Tíminn - 15.02.1972, Qupperneq 1

Tíminn - 15.02.1972, Qupperneq 1
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA SEMDIBILASTOÐIN Hf EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR - 37. tölublað—Þriðjudagur 15. febrúar 1972 — 56. árgangur Hjálmar um borð í Árna: „Nú vantar bara skip til veiða” Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra ávarpar búnaðarþing í gær. (Timamynd Gunnar) Kynslóðaskiptin í búskapnum hér erfiðari en í nágrannalöndunum - sagði Asgeir Bjarnason við setningu búnaðarþings AK, Rvik. — Búnaðarþing var sett árdegis i gær i fundarsal Bændahallarinnar, þar sem það verður háð að venju. — Allmikill fjöldi gesta var við þingsetning- una, þar á meðal fulltrúar Kven- félagasambands tslands. — Asgeir Bjarnason, alþingismað- ur, formaður B.l. setti þingið og bauð fulltrúa og gesti velkomna. ræða hans er birt i heild inni i blaðinu. Næsti fundur búnaðar- þings er klukkan 9,30 árdegis i dag. Flestallir fulltrúar búnaðar- þings voru komnir. í setningar- ræðu sinni ræddi Ásgeir Bjarna- son mörg hagsmunamál land- búnaðarins, meðal annars mögu- leika ungs fólks og annarra frum- býlinga til þess að taka við búi og reisa bú i sveit. Kom glöggt fram i upplýsingum hans, að kynslóða- skiptin i islenzkum búskap eru til muna örðugri, en nágrannalönd- um, og lánafyrirgreiðsla minni og óhagstæðari. A þessu máli yrði að ráða bót. Annars visast til ræð- unnar inni i blaðinu. Næstu flutti Halldór E. Sigurðs- son, landbúnaðarráðherra ávarp til þingsins, og er meginefni þess rakið i annarri frétt hér i blaðinu i dag. Að loknu ávarpi hans ávarp- aði frú Sigrfður Thorlacius, for- maður Kvenfélagasambands ts- lands þingið. Hún kvaðst vilja þakka Búnaðarfélagi Islands þá velvild að bjóða fulltrúum Kven- félagasambandsins til þing- setningarinnar og nota tækifærið til þess að rifja upp forgöngu B.í. að stofnun kvenfélaganna og sambands þeirra fyrr á árum. Rakti hún siðan, hvernig það hefði borið að. Ætið hefði ríkt góð samstaða og samstarf milli búnaðarfélaganna og kvenfélag- anna i sveitum landsins og kvaðst hún vonast til, að svo yrði lengi enn. Búnaðarfélagið væri sterkt afl, og saman gætu þessi samtök reynzt enn sterkari. En ég finn sérstaka ástæðu til þess að þakka B. 1. þátt þess i stöfnun samtaka okkar, sagði frú Sigriöur. Eftir þetta voru starfsmenn þingsins kjörnir, varaforsetar og ritarar, og siðan var þingfulltrú- um skipt i starfsnefndir. Loks var lýst allmörgum málum, er bún- aðarfélög og sambönd hafa seht þinginu til álita. Árni F’riðriksson var staddur vestan við Ingólfs- höfða, er við ræddum við Hjálmar seinni hluta dags. Sagði hann, að óhemju mikil loðna væri á þessu svæði, og það eina, sem vantaði væru skip til að veiða. Margar loðnutorfur höfðu fundist i gær grunnt i Meðallands- bugt, á svæöinu frá Skaf- tárósum að Ingólfshöfða. Tvö skip voru búin að fá fullfermi þarna, Börkur og Olafur Sigurðsson, en Börkur var að koma fr þvi að landa fullfermi á Horna- firði. Þar 3 skip fullfermi 6 milur austan við Skaftár- ósinn i morgun og einhver skip voru þar að vinna i gær- kvöldi. A þessu svæði fékk Eldborg550og örfirisey 320. Magnús NK fékk fullfermi út af Hjörleifshöfða i gær. Bjarni Sæmundsson lóðaði á loðnu i gær, á Papagrunni 25 milur frá landi. Samkomulag um landhelgis- ioöoara málið í utanríkismálanefnd Fundu ÞO—Reykjavik. Það virðist vera um sam- fellt loðnumagn að ræða frá II jörleifshöfða og austur fyrir Ingólfshöfða, sagði lljálmar Vilhjálmsson, fiski- fræðingur, um borð I Árna Kriðrikssyni, er við ræddum við hann I dag. papyrus- Nefndin lagði fram á Alþingi í gær sameiginlegt nefndarálit í landhelgismálinu EB—Reykjavík. Utanrfkismálanefnd Alþingis lagði f gær fram á Alþingi nefndarálit um tillögurikisstjórnarinnari landhelgismálinu. Standa fulltrúar allra stjórnmálaflokka að nefndarálitinu og breytingatillögu um breytingu á oröalagi tillögunnar. 