Tíminn - 18.02.1972, Side 8
8
Föstudagur 18. febrúar 1972
Frúin hefur skrifað milli
50 og 60 greinar um Island
Rætt við búlgörsku sendiherrahjónin sem nú kveðja Island eftir 7 óra starf.
Hér dvaldist í siöustu viku L. Gantshev sendiherra Búlgarluá tslandi
ásamt konu sinni Nödju. t fylgd meö þeim hjónum var Ivan Goranov
framkvæmdastjóri Kaupmannahafnarskrifstofu Bulgarian Airlines.
Gantshev hefur veriö scndiherra I Búlgarfu á tslandi I 7 ár, eöa slöan
stjórnmálasamband var tekiö upp milli tslands og Búlgariu og rlkin
skiptust á sendiherrum. Gantshev hefur haft aösetur I Stokkhólmi. Þau
hjón hafa tekiö miklu ástfóstri viö island og lslendinga og hafa unniö
markvisst aö auknum samskiptum rikjanna bæöi á menningar- og viö-
skiptasviöi, en ekki sl/t hafa þau unniö ómetanlegt starf aö kynningu á
tslandi, tslendingum og islenzkri menningu I Búlgarlu, og hefur frú
Nadja Gantsheva, sem er blaöamaöur aö atvinnu, skrifaö milli 50 og 60
greinar um tsland I vlöiesnustu dagblöö og timarit I Búlgarlu.
Þá hafa dætur þeirra hjóna, sem báöar vinna viö blaöamennsku, önnur
er ritstjóri menningartimarits en hin framleiöandi viö búlgarska sjón-
varpiö, flutt margvfslegt efni um lsland, en þær hrifust einnig af ts-
landi er þær komu hér I heimsókn meö foreldrum sinum.
Forscti tslands sæmdi Gantshev sendiherra riddarakrossi
Fálkaoröunnar fyrir skömmu. Sendiherrah jónin voru aö kveöja tsland.
Tlminn átti viötal viö þau hjónin og fer þaö hér á eftir.
— Hve lengi hafið þér verið herra Gantshev?
sendiherra Búlgariu á Islandi, — Ég lók við starfi sendiherra
Búlgariu á tslandi með aðsetri i
Stokkhólmi, strax og formlegu
stjórnmálasambandi var komið á
milli rikjanna og ákveðiö var að
skiptast á sendiherrum. Það var
fyrri hluta árs 1965. Ég hef þvi
veriðsendiherra á Islandi i sjö ár.
— Hvert var fyrra starf yöar?
— Ég var ritstjóri við eitt af
málgögnum Bændaflokks
Búlgariu og sat á þingi fyrir flokk
minn. Nú er ég hverf úr sendi-
herrastarfi tek ég að nýju sæti á
þinginu.
— Þér hafiö haft aösetur I
Stokkhólmi. Hve oft hafið þér
heimsótt Island þessi ár?
— Við hjónin höfum heimsótt
Island á hverju ári sl. 7 ár, og
stundum hafa dætur okkar einnig
verið i fylgd með okkur. Viö erum
mjög hrifin af landi og þjóð og
höfum alls staðar átt vináttu og
hlýhug að mæta. Við höfum mikla
trú á islenzku þjóðinni og framtíö
hennar og dáumst að dugnaöi
hennar og menningu.
— Hvernig hefur yður gengiö i
sendiherrastarfinu við að stuðla
að nánari samskiptum tslands og
Búlgariu?
— Skref fyrir skref hafa sam-
skipti rikjanna farið vaxandi frá
1965. Fyrsta sporið i minu starfi
var auðvitað að koma hingað og
kynnast landi og þjóð.'I fyrstu
heimsókn minni til tslands og
fyrstu viðræðum við islenzka
ráðamenn fann ég glöggt að ts-
lendingar voru reiðubúnir að taka
upp margvisleg samskipti við
Búlgariu. Bezta sönnun um þann
gagnkvæma vilja, sem rikt hefur
um nánari samskipti, tel ég vera
samning rikjanna um að fella
niður skilyrði vegabréfsáritana
fyrir ferðamenn. Sá samningur
var gerður i marz 1968. Eitt
mikilvægasta skrefið i undir-
búningi að samskiptum rikj-
anna var heimsókn Ivan Basev
utanrikisráðherra Búlgariu til
tslands og siðan opinber heim-
sókn Emils Jónssonar fyrrver-
andi utanrikisráðherra til
Búlgariu ásamt Pétri Thorsteins-
syni, ráðuneytisstjóra og Oddi
Guðjónssyni sendiherra. Þá var
lagður grundvöllurinn að heim-
sókn Zikovs forsætisráöherra til
tslands i. september á sl. ári, en
þá var undirritaður samningur
milli rikjanna um eflingu við-
skipta og menningarsamskipta
rikjanna. Vegna þessa samnings
hefur nú tekiö til starfa hér á
landi Boris Solakov verzlunar-
fulltrúi Búlgariu með föstu að-
setri á tslandi, og hefur hann nú
opnað skrifstofu að Alfheimum 68
i Reykjavik.
