Tíminn - 18.02.1972, Síða 17

Tíminn - 18.02.1972, Síða 17
Föstudagur 18. febrúar 1972 TÍMINN 17 vw!____ vS-Xvv:-:-:-:-:-::-::-:-:-::-.-.-.-. .WWW'S.WW.W.WW.W Fram og FH berjast áfram um íslandsmeisfaratitilinn Kveðjusöngur KR og Vlk- ings I 1. deildarkeppninni i handknattleik karla á mið- vikudagskvöldið var heldur bágborinn, svo að ekki sé tekið sterkara til orða. Þau léku þarna sinn sfðasta leik i deild- inni i ár, Víkingur lék við FH og KR við Fram. Söngur beggja hljómaði á sama hátt, eða 11 marka flenging. Vik- ingur tapaði 11:22 og KR 16:27. Það fór þvi ekki þannig að þessi lið rugiuðu neitt fyrir Fram og FH, Þau berjast áfram um sigurinn i deildinni, og það eru ekki nema örfáir dagar þar til úr þvi fæst skor- ið, hvort liðið það verður, sem hlýtur sæmdarheitið tSLANDSMEISTARI 1972. Það verður jafnvel á hreinu á sunnudagskvöldið, þvi þá mætast þessi lið, sem svo oft hafa keppt um tslands- meistaratililinn. Verður það siðari leikur ÍR og Hauka. Er hann ekki siður mikilvægur, þvi þar getur ráðizt hvaða lið fellur i 2. deild. Ef 1R nær stigi eru Haukarnir fallnir, og ef Haukarnir fara með sigur af hólmi er allt útlit fyrir að þá þurfi að fara aukaleikur um fallið inilli þessara sömu liða, þ.e.a.s. ef Ilaukarnir ná þá ekki stigi gegn Fram á siðasta leikkvöldi mótsins, sem verð- ur miðvikudaginn 22. febrúar. Leikur Fram og FH á sunnudagskvöldið verður áreiðanlega mikill leikur. Fram nægir jafntefli til að gera út um möguleika FH á að hljóta titilinn, þvi fyrir þann leik er Fram með 2ja stiga forustu. Ef FH sigrar í leikn- um, fara málin að horfá öðru- visi við, þvi að þá eru liðin jöfn að stigum, og eiga bæði eftir einn leik. Þeir fara fram á miðvikudaginn. Fram leikur við Hauka eins og fyrr segir, en FH við Val, og stendur Fram þar betur að vigi, þvi Valsliðið getur orðið erfiðari biti að kyngja fyrir FH en Ilaukarnir fyrir Fram. Ekki treystum við okkur til að spá um úrslitin, þó þetta langt sé liðið á mótið. Bæði Fram og FH hafa á að skipa góðum leikmönnum, sem geta gert stóra hluti, fái þeir hand- bolta i heudurnar og mark fyr- ir framan sig, og bæði eru þau þe ss virði að vcra tslands- meistari i handknattleik karla 1971. -klp- . . . OG KR HERMDI EFTIR! Fram og Val, en vera ekki að eyða þeim á létta andstæðinga eins og Viking. Það liðu heilar 10 minútur af leiknum þar til hinir háværu stuðingsmenn Vikings gátu fagnað marki. Fram að þeim tima höfðu þeir haft litlu að fagna, en FH-ingar þvi oftar, þvi þeir voru þá búnir að skora 5 mörk. Þegar Vikingar skoruðu aftur- úr aukakasti-voru aðrar 10 min. liðnar, og þegar þeir skoruðu i 3ja sinn- úr vitakasti- var fyrri hálfleiknum næstum lokið. Það var þvi þegar dóm ararnir flautuðu i gos- og slikkeri- hálfleik- að sjá mátti á markatöflunni 9:3 fyrir FH. Vikingar hófu siðari hálfleikinn með tveim mörkum i röð frá Guðjóni Magnússyni. Þá fór maður að halda að þetta gæti liklega orðið skemmtilegur leikur, en 3 mörk i röð frá FH gerðu þær vonir að engu. FH-ingar héldu áfram að skora jafnt og þétt, og þegar LOKSINS var gefið til kynna að leiknum væri lokið, var staðan 22:11 fyrir FH. Um einstaka leikmenn er litið gott hægt að segja. Þeir voru a.m.k. ekki i hópnum hjá Vikingi og fáir voru þeir hjá FH. Það voru helzt Birgir Finnbogason, Geir og Viðar. Jú, og Ólafur Einarsson, sem nú fékk meira að segja að vera inn á dágóða stund. Dómararnir i leiknum voru sérstakur kapltuli út af fyrir sig. Það voru þeir Hilmar ólafs son og_ Einar Hjartarson, og botnaði maður stundum hvorki upp né niður i neinu hjá þeim. Hilmar var rólegur og fór sér hægt eins og vanalega, en Einar dæmdi eftir „sinum lögum”.... Ekki er rétt að fara neitt lengra út i bá sálma- maður hefur engan sérstakna áhuga á að lenda i ,,bréfaskóla” svona rétt i lok handknattleiksvertiðarinnar. —klp— Það er eins gott fyrir hina lágvöxnu leikmenn FH að teygja vel úr sé^, þegar risinn i Vikingsliðinu, Einar Magnússon, kemur aö vörninni og ætlar að skjóta. (Timamynd Róbert) —Ömurlegt allt frá upphafi til enda, er það eina sem maður getur sagt um leik