Tíminn - 18.02.1972, Side 5

Tíminn - 18.02.1972, Side 5
Föstudagur 18. febrúar 1972 TÍMINN 5 Samvinna ungra vinstri manna á ýmsum sviðum Sameiningarmálið: Fjölsóttir og einhuga fundir FUF, FUJ, SFV, og Ænflb Um síöurstu helgi gengust Félög ungra framsóknar- manna, Félög ungra jafnaöar- manna, ungir menn úr Samtökum frjáislyndra og vinstri manna og Æsku- lýösnefnd Alþýöu- bandalagsins fyrir fjöl- mennum og fjörugum fundum á Akureyri og Húsavik um sameiningarmáliö. Fundirnir voru sóttir jafnt af eldra sem yngra fólki. Margir tóku til máls og voru i lok beggja fundanna samhljóöa sam- þykktar ályktanir. Tillaga um áiyktun Akureyrarfundarins var flutt af Kristjáni frá Djúpalæk og tók Húsavikurfundurinn undir þá ályktun lltiö breytta. Fundurinn á Akureyri var settur af Ingvari Baldurssyni. Fundarstjóri var Hákon Hákonarson og framsögu- ræðumenn Friðgeir Björn- sson, Cecil Haraldsson, Halldór S. Magnússon og Sveinn Kristinsson. Auk þeirra tók til máls Kristján frá Djúpalæk, Pétur Gunnlaugs- son, Sigurður Karlsson, Benedikt Guðmundsson, Jón B. Rögnvaldsson, Þórður Ingimarsson, Tryggvi Helgason og Ólafur Ragnar Grimsson. Fundurinn á Húsavlk var settur af Guðmundi Bjarna- syni. Fundar-stjóri var Einar Njálsson. Framsöguræður fluttu Sveinn Kristinsson, Ólafur Ragnar Grimsson, Cecil Haraldsson, Halldór S. Magnússon. Auk þeirra tóku til máls Hjörtur Tryggvason, Freyr Bjarnason, Friðgeir Björnsson, Haraldur Gislason, Þráinn Kristjánsson, Gunnar Páll Jónsson, Guðmundur Hákonarson, Siguröur jon- sson og Guðmundur Bjar- nason. YFIRLÝSINGAR FUNDARMANNA Á Akureyri Á Húsavík Fundur um sameiningu vinstri flokkanna á íslandi, haldinn að hótel Varðborg á Akureyri 12. febrúar 1972. lýsir þvi yfir að hann telji algjöra þjóðarnauðsyn, að af sameiningu megi verða á þessu kjörtimabili. Einnig skorar fundurinn á samstarfsnefndir flokkanna að vinna sem fyrst, með hliðsjón af stefnuskrám flokkanna, að mótun stefnuskrár, er orðið gæti sameiningargrundvöllur. Enn fremur að leggja sig fram um að kynna grund- vallarrök fyrir sameiningarþörfinni i ræðum og riti, m.a. með fundahöldum um land allt, og stefna að þvi að flokksþingin geti tekið afstöðu til samein- ingarmálsins við fyrstu möguleika. Sterk samtök, byggð á hugsjón jafnaðar og samvinnu, er krafu dagsins. Fundur um sameiningu vinstri flokkanna á íslandi, haldinn i Félagsheimilinu á Húsavik, 13. febrúar 1972, lýsir þvi yfir, að hann telji algjöra þjóðarnauðsyn, að vinstri sinnuð lýðræðisöfl sam- einist i einum öflugum stjórnmálaflokki. Einnig skorar fundurinn á samstarfsnefndir flokkanna að vinna sem fyrst, með hliðsjón af stefnuskrám flokk- anna, að mótun stefnuskrár, er orðið gæti samein- ingargrundvöllur. Enn fremur að leggja sig fram um að kynna grundvallarrök fyrir sameiningar- þörfinni í ræðum og riti, m.a. með fundahöldum um allt land, og stefna að þvi, að flokksþingin geti tekið afstöðu til sameiningarmálsins við fyrstu mögu- leika. Sterk samtök, byggð á hugsjón jafnaðar og samvinnu, er krafa dagsins. Félögin í Rvík ræða sameiningarmálið I siöustu viku var haldinn fyrsti fundur fulltrúa frá flokksfélöguin vinstri flokkanna I Rcykjavik til aö ræöa sameiningamáliö. A fundinn komu þrir fulltrúar frá hverju flokksfélagi, Þessi