Tíminn - 01.03.1972, Síða 1
Kekkonon
Nýtt mennta-
skólahús við
Suðurlandsbraut
KFUM-
húsið
fyrir MR
Byggingu skólahúss
MH lokið í haust
EB-Reykjavík.
1 umræöum utan dagskrár á
fundi i Samcinuöu Alþingi I
gær um málefni mcnntaskól-
anna, sagöi Magnús Torfi
ólafsson, menntamála-
ráðherra, að varöandi hús-
næðismál Menntaskólans i
Reykjavik, væri stefnt að þvi,
að leigja eða kaupa KFUM-
húsið á lóð skólans, en þó væri
vonlaust, að skólinn gæti
fengið húsið að fuliu til um-
ráða á komandi hausti. En
væntanlega myndi skólinn
komast af með að fá 3-4
kennslustofur I húsinu næsta
haustog gæti þá hætt kennslu i
húsnæðinu i Miðstræti 12
miðað við, að ekki yrðu teknir
I skólann næsta haust nema
200 nýir nemendur. Húsnæðið I
Miðstræti 12 mætti svo nota til
annarra þarfa skólans, svo
sem fyrir félagsstarf
nemenda.
Þá sagði menntamála-
ráðherra, að ætlunin væri að
ljúka byggingu skólahúss
Menntaskólans við Hamrahlið
i haust;væri fjárveiting i fjár-
lögum þessa árs miðuð við
það, en næsti áfangi þar á eftir
yrði bygging iþróttahúss.
Sagði ráðherrann að næsta
haust myndi skólinn geta veitt
viðtöku 230 nýjum nemendum.
Menntamálaráðherrann
minnti á, að Menntaskólinn
við Tjörnina væri i húsnæði
gamla Miðbæjarbarna-
skólans, en sagði að vilyröi
hefði fengizt af hálfu borgar-
yfirvalda Reykjavikur um lóð
undir nýbyggingu fyrir
skólann við Suðurlandsbraut.
Myndi verða hafizt handa um
teikningu og annan undir-
búning alveg á næstunni, en fé
væri hins vegar ekki á fjár-
lögum til sjálfra byggingar-
framkvæmda á þessu ári, en
stefnt væri að þvi að á fjár-
Framhald á bls. 14.
Kekkonen ræddi við íslenzka blaðamenn í Helsinki
Óskar íslendingum góðs
gengis í landhelgismálinu
KJ-Helsingi.
Kekkonen Finnlands-
forseti veitti íslenzku
blaðamönnunum sjö, sem
nú eru í Finnlandi, áheyrn í
forsetahöllinni í morgun,
en það gerir hann stundum,
þegar um opinbera heim-
sókn er að ræða. Kekkonen
býr að visu ekki i forseta-
höllinni, heldur í húsi fyrir
utan miðbik Helsingfors,
en i höllinni tekur hann á
móti erlendum og inn-
lendum gestum og þar
munu forseti islandsásamt
utanrikisráðherra Einari
Ágústssyni búa, á meöan
á hinni opinberu heimsókn
til Finniands stendur.
Blaðamennirnir ræddu við for-
setann i rúman hálftima og lá vel
á honum, enda nýkominn úr
velheppnaöri veiðiferð til Rúss-
lands, en þar sagðist hann hafa
Bifreiðaverkstæði Dráttarbrautarinnar h.f. í Neskaupstað brann f siðustu viku og þrir bilar brunnu þar inni.
Myndin var tekin, er unnið var aö slökkvistarfinu. Ljósm. Jón Svanbjörnsson.
Stóráæflun um físki-
rækt á vatnasvæði
Skfálfandafíjóts
AK.Rvik. - Nú eru á döfinni all-
miklar ráðagerðir um að gera allt
efra vatnasvæði Skjálfandafljóts
að Aldeyjarfossi a.rnk. fiskgengt
frá sjó. Veiðifélag landeiganda á
þessu svæði hefur verið stofnaö
og tillögur að fiskivegafram-
kvæmdum gerðar, og er gert ráð
fyrir, að slikar framkvæmdir
kosti allt að 6 millj. króna.
Lax er i Skjálfandafljóti allt
fram að Barnafossi og Ullarfossi,
og tilraun til stigagerðar var fyrir
alllöngu gerð upp i Djúpá viö
Barnafoss, en tókst ekki að gera
hann laxgengan.
