Tíminn - 19.02.1972, Síða 11
Laugardagur 19. febrúar 1972
TÍMINN
11
Jóhannes Atlason— Hjálpar hann Akureyringum til að vinna
bikarinn, seni hann hampar þarna á myndinni— Bikarinn sem
fæst fyrir sigur i 2.deildarkeppninni i knattspyrnu?
Jóhannes Atlason
til Akureyrar?
Klp-Reykjavík. Verið
getur að fyrirliði lands-
liðsins og Fram í knatt-
spyrnu, Jóhannes Atla-
son, verði þjálfari 2.
deildarliðs ÍBA á Akur-
eyri í sumar. Þessar
upplýsingar fengum við
að norðan í gær, er við
hringdum þangað til að
spyrjast fyrir um ráð-
ningu þjálfara til liðsins.
Akureyringar munu hafa
sent Jóhannesi, sem nú er i
London, þar sem hann stundar
nám i þrekþjálfun og öðru
viðkomandi þjálfun, bréf fyrir
skömmu, þar sem þeir buðu
honum stöðuna. Eftir þvi sem
við höfum fregnað mun
Jóhannes hafa tekið vel i það
að taka að sér starfið, en þó
mun enn vera margt óútkljáð,
eins og t.d. laun og fl. og hefur
þvi enginn samningur verið
undirritaður enn.
Akureyringar hafa undan-
farna már.uði verið að leita
fyrir sér með þjálfara, m.a.
stóðu þeir i sambandi við
Helga Danielsson, Akranesi,
en þeim tókst ekki að fá hann.
Ef úr þvi verður að
Jóhannes fari norður til Akur-
eyrar, er það enn eitt áfallið
fyrir 1. deildarlið Fram, sem
þegar hefur orðið að sjá af
Herði Helgasyni til Akraness,
Arnari Guðlaugssyni til húsa-
vikur og jafnvel Kristni
Jörundssyni á sömu slóðir, en
Framhald á bls. 14.
!■■■■■■■!
!■■■■■■!
■v.v.v,
■v.-.v
Tvö landslið í
KLP-Reykjavik.
Sundfólk okkar æfir nú af full-
um krafti fyrir þau mót, sem
íramundan eru á árinu. Er það
friður hópur ungs fólks og mikill
áhugi er meðal þeirra.
Það er fátt iþróttafólk, sem
leggur eins mikið á sig viö-fingar
og sundfólkið. Margt af þvi æfir
tvisvar á dag og sumt allt að
tveim timum i einu. Allir æfa með
sinum félögum og einnig með
landsliðinu, en nú eru i gangi tvö
landslið hjá Sundsambandinu.
A-landsliöiö æfir af fullum
krafti eins og endanær, en nú er
einnig farið af stað unglinga-
landslið og eru þar mörg efni,
sem eflaust eiga eftir að gera
garðinn frægan á komandi árum.
1 unglingalandsliðshópnum eru
29 piltar og stúlkur, sem öll eru
fædd árið 1957 eða siðar, og eru
þau þessi:
DRENGIR
Arni Eyþórsson, Breiðablik,
Elias Guðmundsson KR, Finnur
Óskarsson Æ, Guðmundur Geir
Gunnarsson. Self., Gunnar Sverr-
isson 1A, Halldór Ragnarsson-
KR, Hróðmar Sigurbjörnsson
Hverag., Jón Hauksson SH, Jón
ólafsson Æ, Sigmar Björnsson
Keflavik, Steingrimur Daviðsson
Breiðabl., Sturlaugur Sturlauga-
son Akran., Steinþór Gunnarsson
UMSK, Þorbjörn Stefánsson
Breiðablik, Þorkell Olgeirsson
Akranesi.
STÚLKUR
Bára Olafsdóttir SH, Dagný Guð-
mundsdóttir UMFN, Dóra Stef-
ánsdóttir Self., Elinborg Gunn-
arsdóttir Self., Herdis Þórðar-
FRAM EÐA FH?
Stærsti iþróttaviðburður helgarinnar verður leikur Fram og FH í 1. deildinni í
handknattleik. Annars verður mikið um að vera bæði á Suður-og Norðurlandi
Klp-Reykjavik. Stóri við-
burðurinn uni þessa helgi verður
tvimælalaust leikur FH og Fram i
1. deildarkeppni karla i hand-
knattleik. Sa ieikur fer fram á
sunnudagskvöldið, á eftir leik ÍR
og Ilauka, sem getur haft úrslita-
þýðingu um fallið f 2. deild. Má
búast við að margt verði um
manninn i LaugardalshöIIinni,
þegar þessir leikir. fara fram, en
annars hefur fólk úr nokkuð
mörgum leikjum og mótum að
velja um þessa helgi.
Segja má að leikur Fram og FH
sé úrslitaleikurinn i 1. deild.
Farma hefur nú 2ja stiga forústu
á Fh, og nægir þvi jafntefli til að
hljóta Islandsmeistartitilinn, en
þá er reiknað með þvi að Fram
sigri Hauka n.k. miðvikudags-
kvöld, er siðustu leikirnir fara
fram. FH verður að sigra Fram
tilað hafa möguleika á titlinum,
og þá má liðið heldur ekki tapa
fyrir Val á miðvikudagskvöldið.
