Tíminn - 01.03.1972, Page 11

Tíminn - 01.03.1972, Page 11
Miðvikudagur 1. marz 1972. TÍMINN 11 Baldvin Baldvinsson hefur skorað mörg mörkin fyrir KR. Nú tekur hann við að skora mörk fyrir Völsung í 2. deild. BALDVIN TIL VÖLSUNGS Klp-Reykjavik. Eins og við sögðum frá fyrir skömmu mun Arnar Guðlaugsson, Fram, flytjast búferlum til Húsavikur i sumar og mun hann leika með 2. deildarliði Húsvikinga, Völsung i sumar. Nú hefur annar Reykvikingur ákveöið að feta i fötspor hans. Það er hinn góðkunni knatt- spyrnumaður úr KR, Baldvin Baldvinsson, sem mun þjálfa og leika með Völsung a.m.k. i sumar. Þaö var fyrir nokkru, sem Baldvini bauðst að koma Norður og taka við þessu starfi, og eftir nokkurn um- hugsunarfrest ákvað hann að slá til. Hann tjáði okkur i gær, er við spurðum hann um þetta, að hann hefði lengi haft áhuga á þvi að fara út á land og leika þar og þjálfa eitthvert lið. Og þegar honum hefði boðizt tækifæri til að taka viö Völsung, hefði hann slegið til, enda væri þetta gott lið og áhugi meðal strákanna til að standa sig vel og ná árangri. Ekki er að efa að með til- komu Arnars og Baldvins, verður Völsungur sterkur i sumar. Báðir hafa mikla reynslu og eru marksæknir og ef Baldvini tekst að koma sér og öðrum leikmönnum i góða æfingu fyrir sumarið má búast við að erfitt verði fyrir hin liðin i deildinni að sigra það. Það má þvi reikna með hörku keppni i 2. deildinni i sumar þvi að a.m.k. 5 eða 6 lið geta komið til greina með að berjast um sigurinn. Um daginn sögðum við frá þvi að verið gæti að Kristinn Jörundsson, Fram, yröi með Völsung i sumar, en hann sagði okkur i gær, að hann væri hættur við það, en hann var búinn að gæla lengi við þá hugmynd. J Reykjavík sigraði í fjórða leiknum Reykjavikurúrvaliö i körfu- knattleik sigraði úrval Varnar- liðsins af Keflavlkurflugvelli i 4. leik liðanna i Sendiherrakeppn- inni, sem fram fór i Laugardals- höllinni á mánudagskvöldið. Var þetta fyrsti sigur Rvik i keppn- inni að þessu sinni, en i henni eru leiknir fimm leikir og hafa Bandarikjamennirnir sigrað i þrem þeirra. Fimmti og siðasti leikur keppninnar fer fram á Keflavikurflugvelli i kvöld og að konum loknum verður VL-liðinu afhentur Sendiherrabikarinn----- i fyrsta sinn i 11 ár. Leikurinn á mánudaginn var góð skemmtun fyrir þá, sem vilja sjá spennandi viðureign. Liðin skiptust á að jafna og hafa forustu allan timann. Þegar aðeins 5 sekúndur voru til leiksloka var staðan 71:69 fyrir VL, sem þá komst i hraöaupphlaup og mögu- leika á að komast 4 stig yfir. En sóknarmanninum mistókst að skora þar sem hann var einn undir körfunni og Rvik-liðið náði boltanum. Kolbeinn Pálsson tók „sveifluskot” af löngu færi þegar 1 sekúnda var eftir og hitti niður um körfuhringinn og jafnaðir þar með leikinn, 71:71. Framlengt var þá i 1x5 min., þar sem jafntefli er ekki til i körfuknattleik. I framlenging- unni breytti Rvik.-liðið um sóknaraðferð (lék 1-3-1) og skoraði i framlengingunni 18 stig gegn 4. Sigraði þvi Reykjavik i leiknum 89:75. Met nr.13 Lfrá áramótum Guðmundur Sigurðsson lyft ingamaður úr Armanni gerir það ekki endasleppt að setja ný Is- landsmet. Um siðustu helgi tók hann sig til og bætti metin i milli- þungavigt, að þessu sinni tvö met. Hann snaraði 132,5 kg sem er nýtt met. Jafnhattaöi 165 kg og pressaði 150 kg. Samtals gerir þetta 452,5 kg sem er nýtt glæsi- legt tslandsmet. Frá áramótum hefur Guð mundur sett 13 ný tslandsmet, en hann æfir nú mjög vel og reglu- lega fyrir þátttöku i Olympíu- leikunum i Múnchen. m Klp Island vann Skoiland í landskeppni á skiðum Klp-Reykjavik. Um helgina fór fram i Skotlandi meistaramót Skotlands i alpagreinum. Var það opið mót og tóku þátt í því milli 50 og 60 keppendur frá mörgum þjóðum, þ.a.m. frá Austurriki, Noregi og tslandi. t sambandi við mótið fór fram landskeppni milli tslands og Skot- lands. Var bezti árangur Skota og tslendinga tekinn i svigi og stór- svigi, og fór svo að Island sigraöi með 112 gegn 100, en eftir fyrri daginn hafði Skotland forustu, 54:52. 