Tíminn - 07.03.1972, Side 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
i
i
SEMDIBILASTODIN HF
EINGÖNGU GÓÐIR BlLAR
—
c
55. tölublað - Þriðjudagur 7. marz 1972—56. árgangur.
Breytingartillögur við skattafrum-
varpið lagðar fram f gær:
145 þúsund í
frádrátt fyrir
einstaklinga
- og hjón, sem telja fram sitt í hvoru lagi
EB - Reykjavik.
Breytingartillögur og nefndarálit við stjórnar-
frumvarpið um tekjuskatt og eignarskatt voru i gær
lögð fram á Alþingi af fjárhagsnefndarmönnum
neðri deildar. Nefndin varð ekki sammála um
afgreiðslu frumvarpsins. í dag verður 2. umræða
um frumvarpið á fundi i neðri deild,og á sama tima
verður frumvarpið um tekjustofna sveitarfélaga
tekið fyrir á fundi i efrideild.
Meiri hluti fjárhagsnefndar,
fulltrúar stjórnarflokkanna,
leggja m.a. til í breytingartil-
lögum sinum aö frádráttur fyrir
einstaklinga skuli vera 145
þúsund krónur eöa 5 þús. kr.
meiri en lagt er til i frumvarpinu.
Frádráttur fyrir hjón veröi 145
þús. kr.,telji þau fram sitt i hvoru
lagi, en 220 þúsund, telji þau fram
sameiginlega.
Þá leggur meiri hluti nefndar-
innar til, aö tekjuskattur tekju-
skattskyldra skuli reiknast
svo:- Af fyrstu 50 þús. kr. skatt-
gjaldstekjum greiöist 25%, af tek-
jum 50 - 70 þús. kr. greiöist 35%,
af tekjum yfir 75 þús. kr. greiöist
44%. Ennfremur er lagt til aö tek-
juskatt gjaidenda,sem náö hafa 67
ára aldri á skattárinu, aö fjárhæö
5 þús. kr. eöa lægri, skuli fella
niöur. Tekjuskattsömu gjaldenda
aö fjárhæö 5 - 10 þús. kr. skuli
lækka þannig, aö lækkunin réni I
beinu hlutfalli viö hækkun tekju-
skatts.
1 frumvarpinu er lagt til aö
eignarskattur skuli reiknast
þannig,aö af fyrstu 100 þús. kr.
greiðist enginn skattur,og svo ák-
veöin prósenta eftir það. Meiri
hluti fjárhagsnefndar leggur til
að af næstu 100 þús. kr. greiðist
0,6% i stað 0,4% samkvæmt
frumvarpinu. Af þeirri skatt-
gjaldseign, sem þar er umfram,
greiöist 1% i staö 0,8% samkvæmt
frumvarpinu. Þá leggur meiri-
hlutinn til aö skattur af eignum
þeirra innlendu og erlendu félaga
og annarra skattskyldra aðila,
sem um ræöir i 5. grein skatta-
laganna, skuli vera 1,4% i stað
1,2% samkvæmt frumvarpinu, af
skattgjaldseign.
Þá leggur meirihlutinn fram
fleiri breytingartillögur, m.a. aö
auk frádráttar samkvæmt 1.-4.
málsgrein 14. greinar skatta-
laganna, skuli frá beinum tekjum
sjómanna af fiskveiðum á
islenzkum fiskiskipum draga 8%
teknanna, áður er skattur sé
lagður á þær.
Eins og fyrr sagöi verður 2.
umræöa um skattafrumvörpin i
deildum þingsins i dag. Þing-
fundirnir hefjast klukkan 2 eftir
hádegi.
- .
Forseti tslands dr. Kristján Eldjárn viö grafreiti hermannanna i Sundod í Helsinki, eftir aö hann haföi lagt
blómsveig á minnismerkið þar. Yfirforingi úr finnska iandhernum er til hægri, en á milli þeirra Haraldur
Kröyer sendiherra tsiands i Sviöþjóö og Finnlandi. (Timamynd Kári).
Forsetinn kominn heim:
Kvöddust lengi með
innilegu handabandi
KJ í Loftleiðaflugvélinni
Leifi Eiríkssyni yfir At-
lantshafi.
