Tíminn - 01.03.1972, Page 6
6
TÍMINN
Miðvikudagur 1. marz 1972.
Frá umræðum á Alþingi s.l. mánudag um veggjaldið
á Reykjanesbraut:
Engin ákvörðun verður
tekin fyrr en sambæri-
legir vegir eru til hér,
sagði Hannibal Valdimarsson, samgöngumálaráðherra.
— Þörf Suðurnesjabúa réði ekki byggingu Reykja-
nesbrautar, sagði Jón Skaftason
EB - Reykjavik.
Eins og greint hefur verið frá i
blaöinu, urðu miklar umræður
um veggjaldiö á Reykjanesbraut
á fundi i neöri deild Alþingis
siðast liöinn mánudag, þegar þar
var framhaldið 1. umræðu um
frumvarpið, þar sem lagt er til.að
þetta gjald veröi fellt niður og
jafnframt heimild sú fyrir
ráöherra - sem er i vegalögum - til
þess að ákveöa með reglugerð, að
greiða skuli sérstakt umferðar-
gjald af ökutækjum, sem aka um
tiltekna vegi eða brýr.
I þessum umræöum kom i ljós
að Hannibal Valdimarsson, sam-
gönguráðherra, taldi ekki
eölilegt.að veggjaldið á Reykja-
nesbraut yröi lagt niður og sagði,
aö Suðurnesjamenn hefðu búið
viö forréttindi,hvað þennan góða
veg áhrærir. Sagði ráöherrann^að
niðurfelling á þessu veggjaldi
kæmi ekki til greina af sinni
hálfu.
Veggjaldið verður
ekki fellt niður"
Hannibal Valdimarsson,
samgönguráðherra, sagöist vera
þeirrar skoðunar, að fyrrverandi
samgönguráðherra, Ingólfur
Jónsson, hefði ekki framkvæmt
óréttlæti gegn Suðurnesjabúum
þegar hann hefði lagt veggjaldiö
á. Þessi vegur væri forréttindi
Suöurnesjabúum til handa og
allir landsmenn hefðu v.eriö
skattlagöir fyrir þennan veg. Þá
sagöi ráöherrann, að Suðurnesja-
menn hefðu haft ágóða af þessum
vegi hvað viðkæmi viðhalds-
kostnaði á bifreiðum þeirra.
Þessu næst sagöi ráðherrann.að
flutningsmenn frumvarpsins
væru litilsigldir, með flutningu
þess ætluðu þeir sér að „snapa”
atkvæði. - Ég hef ekki gert slikt og
samt fengiö atkvæði eins og þeir,
sagöi ráðherrann.
Hannibal sagði þvi næst, að
ekki kæmi til greina að fella
veggjaldiö niður nú. Þegar
sambærilegir vegir við Reykja-
nesbraut yröu til i landinu, yrði
tekin ákvöröun um það hvort
þetta veggjald yröi fellt niður,
eða'veggjald lagt á sambærilega
vegi. Hann sagði, að sér hefðu
borizt samþykktir utan af landi
um að veggjaldiö yrði hækkað,
allt að tvöfaldað og itrekaöi svo
skoöun sina að ekki ætti að af-
nema veggjaldið nú. Þaö yrði
ekki gert jafnvel þótt allir sex
þingmenn Reykjanesskjör-
dæmis flyttu frumvarp um afnám
þess.
Samgönguráöherra gat þess
ennfremur, að ekkert I skjölum
ráðuneytis hans gæfi visbendingu
um,að fyrirrennari hans, Ingólfur
Jónsson, hafði verið búinn að ák-
veða að fella veggjaldiö niður.
Framhald á bls. 14.
F lutningur ríkis
stofnana út um land
Lárus Jónsson (S) hefur lagt
fyrir Sameinað Alþingi tillögu
til þingsályktunar um, að
kosin skuli 5 manna nefnd til
þess að gera tillögur um
staðarval og flutning rikis-
stofnana út um lamd i þvi
skyni að stuðla með þeim
hætti að aukinni fjölbreytni
þar i atvinnu- og menningar-
li'fi og traustari byggð.
Nefndin hafi samráð viö
landshlutasamtök sveitar-
félaga og aðra þá aðila, er
máliö varðar, og kynni sér enn
fremur vinnubrögö annarra
þjóöa á þessu sviði, m.a. á
Norðurlöndum. Nefndin leggi
skýrslu um athuganir sinar og
tillögur fyrir næsta Alþingi.
