Tíminn - 01.03.1972, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 1. marz 1972.
TÍMINN
3
Þau voru verðlaunuð. F.v.: Hallgrimur, liörður, Sigurlaug og Ingibjörg framan við myndir slnar.
(Timámynd Gunnar)
Úrslit í verðlaunasamkeppni
SB -Reykjavik.
Verðlaun i teiknisamkeppni
Junior Chamber i Reykjavik voru
afhent á mánudag. Mikil þátttaka
var I keppninni, en eins og kunn-
ugt er, voru það vegfarendur um
Ilafnarstræti, scm dæmdu mynd-
irnar. Þær voru til sýnis i verzl-
Seint I nóvember hélt Bandalag
kvenna í Reykjavik ársfund sinn
og gerði ýmsar ályktanir, þar á
meðal eftirfarandi ályktun um
áfengismál:
„Aðalfundur Bandalags
Kvenna i Reykjavik álitur, að á-
fengisvandamálið sé orðið svo al-
varlegt, sérstaklega drykkju-
skapur unglinga, að full þörf sé á
einhverjum aðgerðum hins opin-
bera, svo og á batnandi fram-
komu og auknum skilningi al-
mennings. Fundurinn telur þvi
nauðsynlegt að vekja athygli á
eftirfarandi atriðum:
1. Að aukið verði eftirlit með
vinveitingahúsum, eftirlits-
mönnum fjölgað og hert á
viðurlögum við brotum ákvæðum
um hámarkstölu gesta. Jafn-
framt sé þess gætt vandlega, að
engum öðrum sé veittur
aðgangur . að vinveitingahúsum
en þeim, sem eru 20 ára eða eldri
og mega kaupa áfengi.
2. Að reynt verði að uppræta
áfengissölu til unglinga og að
þeir, sem selja þeim áfengi, hljóti
þung viðurlög.
3. Að aukin verði fræðsla i
skólum um skaðsemi áfengis og
tóbaks og annarra fiknilyfja og aö
uninni Heimilistæki og dreifðu
börnin atkvæðaseölum til vegfar-
enda, sem siðan fylltu þá út.
Munu um 8000 seðiar hafa borizt.
Tuttugu og fjórar myndir voru
til að velja á milli, tvær úr
hverjum skóla i Reykjavik.
Fyrstu verðlaun, áritaða lista-
reynt verði með viðtölum og
samvinnu við foreldra að hafa
jákvæð áhrif á unglinga i þessum
efnum.
4. Að hert verði ennþá meira á
sektum fyrir ölvun við akstur og
sekir sviptir ökuleyfum hiklaust.
5. Að brugg og sala á áfengu öli
komi ekki til mála hér á landi.
Fundurinn skorar þvi á Alþingi að
fella sérhvert frumvarp þar að
lútandi, komi það fram á þingi.
6. Að útvarp, sjónvarp og
dagblöð hefji fræðsluþætti um
skaðsemi áfengis, tóbaks og ann-
arra eitur- og fiknilyfja.
7. Að unnið verði að þvi að skapa
heilbrigðara almenningsálit, sem
sér, skilur og vill vinna að þvi, að
æskufólkið okkar lifi heilbrigðu
og hamingjusömu lifi.
Aðalfundurinn vill i ljósi þeirra
staðreynda, að fjöldi heimila er
nú þjakaður af drykkjuskap og öl-
æði beina þeim tilmælum til
borgarstjórnar Reykjavikur, að
skipulögð verði til handa þessu
bágstadda f'i)ki þjónusta, sem
veiti heimilishjálp og skyndi
hjálp”.
verkabók og skólavist á barna-
námskeiði Handiða- og Mynd-
listaskólans hlaut Hörður Braga-
son, Alftamýrarskóla. Onnur
verðlaun, listaverkabók, hlaut
Ingibjörg Jónsdóttir Hliðarskóla
og þriðju verðlaun, listaverka-
bók, hlaut Sigurlaug Eyjólfs-
dóttir, Breiðholtsskóla. Verðlaun
fyrir beztu hugmyndina hlaut
Hallgrimur Helgason, Alfta-
mýrarsköla. Junior Chamber-
skjöldinn hlaut Alftamýrarskóli.
