Tíminn - 22.02.1972, Side 1
Nýju skuttog-
ararnir munu
bæta hag
frystihúsanna
ÞÓ—Eeykjavik.
A næstu 2—3 árum er gert ráö
fyrir aö 31 skuttogari bætizt f flota
landsmanna, og fer þá togara-
fiotinn aðeins aö náigasí þaö sem
var, meöan hann var og hét. Áriö
1960 gerðu islendingar t.d. út 46
togara, en um þessar mundir eru
aðeins gerð út 22 skip.
Lúðvik Jósefsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði á blaðamanna-
fundi i gær, að mörgum þætti það
stórt stökk að kaupa svona mörg
skip á stuttum tíma. Sagðist
Lúðvik gera sér grein fyrir þvi, að
þetta stökk væri allt hið stærsta.
Hitt vissu allir, að við værum að
færa út landhelgina, og við það
færu 300 erlendir togarar af
miðunum. Ef við fjölguðum ekki
okkar eigin togurum, væri hægt
að ásaka okkur fyrir að hlifa
miðunum allt of mikiðenerlendu
veiðiskipin veiddu 300 þús. tonn á
ári á íslandsmiðum, eða állka og
allur bátafloti landsmanna fiskar
af hliðstæðum fisktegundum.
Þá sagði Lúðvik, að aðeins 5
togarar af núverandi togaraeign
gæti talizt nothæfir til frambúðar,
hinir væru 20 til 25 ára gamlir og
úr sér gengnir. Þótt við bætum 31
togara við, fyllum við ekki i
skarðið, en við léttum á
miðunum, þegar erlendu veiði-
skipin eru farin. Með tilkomu
nýrra togara gjörbreytast allir
veiðimöguleikar sem um leið eiga
að færa'okkur betra hráefni.
Þá gat ráðherran þess, að
mannasparnaður um borð i
hverjum togara yrði mikill, og ef
miðað væri við okkar gömlu
togara, væri hægt að gera út 19
skuttogara af millistærð á móti 11
nýsköpunartogurum.
Fiskiðnaðurinn um þessar
mundir gerir allt aðrar og meiri
kröfur til hráefnis en áður og
sagði ráöherra, að þar stæðum
við langt að baki Norðmönnum,
en þeir hafa lagt rika áherzlu á
að frystihúsin fái jafnt hráefni
árið um kring, og telja þeir skut-
togara af millistærð hafa reynzt
bezt. Þá þrýsta islenzkir sjómenn
einnig á, þar sem þeir eiga ekki
aöeins að hafa gott kaup á vetrar-
vertið. Með þessum skuttogurum,
sem gert er ráð fyrir að verði
keyptir, fáum viö fyrst flota, sem
gerur nýtt djúpmiðinn.
Þeir togarar, sem væntanlega
munu bætast i islenzka togara-
flotann á næstu 2—3 árum eru 8
togarar af stærri gerð (900—1100
rúmlestir), þar af verða 2
smiðaðir innanlands. 12 aðilar
hafa uppfyllt skilyrði i sambandi
við kaup á skuttogurum af
stærðinni 400—500 lestir,.
Til viðbótar þessari tölu koma
5—7 skip af þessari stærð. Þá er
verið að smiða einn togara af
þessari stærð innanlands, og eru
þetta þvi 20 skip.
Að auki eru likur á að 3—4 skip
af stærri gerðinni verði keypt til
viðbótar við áður gerða samn-
inga.
Þá minntist Lúðvik aðeins á þá
tvo litlu skuttogara, sem gerðir
hafa verið út frá Austfjörðum s.l.
ár. Gat hann þess, að þeir hefðu
kostað 42 millj. en hefðu fiskað
fyrir 40millj. kr. á s.l. ári.
CAáftoA*,cla/t A/
RAFTÆKJADEILD, HAFNARSTRÆ TI 23, SlMI 11193
kæli-
skápar
43. tölublað — Þriðjudagur 22. febrúar 1972 — 56. árgangur
AK Reykjavik
Aöalfundi og afmælissamkom-
um Kaupfélags Þingeyinga lauk á
sunnudagskvöid. Aðalfundurinn
ráðstafaði einni milljón króna úr
menningarsjóöi félagsins til
menningarmála i héraðinu i
tilefni 90 ára afmælisins eins og
stjórn félagsins lagöi til á Þverár-
fundinum.
Fundurinn ákvað að Bókasafn
Suður - Þingeyinga skyldi hljóta
hálfa milljón króna af þessari
upphæð. Kaupfélagið stofnaði
safnið og hefur látið sér mjög
annt um það. Þetta fé kemur sér
nú vel, við flutning safnsins i
safnhús sýslunnar, þar sem
skipulag þess og bókakostur
veður bættur. Þá ákvað fundurinn
að veita Héraðsskólanum á
Laugum 100 búsund krónur.
Myndin er af gamla hænuin á
Þverá.
Jens Ottó Krag á Norðurlandaróðsþingi:
íslendingar hafa fengið
versta tilboðið frá EBE
sunnudag, og ræöa Jóns Skafta-
sonar er í blaöinu I dag. Auk
þeirra hafa tekiö til máls af hálfu
islands þcir Gylfi Þ. Glslason, Jó-
hann llafstcin og Bjarni Guöna-
son.
Ræöa Jens Otto Krag, forsætis-
ráöherra Dana, vakti almenna
athygli isienzku fulltrúanna á
þinginu, en hann sagði m.a. i
lauslegri þýðingu:
,,Það samningstilboö sem Is-
lendingar hafa fengið frá Efna-
hagsbandalagi Evrópu er örugg-
lega það versta, sem bandalagið
hefur boðið löndum, sem ekki
óska eftir fullri aðild. Þetta er
ekki aðeins dönsk skoðun, þvi að
ég held ég megi segja, að þetta sé
almenn skoðun, einnig EBE-land-
anna sex i Brússel. Þess vegna er
ástæða til að álita, að þetta
samningstilboð geti orðið betra. Á
sama tima og við erum allir með
hugann viö tengsl okkar við Efna-
hagsbandalagið, stendur Island
auk þess mitt i samningum um
mál sem er lifshagsmunamál is-
Frh á bls. 18
Helsingfors
Almennu umræöurnar á 20.
þingi Norðurlandaráös stóöu yfir
á laugardag og sunnudag, og var
þá m.a. rætt um landhelgismál og
efnahagsmál. islendingar tóku
þátt i þessum umræöum, og var
ræöa ólafs Jóhannessonar for-
sætisráðherra birt i Timanum á
Myndin var tekin af forsætisráöherrum Norðurlandanna i Helsingfors i gær. F.V. Bratteli, Noregi, Krag,
Danmörku, Palme.Svíþjóö, Ólafur Jóhannesson,íslandi og Aura.Finnlandi. (Símamynd)
Ræða Jóns
Skaftasonar
á Norðurlandaráðs
þingi er á bls. 12
Nixon Bandaríkjaforseti ræddi við Mao formann og Chou En Lai í gær — sjó baksíðu