Tíminn - 01.03.1972, Page 16
Eldur í fiskimjölsverksmiðjunni í Grindavík:
Allar þrær fullar og
vinnsla stöðvast í
nokkra daga
OÓ-Reykjavík.
Eldur kviknaði i þurrkara fiski-
mjölsverksmiðjunnar i Grindavik
i gærmorgun. Fljótlega tókst að
slökkva eldinn, en nokkrar
skemmdir urðu á tækjum og
verður verksmiðjan óstarfhæf i 3
til 5 daga. Allar þrær i Grindavik
eru nú fullar, og var hætt að taka
við loðnu þar i fyrradag, þar sem
verksmiðjan hafði hvergi nærri
undan aö vinna það magn sem að
barst. Er þvi mjög bagalegt að
vinnsla skuli stöðvast i nokkra
daga vegna brunans.
Slökkviliðið var kallað að „Fiski-
mjöl og lýsi”. Var talsverður
eldur i þurrkara verksmiðjunar,
en slökkviliðið réði niðurlögum
eldsins nær samstundis og það
kom á vettvang. En lengri tima
tók aö kæla þurrkarann niður.
Eldurinn var i þurrkaranum og
blásara. Tæki þessi eru öll úr
málmi, og i járnhúsi og urðu
skemmdirnar ekki miklar, en það
tekur samt nokkra daga að lag-
færa tækin svo aö verksmiöjan
verði starfhæf aftur.
Verið var að þurrka beinamjöl,
þegar eldurinn varð laus. Talið er
að hann hafi komið upp með þeim
hætti, að keðja á snigli slitnaði og
frárennsli úr þurrkaranum
stiflaðist og mjölið safnaðist
saman i honum og ofhitnaði.
Kom eldurinn upp i sjálfu mjöl-
inu. Munu nokkur hundruð kiló af
mjöli hafa eyðilagzt, en aðal-
tjónið vegna eldsins, er stöðvun
vinnslunnar þegar svo mikið
liggur við, sem raun ber vitni, að
vinna loðnuna.
-
Angela Davis.
heimsóknina, leyni ekki meiru en
þar kemur fram, eins og flestar
slikar tilkynningar gera.
Flestir þeirra, sem komu á
flugvöllinn til að fagna Nixon
voru rikisstarfsmenn og fjöl-
skyldur þeirra, en allir 117 am-
bassadorarnir i borginni höfðu
fengið „boð”. Sendiherra Sovét-
rikjanna kom, en ambassador
Formósu ekki. 1 mannfjöldanum
voru nokkrir ihaldssamir
náungar, sem komu með regn-
hlifar til að leggja áherzlu á það
álit sitt, að Nixon hefði ekki gert
meira fyrir friöinn, með ferð
sinni, en brezki forsætisráð-
herrann Chamberlain, þegar
hann kom aftur til London eftir
fund sinn meö Hitler.
1 ræðu sinni sagði Nixon, aö
hann heföi hvorki meðferðis
skrifaða né óskrifaöa samninga,
sem tryggja myndu friðinn, en
hann teldi, að fundir hans meö
kinversku leiðtogunum myndu
minnka likurnar á árekstrum og
styrjöldum i Asiu og á Kyrrahafs-
svæöinu og skapa friðargrund-
völl.
lokast ekki
SJ-Reykjavik.
Tæknimennirnir 48 hjá sjón-
varpinu, sem sögðu upp störfum
sinum fyrir þrem mánuðum, hafa
dreeið unDsaenir sinar til baka.
Skipan þeirra i launaflokka hefur
verið i endurskoöun, en málið átti
að fara fyrir fund kjararáðs
BSRB og samninganefndar rikis-
ins i kvöld. Kröfur tæknimann-
anna og kjararáðs BSRB fyrir
þeirra hönd, fela i sér hækkun
milli launaflokka, misjafnlega
mikla fyrir hina ýmsu tækni-
menn. Ekki kemur þvi til stööv-
unar á útsendingum sjónvarps-
ins vegan uppsagna tæknimann-
anna að sinni.
ÞÓ-Reykjavik.
1 gær kviknaöi i fiskimjölsverk-
smiðjunni I Keflavik og mun
bræðsla stöðvast þar nokkurn
tima. Eldurinn kom upp i
mjölþurrkara og komst þaðan i
blásara, sem skemmdist mjög
mikiö.
NTB-Reykjavik.
Flugvél Nixons Bandarikja-
forseta, „Spirit of'76” lenti á St.
Andrewsflugvelli við Washington
kl. 2.15 aö Isl. tima i fyrrinótt. 8-10
þúsund manns voru á flug-
vellinum til aö fagna forsetanum.
1 gær ræddi Nixon við stjórn
sina og leiötoga beggja flokka og
geröi þeim grein fyrir við-
ræöunum viö kinversku leið-
togana.
A fundi Nixons með 21 þing-
manni voru einnig þeir Rogers,
utanríkisráöherra og Kissinger,
ráögjafi. Forsetinn fór til Capitol
og hitti þingmennina þar, en
fundurinn með stjórninni var
haldinn i Hvita húsinu, þar sem
veggir eru þegar þaktir stórum
litmyndum úr Kinaferðalaginu.
