Tíminn - 11.03.1972, Blaðsíða 3
Laugardagur 11. marz 1972.
TÍMINN
3
Myndin var tekin á aðalfundi Osta- og smjörsölunnar, sem haidinn var í gær. (Timamynd G.E.)
Blaðamannafélagið ætlar
að safna fyrir hjartabíl
til minningar um Hauk Hauksson blaðamann
A blaðamannafundinum f gær. F.v. Björn Tryggvason, Eggert As-
geirsson og Sigurður Samúelsson. (Timamynd G.E.)
Aðalfundur Osta- og smjörsölunnar
Sala á smjöri
jókst um 44%
á síðasta ári
KJ-Reykjavik.
A aðalfundi Osta- og smjörsölunnar, sem haldinn var I Reykjavík i
gær, kom fram, aö heildarsala fyrirtækisins á s.l. ári nam 854.2
milljónum króna, og hafði aukizt um 342.5 milljónir á árinu.
KJ-Reykjavik.
Blaðamannafélag islands hefur
ákveðið að gangast fyrir fjársöfn-
un til kaupa á fullkomnum
sjúkrabil, sem sérstaklega verð-
ur útbúin fyrir hjartasjúklinga.
Söfnun þessi fer fram til minning-
ar um Hauk Hauksson blaða-
mann, sem lézt fyrir ári, og hefur
eiginkona hans Margrét Schram
lagt fram eitt hundrað þúsund
króna stofnframlag.
Arni Gunnarsson formaður
Blaðamannafélags Islands skýrði
frá þessari ákvörðun stjórnar
félagsins á blaðamannafundi i
dag, en þar voru viðstaddir Björn
Tryggvason formaður Rauða
kross Islands, Eggert Asgeirsson
framkvæmdastjóri RKt og
Sigurður Samúelsson prófessor
fulltrúi Hjartaverndar.
Bilar eins og hér um ræðir, eru
orðnir algengir viða um lönd, og
eru ekki aðeins notaöir i sam-
bandi við hjartasjúklinga, heldur
einnig t.d. þegar um drukknanir,
raflost, eitranir og fleira er að
ræða. Arið 1969 fóru bilar sem
þessir i 1400 útköll I Osló, og þar
af var einn þriðji útkallanna
vegna hjartasjúklinga. Þá fór
billinn i 12 útköll vegna drukkn-
ana, og i sex tilfellum var hægt að
lifga fólkið við.
Prófessor Sigurður Samúelsson
sagði á blaðamannafundinum, að
Fólk vantar til vinnu
á Blönduósi
JT—Biönduósi.
Hér er nú yfirdrifin atvinna og
væri nær lagi að segja að fólk
vantaði fremur en að þvi væri of-
aukið. Er ýmislegt, sem að þessu
stuðlar og ekki hvað sizt hið
óvenju góða tiðarfar I vetur.
Hægt hefur verið að vinna aö
byggingum, sem á sumardegi. Og
hér hefur mikið verið byggt. A
árinu sem leið voru t.d. 24 ibúðar-
hús i smiðum. Þá var og reist
viðbygging við gagnfræðaskólann
og tekin i notkun i haust. Enn er
þó eftir að ganga frá lóðinni.
Kostnaður við þessa framkvæmd
var áætlaður 4—5 millj. kr. og er
þá lagfæring á lóðinni þar inni-
falin. Einnig var hér i byggingu, á
vegum kaupfélagsins, nýtt
sláturhús. Er þar tekið upp hið
svonefnda færibandakerfi. Gert
er ráð fyrir þvi að hægt verði að
slátra i húsinu 2500 fjár á dag
þegar fullum afköstum er náð,
sem eðlilega tekur sinn tima. Þá
stendur og fyrir dyrum frysti-
hússbygging og rekur hið nýja
sláturhús m.a. mjög á eftir henni.
einn þriðji af öllum dausföllum
hér á landi mætti rekja til krans-
æðastiflu eða þess háttar sjúk-
dóma. Samkvæmt könnun, sem
gerð hefur verið, létust alls 340
manns úr kransæðastiflu og
hjartasjúkdómum á höfuðborgar-
svæðinu 1971, og þar af létust 70
skyndilega heima hjá sér, en ef
hjartabill hefði verið fyrir hendi
hér, hefði örugglega mátt bjarga
mörgum.
Núverandi frystihús verður
algjörlega ófullnægjandi þegar
afkastageta sláturhússins er
komin i hámark.
