Tíminn - 24.02.1972, Side 16
Nixon í Peking:
i sólskinsskapi
þrátt fyrir snjó
Danmörk og USA semja
um Atlantshafslaxinn
Stjórnir Bandarikjanna og Danmerkur hafa
komið sér saman um takmarkanir á laxveiðum
við Vestur-Grænland. I tilkynningu frá banda-
riska utanrikisráðuneytinu segir, að samband
hafi verið haft við bæði norsku og dönsku
stjórnina, en takmarkanirnar hafa bein áhrif á
þau lönd.
NTB—Washington
f samningnum er gert ráö
fyrir, aö laxveiöar Dana á
svæöinu skuli minnkaöar
smátt og smátt til áramóta
1975 og 1976. Grænlenzkir
fiskimenn, sem veiöa viö
strendurnar, megi þó halda
veiöum sinum á laxi áfram,
vegna sérhagsmuna sinna.
I tilkynningu utanrikis-
ráöuneytisins segir enn-
fremur, að sáttmáli þessi
þjóni mjög hagsmunum landa
þeirra, sem séu uppeldis-
stöðvar Atlansthafslaxins, og
bent er á, aö Bandarikin leggi
i mikinn kostnaö viö aö vernda
seiðin i bandariskum ám og aö
i sáttmálanum sé tekiö tillit til
Danmerkur, þar sem séu
hagsmunir grænlenzkra lax-
veiöimanna.
Bæöi Danmörk og Banda
rikin munu reyna að fá
samning þennan tekinn með i
friöunaráætlun Noröur-
Atlantshafsnefndarinnar, sem
heldur ársþing sitt i mai.
Nefndin hefur áöur samþykkt
aö laxveiöar i úthöfum séu
bannaðar, og voru þá 12 lönd
þvi fylgjandi.
Vænzt var, aö sáttmálinn
yröi birtur jafnt i báðum
löndunum, en dönsk yfirvöld
hafa þagaö þunnu hljóöi, þrátt
fyrir aösáttmálinn hefur verið
birtur í mörgum dönskum
dagblööum.
NTB—Peking
Nixon Bandaríkja-
forseti og Chou En-lai
forsætisráöherra Kína
áttu í gær fjögurra
stunda viðræður, og í
þetta sinn á hóteli þvi,
sem Nixon býr á. Sér-
fræðingar segja, að það,
að Chou fór til Nixons,
beri vott um virðingu við
gestinn. Eins og áður
hefur ekkert frétzt af
umræðuefni leið-
toganna.
Litilsháttar snjókoma gerði
daginn i gær þann kaldasta i
Peking siðan Nixon kom
þangað. Hiti var um frost-
mark i gærmorgun, eftir tvo
daga, sem voru mjög hlýir i
Peking miöað við árstima.
Frú Nixon eyddi deginum i
gær i að heimsækja kommúnu
i útborginni og skoða gler-
verksmiðju, auk þess sem hún
verzlaði talsvert. 1 komm
únunni fékk frúin aö sjá
gamla konu læknaða með
akupunktur-nálum, hitti
skólabörn og skoöaöi akra og
útihús. Ibúarnir i komm
únunni virtust ekki veita
forsetafrúnni sérstaka
athygli, nema rétta á meðan
hún nálgaðist þá, þrátt fyrir
aö hún var klædd hárauöri
kápu og stakk mjög i stúf við
umhverfiö.
t gærkvöldi voru Nixon og
Chou viðstaddir fimleika-
sýningu i stærsta leikfimisal
Kina. Þeir litu báöir útfyrir aö
vera i sólskinsskapi, og þegar
fimleikafókið kom inn i salinn,
klappaöi Nixon taktinn við
tónlistina, eins og allir
viöstaddir.
Fundir 20. þings Noröurlandaráös hófust á laugardaginn,og hafa þeir fariö fram i Hiksdagen i Helsingfors. Myndin er frá fundi ráösins.
Fundur Norðurlandaráðs
samþykkti megininntak
landhelgisstefnu okkar
- sagði Matthías Á Matthiesen um samþykkt Norðurlandaráðs um landhelgismál
SB—Keykjavik,
NTB—Helsingfors — A fundi
Noröurlandaráös i gær var sam-
þykkt áskorun um samstarf
Noröurlanda til aö ná sam-
komulagi um landhelgismál og
önnur hafréttarmál. Matthias A.
Mathiesen, sem á sæti i þeirri
nefnd, sem um máliö fjallaöi,
sagöi i gær, aö hann teldi, aö sam-
þykktin fæli I sér megininntak
stefnu tslands i landhclgismálun-
um, jafnframt þvi, sem felldir
hafi vcrið niöur ýmsir þeir kaflar
i upphafiegu tillögunni, sem nei-
kvæöastir voru fyrir málstaö
tslands.
