Tíminn - 11.03.1972, Side 15
TÍMINN
15
Laugardagur 11. marz 1972.
List um landið
Framhald af bls. 1.
hæsti linubáturinn. sem er
Þrymur, kominn með 460 tonn
frá áramótum, sagði Svavar
Jóhannsson. Maria Júlia, sem
einnig er á linu, er litið eitt
lægri.
Einn netabátur er gerður út
frá Patreksfirði, og hefur
hann aflað mjög vel, en hann
hefur landað miklu af sinum
afla á Ólafsvik.
Þá eru Pétur Thorsteinsson
og Hólmanes á trolli, og hafa
þeir aflað ágætlega, komi
með þetta 50 —60 i veiðiferð.
— Sjö bátar eru gerðir út
frá Eyrarbakka i vetur, og
hefur afli þeirra verið mjög
tregur það sem af er. Fyrst og
fremst er það gæftaleysi, sem
hefur háð þeim, sagði Hjörtur
Jónsson á Eyrarbakka.
— Eins og er, þá eru allir
Eyrarbakkabátar i Þorláks-
höfn, en höfnin hér er nú alveg
lokuð vegna brims. I vetur
hefur það oft komið fyrir, að
bátarnir hafa orðið að landa i
Þorlákshöfn, og hefur þá
aflanum verið ekið hingað á
bilum.
Næg atvinna er nú á Eyrar-
bakka, og eitthvað mun ennþá
vanta þangað af fólki.
Aðalsteinn Aðalsteinsson á
Höfn i Hornafirði sagði, að
tiðarfarið væri búið að
eyðileggja mikið fyrir Horna-
fjarðarbátum. Bátarnir hafa
fengið 16 — 17 tonn þegar
gefið hefur, og er heild-
daraflinn orðin heldur meiri
en á sama tima i fyrra, þó svo
að engin linuvertið hafi verið
frá Hornafirði i vetur.
11 netabátar eru nú gerðir út
frá Hornafirði og einn troll-
bátur. Heildarafli bátanna er
nú kominn eitthvað á þriðja
þúsund tonn.
Mikil og góð atvinna er nú á
Hornafirði, og vantar þangað
fólk.
Sigurgeir Kristjánsson i
Vestmannaeyjum sagði, að
tiðin hefði verið sérstaklega
slæm. — Það er alltaf hafátt,
og erfitt fyrir bátana að
stunda róðra. Þó svo að gefið
hafi, hefur aflinn verið mjög
tregur, og er, hann eitthvað
svipaður og á sama tima á s.l.
vertið, og var hann þá ekki
mikill. Frá Vestmannaeyjum
eru nú gerðir úr á milli 70 og
80 bátar.
Aflabrögð
Framhald af bls. 1.
til dvalar erlendis. A
árunum 1964-69 voru veittir 40
hliðstæðir styrkir. Þá er áformað
að veita 680.000 kr. i styrki til
fræðimanna og náttúrufræðinga.
Auglýst hefur verið eftir um
sóknum. og eiga þær að hafa
borizt fyrir 10 aprii.
Á undanförnum árum hefur
Menntamálaráð lagt aðaláherzlu
á bókaútgáfu, og áhugi er á að
halda henni áfram af fullum
krafti. í uppsiglingu er flokkur
þýddra merkisrita heimsbók
menntanna. A þessu ári kemur
út fyrsta verkið i þeim flokki,
Fást eftir Goethe i þýðingu Yngva
Jóhannessonar, sem leikið var i
Þjóðleikhúsinu i fyrra. Bóka-
flokkur þessi kemur i tvenns
konar útgáfu: annars vegar i
fallegu bandi, en hins vegar
ódýrari búningi, sem einkum er
ætlaður skólafólki og öðrum, er
takmörkuð fjárráð hafa.
Fyrstu bækurnar i alfræði-
safninu eru unnar i Prent
smiðjunni Odda, Sveinabókband-
inu, Auglýsingastofunni h.f., en
Prentþjónustan gerði myndir i
þær.
1 Stjörnufræði dr. Þorsteins
Sæmundssonar birtast i fyrsta
sinn stjörnukort yfir allan himin-
inn með islenzkum nöfnum Bók
Þorsteins og Bókmenntir Han-
nesar Péturssonar skálds eru
báðar uppflettibækur, en efni
þeirra var upphaflega samið fyrir
stóra Alfræðiorðabók, sem stóð til
að Menningarsjóður gæfi út. 1
fyrra var horfið frá þvi ráði og
ákveðið að gefa fremur út safn
bóka um margvislegustu fræði,
og endurskoðuðu höfundarnir
verk sin með hliðsjón af þvi.
Næstu bækur i alfræðisafninu
koma væntanlega út i vor. Þær
eru islenzkt rithöfundatal eftir
Hannes Pétursson, bók um
læknisfræði, sem Guðsteinn
Þengilsson læknir leggur
drýgstan hlut til, önnur um
lögfræði, og er Sigurður
Gissurarson lögfræðingur aðal-
höfundur hennar.
Páll Bergþórsson hefur samiö
veðurfræði fyrir alfræðisafnið, og
kemur hún væntanlega i bók með
jarðfræði, sem Guðmundur
Kjartansson er langt kominn að
skrifa.
Þá er m.a. i ráði að gefa út
bækur um tónlist, Asatrú og þjóð-
trú, en Alfræði Menningarsjóðs
getur með timanum orðið tugir
bóka, ef vel gengur.
TILBOÐ ÓSKAST
Spennið
FORD
fyrir plóginn
ÓBREYTT VERÐ? — FORD BÝÐUR BETUR!
Aukin afköst stytta vinnutimann. Hin mikla vélarorka og dráttarhæfni
FORD traktoranna gerir þér kleyft aö nýta stór landbúnaðartæki með fullum
afköstum dag hvern árið um kring. 100% óháð vökvakerfi.
8 hraða gírkassi og fullkomlega óháð aflúrtak, sem skipt er með einu hand
taki. Yfirstærð á hjólum. Gæðin tryggja lágan viðhaldskostnaö og hæsta
endursöluverð.
LÁTIÐ FORD „HARÐJAXLANA" LÉTTA YÐUR BuSToRFIN!
ÞÖRHF
REYKJAVIK SKOIAVOROUSTIG 25
TRAKTORAR
PANTIÐ
FORD TRAKTOR
FYRIR 20.MARZ
i nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar
að Grensásvegi 9, miðvikudaginn 15.
marz, kl. 12—3. Tilboðin verða opnuð i
skrifstofu vorri kl. 5.
Sölunefnd Varnarliðseigna
Þrastalundur
Veitingaskáli UMFÍ i Þrastaskógi er til
leigu næsta sumar. Tilboð óskast send i
skrifstofu Ungmennafélags Islands,
Klapparstig 16, eða i pósthólf 406, fyrir 30.
þessa mánaðar.
Ungmennafélag íslands
Aðstoðarmaður félagsráðgjafa
Kleppsspitalinn óskar eftir að ráða að-
stoðarmann til starfa hjá félagsráðgjafa.
Upplýsingar gefur félagsráðgjafi Klepps-
spitalans i sima 38160.
Umsóknir sendist Skrifstofu riki spital-
anna, fyrir 17/3 ’72.
Reykjavik, 10. marz 1972.
Skrifstofa rikisspitalanna
Eiriksgötu 5.
í kvöld og
sunnudagskvöld
Plötusnúður:
Annel Borgar
Þorsteinsson
NÝJUSTU
P0PPLÖGIN
Munið nafnskírteinin
DISKÓTEK