Skólaiþróttahús
við Hamrahlíð
Tveir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, Ragnhildur Helga-
dóttir og Ellert B, Schram
hafa lagt svohljóðandi tillögu
fyrir Sameinað þing:
„Alþingi ályktar, að leitað
skuli samstarfs viö Reykja-
vikurborg um að reisa sam-
eiginlegt iþróttahús fyrir
Hliðaskóla og Menntaskólann
viö Hamrahlið, enda tryggi
rikisstjórnin, að fram-
kvæmdir geti hafizt á þessu
ári”
Fyrirspurnir frá
Álexander Stefánssyni
Alexander Stefánsson (F)
hefur lagt eftirfarandi fyrir-
spurnir fyrir Hannibal Valdi-
marsson samgönguráðherra:
1. Hvenær má vænta þess,
að veghefill verði staðsettur á
utanverðu Snæfellsnesi, þ.e. i
Ólafsvik?
2. Verða stórvirk vega-
gerðartæki, svo sem fullkomin
grjótmulningsvél, til fram-
leiðslu á efni i slitlag á vegi,
send á Snæfellsnes á þessu
ári?
3. Hvenær má vænta fram-
kvæmda við endurbætur á
flugvellinum að Gufuskálum
við Hellissand og bættrar
þjónustu i sambandi við hann?
4. Verður endurskoðun
hafnalaga lokiö það timan-
lega, að hægt verði að leggja
þau fyrir yfirstandandi
Alþingi til afgreiðslu?
5. Hefur verið tekin ákvörð-
un, hvernig létta megi hina
erfiðu fjárhagsstöðu hafnar-
sjóðs, sérstaklega hvað
varðar þaér hafnir, sem eiga i
mestum fjárhagserfiðleikum,
sbr. samþykkt ársfundar
Hafnasambands sveitar-
félaga 15. nóv. 1971, er send
var rikisstjórninni.
Gylfi spyr um
skólafrumvörpin
Þá hefur Gylfi Þ. Gislason
(A) lagt fram fyrirspurn til
rikisstjórnarinnar um frum-
vörp um skólakerfi og grunn-
skóla. —EB.
Þingsólyktunartillaga Magnúsar H. Gíslasonar og Stefóns Valgeirssonar:
ÁÆTLUN VERÐI GERÐ UM
KOSTNAÐ VIÐ AÐ LEGGJA
AKFÆRA VEGI UM VERST
SETTU BYGGÐARLÖGIN
Jón Skaftason (F) , einn af
flutningsmönnum frumvarpsins,
gagnrýndi harölega þessa afstöðu
ráðherrans. Minnti hann á,
hvernig Keflavikurvegurinn hefði
verið fyrir gerð steypta vegarins.
Þá sagði þingmaðurinn,að þarfir
Suðurnesjabúa hefðu ekki ráöið
þvi, að þessar samgöngubætur
hefðu verið geröar og rökstuddi
þá skoöun sina siðan nánar.
Stefán Gunnlaugsson (A) tók
fyrstur til máls, og minnti á
ummæli Jóns Skaftasonar á
Alþingi 11. nóvember s.l. Hefði
þingmaðurinn þá sagt, að ef hann
yrði úrkula vonar um,að stjórn-
völdin ætluðu að afnema
veggjaldið myndi hann leita
annarra ráða. Spuröi Stefán
þessu næst Jón aö þvi, hvort flut-
ningur þessa frumvarps væri
visbending þess.að þingmaðurinn
væri þeirra skoöunar nú, að st-
jórnvöld ætluðu ekki aö afnema
veggjaldið.
Ingólfur Jónsson (S) sagöi, að
þegar hann hefði verið
samgönguráðherra hefði hann
ákveðið, að afnema veggjaldið 1.
janúar 1973. Þingmaðurinn sagöi,
að veggjaldið hefði verið 50
krónur frá þvi byrjað hefði verið
að innheimta það. Þaö hefði ekki
verið látið fylgja verðlaginu og
þess vegna mætti segja, að búið
væri nú þegar að afnema gjaldið
til hálfs. Það hefði ekki verið látið
fylgja verðlaginu vegna þess, að
búið hefði veriö að ákveða að
afnema það.
Hef hugboð um að
ráðherrann ætli að
afnema gjaldið"
Ennfremur kvaðst þing-
maðurinn hafa hugboð um það, að
Hannibal Valdimarsson, sam-
gönguráðherra, atlaði að láta
afnema þetta veggjald, þegar
vegaáætlunin yrði til umræðu i
þinginu, en það yrði væntanlega i
næsta mánuði. Þá sagði Ingólfur,
aö eðlilegra heföi verið. að flut-
ningsmenn þessa frumvarps
hefði verið flutt þingsályktunar-
tillögu þess efnis, að skorað yrði á
rikisstjórnina að afmena veggjal-
dið.
EB—Reykjavlk.
Tvcir þingmenn Framsóknar-
flukksins, þeir Magnús II. Gisla-
son og Stefán Valgeirsson hafa
lagt fyrir Sameinað þing tillögu
til þingsályktunar um,aö rlkis-
stjórninni verði falið aö láta hið
allra fyrsta gera áætlun um
kostnað viö að leggja akfæra vegi
um þau byggöarlög, sem verst
séu stödd i þeim efnum. Skuli
miðaö við þaö, aö vegurinn verði
fær vcnjulegum ökutækjum árið
um kring við eðlilegar aðstæður.