Rekstur prjónastofunnar hér
skapar einnig mikla atvinnu,
einkum fyrir kvenfólk. Hentar sú
vinna húsmæðrum vel, þvi að þær
þurfa ekki, frekar en þær vilja, að
vinna nema hálfan daginn. Má
segja, að fremur sé skortur á
prjónakonum hér i kauptúninu en
hitt. Er til, að stúlkur utan úr hér-
aðinu komi til vinnu i prjónastof-
unni, en mikil brögð held ég þó
ekki að séu að þvi enn. Fyrirtæki
þetta, sem nefnist Pólarprjón, er
sérstakthlutafélag hér á staðnum
en rekstur þess er annars tengdur
Álafossverksmiðjunni.
Enn má nefna, að hér er rekin
plastverksmiðja, sem m.a. fram-
leiðir plastumbúðir fyrir Afengis-
og tóbaksverzlun rikisins.
Keyptar hafa verið tvær vélar til
verksmiðjunnar, en aðeins önnur
þeirra mun enn hafa verið tekin i
notkun. Óhætt mun að ætla, að
verksmiðjunni vaxi fiskur um
hrygg með meiri og fullkomnari
véla- og tækjabúnaði.
Loks eru það svo bila- og tré-
Bifreið eins og hér um ræðir,
með öllum búnaði kostar tæpar
þrjár milljónir króna, og er þá
reiknað með mjög fullkomnum
búnaði i honum.
Fjárframlögum i söfnun þessa
verður veitt móttaka hjá öllum
dagblöðunum. Eins og kunnugt
er, rekur Rauði kross íslands
sjúkrabifreiðar I Reykjavik, og
verður þessi hjartabill afhentur
RKI til rekstrar og umsjónar.
smiðaverkstæðin hér, sem alltaf
veita verulega atvinnu.
Byggingarvinna í fullum
gangi á Húsavík
ÞJ—Húsavik.
Hér er atvinnulifið með mesta
blóma. Veðurfarið á að sjálfsögðu
sinn góða þátt I því. Vegna mildi
þess hefur verið unnt að stunda
byggingavinnu í allan vetur, og
hygg ég það einsdæmi hér um
slóðir. Full vinna er I frysti-
húsinu. Hafin er nú rauð-
magaveiði, en ekki grásleppu-
veiði ennþá.
Vegir eru færir um allt sem á
sumardegi.
Leikfélagið æfir sjónleikinn
Júnó og páfuglinn, og er Ey-
vindur Erlendsson leikstjóri.
Frumsýning fer væntanlega fram
fyrir páska.
Jarðvinnsla stunduð
á Skaga
JJ—Skagaströnd.
Atvinnuástand má heita sæmi-
legt hér, eins og sakir standa.
Endurgreidd umboðslaun til
mjólkursamlaganna námu rösk-
um 17 milljónum króna.
Framkvæmdastjóri upplýsti á
fundinum, að búið væri að greiða
mjólkursamlögum allt andvirði
seldra vara á árinu 1971.
I stjórn Osta- og smjörsölunnar
Stefán Björnsson, forstjóri - for-
maður.
Erlendur Einarsson, forstjóri.
Einar Ólafsson, bóndi.
Grétar Simonarson, mjólkurbús-
stjóri.
Hjalti Pálsson, framkv. stjóri.
Jónas Kristjánsson, fv. mjólkur-
saml. stjóri..
Framkvæmdastjóri er Óskar
H. Gunnarsson.
Formaður stjórnarinnar,
Stefán Björnsson, forstjóri, st-
jórnaði fundinum og flutti skýrslu
stjórnar.
Framkvæmdastjórinn Óskar H.
Gunnarsson flutti skýrslu um
starfsemi fyrirtækisins á liðnu ári
Fjórir bátar leggja upp sjófang,
þar af tveir skclfisk. Afli hefur
verið allgóður á togbátana
siðustu dagana, og hafa þeir
fiskað út af Vestfjörðum. I bili
munu þvi allir karlmenn i vinnu
og talsvert af kvenfólki einnig. En
sá er hængur á, að vinna er ekki
nógu stöðug. Til þess að svo megi
verða, vantar okkur stærri tog-
skip, sem geta sótt lengra en þau,
sem við höfum nú.
Skipasmiðastöð Guðmundar
Lárussonar er i fullum gangi. Þar
eru nú i smiðum tveir 4 smál.
bátar og einn 12 smál. Þá var
stöðinni að berast efni i tvo 29
smál. báta svo að framundan er
þarna töluvert verkefni.
Enn má nefna, að Björgvin
Jónsson er að setja hér á lagg-
irnar saumastofu.
Úti á Skaga er hafin jarð-
vinnsla, og mun fátitt á þessum
árstima. Er það vél frá Búnaðar-
sambandinu, sem þarna er
byrjuð að vinna i flögum.
Kvenfélagið okkar æfir af
miklu kappi sjónleik, sem það
hyggst sýna á Húnavökunni.
