Tíminn - 11.03.1972, Qupperneq 11
Laugardagur 11. marz 1972. TÍMINN 1]
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Fetar hann
í fótspor
föður síns ?
Fyrir tæplega
tveimur áratugum
lauk einstæðum
knattspyrnuferli
Alberts Guðmunds-
sonar á erlendri
grund. Nú er hugsan-
legt, að sonur hans
Ingi Björn Albertsson,
feti i fótspor föður
sins. Fyrir dyrum
stendur, að hann haldi
utan til náms með
vorinu, liklega til
Frakklands, þar sem
honum stendur til
boða að taka þátt i
æfingum franskra
knattspyrnuliða.
Ingi Björn, sem er 19 ára
gamall, hefur náö skjótum
frama í islenzkri knattspyrnu.
Hann lék meö öllum yngri
aidursfiokkum Vals og hóf aö
ieika með meistaraflokki
féiagsins aöeins 16—17 ára
gamall. Sfðan hefur hann
verið valinn til að leika meö
úrvalsliöum og hefur leikiö
iandsieiki meö ágætum
árangri.
Þegar franska landsiiöiö
var á ferö hér siðast, var Inga
Birni boðiö aö æfa meö frön-
skum liðum. Og m.a. stendur
honum til boöa að æfa meö
Racing Club de France i
Paris.
En hvort Ingi Björn Alberts-
son leggur fyrir sig knatt-
spyrnu I Frakklandi, er ekki
vitað ennþá. En alla vega
stefnir hann aö námi I Frakk-
landi — og hvaö er þá eöliiegra
en hann æfi knattspyrnu meö.
likt og faöir hans geröi
foröum, þegar hann var viö
nám ytra?
—alf.
Missir KR
enn einn
leikmann?
Iþróttasiöunni hafa borizt
þær fréttir, að hinn ungi og
efnilegi miðvörður KR, i
knattspyrnu Björn Árnason,
sem hefur verið skólaður til
að taka við hlutverki Ellerts
B. Schram i KR-liðinu, verði
þjálfari Þróttar i Neskaup-
stað i sumar — einnig mun
hann leika með félaginu,
sem leikur i 3. deild.
Er þetta enn ein blóðtakan,
hjá KR-liðinu, vi að Baldvin
Bandvinsson, hinn mark-
sækni miðframherji liðsins,
fer til Húsavikur i sumar
og þjálfar og leikur,
með 2. deildar liöi Völsunga.
Kemur þetta sér mjög illa
fyrir KR, þvi að vestur-
bæjarfélagið hefur verið að
yngja upp 1. deildar lið sitt,
og ná þvi ekki við að missa
tvo af leikreyndustu leik-
mönnum sinum, einmitt á
þeim tima þegar mest not
eru fyrir þá hjá félaginu —
þvi að leikreynsla þessara
manna getur orðið ungum
leikmönnum félagsins að
miklu gagni i hinni erfiðu
baráttu, sem er i 1. deildinni.
SOS.
Nú mun augun beinast
að Bilbao á Spáni!
w
Eslenzka landsliðið heldur utan á mánudaginn
Alf—Reykjavik.
"1 næstu viku munu augu is-
lenzkra handknattleiksunnenda
beinast aö spænsku borginni Bil-
bao, en þar mun Islenzka lands-
liöiö á næstu dögum heyja baráttu
fyrir þvi aö komast i handknatt-
leikskeppni Olympiuleikanna i
Miínchen. Fer Islenzka landsliöiö
utan á mánudaginn, en fyrsti
ieikur liösins veröur á miöviku-
daginn.
TIL LUKKU
ÍR-INGAR!
I dag eru liðin 65 ár frá stofnun
IR, en félagið hefur verið eitt
stærsta og öflugasta íþróttafélag
borgarinnar um marga áratuga-
skeið. Félagið hefur flestar
iþróttagreinar, sem stundaðar
eru hérlendis, á stefnuskrá sinni.
Nú siðast hefur ÍR tekið knatt-
spyrnu á stefnuskrá sina. Núver-
andi formaður IR er Gunnar
Sigurðsson, varaslökkviliðsstjóri.
IR minnist afmælis sins með
hófi 14. april.
Bein lýsing
frá Spáni
Alf—Reykjavik.
— Hinn vinsæli útvarpsfrétta-
maður, Jón Asgeirsson, heldur
utan til Spánar núna um helgina,
en hann mun fylgjast með leikj-
um islenzka landsliðsins og lýsa
þeim beint. Munu eflaust margir
biða spenntir við viðtæki sin, þeg-
ar Jón byrjar að lýsa frá Spáni.
Forkeppnin á Spáni er með þvi
sniði, aðkeppt er I fjórum riðlum,
a,b,c og d-riðli, og er tsland I a-
riðli ásamt Noregi, Finnlandi og
Belgiu. Tvö efstu lið úr hverjum
riðli komast áfram i milliriðil.
Verða milliriðlarnir tveir. Þannig
munu tvö efstu lið úr a og b-riðli
leiða saman hesta sina — og
sömuleiðis tvö efstu liðin úr c og
d-riðli. Úr hvorum milliriðli kom-
ast tvö lið áfram, þ.e. samtals
fjögur lið, sem tryggja sér þar
Framhald á bls. 10
Skjaldarglíman
háð á sunnudag
Stórviðburður i glimumálum
verður á sunnudag, 12. marz,
þegar 60. Skjaldarglima
Ármanns fer fram i iþróttahúsi
Vogaskóla við Gnoðarvog, og
hefst kl. 14.30.