1 fréttaskeyti frá NTB i gær
sagöi m.a., aö Norðurlandaráö
heföi visað á bug tilraunum ís-
lendinga og Færeyinga til að fá
stuöning viö einhliða aðgeröir i
útfærslu landhelginnar, og aö
talsmenn Islands og Færeyja
heföu margsinnis reynt aö láta
lita svo út sem Noröurlandaráð
styddi ráðstafanirnar i land-
helgismálinu, en Danir, Sviar og
Norðmenn hefðu visaö þeim til-
raunum á bug.
Þá segir NTB að áskorunin,
sem samþykkt var i gær, hafi
verið varfærnislega orðuö. Þar er
hvatt til samstarfs Norður-
landanna i að reyna aö ná sam-
komulagi um fiskveiöitak-
markanir, ráöstafanir gegn
mengun og tryggingu réttinda
þeirra landa, sem eiga allt sitt
undir auðæfum hafsins.
NTB segir ennfremur, aö til-
laga Islands og Færeyja sé fólgin
i þvi að strandriki hafi rétt til aö
taka einhliða ákvaröanir um
veiðar á öllu landgrunninu.
Matthias A. Mathiesen hafi gert
sér grein fyrir að ráöið væri mót
Frh. á bls. 15 —
Fimmtudagur
24. febrúar 1972
PAKISTAN
SÖFNUNIN
S.E. Reykjavik.
Eins og flestir vita efndi
Hjálparstofnun kirkjunnar til
skyndisöfnunar i nóvember sl. til
hjálpar flóttafólki frá A-Pakistan.
A skömmum tima söfnuðust
u.þ.b. 3,5 millj., króna. Af
framlögum, sem nýlega hafa
borizt,má nefna kr. 41.400.00 frá
nemendum Menntaskólans á
Laugarvatni, kr. 10.000.00 I frá i
Éggerti Tómassyni Mið-Hæli, og
kr. 10.016,00 frá nemendum
Seljalandsskóla undir Eyja
fjöllum. Islenzka söfnunarfénu
var ráðstafað til flóttafólks um
880 þús. talsins, i Cooch Behar
búðunum. Strax i nóvember voru
sendar 2 millj. króna til Cooch
Behar. En eins og öllum er i
fersku minni, lauk styrjöldinni
mjög skyndilega, og hefur nú
verið stofnaö þar rikiö Bangia
desh. Þar af leiðandi hefur ekki
enn verið sent meira fé þangað,
fyrr en ljóst lægi fyrir hvernig þvi
yrði varið. Nú hefur dr. Hodne
gert nýja áætlun um hjálp við
flóttafólkið, sem er I Cooch
Behar.
Þessari áætlun dr. Hodne má
skipta I tvo meginþætti: 1. Að
halda áfram allri daglegri hjálp
og þjónustu i Cooch Behar, á
meöan flóttafólkiö býr sig undir
hina erfiðu heimferö. 2. Aö hjálpa
flóttafólkinu af staö til
heimkynna sinna og aöstoða þaö
viö aö hefja llf sitt aö nýju viö
hinar erfiöu aöstæöur, sem
styrjöld óhjákvæmilega leiöir af
sér. Flóttafólkinu veröur komið
til Dinjapur og Rangpur I
austanveröu Bangla-desh.
Hjálpin felst aðallega í eftir
töldum atriöum: 1. Upp
byggingu húsnæöis. 2. Læknis-
meðferð. 3. tJtvegun búfjár og
sáðfræja. 4. Otvegun klæöa og
matariláta. 5. Endurbyggingu
skóia og byggingu vatnsbóla.
Hjálparstofnunin vill beina
þakklæti sinu til allra þeirra, sem
lagt hafa þessu máli lið meö
fórnfúsu framiagi.
Fast áætlunarflug
milli V-Þýzkalands
og Sovétríkjanna
1 þessum mánuði hófu
flugfélögin Lufthansa og Aeroflot
áætlunarflug milli Moskvu og
Frankfurt. Flugsamgöngur milli
Sovétrikjanna og Þýzkalands
hófust þegar árið 1922, og fastar
áætlunarferöir milli Moskvu og
Berlinar árið 1928' En þær áttu
sér snöggan endi. 21. júni 1941
lenti siðasta áætlunarflugvélin
frá Aeroflot á Tempelhof flug-
velli, og áhöfnin var þegar i stað
handtekin. Siöar var skipt á
henni og áhöfn Lufthansaflug-
vélarinnar, sem þá var i Moskvu
og var sömuleiðis tekin föst. Var
báðum áhöfnunum skilað til
Istanbul.
Nú er loks aftur komið eðlilegt
flugsamband á m.illi Vestur
Þýzkalands og Sovétrikjanna, ef
undanr skildir eru sérstakir
samningar, sem gerðir voru milli
rikjanna 1966 um gagnkvæmt
leiguflug.
Fram
Islandsmeistari
Fram sigraöi Hauka meö 26:15
I 1. d. íslandsmeistaramótsins i
handknattleik I gærkvöldi. 1
næsta leik á eftir, sem var milli
FH og Vals, varð jafntefli, 14:14.
Þar sem F H hlaut ekki nema 1
stig fyrir þennan leik, varö Fram
sigurvegari meö einu stigi yfir.
Fram er þvi fslandsmeistari.
1972.