Tíminn - 13.02.1972, Síða 3
Sunnudagur 13. febrúar 1972
TÍMINN
3
Ný hljómsveit
ROSY
að koma fram
Undanfarið hefur talsvert verið rætt um nýjar hljómsveitir vegna
endaloka Ævintýris og breytinganna i Náttúru. Hins vegar hefur ntinna
verið rætt um þá nýju hljómsveit, sem nú er að skjóta upp kollinum
með þá fyrrverandi Tataramenn, Jón ólafsson bassaleikara, Gest
Guðnason, gitarleikara og fyrrverandi Tilverumenn, þá Herbert Guð-
mundsson, söngvara og Ólaf Sigurðsson, tormmuleikara, innanborðs.
Eftir svona mánuð mun þessi nýja hljómsveit, sem skirð héfur verið
þvi ágæta nafni ROSY, koma fyrst fram opinberlega.
Næst siðastliðið miðvikudags
kvöid hitti ég Jonna Ólafs að
máli. Hann var hinn hressasti yfir
stritinu og sagði að Rosy hefði
verið stofnuð nokkru fyrir jól,
tveimur mánuðum fyrir
hátiðirnar eða svo, og hefði nafnið
á hljómsveitinni þá verið ákveðið.
Jonni sagði, að Herbert hefði
komið i hljómsveitina fyrir
þremur vikum, en til þess tima
hefði Eiður nokkur, sem var i
Pops áður fyrr, átt að vera söng-
vari hljómsveitarinnar og þvi æft
með þeim félögum.
Allt eða ekkert
—Æfingarnar hafa gengið vel
hjá okkur, hélt Jonni áfram, en
við byrjum ekki með neitt
„orginal”. Hins vegar erum við
búnir að skapa grundvöll fyrir þvi
að spila inn á LP-plötu. Við ætlum
að vera svolitið harðir á rokkinu
og það máttu hafa eftir mér, að
annað hvort verður Rosy mjög
góð hljómsveit eða hún verður
bara alls ekki neitt — Allt eða
ekkert. Við erum sem sé búnir að
æfa mikið, erum bjartsýnir og
ánægðir með árangurinn. 1
þessari hljómsveit eru saman-
komnir fjórir menn, sem eru á
sömu linu hvað tónlistarsmekk
áhrærir.
Fyrsta framkoman á hljóm-
leikum i Austurbæjarbiói?
Samkvæmt upplýsingum
Jonna, hefur komið til tals innan
hljómsveitarinnar, að hún byrji
feril sinn á opinberum vettvangi
með þvi að efna til hljómleika-
halds. Sagði Jonni, að ef til vill
væri Austurbæjarbió hentugasti
staðurinn fyrir sljkt hljómleika-
hald, Háskólabió væri að öllum
likindum of stórt. Væri ef til vill
rétta hugmyndin sú, að bjóöa hópi
ókeypis á hljómleikana. A þann
hátt væri hægt að velja áheyr-
endur, sem likiegastir væru til að
skapa góða stemmningu á hljóm-
leikunum, en staðreyndin er
sú — og ástæða til að minna á
hana hér — að ákveðinn hópur,
hinn raunverulegi skrill á hljóm-
leikum, er stórhættulegur hljóm-
leikahaldi. Hér um að ræða þann
hóp, sem sannarlega kemur ekki
á hljómleika i þeim tilgangi ein-
um að njóta þess, sem hljóm-
sveitirnar hafa fram að færa.
En hvað um það. —Vonandi á
Roy eftir að hressa mikið upp á
popptónlistarlifið hér og vonandi
er söngvarinn Herbert Guð-
mundsson orðinn vel hress eftir
veikindi sin, en um daginn lá
kappinn undir sæng með 40 stiga
hita og hana nú.
Georg Harrison um plötu hljóms. Pauls McCartney:
„RAM” frábær miðað
við plötu „WINGS”
George Harrison hefur ætið þótt
þögull maður. Þess vegna er hann
ekki vanur að láta hafa mikið
eftir sér i blöðum. Hann sagði þó
nokkur orð um daginn, þegar
„Record Mirror” bað hann að
skýra frá skoðunum sinum á sið-
ustu plötu fyrrverandi samstarfs-
manns hans, Poul Mcartney,
þ.e. LP-plötunni sem hljómsveit
hans, „Wings” hefur nýlega sent
frá sér.
— Ég sé fyrir mér fyrisögnina
ENN NÝ
TILVERA í
UPPSIGLINGU
Vonarneistinn 1971, hljóm-
sveitin Rifsberja er hætt fyrir
nokkru og fre'tzt hefur að tveir
meðlima hinnar dánu hljóm-
sveitar séu nú farnir að æfa i enn
nýrri Tilveru, sem eins og endra-
nær er með Axel Einarsson,
gitarleikara, i broddi fylkingar.
Tilvera sú, sem spilað hefur
undanfarið hætti formlega nú um
mánaðamótin, og tveit meðlima
hennar, Herbert söngvari og
Ólafur trommuleikari komnir i
hljómsveitina Rosy, eins og
reyndar komur vel fram i annarri
frétt hér á siðunni.
á fyrstu siðu blaðsins „George
gagnrýnir Paul harðlega”, sagði
George fyrst, og sneri sér þessu
næst að efninu:
— 1 sannleika sagt,- mér finnst
þessi plata Pauls ekki góð til þess
að vera kurteis við Paul, er bezt
að segja að hún sé ekki sérlega
góð. Það er ótrúlegt hvað bæði
lögin og textarnir eru venjulegir
og einnig upptakan. Það er eins
og Paul hafi gleymt öllu. Ég varð
fyrir verulegum vonbrigðum.
Mér fannst fyrsta plata Pauls
ekki neitt sérstök — en að minn-
sta kosti geröi hann þó þá plötu
sjálfur. „Ram” var einnig ekkert
sérstök, en sé hún borin saman
við þessa nýju plötu, er hún frá-
bær. Samstarfsmenn Pauls i
„Wings” eru eftir vonum, en þar
sem Paul var með, voru auðvitað
bundnar meiri vonir við þessa
plötu en ella.
Það sakar ekki að geta þess i
þessu sambandi, að George
Harrison hefur sagt, að honum
finnist LP-palta Johns Lennon
„Inmage” nokkuð góð plata, en
reyndar spilaði George sjálfur
með á þeirri plötu.
I þessum mánuði er væntanleg
ný LP-plata frá George Harrison.
Spekingarnir segja, að George
láti betur að vera i hópi tónlistar
manna, en einn sér. Hins vegar
tókst „All Thing Must Pass” vel
hjá honum, varla mun nokkur
vera ósammála þvi — og þær LP-
plötur Georges voru þvi mikill
sigur fyrir hann og hans fyrsti,
eftir að The Beatles leystist upp.
MEÐ UNGU FOLKI
1
Ólafur Sigurðsson.
Jón ólafsson.
«
" LÆSILEGT SÓFASETT
VEIvUR At)I)AUN ALLKA FYKIK NÝTÍZKUMXJT
ÚTLIT OG VANDVDA VINNU E.IÖLBIIEYTT ÚR-
VAL FAGURRA ÁKLÆOA. r SENIOIl -SÓEASETT-
ID VERDUE TIL SÝNIS NÆSTU I)AGA í GLUG'GA
MÁLARANS, BANKASTRÆTL
SKEIFAN
KJÖRGA R-ÐI, SÍMI. 16975
lQG'
,e\G
<ÍW X
t fö&fx-M*
t C-Alt