A grundvclli þeirrar áætlunar
verði siöan hafizt handa um vega-
gcrðina. Skuli liöfð samráð viö
Vegagerð rikisins og sýslunefndir
héraöanna um áætlunargerðina.
1 greinargerð með tillögunni
segja flutningsmenn:
„Þegar haft er i huga, hvað Is-
land er tiltölulega stórt land og
strjálbýlt, verður vart annað sagt
en að undravert átak hafi verið
gert i vegalagningu undanfarna
áratugi. Aðalsamgönguleiðirnar
spanna nú um meginhluta lands-
ins auk ótal hliöargreina til hinna
einstöku byggðarlaga. Vegir
þessir eru að sjálfsögðu misjafn-
lega úr garði gerðir, þvi að frum-
bygginn byrjar ekki á þvi að reisa
skrauthýsi, heldur bjálkakofa.
Samgönguleysiö ein
meginástæðan
En þótt þjóðin hafi af takmörk-
uðum efnum, en miklum dugnaði,
unniðótrúlegtafrek á þessu sviði,
Magnús H. Gislason
skortir þó enn nokkuð á, að ak-
færir vegir geti kallazt komnir
um öll byggðarlög. Nokkur eru
enn þá þannig sett, að um þau
liggja að mestu leyti aðeins rudd-
ar götur, sem ófærar geta verið
langtimum saman, einkum þó
vegna snjóa á vetrum, en einnig
sökum úrfellis á sumrinu. Flest
þau byggðarlög, sem þannig eru
sett, munu teljast til svonefndra
útsveita. Mörgum þeirra fylgja
þó miklir landkostir og marghátt-
uð hlunnindi, sem tjón er fyrir
þjóðfélagið, að ekki séu nýtt. En
ibúum þessara byggðarlaga fer
fækkandi. Ein meginástæðan til
þess mun samgönguleysið. Fólkið
vill gjarnan dveljast áfram á
heimaslóðum, en það unir ekki
þeim erfiðleikum og öryggisleysi,
sem samgönguskorturinn skap'ar,
og er ekki láandi.
Greiöa gjöld sín ekki
siöur en aörir
Sú stefna hefur rikt að leggja
fyrst vegi til þeirra svæða,sem
þéttbýlust eru. Það er eölilegt
sjónarmið, þar sem ekki verður
allt unnið á einum degi. En nú,
þegar við teljum okkur hafa efni á
þvi að fara að leggja steypta yegi
út frá höfuöbyggðarkjörnunum,
þá megum við ekki heldur
gleyma þvi fólki, sem enn þá býr
við óforsvaranlegt vegasamband.
Það greiðir sin gjöld til þjóð-
félagsins ekki siður en aðrir
þegnar og hlýtur þvi einnig áð
eiga kröfu á þjónustu.
Unniö aö einhverju
leyti i áföngum
Með tillögu þessari er til þess
mælzt, að rikisstjórnin láti gera
áætlun um kostnað við að koma
þessum byggðum i viðunandi
vegasamband og hefja siðan
framkvæmdir með þeim ýtrasta
hraða, sem kostur er. Til að flýta
fyrir framkvæmdum mætti hugsa
sér, að verkið yrði að einhverju
leyti unnið i áföngum. Sums stað-
ar eru stuttir kaflar, sem ófærir
verða strax og eitthvað bjátar á,
og stöðva þannig umferð um allan
veginn, sem að öðru leyti kann að
vera slarkfær. Fyrsta skrefið er
að lagfæra þessa kafla, sem viða
má gera án verulegs tilkostnaðar.
Siðan kæmu stærri framkvæmd-
ir, unz verkinu er náð. Vegur um
allt byggðarlagið, sem fær sé við
allar eðlilegar aðstæður.
Samráð við
vegagerðina
Óráðlegt væri, i bráð a.m.k., að
leggja um þessi byggðarlög
margra metra breiða vegi, sem
miðast við mikla umferð og mik-
inn umferðarþunga. Slik vega-
gerð tæki kostnaðarins vegna svo
langan tima, að siðustu ibúarnir
væru löngu farnir burt, áður en
þeirri framkvæmd yrði lokið. En
rikisvaldið getur ekki beðið öllu
lengur með að rétta þvi fólki
hjálparhönd, sem svo lengi hefur
beðið eftir handtakinu.
Eðlilegt er, að samráð sé haft
við Vegagerðrikisins um gerð
slikrar áætlunar, sem hér um
ræðir. Þáttur sýslunefndanna
mundi á hinn bóginn vera fólginn
i þvi að ákveða, hvaða vegir falli
undir áætlunargeröina”.
——
■