Tíminn - 14.03.1972, Blaðsíða 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
r
SEXDIBIL AS TOÐIN HF
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Akkeri
„gull-
kipsins
fundið
framan við Skaftafell
rr
ÞÓ-Reykjavík.
EV-Kirkjubæjarklaustri.
Nú er talið, að búið sé að
finna akkerið af „gull-
skipinu” marg umtalaða,
sem strandaði við Skeiðarár-
sand á 16. öld. Það voru þeir
Bergur Lárusson, Kristinn
Guðbrandsson og félagar
þeirra, sem urðu varir við
akkerið, er þeir voru að leita
að þvi sunnan við Skaftafell
nú fyrir helgina.
Sögusagnir eru til um það,
að akkerið hafi verið flutt
upp undir brekkurnar
sunnan við Skaftafell eftir að
gullskipið strandaði. En
bændur þar munu hafa ætlað
að nota akkerið til smfða.
Ekki er búið að grafa
akkerið upp, en nokkuð
djúpt er á þvi. Aö auki er
mikil bleyta þarna i sandinuir;;
og mun það kosta dálitla
fyrirhöfn að grafa akkerið
upp.
Bergur Lárusson sagði, er
við ræddum við hann#að hann
þyrði nú ekki alveg að
fullyrða það, að hér væri um
akkeriö úr skipinu að ræða.!
Hinsvegar er hér um stórt
járnstykki að ræða,og það er I
Framhald á bls. 19
Ljósmyndin var tekin i siðasta Skeiðarárhlaupi. Uppdrátturinn sýnir Skeiðará og Grimsvötn, cn þar eiga hlaupin upptök sin.
„Gæti bezt triíað að Skeiðarár-
hlaup væri á næstu grösum”
ÞÓ-Revkiavik.
„Skeiðará hefur verið i hægum
vexti siðustu daga og ég sé mun á
henni frá þvi i gær. Bezt gæti ég
rúað, að Skeiðarárhlaup væri á
næstu grösum”, sagði Ragnar
Stefánsson bóndi i Skaftafelli, i
viðtali við Timann i gær.
Ragnar sagði, að i siöustu viku
hefði verið rigning og þar af leið-
andi hefði öll vötn aukizt til muna,
en þegar það byrjaði að fjara i
þeim, varð Skeiðará eftir og
vatnsmagnið i henni hefur aukizt
dag frá degi.
Ekki sagðist Ragnar geta
ennþá gert sér grein fyrir, um
hvort hér væri um smávægilega
jökulþjðu að ræða eða stórhlaup.
Þetta kemur allt i ljós á næstu
dögum, sagði hann, en ég held
samt, að hér sé um stórhlaup að
ræöa. Ain hagar sér alveg eins og
i siðustu hlaupum, en vanalega
tekur það ána um það bil tvær
vikur að komast i algleyming.
Kramhald á bls. 19
KVEIKT A LITLA-HRAUNI
('rimamynd JBS)
Litla-Hraun stendur i ljósum logum á sunnudagskvöld
Fangarnir 34 reknir í útihús, og fluttir í
bifreið til Reykjavíkur. Reynt að gera við
nýja húsið ó Litla-Hrauni til brdðabirgða.
OÓ-Reykjavik.
:i4 föngum á Litla-Ilrauni var
ekiðtil Reykjavikur á sunnudags-
kvöld, eftir að eldur kom upp i risi
fangahússins. Er talið vist að um
ikveikju sé að ræða. Tveim fang-
anna, sem voru á Litla-Hrauni,
tókst aö strjúka, en þeir voru
handsamaöir á leiöinni til Reyk-
javíkur.
Eldurinn kviknaði laust fyrir
kl. niu á sunnudagskvöld. Voru
flestir fanganna þá aö horfa á
sjónvarp, en kveikt var i blaða-
bunka á rishæðhússins. Er vist að
einhver hefur kveikt i blaða-
bunkanum, en hver hefur verið
þar að verki er ekki vitað. Það
var i þvottahúsi vistheimilisins,
sem eldurinn var mestur, en blöð-
in voru i geymslu þar fyrir
framan. Auk fangavaröa hafði
einn fanginn lykil að rishæðinni,
en hann sá um þvottavélar og
önnur tæki, sem þar voru geymd.
Ekki beinist grunur að þeim
manni öðrum fremur, enda getur
hver fanganna sem er hafa tekið
lykilinn frá honum og komizt
þannig á loftið.
Slökkviliðið á Eyrarbakka og
Selfossi komu fljótlega á vett-
vang, og gekk vel að slökkva eld-
inn. Voru allir fangarnir drifnir út
og settir i annað hús á lóö-
inni, sem annars er notað sem
vélaviðgerðarverkstæði. Markús
Einarsson forstöðumaður
fangelsisins sagði Timanum,.að
fangarnir hefðu allir verið rólegir
meðan á brunanum stóð.og hafi
ekki komið til neinna vandræða
með þá, nema aö bvi undan-
skildu, að tveir þeirra notuðu
tækifærið og struku.
Þeir stöðvuðu jeppabil, sem var
á leiðinni til Selfoss, og fengu far
með honum. A Selfossi tóku þeir
leigubil og báöu bilstjórann að
aka sér til Reykjavikur. Lögregl-
an á Selfossi komst fljótlega að
þvi i hvaða bíl þeir voru,og var
billinn stöðvaður við Rauðavatn
og fangarnir handsamaðir þar.
Meðan á brunanum stóð voru
allir fangaverðir á Litla-Hrauni,
16 talsins, kallaðir á staðinn,og
einnig komu þangað lögreglu-
menn frá Selfossi og Reykjavik.
Undir miðnættið voru svo fangar-
nir fluttir i rútubil til Reykja-
vikur. Voru þeir settir inn i Hegn-
ingarhúsið við Skólavörðustig og I
fangageymsluna i nýju lögreglu-
stööinni við Snorrabraut, 17 á
hvorn stað. t lögreglustöðinni er
vond aðstaða til að geyma refsi-
fanga. Þar er litið og ónógt eld-
hús, en einhvern veginn verður að
geyma mennina þar til þeir verða
sendir aftur austur að Litla-
Hrauni.
1 fangahúsinu á Litla-Hrauni er
nú allt fljótandi i vatni,og allar
rafleiðslur eru ónýtar af vatni.
Það tekur að minnsta kosti tvær
vikur að koma rafmagninu i hús-
inu I lag. Nær er lokið við að reisa
nýja álmu við fangahúsið, en
hún er ekki alveg tilbúin enn sem
komið er, en sjálfsagt verður
framkvæmdum við hana nú
hraðað,svo að hægt verði að koma
refsiföngunum þar inn. En þar er
Frh á bls. 3