Tíminn - 29.02.1972, Qupperneq 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
-
s
SCKDlBILASTOÐIN HF
EINGÖNGU GÓÐIR BfLAR
iWlllll
49. tölublað — Þriðjudagur 29. febrúar 1972 — 56. árgangur
HROSS FORUST
í FLÓÐUNUAA
OO-Reykjavik.
Óttast er að nokkur hross
hafi farist i flóðunum i
Borgarfirði i siðustu viku. Tvö
hross hafa þegar fundist rekin
niðri á mýrum, en nokkurra er
saknað. Eru hestar þessir frá
Ferjukoti. Verið er að leita
þeirra hesta, sem saknað er og
fundust fjórir i dag en sex eða
sjö hesta frá Ferjukoti
er enn saknað.
Hestarnir frá Ferjukoti voru
á svonefndum Flóa þegar
flóðin skullu yfir. Tilheyrir
þetta land Ferjukoti og Ferju-
bákka. Er slegið þar á sumrin
en skepnur ganga þar á
veturna. Er þarna mikil flóða-
hætta þegar mikill og skyndi-
legur vöxtur hleypur i
Norðurá. Ekki er vitað til að
hestar frá fleiri bæjum en
Ferjukoti hafi verið þarna
þegar flóðin hófust.
Leitin stóö enn yfir i kvöld
og vera má að fieiri hestar
hafi fundist lifandi en þeir
fjórir sem að framan getur.
Engra stórbreytinga
er að vœnta í fínnsk-
um stjórnmálum
sögðu forsætisróðherra og utanríkisrdðherra Finna
við íslenzka blaðamenn í gærmorgun
viðtölum
KJ-Helsinki.
Minnihlutastjórn jafnaðar-
nianna tók við völdum hér i Finn-
landi í siðustu viku( eins og
kunnugt er, og á öörum virkum
degi ráðherranna, tóku forsætis-
ráðherrann og utanrikisráö-
herrann á móti þeim sjö islenzku
blaðamönnum, sem dveljast i
Finnlandi um þessar mundir i
boði finnska utanrikisráðuneytis-
ins. Káðherrarnir tveir vildu iitiu
Frd búnaðarþingi:
Verður kýr-
kjöt flutt inn
til vinnslu?
AK-Reykjavik.
A fundi búnaðarþings i gær,
mánudag, flutti Agnar
Tryggvason, framkvæmdastjóri,
erindi um ull, gærur og fleira, og
siðan urðu allmiklar umræður um
útflutning landbúnaðarvara, og
Agnar svaraði mörgum spurn-
ingum um það mál.
Umræður urðu til að mynda um
rúning og kosti og galla vetrar-
rúnings. Agnar sagði, að vetrar-
ullin flokkaðist betur og væri
hreinni, en hún færi minnkandi,
og virtist draga úr vetrarrúningi
hjá bændum.
Þá kom það fram hjá Agnari,
að mikill skortur væri á nauta-
kjöti og ærkjöti, eða öðru vinnslu-
kjöti kjötiðnaðarstöðva. Ærkjöt
minnkaði um 400 lestir á haust-
markaðnum miðað við árið 1970,
eða um 30%. Hafa svo snöggar
sveiflur ekki orðið áður. Þá sagði
hann, að sala á dilkakjöti hefði
stórvaxið eftir siðustu verð-
lækkun innan-lands. Hann kvaðst
ekki geta sagt um, til hvaða ráða
yrði gripið i þvi skyni að afla
vinnslukjöts i kjötiðnaðarvörur,
en sér þætti ekki óliklegt, að knúið
yröi á um leyfi til þess að flytja
inn kýrkjöt, hvað sem úr yrði.
Þetta hefði einu sinni verið gert.
Það var 1956, þegar flutt var inn
kýrkjöt frá Danmörku til vinnslu.
Þá minntist Agnar á kynningu
ísl. matvara, sem fyrir dyrum
stæði nú i Royal-hótelinu i Kaup-
mannahöfn og mundi hún standa i
viku.
Agnar sagði, að bezta kjötsalan
væri nú til Norðurlanda, og
fengist þar bezt verð, einkum i
Sviþjóð. Eftir þátttöku okkar i
Efta hefðum við fengið þar all-
góða innflutningshlutdeild. Ef
Noregur gengi i Efnahagsbanda-
lagið, misstum við liklega kjöt-
sölu þar, en hann kvaðst von-
góður um, að við héldum sölunni i
Sviþjóð. A þessum mörkuðum
væri verðið það hátt, að miklu
minna þyrfti i útflutningsbætur á
kg en færi i niðurgreiðslu á inn-
lendum markaði.
Agnar minntist einnig á hrossa-
útflutning og kvað um 600 hesta,
flesta tamda, hafa verið flutta út
á s.l. ári og hefði meðalverð verið
um 40 þús. kr. Hann kvaðst álita,
að aðeins ætti aö flytja út tamda
hesta og aðeins með flugvélum en
ekki skipum.
Þessi mynd var tekin, er Reykjavikurskákmótinu var siitið í fyrrakvöld. Á myndinni er Geir Haligríms-
son, borgarstjóri að flytja ávarp, en á myndinni sjást m.a. Anna B. Jónsdóttir, kona Guðmundar G. Þórar-
inssonar, Friðrik Ólafsson, brezki sendiherrann, borgarstjórafrúin, Erna Finnsdóttir og Iióinsteinn
Steingrímsson, formaður Taflfélags Reykjavikur. Frásögn af skákmótinu er á bls. 6. Tímamynd Gunnar.
