Tíminn - 01.03.1972, Síða 2
2
TÍMINN
Miðvikudagur 1. marz 1972.
Þörf áminning
Kitt af undirstööuatriðum
þcss,aö þinghald á Alþingi is-
lendinga gcti gcngið með eðli-
legum hætti og alþingismenn
unnið að setningu löggjafar
með viöunandi hætti, er að
störf þingnefnda séu sem ná-
kvæmust og mál þar þraut-
skoðuö. Til þess að þingnefnd-
ir geti unniö starf sitt viöhlit-
andi þurfa þær aö eiga greiöa
leið að sérfræðilegri aöstoð og
upplýsingum um alla þá þætti,
sem mál snerta, er til með-
ferðar eru hverju sinni. t
þessu skyni leita þingnefndir
venjulega til ýmissa aöila,
sem sérfræöiþekkingu hafa á
þeim málum, sem þær fjalla
um. Nú á seinni árum hefur
boriö á þvi,að ýmsir þeir aðil-
ar, sem þingnefndir biðja um
sérfræöilega aöstoö, eru svo
seinir til svars, að bagalegt er.
Sumir láta jafnvel alveg undir
höfuð leggjast að láta nefnd-
um i té umsagnir.
Af þessum sökum hafa þing-
menn úr öllum þingflokkum
Alþingis nú lagt fram tillögu
um að fela rikisstjórninni, aö
hlutast til um, að embættis-
menn og stofnanir, sem henni
lúta eða njóða rikisaðstoöar,
svo og sveitarfélög og sam-
bönd þeirra láti þingnefndum I
té i tæka tfð umsagnir og aðra
sérfræðilega aöstoö, sem ósk-
aö er cftir við athugun þing-
mála. Fyrsti flugningsmaður
þessarar tillögu er Gísli Guö-
mundsson.
Mikilvægi þingnefnda
Kfnislcg rannsókn þingmála
fcr fram I nefndum þingsins
og i þingsköpum er ætlazt til
þess, aö álit nefnda séu rök-
studd og helzt þannig úr garði
gerð, aö þau geti oröið þing-
mönnum utan viðkomandi
nfendar til leiðbeiningar við
umræðu og atkvæðagreiðslu.
Niðurstöður nefnda eru oft aö
verulegu leyti undir þvi komn-
ar, hvers konar umsagnir þær
hafa fengið frá þeim sérfræði-
legu aðilum, sem þær leita til.
Kf þingstörf eiga að ganga
með cðlilegum hætti verða
þingnefndum að berast um-
sagnir sérfróðra aðila, sem
lcitað er umsagnar hjá, það
timanlega, að bið eftir um-
sögnum veröi ekki til þess að
tefja nefndarstörf. Kf nefnd-
arstörfin tefjast verða að
sjálfsögðu einnig tafir á þing-
störfum og eru um það dæmi,
að þjóðþrifamál hafa dagað
uppi á Alþingi vegna þess.aö
umsagnir bárust ekki frá þeim
aðilum, sem leitað var til um
sérfræöiálit, eða aö umsagnir
sumra aðila bárust svo seint,
að mál gat ekki hlotiö lokaaf-
greiöslu fyrir þinglausnir. i
greinargerð með tillögu sinni
segja flutningsmenn, að þeir,
sem lengi hafa átt sæti á Al-
þingi hljóti að vcita þvi athygli
aö nú i seinni tíð séu að véröá
nokkuð mikil brögð að þvi, að
ýmsir aðilar séu orðnir svo
seinir til svars, að bagalegt sé,
eða láti jafnvel alveg undir
höfuð leggjast að láta þing-
nefndum I té umsagnir.
Þetta veröur aö breytast.
Þessi tillaga þarfnast ekki
umsagnar aðila utan þings og
um hana verður vafalaust
breið samstaða þingmanna.
Hún mun þvi vafalaust ekki
daga uppi á þinginu. — TK
Niðrandi orð um
Fjólu og Glókoll
■l'M.IISi.Illliiffll.il.I..
Landfara hefur borizt þessi
ádrepa um beitingu móðurmáls-
ins:
,,Á forsiðu Visis 4. febrúar s.l.
standa þessi orð i fremsta dálki:
,,Hvaða islenzkt barn, sem komið
er á lesaldur kannast ekki við þau
skötuhjú, Fjólu og Glókoll?”