önnur teiknisamkeppni er nú
að fara af stað á vegum JCI og er
það Evrópukeppni, þar sem við-
fangsefnið er mengun. Er hún i
sambandi við Evrópuþing JCI,
sem haldið verður i Edinborg i
júli. Verðlaun eru ferð til Skot-
lands, ásamt uppihaldi. Þátt
munu taka bæði gagnfræða- og
barnaskólar i Reykjavik.
Dungalon
látinn
OÓ—Reykjavik.
Karl Éinarsson Dungalon lézt i
Kaupmannahöfn 25. febr. s.l. 75
ára að aldri. Karl fæddist á
Seyðisfirði, en fluttist ungur með
foreldrum sinum til Færeyja og
þar ólst hann upp. Frá Færeyjum
lá leiðin til Kaupmannahafnar og
i Danmörku ól hann mestan sinn
aldur. Dungalon taldi sig samt
aldrei Dana, og ekki heldur Fær-
eyinga eða islending. Hann var
alhcimsborgari. A þann eina stað,
sem hann kenndi sig við sté hann
aldrei fæti. Það er eyjan St.
Kilda, en þar stofnaði Dungalon
hertogadæmi og fór ekki i graf-
götur með hver hertoginn var.
Hér á landi er Dungalon liklega
hvað þekktastur fyrir tvær smá-
sögur, sem Laxness skrifaði um
hann tvisvar til Islands, hélt
málverkasýningar og seldi
myndir og heilræði, auk ljóða á
ýmsum tungumálum, en Dunga-
lon var málhagur i bezta lagi og
heimspekingur á sinn hátt. Þótt
Dungalon væri einn mesti sölu-
maður af norrænu bergi grotinn
mun hann hafa látizt jafnsnauður
af jarðneskum verðmætum og
þegar hann var borinn i þennan
heim.
OO-Reykjavik
Æskulýðssamband Islands hélt
á laugardag og sunnudag ráð-
stefnu i Norræna húsinu, þar sem
fjallað var um fangelsismál á Is-
landi. Voru flutt erindi um ýmsar
hliðar fangelsismálanna.
A sunnudag talaði Baldur Möll-
er, ráðuneytisstjóri um fram-
kvæmdaáætlun fangelsismála. I
erindi hans kom fram, að húg-
myndin væri, að reisa sérstakt
gæzluvistarfangelsi i Reykjavik.
A ráðstefnunni komu fram til-
lögur, sem fela i sér að rikisfang
eisi verði ekki reist. Niðurstööur
ráðstelnunnar verða teknar
saman og rituð um þær greinar-
gerð.
-
Músagildran
í Kópavogi
SB—Reykjavlk
Leikfélag Kopavogs frum-
sýnir annað kvöld „Músa-
gildru” Agöthu Christie i
annað sinn, en félagið sýndi
leikritið einnig fyrir 12 árum.
Músagildran á 20 ára frum-
sýningarafmæli um þcssar
mundirog allan þcnnan tima
hefur hún verið sýnd i
London fyrir fullu húsi.
Kristján Jónsson hefur nú
tekið við leikstjórn Músa-
gildrunnar i Kopavogi af
Klemenz Jónssyni, en
leikendur eru flestir þeir
sömu og áður, nema hvað
Auður Jónsdóttir tók við af
Ingu Blandon. Leikendur eru
átta. Magnús Pálsson gerði
leikmynd eins og i fyrra
skiptið, en hún er nú all-
breytt.
I tilefni afmafelis Músa-
gildrunnar er hún nú endur-
sýnd viða um heim.
Bandalag kvenna í Reykjavík segir:
Áfengisþjökuð heimili þurfa
samfélagsvernd og skyndihjálp
Umferðarráð:
Spurningakeppni
meðal 12
Akveðið hefur verið aö efna til
spurningakeppni um umferða-
mál meðal allra 12 ára skóla-
barna á landinu. Það er Um-
ferðarráð og fræðsludeild
menntamálaráöuneytisins, I
samráði við Rikisútvarpið, sem
gangast fyrir keppninni. Verö-
launin eru æfintýraferð til
Norðurlanda mcð Loftleiðum.