Það var langt og innilegt
handtak á flugvellinum í
Helsinki,þegar forsetar is-
lands og Finnlands kvödd-
ust þar í gær, skömmu eftir
hádegið að þarlendum
tíma, eftir hina mjög vel
heppnuðu Finnlandsheim-
sókn forseta Islands dr.
Kristjáns Eldjárns, frú
Halldóru Ingólfsdóttur og
fylgdarliðs þeirra. Finn-
land heilsaði í sól og kvaddi
i sól og blíðu, og við brott-
förina var virðuleg kveðju-
athöfn, þegar Kekkonen
Finnlandsforseti og finnska
ríkisstjórnin kvaddi hina ís-
lenzku gesti.
Sagöi forsetinn i viötali víÖ
islenzku blaöamennina sjö i for-
setahöllinni á sunnudagskvöldiö,
aö viðtökur allar i Finnlandi
heföu veriö alveg stórkostlegar,
og þessi heimsókn heföi fyllilega
náö tilgangi sinum, og vonandi
ykjust samskipti Finna og Is-
lendinga viö þessa heimsókn.
Fréttamaöur frá finnska sjón-
varpinu sagöi fréttamanni Tim-
ans, aö hann myndi ekki eftir þvi,
aö eins mikið hefði verið sagt frá
þjóöhöföingja upp á siökastið i
sjónvarpinu þar, eins og dr.
Kristjáni Eldjárn. Og hver var
svo ástæöan? Jú, hún var sú, aö
forsetinn væri sérlega viðkunnan-
legur maöur, og heimsóknin heföi
verið mjög vel heppnuð og Finnar
og Islendingar ættu mjög margt
sameiginlegt.
I Turku,
vinabæ Akureyrar
Arla á laugardagsmorguninn
héldu forsetahjónin og föruneyti
þeirra til Turku, sem er um
tveggja tima akstur i vestur frá
Helsinki, þegar ekiö er á yfir eitt
hundraö kilómetra hraöa aö jafn-
aði, og lögregla i lofti og á láöi sér
um aö bilalestin komist hindrun-
arlaust áfram. Þess má geta i
þessu sambandi, að fréttamaöur
Timans var i lögreglubifreiö frá
Turku til Helsingi, og á sextiu
kilómetra kafla á leiðinni var
meöalhraöinn 120 km á klst., en
aldrei fóru þó hraðamælisnálarn-
ar yfir 140 km markið, — þótt
stundum lægi við.
Fyrsti áfangastaðurinn i Turku
var Abo höllin. 1 þessari höll
bjuggu sænskir konungar á sinum
tima, og verður höllin 700 ára
gömul eftir átta ár. I henni eru
m.a. þrjár kirkjur og ein þeirra
gjarnan notuö fyrir brúðkaup og
þess háttar. Annars hefur höliin
verið endurbyggö, og þar bland-
ast saman nýi og forni timinn.
Innviöir hallarinnar brunnu, þeg-
ar gerö var loftárás á höllina áriö
1941. Endurbygging hallarinnar
hófst 1946 og stóð fram til ársins
1961.
1 hallargaröinum var tekið á
móti forsetahjónunum og
fylgdarliöi þeirra meö rauðum
renningum, lúðrablæstri og
heiðursverði. Eftir móttökuat-
höfnina var gengið um höilina
og snæddur þar hádegisverður I
boði borgarstjórnar Turku i
kóngasal kastalans.
Næst lá leiðin i dómkirkjuna i
Turku, en hún er ein þekktasta
kirkja Finnlands, og þar situr
erkibiskupinn. Aö lokinni
skoðunárferö um kirkjuna var
haldið I Sibeliusarsafniö.sem ný-
Frh. á bls. 15
„12 réttir” gefa
aðeins 12 þús. kr.
Þaö var tregablandin gleöi
aö hijóta 12 rétta I getraun-
unum um siðustu helgi.
Venjulegast gefa 12 réttir
nokkur hundruö þúsund
krónur i aöra hönd, en nú
voru samtals 51 meö 12 rétta
og hljóta aðeins 12 þúsund
krónur hver. — Sjá nánar á
bls. 16.
Bretar vísa útfærslunni til alþjóðadómstólsins — Sjá baksíðu