Tíminn - 11.03.1972, Page 5
' Laugardagur 11. marz 1972.
TÍMINN
5
■
BEiB
.Jlhx
ksá
Ákveða kynferði
ófæddra barna.
Franskur visindamaöur gerir
nú tilraunir með að ákveða kyn-
ferði ófædds barns með þvi að
ákveða mataræði móðurinnar
mánuði til sex vikum áður en
getnaður á sér stað. Hann hefur
gert tilraunir sinar á sérstakri
tegund sjávarorma, og hefur
getað vitað til um kynferði orm-
anna með algjörri vissu. Ekki
hefur honum gengið eins vel
með tilraunir sinar á froskum.
Þó hefur komið i ljós, að fleiri
karldýr verða til, ef potassium
er sett i vatnið, þar sem
froskarnir búa. Ef calcium eða
magnesium er bætt út i vatnið
verða kvendýrin fleiri. Mun
verr hefur gengið með þessar
tilraunir, þegar notaðar hafa
verið rottur við tilraunastarf-
semina. Arið 1967 var gerð til-
raun á kúm i Frakklandi.
Franska rikið greiddi kostnað-
inn. Alls tóku 82 mjólkurbændur
i Nordmandy þátt i tilrauninni.
Sömu aðferðir voru notaðar og
Mia ekki að skilja
Mia Farrow, tviburamóðir,
eiginkona André Previn, og eitt
sinn kona Frank Sinatra, segist
alls ekki vera i þann veginn að
skilja við hljómsveitarstjórann
mann sinn. — Ég skil alls ekki,
hvers vegna fólk er að koma
svona kjaftasögum af stað.
Hjónaband mitt er ekki ihættu.
Um þessar mundir leikur Mia
Farrow i kvikmynd á móti Jean-
Paul Belmondo, en leikstjórinn
er Claude Chabrol.
við ormana, og á eftir var sagt,
að árangurinn hefði verið mjög
jákvæður. Nú hafa konur boðið
sig fram til þess að taka þátt i
þessum tilraunum, og fara kon-
urnar i einu og öllu eftir matar-
uppskriftum þeim, sem pró-
1 fessor Stolkowsci, visindamað-
urinn, sem stendur fyrir þessum
rannsóknum ákveður. Konurn-
ar fá þó að ráða þvi, hvort þær
reyni frekar að eignast stúlku
eða dreng. Stolkowski hefur lagt
mikla áherzlu á það, að enn sem
komið er, sé ekkert sem bendi
til þess, að aðferðir hans eigi við
menn, eins og þær virðast þó
hafa átt við dýr. Hann segir
ennfremur, að ekki verði birtar
neir.ar upplýsingar um árang-
urinn fyrr en mjög margar kon-
ur, sem fylgt hafa fæðuvali
hans, hafi eignazt börn sin.
V
Caroline ástfangin
Caroline Kennedy er nú orðin
15ára gömul, og verður laglegri
með hverjum deginum, sem
iiður. Jackie Kennedy Onassis
móðir hennar veitir dóttur sinni
stöðugt meira frelsi, svo hún
megi þroskast og fullorðnast
sem mest óhindruð. Caroline
hefur mjög gaman af tónlist, og
fer oft i óperu og á tónleika.
Uppáhaldstónskáldið hennar er
Mozart. Nýlega fór Caroline
litla i óperuna, og varð þá yfir
sig ástfangin. Sá, sem hún varð
svona hrifin af, var hljóm-
sveitarstjórinn, Jean-Pierre
Marty, og eftir sýninguna á'
óperunni fékk hún að hitta hann-
Járnbrautir
i Sovét.
A timabili fimm ára áætlunar-
innar 1971—1975 verða lagðir i
Sovétrikjunum 11.600 kilómetr-
ar nýrra járnbrautarteina, og af
þeim verða 6 þúsund kilómetrar
fyrir rafmagnslestir, en það er
tveimur og hálfum sinnum
meira en lagt var á timabili sið-
ustu 5 ára áætlunar. Fjárfram-
lög til járnbrautarkerfisins
munu aukást um 60 prósent á
yfirstandandi fimm ára
áætlunartimabili.
A siðasta ári voru opnaðir til
umferðar 1200 kilómetrar nýrra
járnbrautarlagna og hliðar-
spora. Lagningu hinnar 700 kiló-
metra löngu járnbrautarlinu
Tjumen-Tobolsk-Surgut i Si:
beriu miðar vel áfram og fyrsti
hlutinn,220 km, verður'tilbúinn i
lok þessa árs. Hafizt verður
handa um fleiri járnbrautar-
lagnir i Stberiu á næstu árum. 1
áfsbyrjun 1972 voru rafmagns-
járnbrautir i Sovétrikjunum
samtals 35 þúsund km að lengd
eða fjórðungur allra rafmagns-
járnbrauta i heiminum.
# ■
Alltaf fjölgar
hótelunum á Spáni.
1500 milljón króna baðstaður
verður senn reistur i námunda
við Almeria á sunnanverðri
Miðjarðarhafsströnd Spánar.
