Tíminn - 11.03.1972, Qupperneq 16

Tíminn - 11.03.1972, Qupperneq 16
OEIRDIR A SPANI Laugardagur 11. marz 1972. Beittu vélbyssum gegn óánægðum verkamönnum ovísi að -------------------- Bretar fari aftur til Möitu NTB—Madrid Einn maöur lét lífið, og aö minnsta kosti 20 slösuðust, er lögregla hóf vélbyssuskothrið á 3000 manna hóp verkamanna í skipasmíðastöðinni i El Ferrol á Spáni, en verka- mennirnir voru að mót- mæla því, að sex félögum þeirra hafði verið sagt upp störfum hjá stöðinni, sem er rikisfyrirtæki. Þrírhinna særðu eru i lífshættu. Óeirðirnar i E1 Ferrol, sem er á Norð-vesturhorni landsins, hófust á fimmtudaginn, og þá særðust tveir lögreglumenn og sjö verka- menn. Skipasmiöastöðvarnar i EI Ferrol eru meöal hinna mikil- vægustu i landinu, og þar eru m.a. smiðuð herskipin handa spánska flotanum. Óeirðirnar i gær eru sagöar hinar verstu, sem orðið hafa á Spáni i hálft ár. Lögreglan var kvödd á vettvang til að dreifa verkamannahópnum, sem tók á móti lögreglumönnunum með grjótkasti og kylfuhöggum. Lögreglumennirnir drógu þá fram vélbyssurnar og skutu á hópinn. Frumorsök óláta þessara mun vera óánægja verkamannanna vegna þess aö landssamband verkamanna, sem er undir eftir- liti rikisins, féllst á kaupsamning, sem verkamönnunum finnst of lágur. Talsmaður rikisstjórans i þessum landshluta sagði, aö lög- reglan hefði neyözt til að skjóta i sjálfsvörn, og að það væru kommúnista - „sellur” innan skipasmiðastöðvarinnar, sem ættu alla sök á þessu. Brezkir togaramenn Vilja enga samninga SH-Kcykjavík. Togaraútgerðarmenn i Hull hafa algjörlega hafnað uppást- ungu tslendinga um viðræður um aölögunartima og timabundnar veiðar innan 50 miina landhelgi tslands. í blaðinu Fishing News . segir, að togaraútgerðarmenn \( Hrctlandi og V-Þýzkalandi búisf ekki við þvf, að ríkisstjórnir þeirra fallist á, að v-þýzkum og brezkum togurum verði meinað- ar veiðar á tslandsmiðum. Brezkir togaraútgerðarmenn segjast ekki vilja eiga i neinum samningum við tslendinga, enda felist i slikum samningum réttur Islendinga til aö semja um yfir- ráð yfir landgrunninu, sem er- lendir togaramenn geti ekki fall- izt á. Jack Jones, formaður samj bands berzkra flutningaverka; manna, sagði i dag, að hart væri lagt að sambandinu að leggja innflutningsbann á allar islenzkar vörur, ef tslendingar geri alvöru úr þeim fyrirætlunum sinum að færa út landhelgi sina i 50 milur. Slik útfærsla mundi koma mjög illa við þá menn, sem eiga allt sitt undir togaraútgerð við tslands- strendur, og ýmis verkalýðsfélög á Bretlandseyjum leggi nú hart að sambandi flutningaverka- manna að beita sér gegn tslend- ingum. Jones lét I ljós þá von i dag, að samningaviðræður gætu hafizt við fulltrúa islenzkra verkalýðsfélaga um lausn þess- ara mála. Hrezka konungsfjölskyldan hcfur gert vlðreist á austurhveli jarðar siðustu vikurnar. Þegar hinn almenni brezki borgari kúrði heima I kulda og trekki vegna kolaverkfallsins á dögunum, spókaði kóngafólkið sig I sól- inni i Thaiiandi og Indónesiu. Þessi mynd var tekin af þeim Elisabetu, Philip og önnu, er þeim var róið yfir ána Sarawak á llorneo. DDT I T0BAKI ER 50 SINNUM MEIRA EN LEYFILEGT ER NTB — Oslo Þær fréttir hafa borizt, að