Tíminn - 13.02.1972, Page 4
TÍMINN
Sunnudagur 13. febrúar 1972
Að leysa
annarra vanda
Þegar leysa þarf erfið
vandamál annarra þjóða, þá
er sannarlega ekki á okkur ís-
lendinga logið. i þvi efni erum
viö hreinir snillingar - eins og
raunar á fjölmörgum öörum
sviðum - og það er vægast sagt
furðulegt að útlendingar, sem
eiga i vandræðum, skuli ekki
taka meira tillit til tillagna
okkar, en raun ber vitni.
En þrátt fyrir það, að
útlendingar dauheyrist oftar
en ekki við lausnum okkar, þá
leggjum við ekki árar i bát.
Nei, siður en svo. Við höldum
áfram að leysa vandamálin
fyrir aðrar þjóðir - endur-
gjaldslaust að sjálfsögðu - og
þessi árátta okkar er farin að
minna á þrautseigju spá-
mannanna, sem predikuðu
fyrir þunnum eyrum Israels-
lýðsins á dögum Gamla
Testamentisins.
Seinasta afrek okkar á
þessu sviði telst nú sennilega
ekki til stórvirkja. Við leyst-
um nú bara vanda þeirra á
Norður-Irlandi og vorum ekki
lengi að - ónei - hálfur sunnu-
dagseftirmiðdagur nægði og
vel það. Og hvernig fórum við
að þvi? Ójú, við notuðum bara
pennastriksaðferðina góðu -
að visu þurftum við að nota
fjögur pennastrik i þetta skipti
Hver voru þau? AÐ brezki
herinn hverfi tafarlaust burt.
Tryggö veröi lýðræðisleg
nazistapakkið i Bretlandi, sem
göngufólkið hefur sjálfsagt
kynnzt á veru sinni i þvi landi -
einkum og sér i lagi þeir, sem
stundað hafa háskólanám þar.
(Annars man ég ekki betur en
Bretar hafi einmitt staðið
einirgegn Nazistum árið 1940,
þegar þeir, sem heimtuðu
Rauða-trland, létu það gott
heita, að Hakakrossliðiö
flæddi yfir Evrópu).
Auðvitað fordæma allir
hryðjuverk fallhlifa-
hermannanna i Londonderry -
þau sýna vopnagleðina og
taugaveiklunina, sem jafn
hörmulegum atburðum eru
ætið samfara, og átt hafa sér
stað i Norður-lrlandi undan-
farin ár. En þá er einnig vert
að hafa i huga, að nú þegar
hefur verið fyrirskipuð rann-
sókn á framferði þeirra - og
þessa rannsókn fyrirskipuðu
hinir kunnu brezku
„nazistar”, Heath .og
Maudling, sem göngumenn
töldu aö bezt ættu heima i
gálganum.
Fimm ára sonur minn: sem
var meö mér á fundinum niður
við Stjórnarráð, var óvenju
þögull mestan hluta sunnu-
dagsins. Um kvöldmatarleitið
kom skýringin: „Hvernig ætla
þeir að láta brezka herinn fara
meö þvi að halda á þessum
spjöldum? Verður allt i lagi i
Irlandi núna?” —Bragð er að,
þá barnið finnur— stendur
þar.
Annars fannst mér ég
kannast við æði mörg andlit-
og var að velta fyrir mér hvar
ég hefði séð þau áður.
Skýringin kom fljótlega i ljós.
Þetta var sama fólkið og ég sá
á „THE ORG SHOW” á sjón-
varpinu um daginn. Og sami
stjórnandi. Sennilega fram-
haldssýning.
En ég er á þvi að hætta aö
leysa vanda annarra þjóða
endurgjaldslaust. Seljum
þeim lausnirnar fyrir bein-
harðan gjaideyri - viðskipta-
jöfnuðurinn er ekki svo
beisinn - bjóðum t.d. Bretum
að leysa Ródesiumálið fyrir
þá, Amerikumönnum Viet
Nam málið o.s.frv.
Páll Heiðar Jónsson.
mannréttindi. Pólitiskir
fangar verði látnir lausir. AÐ
Bretar hætti stuðningi við
harðstjórn Sambandsflokks-
ins. Punktum og basta.
Hvernig i ósköpunum stendur
á þvi, að írum og (eða) Bret-
um gat nú ekki dottið þetta i
hug? Eða er hugsanlegt að
þeim hafi dottið þetta i hug, en
ekki talið Lausnirnar leysa
vandann?
Auk þessa fylgdu nokkrar
vel meintar leiðbeiningár til
Ira, eins og t.d. þær að stofna
„EITT IRLAND - RAUTT
IRLAND”. Það tryggir vitan-
lega „lýðræðisleg mann-
réttindi” eins og t.d. i Rauða -
Rússlandi. Eða „STYÐJUM
IRA gegn NATO” Eigum við
fara að senda IRA vopn? Eða
eru þeir kannski að berjast við
NATO? Eða „Fordæmum
hryöjuverk Heath” Eigum við
þá ekki einnig að fordæma
morð og hryðjuverk IRA -
bæði á brezkum hermönnum
sem eigin landsmönnum?
Annars var það eftirtektar-
vert, að ekkert spjald lét i ljósi
samúð meö aðstandendum
hinna föllnu i Londonderry.
Getur það hugsast, að þeir
hafi gleymzt i önnunum við að
búa til spjaldið i brezku fána-
litunum, þar sem haka-
krossinum var svo komið fyrir
i miðjunni - væntanlega til
þess að minna okkur á
ELDISSTÖÐVAR
- BÆNDUR
Höfum jafnan fyrirliggjandi
eldisfóður fyrir lax og silung frá
ASTRA-EWOS A.B. i Sviþjóð.
Útvegum ennfremur ýmis áhöld
til laxa- og silungseldis.
1
Ólafur Gislason&Co hf
Ingólfsstræti 1 A
Simi 18-3-70.
oooooooooooooooooooooooo
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
Framsóknarfélag Reykjavíkur gengst
fyrir fræðslufundi um
Fiskeldi og fiskiræktarmál
í dag, 13. febrúar kl. 2 e. h.
Fundarstaður Hótel Saga, Súlnasalur
Frummælendur verða:
þór Guðjónsson,
veiðimálastjóri,„Fiskeldi og
reynslan af stöðinni I
Kollafirði.”
Jón Sveinsson, forstjóri,
„Starfsemin i Lárósi.”
-44
Jón Finnsson,
lögfræðingur, formaður
Landssainbands stangveiði-
manna, „Ahugamál sport-
veiðimanna.”
Snorri Hallgrímsson,
prófessor, „Fiskeldi sem
hugsanlegur atvinnuvegur.”
FUNDURINN
ER
ÖLLUM
OPINN
Stjórn
F ramsóknarf élags
Reykjavíkur
Stjórn samtaka veiðiréttareigenda boðið á fundinn.
O
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
0OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO