datt á
spilið, þegar bátinn tók niðri og
hlaut höfuðhögg og hálfrotaðist,
en mun ekki illa slasaður.
Norð-austan rok var i Djúpinu
og leituðu rækjubátar til hafna
eða i var, enda var þungur sjór.
Tveir bátar, Árni Magnússon
Hafdis höfðu samflot inn i Skötu-
fjörð. En þar tók Arni Mgnússon
niðri á skeri við Hvitanestanga
og Óskar féll útbiyrðis.
Svartamyrkur var og stórsjór.
Var Óskars leitað, en árangurs-
laust i fyrstu. Héldu bátarnir til
Súðavikur og komu þangað kl. 2
um nóttina. Var kominn leki að
Arna Magnússyni, en dælur voru
settar um borð og I gær var
báturinn dreginn til ísafjaröar.
Kl. fimm um morguninn gekk
fólk frá bænum Hvitanesi á fjörur
og fann lik óskars um kl. sjö.
A rækjubátum er tveggja
manna áhöfn.
Sérstök fram-
rúðutrygging
og kaskótrygg-
ingar breytast
KJ - Reykjavik.
Bifreiðatryggingafélögin hafa
ákveðið að taka upp sérstakar
tryggingar áframrúðum bifreiða,
og verða þær innifaldar ókeypis i
ábyrgðartryggingaiðgjaldinu
fram til 1. mai, en eftirr það
verður iðgjaldið 450 krónur fyrir
hverja bifreið, nema hópferða og
áætlunarbifreiöar kr. 2.500.00, og
innifalið ábyrgðartryggingaið-
gjaldinu, nema tryggingar sé
ekki óskað. Þessi ákvörðun er i
framhaldi af 7.500 króna sjálfs-
ábyrgðinni, þar sem meiri kröfur
veröur að gera um sönnun en
áður. Bætt framrúðubrot skertu
ekki bónusgreiðslur áður.
Breytingar á kaskótryggingum
Þá hefur tryggingaráðuneytið
heimilað að grunniðgjald i kakó-
tryggingum verði framvegis
miöað viö 5 bús. króna siálfs-
ábyrgð i hverju tjóni og aö iö-
gjaldiö verði þaö sama og fyrir
fulla kaskótryggingu áður, auk
10% hækkunar. 20% af bónus
verður veittur eftir eitt tjónlaust
ár, og 40% eftir tvö ár tjónlaus.
Hgt verður eftir sem áður, aö fá
fulla kaskótryggingu, án sjálfs-
ábyrgðar, og veröur iðgjald þá 25-
30% hærra en grunniðgjald.
er i öðrum gignum Surti I. Þakið er alsett rauðum hraunkertum
Myndin var tekin i Surtsey á s.l. sumri og sýnir hún þakið á helli
sem er i óðrum gignum Surti I. PakiO er aisett rauðum hraunkertum, sem
mynda«t hafa, þegar gos hætti I gignum fyrir 5-6 árum. Kertin eru venjulega 20-30 cm á lengd. A þeim eru saltútfellingar. Hraunhellar
sem þessi eru viða i Surtsey og hafa myndamt þegar hraunrásir undir stofkinni hraunhellu tæmdust þegar gosinu lauk.
(Ljósm. Erling ólafsson)
Akveðin þróunarmynd af Surtsey
er komin fram eftir skipulagt starf margra vísindamanna
KJ - Reykjavik
I október 1963 reis Surtsey
úr sæ, og varð syðsti út-
vörður island. Menn voru
i fyrstu hálf vantrúaðir á,
að eyjan myndi standast
orrustuna við úthafs-
ölduna, en þegar hraun
tók að renna úr Surti, var
útséð um, að eyjan myndi
standa, og stækka land-
helgina. Allt frá fyrsta
degi Surtseyjargossins,
hafa visindamenn, inn-
lendir sem erlendir, fylgzt
með þróun eyjarinnar, og
nú má segja að komin sé
fram ákveðin þróunar-
mynd af eynni.
Meðan enn gaus á eynni var
Surtseyjaríélagið stofnað, og er
Steingrimur Hermannsson, al-
þingismaður, formaður þess.
Steingrimur sagði i viðtali við
Timann á laugardag, aö á eynni
hafi farið fram vel skipulagðar
og ýtarlegar rannsóknir á jarð
fræöi og lifeðlisfræði eyjar-
innar. Eru rannsóknir þessar nú
komnar I fast form, og líf-
fræðingar hafa að mestu tekiö
við rannsóknum á eynni, af
jaröfræðingum og jaröeðlis-
fræðingum.
Einstakir visindarmenn sinna
sinum ákveðnu verkefnum frá
ári til árs, sumir á hverju ári.en
aörir annað hvort ár, eftir þvi
sem tilefni gefst.
Steingrimur nefndi nokkra
menn, sem starfa að llffræði-
rannsóknum a eynni, og gat
fyrst um dr. Sturlu Friðriksson
og hans menn, sem fylgjast með
gróðri á eynni, og sömuleiðis
Eyþór Einarsson. Dr. Finnur
Guðmundsson fylgist með
fuglalifi, og Aðalsteinn Sigurðs-
son fylgist með landnámi skel-
dýra og sjávardýra. Dr.
Sigurður Jónsson hefur umsjón
með þara og þangrannsóknum.
Bergþór Jóhannsson rannsakar
mosa, og þannig sagði Stin-
grimur aö mætti telja visinda-
menn, sem sinntu ákveönum
verkefnum.
Erlendir menn haf komiö
töluvert við sögu rannsókna á
eynni, og má þar t.d. nefna próf.
Lindroth frá Sviþjóö, sem hefur
haft með skordýrarannsóknir
að gera. Próf. Normann og dr.
Thorbjörn Alexandersson frá
Sviþjóö hafa veriö með rann-
sóknir á breytingum eyjunnar.
Þá hefur dr. Schwabe frá Svi-
þjóö veriö með rannsóknir á
smásæjum lfifverum.
Aö lokum sagöi Steingrimur
Hermannsson, aö Surtseyjar-
félagið hefði eftirlit með eynni,
sem væri friðuð, og skipulegði
félagiö rannsóknir.