Tíminn - 18.02.1972, Page 5
Föstudagur 18. febrúar 1972
TÍMINN
5
Samvinna ungra vinstri
manna á ýmsum sviðum
Sameiningarmálið:
Fjölsóttir og einhuga fundir
FUF, FUJ, SFV, og Ænflb
Um síöurstu helgi gengust
Félög ungra framsóknar-
manna, Félög ungra jafnaöar-
manna, ungir menn úr
Samtökum frjáislyndra og
vinstri manna og Æsku-
lýösnefnd Alþýöu-
bandalagsins fyrir fjöl-
mennum og fjörugum fundum
á Akureyri og Húsavik um
sameiningarmáliö. Fundirnir
voru sóttir jafnt af eldra sem
yngra fólki. Margir tóku til
máls og voru i lok beggja
fundanna samhljóöa sam-
þykktar ályktanir. Tillaga um
áiyktun Akureyrarfundarins
var flutt af Kristjáni frá
Djúpalæk og tók
Húsavikurfundurinn undir þá
ályktun lltiö breytta.
Fundurinn á Akureyri var
settur af Ingvari Baldurssyni.
Fundarstjóri var Hákon
Hákonarson og framsögu-
ræðumenn Friðgeir Björn-
sson, Cecil Haraldsson,
Halldór S. Magnússon
og Sveinn Kristinsson. Auk
þeirra tók til máls Kristján frá
Djúpalæk, Pétur Gunnlaugs-
son, Sigurður Karlsson,
Benedikt Guðmundsson, Jón
B. Rögnvaldsson, Þórður
Ingimarsson, Tryggvi
Helgason og Ólafur Ragnar
Grimsson.
Fundurinn á Húsavlk var
settur af Guðmundi Bjarna-
syni. Fundar-stjóri var Einar
Njálsson. Framsöguræður
fluttu Sveinn Kristinsson,
Ólafur Ragnar Grimsson,
Cecil Haraldsson, Halldór S.
Magnússon. Auk þeirra tóku
til máls Hjörtur Tryggvason,
Freyr Bjarnason, Friðgeir
Björnsson, Haraldur Gislason,
Þráinn Kristjánsson, Gunnar
Páll Jónsson, Guðmundur
Hákonarson, Siguröur jon-
sson og Guðmundur Bjar-
nason.
YFIRLÝSINGAR FUNDARMANNA
Á Akureyri Á Húsavík
Fundur um sameiningu vinstri flokkanna á
íslandi, haldinn að hótel Varðborg á Akureyri 12.
febrúar 1972. lýsir þvi yfir að hann telji algjöra
þjóðarnauðsyn, að af sameiningu megi verða á
þessu kjörtimabili. Einnig skorar fundurinn á
samstarfsnefndir flokkanna að vinna sem fyrst,
með hliðsjón af stefnuskrám flokkanna, að mótun
stefnuskrár, er orðið gæti sameiningargrundvöllur.
Enn fremur að leggja sig fram um að kynna grund-
vallarrök fyrir sameiningarþörfinni i ræðum og
riti, m.a. með fundahöldum um land allt, og stefna
að þvi að flokksþingin geti tekið afstöðu til samein-
ingarmálsins við fyrstu möguleika. Sterk samtök,
byggð á hugsjón jafnaðar og samvinnu, er krafu
dagsins.
Fundur um sameiningu vinstri flokkanna á
íslandi, haldinn i Félagsheimilinu á Húsavik, 13.
febrúar 1972, lýsir þvi yfir, að hann telji algjöra
þjóðarnauðsyn, að vinstri sinnuð lýðræðisöfl sam-
einist i einum öflugum stjórnmálaflokki. Einnig
skorar fundurinn á samstarfsnefndir flokkanna að
vinna sem fyrst, með hliðsjón af stefnuskrám flokk-
anna, að mótun stefnuskrár, er orðið gæti samein-
ingargrundvöllur. Enn fremur að leggja sig fram
um að kynna grundvallarrök fyrir sameiningar-
þörfinni í ræðum og riti, m.a. með fundahöldum um
allt land, og stefna að þvi, að flokksþingin geti tekið
afstöðu til sameiningarmálsins við fyrstu mögu-
leika. Sterk samtök, byggð á hugsjón jafnaðar og
samvinnu, er krafa dagsins.
Félögin í Rvík ræða
sameiningarmálið
I siöustu viku var haldinn fyrsti
fundur fulltrúa frá flokksfélöguin
vinstri flokkanna I Rcykjavik til
aö ræöa sameiningamáliö. A
fundinn komu þrir fulltrúar frá
hverju flokksfélagi, Þessi fundur
flokksfélaganna I Reykjavfk er
upphafiö aö fleiri slfkum.