1 stórsvigi varð Hafsteinn Sigurðsson i 5. sæti, en i 1. og 2. sæti urðu Austurrikismenn. Björn Haraldsson, Húsavik varð i 7. sæti, Arnór Guðbjartsson, Reyk- javik i 8. Jónas Sigurbjörnsson, Akureyri i 11. Reynir Brynjólfs- son, Akureyri i 17. Hákon Ólafs- son, sem var jafnframt farastjóri hópsins varðsvo i 20. sæti. Aslaug Sigurðardóttir Reykjavik, varð i 5. sæti i stórsvigi kvenna. t sviginu varð Hafsteinn Sigurösson i 2. sæti á eftir Austur rikismanninum Leo Schöpf. Hákon varð i 8. sæti, Reynir i 15. og Arnór varð 18. Þau Aslaug, Björn og Jónas urðu úr leik, en ts- land hafði samt sigur, þvi sumum Skotunum gekk einnig illa. Manchester Utd. kaupir Skota Manchester United keypti i gær Skozka unglingalandsliðsmann- inn Martin Buchan frá Aberdeen fyrir 125 þús. sterlingspund. Buchan þessi er talinn einn af beztu sóknarleikmönnum Skot- lands og hefur Man. Utd. lengi haft augastað á honum, en Aberdeen ekki viljað selja fyrr en nú. (^Heimsmet) Sænski stangarstökkvarinn Kjell Isaksson setti á laugar- daginn nýtt heimsmet i stangar- stökki innanhúss á móti i Madison Square Garden. Hann stökk 5,45 metra, sem er 4 sm. hærra en gainla metið, sem hann átti sjálfur. Isaksson átti góöa tilraun við 5,50 inetra, sem er 1 sm. bctra en heimsmetið utanhúss. Schranz hættir að keppa Austurriski skiðakappinn Karl Schranz, sem útilokaður var frá Olympiuleikunum I Sapporo á dögunum, eins og frægt er oröið, hefur tilkynnt að hann sé hættur allri keppni á skiðum. Það urðu honum mikil von- brigði þegar honum var tilkynnt að hann fengi ekki að vera með á OL i Sapporo, en það var hans æðsti draumur að ná i gullverð- laun á Olympíuleikum. Við heim- komuna frá Sapporo, var Schranz fagnað sem þjóðarhetju, honum var ekið um heimaborg sina i opnum bil og þúsundir manna fögnuðu honum. Ráðherrar og aðrir héldu honum hóf og margar ræður voru fluttar. Skömmu eftir heimkomuna hélt svo Schranz blaðamannafund, þar sem hann tilkynnti m.a. aö hann væri hættur að keppa, og lægi þar að baki ákvörðun Brundage formanns Alþjóða- Olympíunefndarinnar, um að hann væri atvinnumaður, þó svo að engar vottfestar sannanir fengust fyrir þvi. Einnig að Al- þjóða skiðasambandið, hefði lofað að halda Heimsmeistar- keppni i alpagreinum, þar sem hann fengi að vera meðal þátttak- enda, en frá þeirri keppni hefur sambandið nú horfið. Þessi yfirlýsing Schranz varð til þess að auka mjög á hatrið i garð Avery Brundage og Alþjóða- Olympíunefndarinnar i Austur- riki, en þar er Brundage nú sagður „óvinur þjóöarinnar nr.l” og hefur fjöldi Austurrikismanna hótað að koma honum fyrir kattarnef þegar færi gefist á þvi. Menn hafa að undanförnu beðiö Schranz umað endurskoða afstööu sina, og halda áfram að keppa m.a. i þeim mótum, sem gefa stig i heimsbikarkeppninni, en þar á hann enn möguleika á að sigra. Schranz hefur tekiö heldur illa i þetta- segist ætla að hætta og snúa sér að knattspyrnu eins og Norðmaðurinn Björn Virkola, sem var einn af beztu skiða- stökkvurum Noregs, en Schranz er einnig mjög góður knatt- spyrnumaður. —klp— Var Gísli Blöndal ólöglegur með Val? Klp-Reykjavik. Afundi.sem lorráöainenn 1. deildarliöanna i handknattleik karla úr Ilafnarfirði og Reyk- javik héldu i fyrrakvöld, kom fram fyrirspurn frá Iland- knattleiksráði Rcykjavikur til stjórnarmeðlima HSt, sem sátu fundinn. hvort HSÍ hefði i sinum fórum einhverja til- kynningu um félagaskipti Gisla Blöndal frá KA til Vals. . Kom þessi fyrirspurn vegna þess, að HKRR hefði cnga slika tilkynningu fengiö frá HSl, en sumir stjórnarmeð- limir IIKRR og HKRH á fund- inuin töldu, að þegar um félagaskipti milli héraða væri að ræða, bæri að tilkynna slikt til viðkomandi héraðs. útaf þessu spunnust nokkrar um- ræður á fundinum. Þeir st- jórnarmeðlimir HSt, sem hann sátu, sögðust ekki muna livort HSi hefði borizt slík til- kynning, en þeim rámaöi þó i það. Ef svo revnist vera. að HSt hefur ekki fengið tilkynningu, sem er nú heldur ótrúlegt, getur svo farið, að einhver liðin i 1. deild kæri leikina, sem þau léku við Val i mótinu, Gisli Blöndal — I. eins og t.d. FH og Haukar. Getur það þýtt, að aukaleikur þurfi að fara fram um tslands- meistaratitilinn milli FH og Fram og að Haukar séu ekki fallnir, þvi þeir fengju þá 4 stig fyrir tapleikina gegn Val. Og þar með væri Valur fallið i 2. deild. En eins og fyrr segir, er það heldur vafasamt, að Vals- öglegur eða ólöglegur? menn hafi ekki sent til- kynningu um félagaskipti Gisla, þó HKRR hafi aldrei fengið að sjá þá tilkynningu. Það fæst þó ekki á hreint fyrr en HSt getur sýnt forráða- mönnum Reykjavikur- og Hafnarf jarðarliðanna til- kynninguna, en þeir biða margir hverjir spenntir eftir þvi að sjá hana.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.