Enn hækka boðin í laxveiðidrnar:
7 milljónir kr.
fyrir Norðurá
EB - Reykjavík.
Stangaveiðifélag Reyk-
javíkur leigir Norðurá fyrir
7 milljónir króna næsta
sumar og mun leigan á
ánni því hækka um 4
milljónir króna frá síðast-
liðnu sumri. Þessi gífurlega
hækkun á leigu árinnar
hefur orðið þess valdandi
að Stangaveiðifél hefur
þurft að fara á stúfana er-
lendis til þess að endur-
leigja ána og hefur nú
tryggt sér 40 bandaríska
laxveiðimenn til að veiða í
Norðurá næsta sumar. Þá
hefur félagið nú gefið út
kynningarbækling um
Norðurá á ensku.
Barði Friðriksson, formaður
Stangaveiðifélags Reykjavikur
staðfesti þessar upplýsingar i við-
tali við Timann i gær. Þá kom
fram i viðtalinu við Barða, að
Stangaveiðrféiag Reykjavikur
hefur nú tekið á leigu neðstu
veiðisvæði árinnar, þar sem
væntanlega verða 3 stangir.
Barði Friðriksson sagði, að
flestar yrðu stangirnar 15 næsta
sumar i Noröurá.
Þau eiga afmæli í
dag - 29. febrúar
Þeir munu nokkuð margir
hér á landi, sem eiga afmælii
dag, og þvi aðeins f jórða hvert
ár. Það er nefnilega
29.febrúar, hentugur falldagur
á vixlum þegar ekki er hlaup-
ár, og þráður dagur hjá þeim,
sem þurfa að biða i þrjú ár
samfleytt eftir veizlunni sinni.
Við vitum ekki um marga sem
eiga afmæli i dag, enda hefur
blaðið ekki gert sér far um að
leita upplýsinga. En það er
vitað, að i dag á Klemenz
Jónsson, leikari afmæli, lik-
lega orðinn þrettán ára. Hauk-
ur Þ. Benediktsson, fram-
kvæmdarstjóri, á einnig af-
mæli i dag, og Einar Páisson,
verkfræðingur, Ægissiðu 44.
spá um framtíðina i finnskum
stjórnmálum við þennan fyrsta
hóp erlendra blaðamanna, sem
þeir taka á mót i stjórnartið sinni,
en þó er greinilegt að ekki verður
um neina stórbrcytingu að ræða á
sviði stjórnmáianna I Finnlandi,
-svo fremi sem þessi jafnaðar-
mannastjórn verður eitthvað við
völd á annað borð. Hvorugur ráð-
herranna vildi tjá sig neitt uin
landhelgismálið, en báðir töldu
það mikilvægt fyrir island.
Að þvi er fróðir menn segja, er
þetta 55. rikisstjórnin, sem
mynduð er i Finnlandi frá árinu
1917, svo Finnar kippa sér ekki
svo mikið upp við stjórnarskipti
og búast ekki við miklum
breytingum, þótt ný stjórn taki
við. Þingmenn eru alls 200 og þar
af eru 55 jafnaðarmenn. Þingið
kom saman i fyrsta skiptið i gær,
svo alls er óvist hvaða ilokkar
styðja stjórnina i hverju máli.
Viö skulum engu spá
Forsætisráðherrann, Paiso,
sagði við islenzku blaðamennina
að hann vildi engu spá um langlifi
stjórnarinnar. ,,Við skulum láta
vikuna liða og næsta mánuð og
næstu þrjá mánuði og eftir það
verður kannski eitthvað hægt að
segja” sagði hann, og ennfremur
„Okkar stærstu mál, eru kjara
málin. Allir kjarasamningar eru
lausir 1. april og fyrir þann tima
verður að vera búið að finna lausn
á þeim. Bæði verkalýðsfélögin og
opinberir starfsmenn eru með
lausa samninga.”
Forsætisráðherrann vildi
ekkert tjá sig um landhelgismál
lslands, sagði að málið hlyti að
vera mikilvægt fyrir landið. Að-
spurður sagðist hann ekki búast
við, aö þótt herinn færi frá lslandi
myndi valdajafnvægið milli
austurs og vesturs raksast, -her-
stöðin á Islandi væri varla það
mikilvæg.
Fylgi fordæmi fyrirrenn
aranna
Utanrikisráðherrann, Kalevi
Sorsa, ræddi við islenzku blaða-
mennina i hálftima. Hann sagði,
að ekki væri að vænta neinna
stórkostlegra breytinga á
utanrikisstefnu Finna. ,,Ég mun
fylgja fordæmi fyrirrennara
minna i starfinu”, sagði hann,
,,og kanna gaumgæfilega hvaða
sambönd við eigum að hafa. Það
eru tvö mál, sem eru efst á baugi i
minu ráðuneyti, viðskiptamálin
með hliðsjón af fyrirhugaðri
stækkun E.B.E. og svo
öryggismálaráðstefna Evrópu,
sem við Finnar ætlum að halda
hér. Finnar munu aldrei ganga i
Efnahagsbandalagið, vegna þess
að Finnland er hlutlaust land og
lokatakmark Efnahagsbanda-
lagsins á ekki við hlutlaust land.”
Þá var ráðherrann spurður um
afstöðu sina til fyrirhugaðrar út
vikkunar fiskveiðilögsögu við Is-
land. Sagðist hann enga afstöðu,
Framhald á bls. 19
Framtíðarverkefni samvinnuhreyfingarinnar - viðtal við Erlend Einarsson á bls. 10 og 11