i sumu tóbaki sé allt of mikið magn af DDT. Jafnvel svo, að hættulegt geti talizt. Tóbaksframleiðendur segja, að áætlanir hafi verið um,að þeir kæmu upp sinni eigin stofnun til að fylgjast með þessu, en það hafi hingað til ekki reynzt nauðsynlegt, þvi landbúnaðaryfirvöld i þeim löndum, sem framleiða tóbak, hafi sett strangar reglur um úðun plantnanna með DDT. Það kom fram viö rannsókn i Sviþjóð nýlega, að allt of mikið magn ef DDT er i tóbaksvörum þar á markaðnum. Tóbaksfram- leiðendur vilja meina, að mestur hluti efnisins brenni við reykingu tóbaksins, en læknar eru ekki á sama máli. Sérfræðingar við há- skólann i Uppsölum segja, aö DDT-magnið i tóbaki, sem unnið er i Sviþjóð, sé frá 10 - 50 sinnum meira en leyfilegt er, t.d. i mat- vörum. Segja þeir rannsóknina hafa leitt i ljós m.a., að mun meira magn af DDT sé i móður- mjólk þeirra kvenna sem reykja, en hinna. - þó að Mintoff skipti um skoðun NTB — l.ondon Brottflutningur brcz.kra her- nianna frá Möltu lieldur alltaf áfram, mcðan stjórnirnar i London og Valletta þjarka um gjaldið fyrir herstöðvarnar. Hreta tclja sig geta verið búna að koma öllum eigum sinunt frá eynni fyrir mánaðamót, enda skyldir til þess, ef samningar takast ekki fyrir þann tima. Áreiðanlegar brezkar heimildir segja, að það sé alls ekki gefið mál, að Bretar fari aftur til Möltu, þótt Mintoff kunni að skipta um skoðun, þegar allt herliðið er farið frá eynni. Sömu heimildir segja, að siðasta tilboð Breta og Nato til Mintoffs sé alls ekki lokatilboð, þannig að hægt ætti að vera að taka málið til nýrrar athugunar. Tilboðið hljóðar upp á 14 milljónir punda, en Mintoff vill fá 18 milljónir. Hann flaug til London um helgina til frekari samningaviðræðna, en allt fór i strand rétt einu sinni. Samningaviðræðurnar hafa nú staöið i hálft ár Stríðsglæpa- menn sýkn- aðir í Vín NTB — Vinarborg Fyrstu striðsglæparéttar- höldunum i Austurrlki lauk með þvi i gær, að báðir hinir ákærðu voru sýknaðir, þar sem sönn unargögn skorti. Þeir eru fyrr verandi stormsveitarmenn, og ákæran hljóðaöi upp á þátttöku i fjöldamorðunum I Auschwitz- búðunum i siðari heims- styrjöldinni. Þar voru allt að 4500 manns myrtir og brenndir dag- lega. 254 kíló af morfíni NTB-Istambul. Tyrkneska lögreglan lagði á föstudag hald á 108 kiló af óunnu morfini. 1 fyrri viku var tyrkneskur öldunga- deildarþingmaður handtck- inn i Frakklandi með 146 kíló af morfini i bil sinum. Tyrkneska lögrcglan álitur samband þarna á milli. Taka sterk vín fram yfir bjór NTB — Bergen Flestir norskir unglingar taka sterkt vin fram yfir áfenga bjórinn, að þvi er segir i niður- stöðum könnunar, sem áfengis- eftirlit norska rikisins lét fram fara fyrir sköminu. 1 könnuninni voru unglingarnir spurðir, hvort þeir vildu heldur, sterkt vin eða áfengan bjór. Fimmtán ára unglingar skiptust nokkuð jafnt, en frá 16 ára og upp að tvitugu vildi mikill meirihluti sterku vinin. Könnun þessi er hin fyrsta um þessi efni i Noregi, og er enn ekki fullunnið úr niðurstöðum hennar. 2047 unglingar á aldrinum 15 — 20 ára voru spurðir, og bárust svör frá 65%. Fiknilyf og tóbak voru ekki á dagskránni i þetta sinn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.