Baðstaðurinn og hótelbærinn,
sem þarna á að risa,verður við
þorpið Puerto Rey, og þar er
ætlunin að hafa tæpra tveggja
&
V
km langa baðströnd og allmörg
hótel, sem samtals eiga að
rúma um 700 hótelgesti. Það er
brezkt ferðamálafyrirtæki, sem
ætlar sér að standa fyrir þessari
uppbyggingu, en það hefur nú
þegar komið sér upp ferða-
mannastöðum á Sardiniu,
Kiprus og á Ceylon.
☆
Hellum
breytt i hótel.
Akveðið hefur verið að breyta
forsögulegum hellum á Kanari-
eyjum i hótel fyrir ferðamenn.
Hellarnir eru á Grand Kanarí.
Hellarnir opnast allir út að 16
km langri klettasyllu, sem er i
3000 feta hæð. Er útsýni þaðan
einstaklega gott yfir mjög fall-
egan dal fyrir neðan. Ætlunin
er að öllum nútimaþægindum
verði komið fyrir i þessu
óvenjulega hóteli, þar á meðal
lendingarpalli fyrir þyrlur,
sundlaug og kappreiðavelli.
þV
Vodka
sifellt vinsælla.
Vodka-drykkja meðal F’rakka
fer nú stöðugl vaxandi. Er
aukningunni likt við það þegar
whiský náði vinsældum þar i
landi fyrir einum tuttugu árum.
Árið 1952 voru fluttir inn til
Frakklands um 180 þúsund
litrar af viskii, miðað við hreint
alkóhól. Arið 1955 var innflutn-
ingurinn orðinn tvöfalt meiri.
Arið 1960 var talan komin upp i
865 þúsund litra, og árið 1965 var
litrafjöldinn orðinn 4.065.000, og
barf hún aö gegna
störfum drottningar?
Benedikta Danaprinsessa er sú
dönsku prinsessanna, sem
minnsta athygli hefur vakið
fram til þessa. Það er i rauninni
ekki nema eðlilegt, þar sem
Margrét var lengst af rikiserf-
ingi, og nú orðin drottning, og
Anna Maria varð Grikklands-
drottning, og hefur mikið borið
á henni af þeim sökum. En nú
eftir að Friðrik Danakonungur
lézt er Benedikta orðin rikisarfi,
næst á eftir sonum Margrétar,
og það sem meira er.hún er eins
konar varadrottning, og henni
(ber að taka við skyldum systur
sinnar, hvenær sem hún þarf að
bregða sér frá, eða forfallast af
einhverjum sökum. Hún verður
þá að yfirgefa mann sinn,
Richard zu Sayn-Wittgenstein
og börn þeirra tvö og heimili i
Berleburg i Þýzkalandi, og flýta
sér heim til Kaupmannahafnar.
1 höll Ingiriöar drottningar,
Amalienborg, eru tvö herbergi,
sem alltaf biða komu hennar.
Þar er einnig starfandi hirð-
mey, sem verður hirðmey
Benediktu, á meðan hún er i
Danmörku. Börn Benediktu eru
einnig orðin rikiserfingjar, og
koma næst á eftir börnum
drottningarinnar sjálfrar ef til
erfða kemur.
árið 1970 var innflutningurinn
orðinn sex milljónir litra á ári.
Nú er röðin komin að Vodka að
risa upp á stjörnuhimininn
meðal drykkjarfanga Frakka.
Árið 1963 nam innfiutningurinn
frá Rússlandi og Póllandi aðeins
27.500 litrum af hreinu alkóhóli,
en á siðasta ári var innflutning-
urinn orðinn 126.300 litrar.
KAmNU
frúin. — Mér finnst bara svo
gaman að velta þeim.
Mörg vandamálin eru i lifinu.
Bjössi litli sat á tröppunum heima
hjá sér og virtist leiður á lifinu.
— Hvað er að, vinur minn?
spurði gömul kona, sem átti leið
framhjá.
— Palli og Gunna eiga fri i skól-
anum en ekki ég.
— Hvers vegna ekki þú?
— Af þvi að ég er ekki byrjaður
að ganga i skóla.
Unga stúlkan var að koma úr
partii, og móðirin vildi fá að vita,
hvernig það hefði verið.
— Það var stórkostlegt. Viggó
settist á allar stereoplöturnar,
svo við urðum að dansa eftir
frönsku tungumálanámskeiði
þarð sem eftir var.
Helgi litli er loksins kominn i
rúmið, og mamma breiðir yfir
hann sængina og segir:
— Sofðu nú vel, elskan min, og
ef þú verður þyrstur, þá kallaðu á
mömmu, þá kemur pabbi með
vatnsglas.
— Hvað á ég oft að segja þér
strákur, að þú mátt ekki leika þér
að tannkreminu?
Hún var að koma út úr búðinni
með fullan poka af appelsinum,
þegar pokinn rifnaði Þegar hún
stóð þarna bogin og var að tina
appelsinurnar upp, kom ungur
maður og spurði:
— Nei, rifnaði pokinn.
— Nei. ungi maður, svaraði
m
— Svona já. Afturfæturna með!
DENNI
DÆAAALAUSI
— Siðast þegar ég prófaði að
hringja, fckk ég samband við
stórfina gæja á Akureyri, hvar
svo sem það er nú a landinu.