Fyrsta Skjaldarglima Armanns
var háð 1908, og hefur verið háð
á'ríega síöan itan fiögur ár á tim-
um heimsstyrjaldarinnar fyrri.
Skjaldargliman er þvi elzta
iþróttamót, sem haldið er reglu-
lega i Reykjavik.
160. Skjaldarglímunni taka þátt
14 glimumenn frá 3 glimufélög-
um, 5 frá Armanni, 5 frá KR og 4
frá Umf. Vikverja. Meðal þeirra
eru tveir fyrrverandi Skjaldar-
hafar, þeir Sigtryggur Sigurðs-
son, sem vann til eignar
Ármannsskjöld á siðasta ári, og
Ómar úlfarsson. Þeir eru báðir
úr KR. Aðrir þátttakendur eru:
Sveinn Guðmundsson, Kristján
Tryggvason, Guðmundur Freyr
Halldórsson, Björn Hafsteinsson
og Guðmundur Ólafsson, allir úr
Armanni: Jón Undórsson, Rögn-
valdur ólafsson og Mattias Guð-
mundsson úr KR: Gunnar R.
Ingvarsson, Hjálmur Sigurðsson,
Sigurður Jónsson og Pétur Ingva-
son, allir úr Umf. Vikverja.
Sérstakir heiðursgestir á mót-
inu verða þeir glimumenn, sem
unnið hafa Skjaldarglimuna á
siðustu 10 árum, en þeir eru:
Hilmar Bjarnason, Ómar Úl-
farsson og Sigtryggur Sigurðs-
son. Þeir hafa allir unmö ár-
mannsskjöldinn fyrsta sinni á
timabilinu.
Skjaldargliman er háð nokkuð
siðar nú en oftast áður, þar sem
ekki hefur fengizt viðunandi
glimusalur til að keppa i fyrr.
Eins og fyrr segir hefst Sk-
jaldargliman kl. 14.30 i Iþrótta-
húsi Vogaskóla við Gnoðarvog,
sunnudag 12. marz, og mun forsti
ISÍ, Gisli Halldórsson, setja mót-
ið.
Ingi Björn Albertsson.
Laugardagur 11. marz.
Handknattleikur: Laugar
alshöll kl. 15.30, leikur i yngri
flokkum og l.og 2.deild kvenna.
Knattspyrna: Keflavikurvöllur
kl. 15.00 Keflavik við Viking i
Meistarakeppni K.S.I.
Badminton: Valshús — Unglinga-
meistaramót Reykjavikur kl.
14.00.
Körfuknattleikur: Akureyri 1.
deild Þór — UMFS kl 16. Seltjarn-
arnes kl. 19, Valur — IR.
Sunnudagur 12. marz.
Itandknattleikur: Laugardalshöll
kl. 13.00, leikur i yngri flokkun-
um. tþróttahús Hafnarfjarðar kl.
15.00 leikir i Revkjanesriðli yngri
flokka. Hraðkeppni H.R.R. verð-
ur i Laugardalshöllinni kl. 20.00.
Badminton: Valshús kl. 14.00 —
úrslit i Unglingam.móti Reykja-
vikur.
Glima: Iþróttahús Vogaskóla kl.
14.30, Skjaldarglima Armanns.
Knattspyrna: Vestmannaeyja-
völlur kl. 15.00 leikur i l.B.V. og
Landsliðsins (æfingaleikur).
Körfuknattieikur: tbróttahús Sel-
tjarnarness. kl. 19.30. 1. deild
HSK — KR og IS — Armann.
Knattspyrnuféiagiö Vikingur.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn i Neðri bæ, Siðumúla,
mánudaginn 13. marz kl. 20.15.
Hraðkeppni í handknatt-
leik hefst um helgina
Handknattleiksráð Reykjavik-
ur mun efna til hraðkeppni i
handkna111 eik dagana
12,—20,—22,—26. marz. Þátttöku-
aðilar i þessari keppni verða öll
Reykjavikurfélögin, ásamt F.H.
— Haukum — Gróttu — og
Breiðabliki. Fyrirkomulag
keppninnar verður þannig, að
félag verður úr leik við annan
tapleik. Leiktimi verður 2x10
min., og verði leikar jafnir þá,
skal framlengt i 2x3 min. Verði
enn jafnt eftir þann leiktima
skulu félögin skiptast á um að
taka vitaköst og nota til þess 5
leikmenn.
Keppnin hefst sunnudaginn 12.
marz I Laugardalshöllinni kl.
20.00.
I fyrstu umferð mótsins munu
eftirtalin félög leika saman:
K.R. — Þróttur, Fylkir —
Haukar, l.R. — Armann, Fram —
Grótta, Vikingur — Valir, F.H. —
Breiðablik.
I 2. umferð munu þau félög
leika saman, sem töpuðu i 1. um-
ferð, og svo þau lið sem sigruðu.
Mun verða dregið um hvaða félög
leika saman.