Við komuna til Washington —
eftir viku, sem breyta mun heim-
inum, að sögn Nixons — lagði
hann áherzlu á, að hann hefði ekki
gert neina leynisamninga við kin-
versku kommúnistaleiðtogana.
Margir eiga af gömlum vana
erfitt meö aö meðtaka það, að til-
kynningin, sem gefin var út eftir
Forsetahjónin
farin til
Finnlands
SB-Reykjavik.
Forsetahjónin leggja af
stað i dag i opinbera heim-
sókn sina til Finnlands, en
þar dvelja þau til næsta
mánudags. A dagskrá heim-
sóknarinnar eru heimsóknir
til ýmissa merkra staða,
safna og verksmiöja. A
sunnudaginn mun forseti
íslands opna islenzka
sýningu i Lathi og siðan
heimsækja mikla húsgagna-
sýningu þar i bæ. Um kvöldið
verður móttaka fyrir Islend-
inga á heimili islenzka kon-
súlsins. Heimleiðis veröur
siðan haldið með Loftleiðum
um hádegið á mánudaginn.
Tugþúsundir fögnuður
_ _ ^ ^ y ■ ■ ■ | lvI,ovlKUQagur *■ marz ia
Nixon við heimkomuna síw*
Miövikudagur 1. marz 1972.
ANGELA DAVIS VERÐUR
SINN EIGINN VERJANDI
NTB-San Jose.
Angcla Ilavis kom á mánu-
daginn fyrir rétt i San José i
Kaliforniu, ákærö fyrir morð.
mannrán og þátttöku i sam-
særi. Angela, sem er 28 ára,
verður sinn eigin verjandi við
réttarhöldin, meö aðstoö lög-
fræöinga þó. Nú er liðnir nær
19 mánuöir siðan harmleikur-
inn átti sér staö i réttarsal i
San- Rafael, þar sem dómari
og þrir ákæröir negrar voru
skotnir til bana, þegar ræna
átti dómaranum. Angcla er
ákærö fyrir að hafa skipulagt
mannrániö og leggja til
vopnin. Hún var látin laus úr
fangclsinu á miövikudags-
kvöld gegn rúmlega 100 þús-
und dollara tryggingu.
Enginn hefur getað sannað,
að Angela hafi átt þátt i harm-
leiknum, en verði hún sek
fundin um að hafa útvegað
vopnin, er hægt að dæma hana
fyrir morö.
Angela, sem er gáfuð, og vel
menntuð er þannig ákærð
fyrir hreinan glæp. Meöal
vinstrisinnaðs ungs fólks um
allan heim og negra i Banda-
rikjunum er sú skoðun rik-
jandi, aö Angela sé leidd fyrir
rétt meira vegna stjórnmála-
skoöanna sinna og hörunds-
litar en glæpsins.
Angela Davis varð fyrst
heimsþekkt, er henni var
visað úr stöðu sinni sem fyrir-
lesari i heimspeki við há-
skólann i Los Angeles 1969.
Astæðan var sú, að Angela
viðurkenndi opinberlega að
hún væri kommúnisti og aö
hún hagaði máli sinu þannig,
aö „hafa óæskileg áhrif” á
nemendurna. Dómstóll dæmdi
siðar uppsögnina ólögmæta,
en háskólinn réði Angelu þó
ekki til starfa á ný.
Þá fékk Angela áhuga á svo-
nefndum „Soledad-bræðrum”
remur ungum negrum, sem
ákærðir voru fyrir að hafa
myrt fangavörð i uppreisninni
i Soledad-fangelsinu.
Hún beitti sér fyrir þvi að fá
þremenningana látna lausa.
Hún og stuöningsmenn hennar
héldu þvi fram, að þeir þrir
hefðu verið útnefndir morð-
ingjarnir, vegna þess að þeir
voru talsmenn hinna svörtu i
fangelsinu. Ránstil-
raunin, sem leiddi til réttar-
haldanna yfir Angelu, var i
beinu samhengi viö þremenn-
ingana. Ætlunin var að ræna
dómaranum og halda honum i
gislingu, þar til Soledad-
bræöurnir yröu látnir lausir.
Ein þeirra, George Jackson
var skotinn til bana, er hann
reyndi að flýja úr San Quentin-
fangelsinu.
Angela Davis hefur ekki
neitað sambandi sinu við
bræðurna og heldur ekki að
hafa keypt vopnin, sem notuð
voru, en aðeins til þess að
verja sjálfa sig gegn þeim of-
góknum, sem hún varð fyrir,
eftir að hafa lýst yfir stjórn-
málaskoðunum sinum.
Jonathan, yngri bróðir
Georges Jackson segir hún, að
hafi tekið byssurnar, án
hennar vitundar.
Eftir að allar tilraunir til að
láta réttarhöldin fara fram i
San Fransisco hafa reynzt
árangurslausar, beinist
athyglin nú einkum að kvið-
dómendunum. Bæði Moore,
aðalverjandi Angelu og sæk-
jendur leggja áherzlu á, að
reynt verði að finna i hann
fólk, sem lita muni á málið
Framhald á bls. 14.
wm-mmmmmmmmimm_mmmmmmmj