Tíminn - 10.03.1972, Síða 1
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Landhelgis-
rit á ensku
KJ — Reykjavík
Myndin hér að ofan er á
baksiðu litprentaðs kyn-
ningarrits um landhelgis-
tnálið á ensku, sem rikis-
stjórnin hefur gefið út og
verður m.a. sent 500
völdum, erlendum blöðum i
125 rikjum. Rit þetta nefnist
„Iceland and the Law of the
Sea”, og er höfundur ritsins
Hannes Jónsson blaðafull-
trúi rikisst jórnarinnar.
Myndin sýnir landgrunnið
umhverfis Island.
1 ritinu er m.a. gerð grein
fyrir efnahagslegri þýðingu
fiskveiða fyrir þjóðarbúskap
Islendinga: bent á hættuna
af ofveiði við Island: rakin
söguleg þróun hugmynda
fræðimanna um viðáttu
landhelgi: skýrt frá baráttu
tslendinga á alþjóðavett-
vangi fyrir þróun þjóðar-
réttar varðandi viðáttu fisk-
veiðimarka strandrikja,
talin upp hin mismunandi
landhelgismörk, sem gilda
viða um heim i dag: sýnt
fram á, að engin alþjóðalög
eru i gildi i dag um viðáttu
landhelgi og engin alþjóða-
lög banna útfærslu landhelg-
innar við Island i 50 milur,
talin upp þjóðréttarfraéðileg
og efnahagsleg rök, sem
styðja útfærslu fiskveiði-
markanna við Island, og
fleira.
t ritinu eru 6 tölutöflur með
upplýsingum um islenzkan
sjávarútveg.
Kynningarritið er 48 siður
auk litprentaðrar kápu i
stóru broti, prýtt fjölda lit-
mynda, myndrita og
teikninga, og eru röksemdir
tslands i landhelgismálinu
kynntar i máli, myndum,
myndatextum og mynd-
ritum.
Atvinnumennska
í íslenzkum
íþróttum ?
Mikil óánægja er meðal reyk-
viskra iþróttaforustumanna með
ásókn utanbæjaraðila i reykvíska
iþróttamenn.
Sjá iþróttasíðu bls. 16.
Eina ráðið að dæla
loðnunni í sjóinn
— segja skipstjórarnir á Súlunni og Helgu Guðmundsdóttur,
sem hafa beðið eftir löndun i Reykjavik í þrjá sólarhringa,
meðan aðrir bátar hafa landað að vild.
ÞÓ—Reykjavik.
Þo svo, að hinar ýmsu loðnuverksmiðjur á Suður- og Suðvesturlandi
hafi lýst þvl yfir á sinum tíma, aö loðnubátarnir fengju löndun eftir
þeirri röð, sem þeir kæmu til hafnar, þá hafa þær ekki staðiö við þau
orö sin.
Siðasta dæmið um óafsakanlegt
framferði forráðamanna
verksmiðjanna, er að Súlan EA
og Helga Guðmundsdóttir BA,
hafa þurft að liggja i Reykjavik
frá þvi á þriðjudagsmorgun og
enga löndun fengið. Á sama tima
hafa einhverjir „Klettskliku”
bátsrgetað landað að vild i Reyk-
javik. Nú er svo komið, að ef
Súlan og Helga Guðmundsdóttir
fá ekki löndun strax, eru mestar
likur á þvi, að loðnunni verði að
dæla i sjóinn, þar sem stutt er i
það, að hún verði ónýt.
Timinn hitti, þá Hrólf Gunnars-
son, skipstjóra á Súlunni og Filip
Höskuldsson, skipstjóra á Helgu
Guðmundsdóttur að máli i gær.
Þeir Hrólfur og Filip sögðu, að
Súlan hefði komið kl. 2 aðfarar-
nótt þriðjudags til Reykjavfkur,
en Helga Guðmundsdóttir hefði
komið á þriðjudag. Þegar
bátarnir komu til Reykjavikur
voru Asgeir, Asberg, Gisli Arni og
Þorsteinn að landa, og fengu þeir
hana strax og gátu þá farið út.
Stuttu seinna kom Reykjaborgin
inn til löndunar og var hún tekin
fram fyrir Súluna og Helgu,
Siðan koma þeir Asberg, Asgeir,
Gisli Arni og Þorsteinn aftur inn
til löndunar og fengu hana strax,
en Helga og Súlan voru látnar
biða áfram.
Það, sem okkur undrar mest,
sögðu Hrólfur og Filip, er, að á
sinum tima gaf verksmiðjan i
Reykjavik tilkynningu, sem m.a.
birtist i fréttum blaðanna, að
eftirleiðis yrðu bátarnir teknir til
löndunar eftir þeirri röð, sem þeir
kæmu til hafnar. Að auki sagði
Jónas Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sildar og fiskimjölsverk-
smiðjunnar, við útgm. Helgu
Guðmundsdóttur i fyrradag, að
jafnt yréi látið ganga yfir alla.