fundur flokksfélaganna I Reykjavfk er upphafiö aö fleiri slfkum. A fundinum voru eftirtaldir fulltrúar: Frá Framsóknarfélagi Reykja- vikur: Þórarinn Þórarinsson, Jón Abraham Olafsson og Kristinn Finnbogason. Frá Reykjavikurdeild Samtaka frjálslyndra og vinstri manna: Inga Birna Jónsdóttir, sem st- jórnaði fundarha 1 dinu, Guðmundur Bergsson og Hallgrímur Guðmundsson. Frá Alþýðubandalaginu i Reyk- javik: Svava Jakobsdóttir, Svavar Gestsson og Jón Snorri Þorleifsson. Frá Alþýöuflokksfélagi Reyk- javikur: Björgvin Guðmundsson, Emilia Samúelsdóttir og Sigurö- ur Guðmundsson. Merk heimsókn ungra norskra Verkamannaflokksmanna hingað Um siðustu helgi komu hingað til lands þrir helztu forystumenn samtaka ungra verkamanna- flokksmanna i Noregi. Samtök þeirra, AUF, eru langfjölmennust pólitiskra ungsamtaka i Noregi, og er það alls ekki undarlegt, þegar tillit er tekið til þess, að norski verkamannaflokkurinn hefur 74 þingsæti af 150 i Stór- þinginu og rikisstjórnin er einlit verkamannaflokks. A siðustu árum hefur AUF i Noregi gerzt andsnúið forystu Verkamannaflokksins I ýmsum mjög þýðingarmiklum málum. Þar ber auðvitað hæst inngöngu Norðmanna i Efnahagsbanda- lagið, en um það mál er afskap- lega mikið rifizt i landinu. Tals- menn inngöngunnar eru einkum teknókratarnir i forystu Verkamannaflokksins og Alþýðusambandsins, ásamt forystumönnum og fylgi thalds- flokksins. Þetta bandalag ihalds og staðnaöra krata i Noregi i þessu máli má verða fólki all- mikið umhugsunarefni hér á landi einnig. Ljóst viröist þó, að kjósendur norska Verkamanna- flokksins eru forystunni ekki sérlega fylgispakir f málinu, sem má vera okkur isiendingum nokkur huggun. Ungt fólk allra flokka i Noregi — nema thaldsflokksins (Hægri flokks) — leggst gegn aðild að Efnahagsbandalaginu. Mest hlýtur þar að muna um unga verkamannaflokksmenn, þá sem hér voru á ferðinni. En þeir eru róttæir á fleiri sviðum: Þeir vilja nefnilega að Noregur segi sig úr Nató og stuðli að nýrri skipan öryggismálanna i Evrópu. Þetta kemur kannski einhverjum íslendingum á óvart. Viðræöurnar við hina norsku gesti heppnuöust vel, og er nú stefnt aö þvi að halda hér á landi ráðstefnu á sumri komanda um Efnahagsbandalags- og land- helgismál, svo og öryggismál Evrópu og sér ii lagi Norðurlanda með hliðsjón m.a. af tillögunni um t'riðlýsingu Norður-Atlants- hafs., Þáttaka i þessari ráð- stefnu yrði að sjálfsögðu einkum bundin við pólitisk ungsamtök, sem ekki eru háð stórveldunum á neinn hátt, og æskja þess að öðru leyti að fá að vera með. Það er sérlega athyglisvert og raunar hið mesta gleöiefni, að samtök ungs fólks i fjórum st- jórnmálaflokkum skyldu geta sameinast um móttöku þessara erienuu, vuisiri sinnuöu gesta. Það sýnir, að klofningurinn á vinstri kanti islenzkra stjórnmála er ekkieins djúpstæður og llialds- öflin auövitaö vona. Ilvort hér er um að ræða fyrirboða meiri at- burða I sameiningarmálum skal þó meö öllu látið ósagt, en ekki ætti þessi sameiginlega móttaka og fundirnir I sambandi viö hana aö spilla neinu á þeim vettvangi, siður en svo. Og stuðningur þýðingarmikilla stjórnmálaafla I Noregi við málstaö Islands i landhelgis- málinu er að sjálfsögðu sérstakt gleðiefni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.