Fari svo að FH sigri Fram og Val
og Fram sigri Hauka eru liðin
jöfn að stigum og verður þa'
hreinn úrslitaieikur að fara fram
milli þeirra. Ef úrslit leikjanna
verða eins og fyrr segir og
Haukar sigri 1R, verður einnig
aukaleikur um fallið í 2. deild
milli 1R og Hauka.
Fram og FH hafa siöan 1959
skipt á milli sín að sigra i íslands-
mótinu innanhúss, og hefur
ekkert annað félag náð þvi að
brjóta þetta „einveldi” þeirra á
bak aftur.
Fyrir utan þessa leiki I 1. deild
fara fram þrir leikir I 2. deild
karla og einnig verður leikið I 1.
og 2. deild kvenna. M.a. mætast I
1. deild kvenna Armann og Valur,
og I 2. deild karla leikur Þróttur á
Akureyri.
sundi
dóttir Hverag., Jóhanna Jóhann-
esdóttir Akran., Jóna Gunnars-
dóttir, Breiðablik, Kristin
Einarsdóttir Breiðablik, Krist-
jana Ægisdóttir Æ, Maria Hrafn-
dóttir Breiöabik, Sigriður Guð-
mundsdóttir Akranesi, Unnur
Hreinsdóttir KR, Vilborg Sverris-
dóttir SH, Þorgerður Jónsdóttir *
Breiðablik.
Af þessum unglingum æfa 5
með a-liðinu, þau, Guörðn Magn-
lísdóttir KR, Jóhanna Stefáns-
dóttir Hveragerði, Elin Gunnars-
dóttir Selfossi, Guðrún Halldórs-
dóttir Akranesi og Þorsteinn
H jartarson, Hveragerði.
Þjálfari unglingaiandsliðsins er
Hreggviður Þorsteinsson, en
þjálfari a-landliðsins er Guð-
mundur Harðarson.
IIÞRÖTTIR
lum helgína
LAUGARDAGUR
Körfuknattleikur:
Iþróttahúsið Seltjarnarnesi kl.
19.00. l.deild karla, IS-UMFS, 1R-
HSK.
Handknattleikur:
íþróttaskemman Akureyri kl.
16.00. 2.deild karla, Þór-Þróttur.
Laugardalshöll kl. 15.30.
1. deild kvenna, Armann-Valur,
2. deild kvenna, Fylkir-tR. 7 leikir
i yngri fl.
Frjálsar iþróttir:
Laugardalshöll kl. 13.30. Innan-
félagsmót IR i stangarstökki.
Knattspyrna:
Melavöllur kl. 14.00. Úrvalslið
KSl-Breiðablik. (Æfingaleikur)
Skiöi:
Hliðarfjall Akureyri kl. 14.00.
Hermannsmótið.(punktamót)
Keppt i stórsvigi karla og kvenna.
SUNNUDAGUR
Körfuknattleikur:
Iþróttahúsið Seltjarnarnesi kl.
19.30. l.deild karla, Armann-
UMFS, KR-tS.
Ilandknattleikur:
tþróttaskemman Akureyri kl.
14.00. 2.deild karla, KA-Þróttur.
tþróttahúsið Hafnarfirði kl. 15.00.
1. deild kvenna, Breiðablik-Valur.
2. deild kvenna, FH-tBK. 4 leikir i
yngri fl.
Laugardalshöll kl. ,19.00. 2.deild
karla, Armann-Fylkir. l.deild
karla, tR-Haukar, Fram-FH.
Hlaup:
Breiðholtshlaup tR kl. 14.00.
Skiði:
Skiðaskálinn Hveradölum kl.
14.00. Unglingamót SR i svigi.
Hliðarfjall Akureyir kl. 14.00.
Hermannsmótið. (Punktamót)
keppt i svigi karla og kvenna.
MANUDAGUR
Knattspyrna:
Melavöllur kl. 19.30. Æfingamót
KR. Valur-Þróttur, Vikingur-
Fram.
I körfuknattleiknum fara fram
4 leikir i 1. deild og má búast við
að þar verði um jafna leiki að
ræða. 1 knattspyrnunni verða
nokkrir leikir á dagskrá, m.a.
leikur Úrvalslið KSt við Breiða-
blik I dag og á maúudagskvöldið
fara fram leikirnir, sem frestað
var á miðvikudag i Æfingamóti
KRR.
Skiðafólk verður flest um
helgina i Hliðarfjalli við
Akureyri, en þar fer fram eitt af
stærstu skiðamótum ársins,
Hermannsmótið. Þá fer einnig
fram unglingamót i Hveradölum
ef ekki verður allur snjór horfínn
fyrir morgundaginn. Fyrir utan
keppni i þessum iþróttagreinum,
verður svo á dagskrá Breiðholts-
hlaup og keppni I stangarstökki
innanhúss.
Sjá nánar tÞRÓTTIR UM
IIELGINA hér á siðunni.
Framarar verða að hafa vakandi auga með þessum manni, Geir Hall-
steinssyni, ef þeir ætla að sigra FH á sunnudagskvöldið.