1 breytingatillögunni er kveðið á um útfærzlu f 50 milur 1. sept. nk. og að landhelgissamningunum frá 1961 við Breta og Vestur-Þjóðverja verði sagt upp. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar skrifa undir með fyrirvara um 50 mílur og flytja breytingatillögu um 400 metra jafndýpislinu. Einnig hafa þeir fyrirvara um uppsögn samn- inganna en flytja enga breytingatillögu um það efni. skjal EJ—Reykjavfk. Fornleifafræðingar, sem unnið hafa að uppgreftri skammt frá Kairó I Egyptalandi, hafa fundið papýrus-skjal, sem er um 4000 ára gamalt.Á papýrus þennan er ritaö á Aramisku, sem er þaö tungumál sem Jesús Kristur tal- aði. Dr. Kamal Mallakh, sem er sérfræöingur f fornum tungu- málum, segir, að fundur þessa papýrus-sé þýðingarmikill og sér- stakur. Hann segir, að skjalið viröist skýra frá áætlun, sem gerð var um 2000 árum fyrir Kristsburð, um innrás frá Sýrlandi í Egypta- land, og þeim aðferðum, sem Egyptar beittu til að eyðileggja þá áætlun. Papýrusinn fannst við Sakkara, sem er um 15 mílur sunnan Kairó- borgar. Utanrikismálanefnd Alþingis skilaði f gær áliti sinu um tillögu rikisstjórnarinnar i landhelgis- málinu. Leggur nefndin til, aö tillagan verði afgreidd með eftir- farandi orðalagi'. „Alþingi itrekar þá grund- vallarstefnu Islendinga, að land grunn tslands og hafsvæðið yfir þvi sé hluti af islenzku yfirráöa- svæði, og ályktar eftirfarandi: 1. Að fiskveiðilandhelgin verði stækkuð þannig, að hún verði 50 sjómilur frá grunnlinum allt i kringum landið, og komi stækk unin til framkvæmda ekki siöar en 1. september 1972. 2. Aö rikisstjórnum Bretlands og Sambandslýðveldisins Þýzka- lands veröi enn á ný gerð grein fyrir þvi, að vegna lffshagsmuna þjóðarinnar og vegna breyttra aðstæðna geti samningar þeir um landhelgismálið, sem gerðir voru við þessi riki 1961, ekki lengur átt viö og séu Islendingar ekki bundnir af ákvæðum þeirra. 3. Að haldið verði áfram samkomulagstilraunum við rikis- stjórnir Bretlands og Sam bandslýðveldisins Þýzkalands um þau vandamál, sem skapast vegna útfærzlunnar. 4. Að unnið verði áfram i samráði við fiskifræðinga aö ströngu eftirliti meö fiskistofnum við landið. og settar, eftir þvi sem nauðsyn- legt reynist, reglur og friðun þeirra einstakra fiskimiða til þess að koma i veg fyrir ofveiði. 5. Aö haldið verði áfram sam- starfi við aðrar þjóöir um nauð- synlegar ráðstafanir til þess að koma i veg fyrir mengun sjávar og heimilar rikisstjórninni að lýsa einhliða yfir sérstakri nengunarlögsögu á hafinu um- hverfis tsland”. 1 nefndarálitinu taka fulltrúar stjórnarflokkanna i nefndinni, þeir Þórarinn Þórarinsson, for- maður hennar, Eysteinn Jónsson, Gils Guðmundsson og Bjarni Guönason, fram, aö þeir liti svo á, að rikisstjórnin hafi samkvæmt 2. lið tillögunnar heimild til þess að segja upp samningunum við Bretland og Sambandslýðveldiö Þýzkaland og að fyrir liggi vit- neskja um, að það verði gert. Fulltrúar stjórnarandstöðu- flokkanna i utanrikismálanefnd. þeir Gylfi Þ.Gislason, Jóhann Haf stein, og Matthias A. Mathiesen, flytja breytingartillögu við 1. grein tillögunnar. Þeir leggja til að fiskveiðilandhelgin nái yfir „landgrunnið”, þannig að ytri mörk hennar verði sem næst 400 metra jafndýpislinu, en þó hvergi nær landi en 50 sjómilur frá grunnlinum allt i kringum landið, og komi stækkunin til fram- kvæmda eigi siöar en 1. septem- ber 1972. Stjórnarandstöðufulltrúarnir hafa fyrirvara um 2. grein tillög- unnar, þ.e. um uppsögn samning- anna við Bretland og V-Þýzka- land, en ekki hafa þeir komið fram með breytingartillögu viö þá grein. Stjórnartillagan i landhelgis- málinu verður til siðari umræðu i dag i Sameinuðu þingi. Hefst þingfundurinn kl. 2. siödegis. Samkomulag mun um að afgreiða málið i dag. '**1 \ •’;''K/ííiNá irs onar formanns Búnaðarfélags Islands, er í opnu blaðsins

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.