Tíminn - 24.02.1972, Page 15
* » : . ,1
Fimmtudagur 24. febrúar 1972
TÍMINN
Undirbúa smíði
nýs hafnargarðs
ÞP—Djúpavogi.
Á Djúpavogi er nú verið að
undirbúa byggingu á nýjum
hafnargarði og dýpkun i höfninni.
Þá er nú reynt að gera til
bráðabirgða við bryggjustúfinn,
sem danska skipið skildi eítir,
þegar það sigldi á bryggjuna á
Diúnavoei um daeinn.
Fiskiskip geta athafnað sig
þar, en strandferðaskipin ekki.
Þess vegna er öllum vörum til
Djúpavogs nú skipað upp á Breið-
dalsvik og siðan fluttar á vöru-
flutningabilum til Djúpavogs, en
80—90 km er á milli kauptúnanna.
Þetta hefur að sjálfsögðu gifur-
legan aukakosnað i för með sér,
en hann greiðir væntanlega
tryggingafélag skipsins, sem
sigldi á bryggjuna.
Námskeið fyrir
norrænt leikhúsfólk
S.E. Reykjavik.
í ár verða haldin tvö námskeið
fyrir ungt norrænt leikhúsfólk.
Þaö fyrra fyrir leiklistakennara, i
norræna lýðháskólanum i
Kungálv, 27. mai til 3. júni. Hið
seinna er fyrir leikstjóra, og
veröur i Helsinki 5. - 11. júni nk.
Þátttakendur verða 40 .á þessu
námskeiði. Menntamálaráðu-
neytið styrkir þá,sem eru valdir I
þessa för hverju sinni.
Aðrar upplýsingar er að fá hjá
Sveini Einarsyni leikhússtjóra,
og til hans skal einnig stila um-
sóknir um þátttöku.
Féll út af togara
OÓ—Reykjavik.
46ára gamall háseti á tog-
aranum Jóni Þorlákssyni féll
útbyrðis aðfararnótt laugar-
dags s.l. og drukknaði. Hét
hann Ulrick Hansen og átti
heima á Bergþórugötu 16,
Reykjavik. Hann var ók-
væntur og barnlaus.
Togarinn var suður af
landinu á leið frá Þýzkalandi
þegar maðurinn féll útbyrð-
is. Leitað var að manninum
en án árangurs.
Norðurlandaráð afabTshai6.
fallið þessu sjónarmiði, en þó
fundizt ráðiö jákvætt, þegar um
var aö ræða grundvallarhug-
myndina varðandi útfærslu
islenzku landhelginnar i 50 milur.
Erlendur Patursson frá Fær-
eyjum upplýsti þvi næst, aö Fær-
eyingar undirbyggju útfærslu
sinnar landhelgi i 70 milur, og
taldi hann sig hafa fengið fullan
stuðning við grundvallarhug-
myndina i tillögunni.
Norðmaðurinn Helge Seip tók
þvi næst til máls og sagði, að
enginn fótur væri fyrir þessum
túlkunum, og að sjónarmið
Noregs væri, að hafréttar-
ráöstefna SÞ væri rétti aðilinn til
að fjalla um mál sem þetta, en
ekki Norðurlandaráð. Þá sagði
hann, að Norðurlöndin ættu að
koma sér saman um, hvaða leiðir
yrðu farnar, en lykilorðiö væri
raunar alþjóöleg samvinna.
Fulltrúar Dana og Svia tóku mjög
i sama streng.
A þriðjudaginn var samþykkt i
ráðinu, með 33 atkvæðum gegn
25, að banna tóbaksauglýsingar.
Þá var einnig fjallað um sam-
ræmingu á þeim lögum, sem
gilda um lágmarksalkóhólmagn i
blóði ökumanna, en það mál hefur
verið á dagskrá Norðurlandaráðs
siðan 1956, og virðist enn engin
von um að samræming nái fram
að ganga.
Framhald af
bls. 11.
hólmi, en nú i 11. sinnrsem um
hann er keppt,fara Bandarikja-
mennirnir með hann. Keppt er
um bikarinn á hverju ári og eru
leiknir 5 leikir. Leikurinn á
þriðjudagskvöldið varsá þriöji að
þessu sinni, en hinum tveim lauk
með sigri VL.
Það var mjög klaufalegt hjá
Reykjavikurúrvalinu að tapa
þessum leik. Liðið hafði 2 stig yfir
i hálfleik, 43:41, og hafði 11 stig
yfir um miðjan siðari hálfleik,
58:47. Þá hófu Bandarikja-
mennirnir að leika „maður á
mann”, og fór þá allt i rugling hjá
íslendingum. Náður Bandarikja-
mennirnir að minnka bilið i 70:69
en náðu ekki að komast yfir.