Hvað þýðir „skötuhjú” þar i
blaði?
t orðabók Árna Böðvarssonar
segir, að merkingin sé „fremur
niðrandi”. 1 orðabók Blöndals
segir, að það tákni „daarlige
personer”, sem ég skil svo að séu
lélegar persónur.
Hvers vegna hefur Visir niðr-
andi orð um Fjólu og Glókoll?
Sjálfsagt bara vegna þess, að
hann skilur ekki móðurmál sitt
betur en þetta.
Þetta gerði ekki mikið til, ef
það væri einstakt slys og einangr-
að fyrirbæri. En sé þetta eitt
dæmi af mörgum um það, að við
séum að missa tilfinningu fyrir
blæbrigðum málsins, sýnir það,
að stefnt sé að þvi að gera málið
snauðara og ófullkomnara, sam-
anber orð skáldsins:
„Hið greiðasta skeið til að
skrilmenna þjóð
er skemmdir á tungunni
að vinna”.
bá er það ekki heldur neitt hé-
gómamál, hvernig blöð eru skrif-
uð. Eigum við að biða eftir þvi, að
virðulegustu persónur þjóðarinn-
ar verði kölluð skötuhjú.
- H. Kr.”
Fleiri bekki í borginni.
Og hér er annað stutt bréf:
„Ég bað velvakanda Morgun-
blaðsins nýlega að koma þvi á
framfæri við borgarstjóra, að
settir yrðu upp bekkir og stólar
viðs vegar við götur bæjarins, svo
að ég og önnur gamalmenni gætu
tyllt sér niður, þegar við erum á
gönguferðum um borgina. Ekki
hefur þetta komizt til skila, og bið
ég þvi Landfara að koma þessu á
framfæri, ef ske kynni, að það
bæri árangur.
Gamall göngumaður”.
Á spítalanum
Og loks er hér bréfkorn frá
sjúklingi:
„Ég var um mánaðartima á
Landsspitalanum nýlega. Þar var
ágætt að vera, hreinlæti i bezta
lagi og hjúkrun ágæt. Lækna sá
ég sjaldan, enda þurfti ég litið á
þeim að halda i þetta sinn — var
aðallega hvildar þurfi.
Ég er nú enginn sérstakur mat-
maður, en nokkuð matvandur, þó
að mér þyki nú beztur hafra-
grautur og slátur, og svo brauð ef
það er gott. En maturinn á spital-
anum var vægast sagt lélegur,
jafnvel hafragrauturinn var
kekkjóttur. Lita læknar spitalans
ekkert eftir þvi, hvaða matur er
borinn fyrir sjúklingana?
Sjúklingur.”
Fyrir alþingi liggur nú
frumvarp til nýrra laga um
stofnun og slit hjúskapar. Það
var lagt fram seint á siðasta
þingi, fékk ekki meðferð i
þingnefnd og varð ekki útrætt.
Núgildandi löggjöf er um
hálfrar aldar gömul.
Frumvarpið er samið af
sifjalaganefnd. 1 henni hafa
átt sæti frú Auður Auðuns, al-
þingismaður, Baldur Möller,
ráðuneytisstjóri og dr.
Armann Snævarr, prófessor,
sem unnið hefur mikið starf
bæði á sviði islenzkrar og
norrænnar hjúskaparlöggjaf-
ar. Sams konar nefndir hafa
starfað á hinum Norðurlönd-
unum siðan 1960, en árið 1955
mælti Norðurlandaráð með
þvi, að efnt yrði til samvinnu
um endurskoðun þessarar lög-
gjafar svo og löggjafar um
réttindi og skyldur hjóna i
þeim tilgangi að samræma
löggjöf Norðurlanda eftir
föngum.
Ýmis athyglisverð nýmæli
eru i frumvarpinu, sem
væntanlega verður að lögum á
þessu þingi. í greinargerð
þess er einnig mikill fróðleik-
ur, sem freistandi væri að
gera góð skil. Á þvi eru þó ekki
tök á þessum vettvangi. Hér á
eftir verða þó teknir upp fá-
einir fróöleiksmolar, en i
næsta þætti verður vikið að
höfuðbreytingum þessa frum-
varps á núgildandi lögum.
Fólk giftir sig nú miklum
mun yngra en áður var. Um
aldamótin var meöalaldur
brúðguma rösklega 30 ár, en
meðalaldur brúða 28 ár. Arið
1969 var meðalaldur allra
brúðguma hins vegar 25,5 ár
og brúða 23,3 ár.