FH og Vikings i 1. deildarkeppninni i handknatt- leik karla á miðvikudagskvöldið. Þaö var nær þvi saina livár á var litið, allt var jafn lélegt. Þvi er þó samt ekki að neita, að einstaka sinnum gat maður þó rétt úr sér i sætinu eftir að brugðið hafði fyrir einliverju skemmtilegu, en það var þó nær eingöngu er FH-ingar voru með knöttinn, eða þá að markverðir FH, Birgir Finnboga- son og Magnús Ólafsson, sem kom inn á á síðustu minútum siðari hálfleiks, voru að verja. Vikingsliðið var hreint út sagt hroðalegt. Það var ekki nálægt þvi að vera brot af þvi sem það var i fyrstu leikjunum i vetur, og ekki heil brú i neinu, sem leik- mennirnir tóku sér fyrir hendur. Annað eins „stjörnuhrap” hefur maður ekki séð i langan tima hjá einu liði. Meðan önnur lið hafa verið að bæta við sig hægt og sigandi, hefur Vikingsliðinu farið aftur. Efa ég hreinlega að það gæti klórað sig i gegnum 2. deildina, eins og það er nú. FH var öllu skárra, og þótt það væri samt ekkert til að dansa eða syngja yfir i þetta sinn.fór það létt með að sigra Viking með 11 mörkum. Hefði sá sigur jafnvel getað orðið mun stærri ef áhugi hefði verið á þvi, en svo var ekki að sjá. Sjálfsagt hafa FH-ingar hugsað sem svo, að rétt væri að spara kraftana fyrir leikina við STAÐAN Staðan i 1. deild karla I hand- knattleik eftir leikina: Víkingur-FH 11:22 (3 :9) KR-Fram 16:27 (7 :8) Fram 10 9 0 1 193: : 154 18 FH 10 7 2 1 207: : 155 16 Vikingur 12 6 2 4 206: : 213 14 Valur 11 6 1 4 171: : 161 13 KR 12 2 3 7 185: :243 7 IR 11 1 3 7 192: 213 5 Haukar 10 1 1 8 157: 182 3 VÍKINGUR KVADDI MEÐ 11 MARKA TAPI . . . Næstu leikir: Sunnudaginn 20. febrúar kl. 20,15. IR-Haukar, Fram-FH. Miðvikudaginn 23. febrúar kl. 20.15. Fram-Haukar, Valur-FH. LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA Tómas Árnason, hrl. og Vilhjálmur Árnason, hrl. Lækjargötu 12. (Iðnaðarbankahúsinu, 3. h.). Símar 24635 — 16307. Eftir að hafa horft á leik FH og Vikings bjóst maöur ekki við miklu þegar leikmenn Fram og KR hófu sina baráttu strax á eftir. Vitaö var að Fram ætlaði sér ekki að tapa stigi i þessum leik og myndi því leika af fullum krafti. Einnig var ljóst aö KR haföi að engu að vinna, enda úr ailri failhættu, en þó læddist aö manni sá grunur að Fram kæmi tfttil með að lenda i mesta basli með KR, eins og oftast, þegar þessi liö mætast i 1. deíldinni. Sá grunur reyndist á rökum reistur —a.m.k. til að byrja með. Framararnir komust i hin mestu vandræði hvað eftir annað og urðu að láta sér nægja að vera undir eða þá að halda jöfnu mestallan fyrri hálfleikinn. KR—ingar komust tvivegis yfir- i fyrri hálfleik:,fyrst 3:2 og siðan 5:4 og nokkrum sinnum náðu þeir að jafna, eins'og t.d. 5 min. fyrir leikhlé, 6:6, e‘n i hálfleiknum var staðan 8:7 fyrir Fram. Þegar liðin komu inn á i siðari hálfleiknum, bjóst maður við áframhaldi á þessu hjá KR—ingum, en sú varð ekki raunin. Strax i upphafi opnuðu þeir vörnina hjá sér eins og hægt var. Hún var engu likari en opi á stóru veitingatjaldi, þar sem hver sem vildi gat slangrað út og inn að vild. Og Framararnir voru ekki seinir að þiggja boðið. Þeir komust i 10:7, siðan 12:9, 15:10 og 18:1?. A þessum tima skoruðu þeir á fjölbreyttasta hátt, mest þö af linu og úr hornum, þar sem Björgvin Björgvinsson læddi sér inn hvað eftir annaö. Þegar staðan var 18:12 tók Axel Axelsson við að skora fyrir fram, og áður en varði var hann búinn að skora 5 mörk i röð. KR—ingar réttu aðeins úr kútnum og komust i 14:24, en Axel bætti þá við 2 mörkum og siöan Stefán Þórðarson á siðustu sekúndu, og urðu þvi lokatölurnar 27:16. I siðari hálfleiknum voru þvi skoruð hvorki meira né minna en 28 mörk, þar af skoraði Fram 19 en KR 9. Segir þetta sina sögu um stórskotahriðina, sem átti sér stað. Fram—liðið var gott i þessum leik, þótt mælikvarðinn i siðari hálfleik væri ekki góður. Flestir eða allir voru virkir, én enginn bar samt mjög af öðrum. Mest bar á Björgvin Björgvinssyni, sem skoraði mikið og var góður i vörn, Axel Axelsyni, sem komst i Frh á bls. 19

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.