íþróttir
NÝ BYGGINGA
VÖRUVERZLUN
Höfum opnað byggingavöruverzlun að
Reykjavikurvegi 64 (i húsi Húsgagna-
verzlunar Hafnarfjarðar).
Viðskiptavinir verið velkomnir.
Simi verzlunarinnar er 50292.
KAUPFÉLAG HAFNFIRÐINGA
Hjúkrunarkonur óskasl
Hjúkrunarkonur vantar að hinum ýmsu
deildum Landspitalans. Nánari upplýs-
ingar veitir forstöðukonan á staðnum og i
sima 24160
Reykjavik, 23. febrúar 1972
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA
Stúlka vön vélritun
óskast til starfa við I.B.M. götun i Búnað-
arbanka íslands. Umsóknir sendist starfs-
mannastjóra fyrir 28. þ.m.
Einnig vantar stúlku i útibúið i Mosfells-
sveit.
BÚNAÐARBANKI ISLANDS
Þegar 2 min. voru eftir af
leiknum hafði Reykjavikurúr-
valið 3 stig yfir, 83:80. A þessum 2
min.,sem eftir voru, þorði ekki
nokkur Islendinganna að skjóta,
en það þorðu Bandarikja-
mennirnir og skoruðu 6 stig i röð,
þannig að þeir sigruðu i leiknum
86:83.
Það er i sjálfum sér engin skö-
mm að tapa fyrir þessu liði, sem
er mjög gott og hefur á að skipa
mörgum frábærum ein-
staklingum, eins og t.d. Nelson,
sem skoraði yfir 20 stig i þessum
leik. En það er af og frá að tapa á
hreinum klaufaskap á loka-
minútunum, eins og þarna
gerðist hjá Reykjavikurúrvalinu.
Er hætta á,að liðið verði að gera
betur en þetta i Polar Cup, ef ekki
á að tapa öllum leikjum þar.
Stigahæstu menn liösins i
þessum leik voru Agnar
Friðriksson 15 stig, Þórir
Magnússon 13, Kristinn Jörund-
sson 12, Birgir Jakobsson 10 og
Kolbeinn Kristinsson 9.
—klp—
Nixon Frh af bls, 7
löggilding. Pekingstjórriin er
reiðubúin að sanna hollustu
sina á margan hátt, að þvi er
bandariskur prófessor, Harold
Hinton, segir. Kinversk-band-
arisk samstaða verður áhrifa-
mesta mótvægið gegn Sovét-
rikjunum.
VIÐ SJAUM skapendur nýs
valdajafnvægis að störfum i
Peking. Arið 1949 ritaði Maó
Tse-tung: Kinverjar standa
annað hvort með heimsvalda
stefnu eða sósíalisma, frá þvi
er ekkert frávik. Slikar setn
ingar hafa nú verið felldar
burt úr úrvalsritum Maó, sem
og gagnrýni hans á þá, er einu
sinni hvöttu til að tekinn yrði
„millivegurinn”. Ljóst er, að
stefna Pekingstjórnarinnar
byggist ekki lengur á samá-
byrgð með heimssósialisman-
um. Utanrikissérfræðingar
Kina kynna landið af kost-
gæfni sem forystuþjóð „þriðja
aflsins” Kina iðkar baktjalda
makk við afturhaldssömustu
stjórnir þriðja heimsins.
(Bandalag við hernaðarof-
beldi Jahja Khan gegn Bangla
Desh er sannfærandi dæmi).
Það er augljóst að hið nýja
hlutverk Kina gengur i vax-
andi mæli gegn hagsmunum
þjóðfrelsishreyfinga. Kina
hyggst beinlinis gerast „þriðji
partifélaginn” undir öllum
kringumstæðum. Þess vegna
vill það taka þátt i öllum
„heimsleikjum”, þar sem
sumum þjóðum er att gegn
öðrum.
Ríkir erum við Fi-h. af bis.9
þetta upphleypukerald kennt við
Eyvind eftir þaö, og kallað
Eyvindarkerald. Þess má geta að
til skamms tima var það til á
HÚsafelli og gekk undir þessu
nafni.”
Nú held ég, aö Benedikt þyki
fara að kárna, og hvað heldur
hann um það, að Kristleifur heföi
sagt um þá kenningu hans, að
Fjalla-Eyvindur hafi aldrei verið
við útilegu kenndur. Getum við
svo ekki sagt með Bakka-
bræðrum: Ekki er nú kyn þó aö
keraldið leki, þvi botninn er upp i
Borgarfiröi.