Nú mun helzt i ráði að gera þar
stiga að nýju á annan hátt, og
gengi þá lax i Djúpá, sem er all-
vatnsmikil á og kemur úr Liósa-
vatni. Siðan yrði geröur skurður
allmikill úr Djúpá suöur i Hrút-
eyjarkvisl Skjálfandafljóts, en
hún rennur vestan Goðafoss og i
fljótið aftur drjúgan spöl norðan
hans. Yrði þaðan laxgengt suður
um allt Skjálfandafljót i Bárðar-
dal og i nokkrar bergvatnsár,
sem i það falla, svo sem Kálf-
borgará og Svartá að austan og
tvær eða þrjár minni ár að
vestan. Er þar viða mikið og gott
klaksvæði og einnig um að ræða
veiðiár, sem þegar er nokkur
silungur i. Gengi lax þá i megin-
fljótinu allt fram að Aldeyjar-
fossi, en gæti einnig átt leið eftir
Mjóadalsá suður i tshólsvatn með
smávægilegri fyrirgreiðslu.
Einnig er um aðrar lausnir að
ræða, svo sem lagfæringu til þess
að laxgengt yrði i austustu kvisl
Skjálfandafljóts við Þingey, en
hún rennur við austurbrekku,
austan Skuldaþingseyjar.
Lauslegar kostnaðaráætlanir
um þessar framkvæmdir munu
vera allt aö sex milljónum, og er
ekki óliklegt, að hið fjölmenna
veiðifélag bænda við Skjálfanda-
fljót bjóöi þetta út til hugsanlegra
veiðileigutaka á næstunni til þess
að kanna, hverjar undirtektir
verða.
Þetta er mjög stórt vatnasvæöi,
eða um 90 km langt frá ósi til
Aldeyjarfoss, og margar þverár.
Ef þessi ráöagerð tækist opnaðist
nýtt og stórt fiskiræktar- og veiði-
svæði.
skotið fimm villisvin og misst
eitt, og með honum voru á veiðum
þrir helztu leiðtogar Sovétrik-
janna.
Þetta heimboö blaðamannanna
til forsetans i höllinni kom nokkuö
óvænt og ræddu þeir fyrst við
hann um fyrri heimsóknir hans til
tslands, en þangað hefur hann
komið tvivegis, 1957 og i fyrra.
Hann sagöist minnast þessara
heimsókna með ánægju, en i fyrri
heimsókninni renndi hann fyrir
lax með Guömundi Einarssyni
heitnum, listamanni og Asgeiri
Asgeirssyni, fyrrverandi forseta.
I fyrra, sagði hann, aö revndar
hefði verið of gott veður, þar
sem um laxveiðitúr hefði verið að
ræöa, en samt heföi hann fengiö
sex laxa.
Sem kunnugt er, þá er
Kekkonen Finnlandsforseti mikill
iþróttamaður ogtilmarks um það,
má geta þess, að hann syndir eða
gengur á skiðum allt upp i 20 km
áöur en hann gengur til starfa.
Kekkonen minntist i viðtalinu á
nokkra islenzka iþróttamenn, og
þar á meðal minntist hann á
Gunnar Húseby, kúluvarpara,
sem gerði garðinn frægan á
sinum tima, og siöan sagðist hann
Framhald á bls. 14.
Kauphækkun-
in í des kem-
ur nú fram
hjá bændum
Nýtt verö auglýst
á búvörum
SB-Reykjavik.
F r a m 1 e i ð s I u r á ð I a n d -
búnaðarins auglýsti í gærkvöldi
nýtt verð á búvörum. Verð-
breytingin stafar af hækkun á
kaupgjaldslið verðgrundvallar
ins, en. samkvæmt landslögum
breytist hann til samræmis við
breytt kaupgjald I verkamanna
vinnu i Reykjavik. Nú er þvi að
koma til framkvæmda hjá bænd-
um sú kauphækkun, sem samið
var um i des. sl.
Nemur hækkunin 11% á verð
landbúnaðarvara til bænda, en
sjálfur kaupg jaldsliðurinn
hækkar um 21%. Þá verður og
hækkun á álgningu og nemur sú
hækkun 11-14% á krónutölu
álgningar á þær vörur, sem verð-
skráðar eru, bæði i heildsölu og
smásölu.
Sem dæmi um einstakar
hækkanir má nefna, að mjólk i
heilhyrnum og plastpokum
hækkar úr kr. 12.60 i kr. 14.50, 21.
ferna hækkar úr 26.20 i 30.00.
Rjómi i 1/4 hyrnum hækkar úr kr.
30.90 i kr. 33.90. 1. flokks sm jör úr
kr. 138.00 i 165.00 og 45% ostur úr
167.20 i 186.00. Heildsöluverð
dilkakjöts i heilum og hálfum
skrokkum hækkar úr 98.70 i 113.70
kg. Súpukjöt hækkar úr 131.80 i
151.00 kg og lærissneiðar úr
189.40 i 217.20 kg.