A fundinum voru eftirtaldir
fulltrúar:
Frá Framsóknarfélagi Reykja-
vikur: Þórarinn Þórarinsson,
Jón Abraham Olafsson og
Kristinn Finnbogason.
Frá Reykjavikurdeild Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna:
Inga Birna Jónsdóttir, sem st-
jórnaði fundarha 1 dinu,
Guðmundur Bergsson og
Hallgrímur Guðmundsson.
Frá Alþýðubandalaginu i Reyk-
javik: Svava Jakobsdóttir,
Svavar Gestsson og Jón Snorri
Þorleifsson.
Frá Alþýöuflokksfélagi Reyk-
javikur: Björgvin Guðmundsson,
Emilia Samúelsdóttir og Sigurö-
ur Guðmundsson.
Merk heimsókn ungra norskra
Verkamannaflokksmanna hingað
Um siðustu helgi komu hingað
til lands þrir helztu forystumenn
samtaka ungra verkamanna-
flokksmanna i Noregi. Samtök
þeirra, AUF, eru langfjölmennust
pólitiskra ungsamtaka i Noregi,
og er það alls ekki undarlegt,
þegar tillit er tekið til þess, að
norski verkamannaflokkurinn
hefur 74 þingsæti af 150 i Stór-
þinginu og rikisstjórnin er einlit
verkamannaflokks.
A siðustu árum hefur AUF i
Noregi gerzt andsnúið forystu
Verkamannaflokksins I ýmsum
mjög þýðingarmiklum málum.
Þar ber auðvitað hæst inngöngu
Norðmanna i Efnahagsbanda-
lagið, en um það mál er afskap-
lega mikið rifizt i landinu. Tals-
menn inngöngunnar eru einkum
teknókratarnir i forystu
Verkamannaflokksins og
Alþýðusambandsins, ásamt
forystumönnum og fylgi thalds-
flokksins. Þetta bandalag ihalds
og staðnaöra krata i Noregi i
þessu máli má verða fólki all-
mikið umhugsunarefni hér á
landi einnig. Ljóst viröist þó, að
kjósendur norska Verkamanna-
flokksins eru forystunni ekki
sérlega fylgispakir f málinu, sem
má vera okkur isiendingum
nokkur huggun.
Ungt fólk allra flokka i Noregi
— nema thaldsflokksins (Hægri
flokks) — leggst gegn aðild að
Efnahagsbandalaginu. Mest
hlýtur þar að muna um unga
verkamannaflokksmenn, þá sem
hér voru á ferðinni. En þeir eru
róttæir á fleiri sviðum: Þeir vilja
nefnilega að Noregur segi sig úr
Nató og stuðli að nýrri skipan
öryggismálanna i Evrópu. Þetta
kemur kannski einhverjum
íslendingum á óvart.
Viðræöurnar við hina norsku
gesti heppnuöust vel, og er nú
stefnt aö þvi að halda hér á landi
ráðstefnu á sumri komanda um
Efnahagsbandalags- og land-
helgismál, svo og öryggismál
Evrópu og sér ii lagi Norðurlanda
með hliðsjón m.a. af tillögunni
um t'riðlýsingu Norður-Atlants-
hafs., Þáttaka i þessari ráð-
stefnu yrði að sjálfsögðu einkum
bundin við pólitisk ungsamtök,
sem ekki eru háð stórveldunum á
neinn hátt, og æskja þess að öðru
leyti að fá að vera með.
Það er sérlega athyglisvert og
raunar hið mesta gleöiefni, að
samtök ungs fólks i fjórum st-
jórnmálaflokkum skyldu geta
sameinast um móttöku þessara
erienuu, vuisiri sinnuöu gesta.
Það sýnir, að klofningurinn á
vinstri kanti islenzkra stjórnmála
er ekkieins djúpstæður og llialds-
öflin auövitaö vona. Ilvort hér er
um að ræða fyrirboða meiri at-
burða I sameiningarmálum skal
þó meö öllu látið ósagt, en ekki
ætti þessi sameiginlega móttaka
og fundirnir I sambandi viö hana
aö spilla neinu á þeim vettvangi,
siður en svo.
Og stuðningur þýðingarmikilla
stjórnmálaafla I Noregi við
málstaö Islands i landhelgis-
málinu er að sjálfsögðu sérstakt
gleðiefni.