Ekki hefur hann staðið við þau
orð sin. Að auki hefur hann haldið
þvi fram, að bátarnir hafi ekki
verið „meldaðir” til löndunar,
sem er tóm vitleysa, enda báðir
bátarnir skráðir i dagbókina hjá
Grandaradiói.
Sem kunnugt er þá borgar
Verðjöfnunarsjóður hluta i loðnu-
veröinu og teljum við, að þegar
svona aðferðum er beitt, þá geti
forgangsbátar ekki notið hans.
Eöa er Verðjöfnunarsjóður ekki
eign allra sjómanna? í fyrrinótt
fengu þeir Hrólfur og Filip til-
kynningu um, að 100 tonn yrðu
tekin af hvorum bát, en það
gagnaði litið, þar sem Súlan var
með 450 tonn og Helga Guð-
mundsóttir 350.
Að lokum spurðum við skip-
stjórana: Hvað getið þið gert við
loðnuna, ef þið fáið ekki löndun i
nótt eða i dag?
— Eina ráðið, sem við höfum,
úr þvi sem komið er, er að dæla
loðnunni i sjóinn. Loðnan yrði
löngu ónýt áður en við værum
komnir með hana til
verksmiðjanna fyrir norðan eða
austan. Með þessu teljum við, að
sé verið að henda fengnum gjald-
eyri frá hinu opinbera.
Hér eru skipstjórarnir Hrólfur Gunnarsson, skipstjóri á Súlunni, til vinstri og Filip Höskuldsson á Helgu
Guðmundsdóttur. 1 baksýn eru Súla og Helga Guðmundsdóttir. (Timamynd Gunnar)
A/kötío/tvéía/t ALjf
iwmtwiKii, hmumtuti u. tím ium
^IERA
kæli-
skápar
V
Málin
rædd í
landhelgis-
nefndinni
EB — Reykjavik.
Jóhann Hafstein kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár á Alþingi I
gær og óskaði eftir þvi, að fjallað
yrði I landhelgisnefndinni um þær
yfirlýsingar, sem fram hafa
komið af hálfu ráöamanna Bret-
lands og V-Þýzkalands um út-
færslu landhelginnar.
ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, sagði að þessi ósk þing-
mannsins væri sjálfsögð og eðli
lcg. Yrði landhelgisnefndin kölluð
saman strax eftir helgi þar sem
fjallað yrði um þessi mál.
Forsætisráðherra sagöi enn-
fremur, að rikisstjórnin biði eftir
formlegum orðsendinum frá
stjórnvöldum Bretlands og V-
Þýzkalands um málið — og það
væri ýmislegt, sem þörf væri að
fá skýringar a' i sambandi við
málið.
— Ég hef lagt á það áherzlu,
einnig i viðtölum, sem ég hef átt
við fulltrúa þessara rikja, að við-
tölum yrði haldið áfram og ég
vona að svo verði, sagði forsætis-
ráðherra. Og að lokum sagði
hann:
— A þessu stigi sé ég að öðru
leyti ekki ástæðu til að gefa opin-
berar,yfirlýsingar, nema hvað ég
get að sjálfsögðu visað til þess,
sem sagt hefur verið i samþykkt
Alþingis og orðsendingu rikis-
stjórnarinnar, að samkomulagið
við Breta og V-Þýjóðverja frá
1961 eigi að áliti Alþingis og
islenzku rikisstjórnarinnar ekki
lengur við Island sé þvl sam-
kvæmt þvi samkomulagi ekki
skuldbundið til þess að hlita lög-
sögu Alþjóðadómstólsins.
Loðnan:
Austfjarða-
verksmiðjur
taka á móti
ÞÓ—Reykjavik
Loðnuverksmiðjur frá Vest-
mannaeyjun til Breiðafjarðar
hafa ákveðið að hætta móttöku
loðnu frá kl. 24 sunnudaginn 12.
marz. llinsvegar munu loðnu-
verksmiðjur á Austfjörðum halda
áfram móttöku loðnu, enda hefur
engin verksmiðja þar talið
ástæðu til að hætta móttöku, þó
svo að vcrð það, sem Verð-
jöfnunarsjóður greiðir fari lækk-
andi dag frá degi.
Sumar þeirra verksmiðja, sem
ákveðið hafa að hætta móttöku
loðnunnar, munu ekki taka á móti
neinni loðnu frekar, þar sem allar
þrær hjá þeim eru yfirfullar. 1
fréttatilkynningu frá þessum
verksmiðjum segir, aö ákvörðun
þessi sé tekin vegna þess, að
starfsgrundvöllur verksmiðjanna
sé brostinn, og gifurlegt verðfall
hafi orðið á loðnuafúrðum.
Þær verksmiðjur, sem- hætta
móttöku loðnu, eru: Fiskimjöls-
verksmiðja Einars Sigurðssonar
h.f. Vestmannaeyjum, Fiski-
mjölsverksmiðjan Vestmanna
eyjum, h.f., Meitillinn h.f.,
Þorlákshöfn, Fiskimjöl og lýsi
h.f., Grindavik, Útgerðarstöð
Guðmundar Jónssonar, Sand-
Framhald á bls. 19