Hjónaskilnaðir hafa farið
mjög i vöxt bæði hér á landi og
á hinum Norðurlöndunum á
þessari öld. Á fyrstu árum
aldarinnar komu hér 15 hjóna-
skilnaðir á hver lOOOfyjóna-
bönd. Árið 1969 hafði tala
hækkað i 153. Sama ár var tala
lögskilnaða hér á landi 668 og
var þá i fyrsta sinn hærri hér
en i Sviþjóð (663).
Hin háa hundraðstala
óskilgetinna barna hér á landi
hefur jafnan vakið athygli. Á
rin 1967-1969 var hún 30%. A
rið 1967 voru hundraðstölur
óskilgetinna barna, miðað við
heildartölur fæddra barna, á
hinum Norðurlöndunum:
Danmörk, 11.1%, Finnland,
4.8%, Noregur 5.1% og Sviþjóð
15.1%. Hundraðstalan hér á
landi hefur verið há allt frá
siðari hluta 19. aldar, t.d.
20.2% árin 1876-1885. Lægst
var hún árin 1916-1920, 13.1%.
Hér á landi er hjúskaparald-
ur kvenna 18 ár, en karla 20,
hinn sami og i Danmörku og
Sviss. 1 Noregi og Sviþjóð er
aldurinn hinn sami fyrir karla
og konur, 18 ár, en i Finnlandi
17 ár fyrir konur og 18 ár fyrir
karla. Lægstu tölur, sem
nefndar eru i greinargerðinni
eru fyrir Irland og Spán. Þar
mega konur ganga i hjúskap
12 ára og karlar 14 ára.
Kirkjulegar hjónavigslur
eru miklu tiðari en borgara-
legar (hjá sýslumönnum og
bæjarfógetum, i Reykjavik
hjá Borgardómi) og miklu tið-
ari en á hinum Norðurlöndun-
um. Arið 1967 voru hinar fyrr-
nefndu 94,5% en hinar siðar-
nefndu 5.5%. — BGÞ.
2-1x2
(8. leikvika — leikir 26. febr. 1972.)
úrslitaröðin: 1X2 — Xll — 2X1 — 111
1. vinningur: 11 réttir — kr. 104.500.00
nr. 3773 nr. 40457 nr. 57549 nr. 75075
2. vinningur: 10 réttir — kr. 5.600.00
nr. 1805 nr. 20110 nr. 42079 nr. 54968
— 2535+— 20857 — 42876+ — 55504
— 2558+ — 27125 — 43175 — 55985
— 2600+ — 28111 — 47539 — 69585+
— 11817 — 30487 — 48566 — 76606
— 13882 — 32653 — 49406 — 77277
— 18376 — 37157+ — 51893F — 81681
— 19191 — 36662 — 51908F — 86826+
+ nafnlaus F10 vikna seðill.
Kærufrestur er til 20. marz. Vinningsupphæðir geta
lækkað, ef kærur veröa teknar til greina. Vinningar fyrir
8. leikviku verða póstlagöar eftir 21. marz.
Ilandhafar nafnlausra seðla veröa aö framvisa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir greiösludag vinninga.
GETRAUNIR — iþróttamiöstööin — REYKJAVÍK.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32.
HJOLASTILLINGAR
MÓTORSTILLINGAR LJÓSASTILLINGAR
Lótið stilla I tima.
Fljót og örugg þjónusta.
13-10 0
LANDSVIRKJUN
NÝTT SÍMANÚMER
Frá og með miðvikudaginum 1. marz, 1972
verður simanúmer Landsvirkjunar
86400
AÐSTOÐARLÆKNAR
2stöður aöstoöarlækna eru lausar til umsóknar viö Skurö-
lækningadeild Borgarspitalans. Upplýsingar varöandi
stöðurnar veitir yfirlæknir deildarinnar.
Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavikur viö
Reykjavikurborg.
Stööurnar veitast frá 1. april eöa eftir samkomulagi.
Umsóknir sendist til Heilbrigöismálaráös Reykjavikur-
borgar fyrir 25. marz n.k.
Reykjavik, 29. febr. 1972.
Heilbrigðismálaráö Reykjavikurborgar.
Sjúkraliða og starfsstúlkur
vantar i Kleppsspitalann. Nánari up-
plýsingar veitir forstöðukonan á staðnum
og i sima 38160.
Reykjavik, 29. febrúar 1972.
Skrifstofa rikisspitalanna.