Keppnin fer fram i þremur
áföngum. I fyrsta áfanga verður
ára barna
verkefni lagt fyrir 12 ára börn
samtimis i öllum skólum. Þá
verða valdir 5 beztu nemendur i
hverju kjördæmi til þátttöku i
öðrum áfanga, sem fer fram um
miðjan aprií gegn um sima.
Þriðji áfangi fer fer fram i sjón-
varpinu um mánaðamót april-
mai en þar keppa tvö stigahæstu
liðin úr öðrum áfan^a til úrslita.
Verðlaunaferðin verður farin
fyrri hluta júnimánaðar.
OO-Reykjavik.
Biræfinn þjótnaður var framin i
veitingastofunni að Geithálsi, s.l.
laugardagskvöld. Þar var stolið 6
þús. kr. úr peningakassanum á
meðan veitingamaður og aðrir
voru i salnum.
Veitingamanninn grunaði
hverjir valdir voru að ráninu og
hringdi hann i lögregluna i
Hafnarfirði og benti á mennina.
Voru þeir handteknir og settir
inn. Þeir neituðu allir, og var sá
erfiðastur við yfirheyrzlur, sem
siðar kom i ljós að var þjófurinn.
Þá eru ritstjórar Morgunblaös
ins enn einu sinni orðnir óánægöir
með Sigurð A. Magnússon, jafn-
vel hluti af útvarpsráöi lika. Og i
þetta sinn stafar óánægjan af þvi,
að SAM staðhæfði f útvarpsþætti,
að saina manngerö stýrði Morg-
unblaðinu og Prövdu. Auðvitað cr
SAM ókurteis, það er atvinna
lians á parti, en hins vegar verður
erfitt að koma kenningu hans
heim og saman, m.a. vegna þess,
að ritstjórar Prövdu hafa ekki
próf i Njálu, eins og Matthias,
hvað þá að þeir sfeu aldir upp I
Stykkishólmi, eins og Eyjólfur
Konráð.
En það er varla þörf á þvi fyrir
útvarpsráð að ætla að vita SAM
fyrir skoðanir sem þessar. Hann
getur hvort sem er aldrei lokið
likingunni. Ef hann gerði það
lenti hann sem eitthvert ótint
skáld á hæli i Síbcriu. í stað þcss
getur hann haldið áfram að gera
mannjafnaöarmat á ritstjórum
Morgunblaðsins eins lengi og
hann vill, og engum dettur i hug
að álita hann geðvcikan, sem ætið
verður siöasta rökscmd Sovét-
manna gegn SÖM-unum þegar
þeir gcrast ókurteisir við kerfiö.
Það er þvi rangt mat hja SAM,
þegar liann jafnar saman mönn-
um við Prövdu og Morgunblaðiö
til sönnurar á sæstæðu kerfi. Það
er ekki einu sinni hægt að koma
fram vitum á hann i útvarpsráöi.
islenzka „kerfið” er svona pott-
þétt. En samt vcrður ekki hjá þvi
komizt að álita að SAM sé ó
ánægður með öll kcrfi, og er það
gott, þvi nóg cr að vera þrúgaöur
af aktygjum skoðanna sinna, þótt
menn láti ekki kerfin hálfdrepa
sig að auki.
Ritstjórar Morgunblaðsins
mega eftiratvikum una þvi vel aö
vera taldir jarlar á borð viö rit
stjóra Prövdu. Samkvæmt þvi
ciga þcir að hlýða rikisstjórninni.
Það er kannski þess vegna, sem
flokksbræöur þeirra I útvarps-
ráði heimta vitur og Stefán
Júliusson situr hjá. En þá er að
hugga þá mcð þvi, að um það bil
scm Morgunblaðiö verður þjóö-
nýtt i þágu rikisstjórnarinnar
verður SAM búinn að cyðileggja
frckari rökræður um kerfið i
austri, sem ekki er hægt aö Ijúka
öðruvisi en þær hitti hann sjálfan
— og alla hina sem hafa nú um
hriða ástundaö að segja háifar
dæmisögur. ihaldiö á islandi er
slæmt, og ekki nema gott eitt um
það að segja, að það sé skammaö
ööru hverju. En það er ekki rautt.
Svarthöföi.