Brýn nauðsyn er á verulegum
endurbótum á hafnargarðinum
hér. 1 haust var hann svo illa
farinn, að á timabili var ekki
hægt að fá skip til að leggjast hér
að bryggju. Bráðabirgðaviðgerð
fór þá fram á garöinum, svo að
hættulaust er nú fyrir skip að at-
hafna sig við hann. Allt um það
eru frekari endurbætur áriðandi
og mega illa dragast.
Þá er og mikil nauðsyn á endur-
byggingu Hrafnaárbrúar, sem er
á veginum milli Blönduóss og
Skagastrandar. Er brúin mjög lé-
leg orðin, m.a. handriðslaus.
Ekki bætir úr skák, að brekka er
að henni að norðanverðu. Þarna
hefur legið við stórslysum i hálku
og snjó, og verður brúin að teljast
mjög hættuleg allri umferð þarna
um veginn.
Einstakt að farin sé
Lágheiði á þessum tíma
BS—Ólafsfirði.
Atvinnuástand er hér ekki nógu
gott, þvi að afli hefur vcrið
tregur, en þó skárra s.l. viku en
þar á undan. t siðustu viku kom
Stigandi inn með 43 smái. og
og lagði fram og skýrði endur-
skoðaða reksturs- og efnahags-
reikninga fyrir árið 1971.
Heildarframleiðsla mjólkur-
samlaganna á árinu 1971 var:
Smjör 1430 lestir, ostur 1956 lestir,
nýmjólkurduft 709 lestir, undan-
rennuduft 679 lestir, Kasein 219
lestir.
Smjörframleiðslan dróst sam-
an um 80 lestir miðpð við áriö áð-
ur, en framleiðsluaúkning varð á
ostum og mjólkurdufti.
Veruleg söluaukning varð hjá
fyrirtækinu á árinu, sala á smjöri
varð 1063 lestir og jókst um 44%
miðað við árið á undan, og af ost-
um seldust 802 lestir, sem er um
13.5% aukning frá fyrra ári.
Útflutningur mjólkurvara jókst
einnig nokkuð á árinu og varð
sem hér segir:
Ostur 937 lestir, kasein 230 lestir,
nýmjólkurduft 643 lestir, undari-
rennuduft 75 lestir, súrmjólk 34
lestir, smjör 308 lestir.
Sæþór með 12. Afli netabáta var
hins vegar mcð tregara móti. A
hinn bóginn var heldur liflcgra
hjá linubátunum. Þeir hafa fengið
þetta 3—4 smál. i róðri. ltauð-
magaveiði er sæmilega góð, en
treglega gengur að losna við
aflann.
Veðurfar er hér með ein-
dæmum gott, svo að elztu menn
muna ekki annað eins. Snjólaust
er upp i mið fjöll. Við vorum hér
með skiðanámskeið fyrir skólana
i fyrri viku, en urðum að hætta
þvi i miðju kafi vegna snjóleysis.
Man ég ekki til þess, að slikt hafi
hent áður hér i ólafsfirði.
Vegir eru ágætir. Má þvi til
staðfestingar nefna, að maður
þurfti héðan inn i Stiflu um helg-
ina, og þá að sjálfsögðu að fara
Lágheiði. Fékk hann með sig
jeppa og gekk ferðin ágætlega. Er
Lágheiði sjaldfarin á bil um þetta
leyti árs, án þess að snjómokstur
komi til eða önnur aðstoð.
Leiksýningar á Logalandi
AK—Rvik.
únginennafélag Reykdæla i
Borgarfirði frumsýnir gaman-
leikinn „Saumiausi brúðguminn”
eftir Arnold og Back að Logalandi
laugardaginn 11. marz n.k. undir
leikstjórn Sverris Guð-
mundssonar leikara. Lciktjöld
hefur Ingibjörg Einarsdóttir gert.
Mikill áhugi er fyrir leikstarfi i
félaginu, enda á það kost á ágætri
leiðsögn Sverris. 1 fyrra sýndi fé-
lagið Gullna hliðið við miklar vin-
sældir og góða dóma. Talið er, að
þessi leiksýning sé nú orðin mjög
vel æfð og muni njóta mikilla vin-
sælda.
í gegnum fimm þing
EB— Reykjavik.
Allar likur eru nú á þvi, að
frumvarpið um sölu Holts i
Dyrhólahreppi, sem þingmenn
hafa fengizt við á siðustu fimm
þingum, verði samþykkt i efri
deild. Á fundi i deildinni á fimm-
tudag var samþykkt að visa
frumvarpinu til 3ju umræðu með
11 samhljóða atkvæðum.
Að lokinni 3ju umræðu fer svo
frumvarpið til neðri deildar. Um
afdrif þess þar, er náttúrlega
ekki hægt að fullyrða nú.