Fréttablaðið - 13.05.2004, Blaðsíða 50
Útiit er fyrir nokkuð vætusama helgi. Suðaustlægur vindur
og úrkoma á morgun, einkum sunnan- og vestantil. Suð-
væstlæg átt og úrkomulítið á laugardag en á sunnudag
snýst hann aftur í suðaustan með vætu um allt land. Milt
verður í veðri, víða 8 til 13 stig.
IVIAÍ TILBOÐ
3 nætur á 15.000
2 manna herbergi
fjórða nóttin frí
Brekkugötu 27a
sími: 461 2500 • gsm: 895 0625 • fax: 461 2502
600 Akureyri • akurinn@hotmail.com
Tí^gSíí pér sit&aste if W íR«nt%ai % m&i # tetíW np*
j beinu fiugi Terra hiova ti! Portúgal. Þú getur valið um viku eða tveggja vikt
íerð og dvaitð við frabætai aðstæður, enda ®r sumarið komið ií Portúgal o<
auðveit að fliiðta alis sem staðurinn rtefwr að tejtáða.. :Og auðVrtað nýtur þú
iajðtiiuato fararstjóra Tewa ftiova allan fwanrii. iÞú bókar ferðtna og 3 dögur
fyrir brottför færðu að vita ttvar þú gtstir ií frtinu iþtnu i Portúgal.
Kr. 29.995
M«. ibjón «eð 2 Wi«, 2-4 4 áw, í «Aku 2®.-
úMí- iktnifal© ífiug,, gisawg ©g skattar.
Satðír ítil <og feá flugveir ikr. 1.800 ,á
Kr. 39.990
ú.«. 2 saoaan li gistingu íi vlku 3®.. ii®aí.
ílwiiifaiið flug. gisting og skattar.
illi kr. 1.800.
imm
mm
Stangarhyt 3, 110 Reykjavík, sími 591 90(
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 109S
Einar Tönsberg í London:
Mörg þorp sem hafa
gróið saman í borg
London er skemmtileg borg og hefur upp á mikið að
bjóða en fyrir lítinn Islending er hún dálítið stór,“
segir Einar Tönsberg tónlistarmaður, sem hefur ver-
ið búsettur í borginni í næstum sjö ár. Hann hefur
verið að vinna að tónlistarferli sínum í London þar
sem hann gaf nýverið út undir nafninu Eberg disk
með frumsaminni tónlist sem Smekkleysa gaf svo út
hér á íslandi. Einar hefur verið að fylgja disknum
eftir og hefur hlotið góða dóma og eftirtekt. Hann
starfar einnig mikið sem upptökustjóri þannig að líf
hans í borginni snýst fyrst og fremst um tónlistina.
„Fyrst þegar ég kom til London þeyttist ég um
alla borg en núna reyni ég að sækja mér allt sem
ég þarf í næsta nágrenni við heimili mitt. Borgin
er svo gríðarlega stór og tíminn sem fer í að ferð-
ast um hana mikill og það er sagt héma í London
að maður geri ekki meira en tvennt á einum
degi,“ segir Einar, sem lýsir borginni sem saman-
safni af mörgum þorpum sem hafi gróið saman.
Best sé að finna sig í einu af þessum þorpum sem
hefur allt það sem maður þarfnast, svo ekki þurfi
að sækja vatnið yfir lækinn. Einar þekkir borg-
ina orðið inn og út og segir lesendum frá eftirlæt-
isstöðunum sínum í London. ■
RICHMOND PARK
Það eru margir
fallegir almennings-
garðar í Lundúnum.
Það er notaleg til-
finning að getað
ið mannfjöldann og
asa stórborgarinnar.
I Richmond Park er
hægt að leigja reið-
hjól og þar er mikið dýralíf, meðal ann-
ars má þar sjá hjartardýr á stjái.
THE DURELL
Fulham Road
Mikilvægasti bar hvers Breta er lókall-
inn (hverfisbarinn). Þar mætir sama
fólkið dag eftir dag og sest í sama sæt-
ið og hefur sömu samræðurnar við
sama fólkið. Fólk getur brugðist illa við
að finna ókunnugt fólk sitjandi i sætinu
sem rass þess hefur hvílt á síðustu 20
árin. Hverfisbarinn minn er the Durell,
tvær pizzur á verði einnar á mánudög-
um og ún/alsstemning.
DENMARK STREET
Einnig þekkt sem „Tin Pan Alleý'.
Mekka hljómlistamanna. Rakarastofa,
einn bar og svo ekkert nema hljóð-
færabúðir.
BETSEY TROTWOOD
Farrington
Minnsti og vina-
legasti hljómleika-
staður Lundúna.
Eberg spilaði þar
á hverjum mið-
vikudegi í apríl
þannig að staður-
inn er mér kær.
LONDON AQUARIUM
Embankment
Sædýrasafn Lundúna býður mann velkom-
inn í furðuveröld hafsins. Uppáhaldssafnið
mitt í London. Vatnið og skepnurnar hafa
ótrúlega róandi áhrif á mig.
SOUTHBANK
Það hefur verið mikil uppbygging á
Southbank síðan ég kom hingað fyrst.
Að þræða ána frá Embankment til
London Bridge á góðviðrisdegi er mikil
skemmtun. Þar eru miklar söguslóðir,
mörg söfn, meðal annars Tate Modern,
London Eye og fallegir barir við árbakk-
ann.
CRAVEN COTTAGE
Heimavöllur Ful-
ham. Handan við
hornið þar sem ég
bý og tilvalin
skemmtun á laug-
ardögum að sjá
liðið spreyta sig í
bresku úrvalsdeild-
inni. Síðustu tvö ár
hefur liðið ekki
spilað þar vegna
framkvæmda á leikvellinum en liðið
kemur aftur heim í haust.
DONZOKO
Kíngly Street
Japanskur veitingastaður í hjarta Soho.
Japanskur matur er í miklu uppáhaldi
hjá mér. Þessi staður eru vinalegur og
maturinn á sanngjörnu verði. Að sjálf-
sögðu er karíókí í kjallaranum.
BOROUGH MARKET
London Bridge
Jamie Oliver er búinn að gera markaðinn
frægan. Þar fæst úrvals grænmeti, kjöt-
vörur og annað matarkyns, beint frá
bóndanum.
EIGHT BELLS
Putney Bridge
Gamaldags
pöbb við Putney
Bridge sem
stendur beint á
móti frægri
kírkju þar sem
„The Omen" var kvikmynduð. Rólegt og
vinalegt andrúmsloft. Hin árlega róðrar-
keppni á milli Oxford og Cambridge
byrjar á Putney Bridge.
FERÐARÁÐ:
LÉTTUR FARANGUR
Þótt fötin sem notuð eru í ferðum á hlýjum slóðum séu yfirleitt efnislítil er gott að
huga að því að taka með sérflíkur sem auðvelt er að skola úr í höndunum og þorna
yfir nótt. Það getur sparað margan svitadropann á sjálfu ferðalaginu.