Svo er nú rúsinan i pylsuend-
anum hjá Benedikt og hljóðar
svo: „En hvað það snertir, að
Snorri Sturluson hafi skrifaö
Njálu, er Helgi i hreinum
ógöngum. Hann hefur unnið gott
starf að bera saman rithátt
Heimskringlu og Njálu og finna.
þar skyldleika nokkurn á milli og
telur nú Heimskringlu eftir
Snorra...En hvoruga bókina hefur
Snorri samið....en gerir hann
þann graut, aö telja Njálu og Eglu
ritaðar á 13. öld, og þar með lýgi-
sögur. Hér er orðin svo ljót og
svört saga af Islandi, að það hæfir
ekki Helga á Hrafnkelsstööum aö
bæta tjöru i þá sögu. Og það get
ég sagt Helga, aö þótt ég hafi oft
reiðzt honum þá reiddist ég
honum, er hann fór að gæla við
Einar 01. um ritunartima íslend-
ingasagna”.
Hérna skriplar hann nú á skötu,
gamli maðurinn, eins og oftár. Ég
segi eins og i visunni stendur:
Ég er hvergi hræddur hjörs i
þrá
hlifum klæddur minum,
og ekki vildi ég skipta á minni
vigstöðu fyrir vigstöðu Benedikts
frá Hofteigi. Ég fæ ekki betur séð,
en að hjá honum riði hver vit-
leysan annarri.
Það játa ég að hafa enga hug-
mynd um það af rannsóknum,
hver hefur ritað Heimskringlu,
bara aldrei efazt um, aö það er
Snorri eins og allir fullyrða, og
hvað er þá um Norðmenn. Þeir
hafa kostað of miklu til
styttunnar af honum i
Reykholti. Sem sagt, við Benedikt
erum hundrað prósent sammála
um það, að Njála stafar frá Odda-
verjum. Ég segi, að Sturlungar
hafi lagt þar siðastir hönd á
verkið um 1320. Og þar i kring
skrifaði Snorri aöalhandritið og
Sturla Þórðarson gekk frá þvi um
1280. Þetta hefi ég rækileg rök-
stutt og sleppi þvi hér.
Benedikt heldur þvi fram, að
hún hafi verið rituð jafnvel fyrir
miðja 12. öld. Nú vil ég spyrja:
Hvernig er hægt aö skrifa bók og
vitna til manna, sem fæðast löngu
seinna, eins og Sturlunga og Kol
beins unga? Þetta er ekki hægt að
bera á borð fyrir hugsandi menn.
Treystir Benedikt sér að skrifa
nútima sögu og vitna i menn, sem
fæðast ekki fyrr, en eftir næstu
aldamót? Það væri alveg hlið-
stætt!
Það vill lika svo vel til, að það
stendur skýrum stöfum I Njálu,
hvenær hún er rituö, sem ég hefi
áður bent á.
Fer vel á þvi, að enda þessa
grein með þvi, að dagsetja
hvenær Njála er skrifuð, og það
er á þessa leið:
A bls. 69 i fornritaútgáfunni
stendur þetta: „tllfur aurgoöi var
faðir Svarts, föður Loðmundar,
föður Sigfús, föður Sæmundar
hins fróða. En frá Valgarði gráa
er kominn Kolbeinn ungi.”
Hvernig lesa menn úr þessu?
Hefði Kolbeinn verið dáinn fyrir
löngu þegar Njála er skrifuö, eins
og fræðimenn segja: „Þá hefur
verið ritað frá Valgarði var
kominn Kolbeinn ungi, alveg eins
og sagt er um úlf, hann var faðir
Svarts. Svo slær Benedikt alla
fræðimenn útmeð þvi aö segja, að
Kolbeinn ungi væri kominn af
Valgarði gráa, ef Njála er skrifuð
um miðja 12. öld, en Kolbeinn
ungi fæddist ekki fyrr en 1208.
Þarna stendur svo skýrt sem
verða má, það sem ég hefi haldið
fram, að Snorri hafi skrifað Njálu
kringum 1230. Þá er Kolbeinn
búinn að vera tengdasonur hans i
þrjú ár, og tengdapabbi hefur
sent Kolbeini þessa pillu svona i
hálfkæringi, að forfaöir hans væri
Valgarður grái. Þarna er rétt lýst
gráglettni Snorra Sturlusonar,
sem oft kemur fram i ritum hans.
Þetta geta menn svo glimt við,
þangað til að þeir ráðast á mig
næst.
Um vin minn Benedikt frá
Hofteigi á við það, sem i visunni
stendur:
„Þrekið hans ég mikils met,
—mestur f vanda,
að hopa ekki um hænufet
hafi hann á röngu að standa”.
Helgi Haraldsson.