A þessu ári stendur til að ganga
frá samkomulagi um aukin
menningarsamskipti, og búlgörsk
stjórnvöld hafa farið fram á að
gerður verði loftferðasamningur
milli rikjanna. Búumst við innan
tiöar við jákvæðu svari og á-
kvörðun um það, hvenær samn-
ingar um loftferðasamning
hefjist. Þá hefur verið stungið
uppá samningum um gagnkvæm
ferðamannasamskipti, og sam-
kvæmt samningnum um aukin
menningarsamskipti, koma til
framkvæmda á þessu ári skipti á
stúdentum. Einum islenzkum
stúdent verður búin námsaðstaða
i Búlgariu og einum búlgörskum
á tslandi.
Þá hefur ölafi Jóhannessyni
forsætisráðherra og konu hans
vérið boðið i opinbera heimsókn
til Búlgariu, og er vonazt til að
hann geti þegið boðið i septem-
ber. Þá hefur Alþingi verið boðið
að senda þingmannanefnd i heim-
sókn til Búlgariu. Eysteinn Jóns-
son forseti Sameinaðs Aiþingis
hefur tjáð mér að Alþingi sé
reiöubúið að senda slika nefnd og
hefur lagt til að heimsóknin verði
á vori komanda. Þá hefur forseta
tslands, dr. Kristjáni Eldjárn
veriþ boðið i opinbera heimsókn
til Búlgariu, og gæti ef til vill
oröið af þeirri heimsókn á árinu
1973. Borgarstjórinn i Sofiu hefur
boðið Geir Hallgrimssyni borgar-
stjóra i Reykjavik að heimsækja
Sofiu.
— Má ég nú beina máli minu til
yðar, frú Nadja Gantsheva. Þér
hafið skrifað mikiö um tsland og
þar hafa dætur ykkar hjóna
einnig lagt hönd á plóginn — eða
er ekki svo?
— Jú, við eigum tvær dætur,
sem báðar starfa við fjölmiðla.
önnur er ritstjóri við menningar-
og tizkurit, og hefur hún skrifað
margar greinar um tsland og
kynnt tsland og islenzka menn-
ingu með margvislegum hætti.
M.a. hefur hún skrifað grein um
tslendingasögurnar og islenzkar
fornbókmenntir og gildi þeirra i
heimsmenningunni. Einnig hefur
hún ritað um bárattu tslendinga
fyrir endurheimt handritanna, is-
lenzkrar menningararfleifðar,
frá Kaupmannahöfn til Reykja-
vikur.
Yngri dóttir okkar starfar við
sjónvarpið i Búlgariu. Hún er
framleiöandi sjónvarpsþátta og
hefur stjórnað nokkrum dag-
skrám til kynningar á tslandi og
Islendingum. Dætur okkar báðar
hrifust af landi og þjóð, er þær
komu hingað i heimsókn með
okkur.
— En yðar hlutur, frú Gant-
sheva, i þessari kynningu á
tslandi er þó stærstur.
— Ég hef veriö starfandi blaða-
maöur i fjölda ára, unnið við dag-
blað og verið aöstoðarritstjóri viö
aöal kvennablaðið i Búlgariu, og
nú er ég nýlega orðin aðalritstjóri
við Timaritið ,,Lada”j sem fjallar
um tizku, menningarmdl og listir.
Þau sjö ár, sem ég hef dvalið á
Noröurlöndum, hef ég aðallega
skrifað um tsland og islenzka
menningu, þótt ég hafi átt heimili
mitt i Stokkhólmi. Ég er afar
hrifin af tslandi og tslendingum
og menningu þeirra fornri og
nýrri. Ég hef skrifað milli 50 og 60
greinar um tsland á þessum sjö
árum I viðlesnustu dagblöð og
timarit i Búlgariu. Þessar
greinar hafa verið lýsing á landi
og þjóð og f jallað um ýmsa þætti
islenzkrar menningar. Þá hef ég
birttvöviðtöl við Halldór Laxness,
nóbelsskáldið ykkar, og viðtal við
Selmu Jónsdóttur forstjóra Lista-
safns rikisins um islenzka list
fyrr og siðar, og einnig viðtal við
Jóhannes úr Kötlum um islenzka
ljóðgerð. Og nú vinn ég við að
skrifa bók um Island, sem
væntanlega fæst útgefin áður gn
langt um liður, og ég hef gert til-
boð um gerð heimildarkvik-
myndar -um Island — land og
þjóð. Af þessu sést að Island hefur
tekið hug minn og hönd. Ég vil
nota þetta tækifæri nú, er við
kveðjum ísland, og biðja Tímann
fyrir kveðjur og þakkir til allra
þeirra fjöimörgu vina, sem við
höfum eignazt á tslandi. Hugur
okkar mun oft leita hingað norður
til ykkar fagra lands. — TK
stereo5000
STEREO-magnari og útvarp með FM, MW,KW OG
LW bylgjum.Utspilun 1x30 music watts, íor-
magnari fyrir Magnentic og kristal pic-up.
Tónbrenglun minni en 0,3% og tónsvið 15 -
40.000 HZ rið, bassa og diskant tónstillar.
Kaupið aðeins vandaða vöru. Sérstaklega þeg-
ar um er að ræða t.d. ferðaviðtæki, segulband
eða sjónvarp. Og síðast en ekki síst STEREO-
hljómtæki. Vandið valið. Komið og kynnist
vörum frá ITT SCHAUP-LORENZ.
Ódýrt en vandað.__________
Verzlunin
Garðastræti 11 sími 20080