Tíminn - 17.03.1972, Síða 1

Tíminn - 17.03.1972, Síða 1
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA r N SE NDIÖIL A S TOÐIN HF EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR Fært yfir Möðrudals- fjallgarð í allan vetur JK- Egilsstöðum. Einmuna tfðarfar hefur verið hér á Héraði sfðan um áramót þó að all úrkomusamt hafi verið og rignt mikið. Nú sfðustu daga hefur verið þurrt og allhvasst. Mikið hefur þornað til. Allir verið eru nú værir og klaki vfða farinn úr vegum hér um slóðir. Til Húsavikur var farið á jeppa um helgina og var billinn aðeins fimm tima frá Egilsstöðum til Húsavikur, og er vegurinn eins og að sumardegi. Möðrudalsfjall- garður mun hafa verið fær i svo til allan vetur. Vekur það furðu manna hér um slóðir, að vega- gerðin virðist forðast að geta þess, að þessi fjallvegur sé fær. Virðist vera farið með þetta mál eins og mannsmorð og ekkert ætl- azt til að það fréttist. bó að færð sé talin upp á öllum vegum lands- ins, þá er aldrei minnzt á Möðru- dalsfjailagarð, sem er n nú einu sinni einu fjallvegurinn milli tveggja landshluta. A Héraði er fært frá innstu dölum til sjávar, og er algjörlega snjólaust, þannig að elztu menn muna ekki annað eins. Feiknaleg hreindýrahjörð er fyrir innan bæinn Húsey i Hróars- tungu. Bærinn er yzti bær i Tung- unni og virðast dýrin, sem verið hafa þarna alllengi, kunna vel við sig úti við sjóinn. FROSTLAUS JÖRÐ BJARGAR VEGUNUM ÞÓ-Reykjavík. Engar teljandi skemmdir hafa orðið á vegum hér sun- nanlands i úrhellinu, sem ver- ið hefur siðastliðinn sólar- hring. Starfsmenn hjá Vegagerð- inni sögðu, að nokkrar litlar aurskriður hefðu fallið i Hval- firði, en þær væru ekki til trafala. Þar sem frost er ekk- ert i jörðu, hefur regnið sigið mun fyrr i jörðina, og þar af leiðandi situr miklu minna vatn uppi, en ella. Dagskrá út- varps og sjón- varps fylgir með blaðinu Sjómaður úr Eyjum fluttur í lífshættu á sjúkrahús í London Varnarliðsflugvél fór með klukkutíma fyrirvara með manninn ásamt læknum KJ.-ÞÓ-Reykjavik. 21 árs gamall skipverji á einum Vestmannaeyjabát- anna slasaðist mjög mikið laugardaginn 5. marz, er hann lenti i spili bátsins, sem hann var á. Maðurinn var strax sendur með sjúkraflugvél til Reykjavikur, þar sem aðgerð vargerðá honum. Leið honum sæmilega þangað til i gær, að i Ijós kom að aðalslagæðin við hjartað var rifin og hætta á að hún rifnaði alveg inn að hjart- anu. Ekki var hægt að fram- kvæma aðgerð á honum hér á landi, og var ieitað til varnar- liðsins á Keflavikurflugvelli með flugvél. Brást varnarliðið fljótt við og gat með stuttum fyrirvara sent hraðfleyga flutningavél af gerðinni C-130 Herkules með manninn til London en þar átti að fram- kvæma aðgerð á honum I gær- kvöldi. Grétar ólafsson, læknir á Landsspitalanum, sagði i gær, að tveir læknar, þeir Arni Kristinsson og Jón Hallgrims- son hefðu farið með mennin- um til London. Herkules vélin fór frá Keflavik kl. 15 i gær og var reiknað með 3 tima flugi til Norphstop flugvallar við London, en þaðan var maður- inn fluttur á Hammersmith sjúkrahúsið, þar sem aðgerð- ina átti að gera i hjarta og lungnavél. Grétar sagði, að engin hjarta- og lungnavél væri til á íslandi, en bráðnauðsynlegt að hún kæmi sem fyrst. begar flugvélin kom til Norphstop herflugvallarins biðu þar læknar og sjúkrabill. Skattafrum- varpið sam- þykkt f gær Tekjustof nafrum varpið afgreitt í dag EB—Reykjavfk. Tekju- og eignarskattsfrum- varpið var samþykkt á Alþingi siðdegis i gær við lok umræðna um það i efri deild þingsins. Vonir slóðu til um, að hægt yrði sömu- leiðis að afgreiða frumvarpið um tekjustofna svcitarfélaga á Alþingi i gær, en þar eð tals- verðar umræður urðu cnn um það i þinginu, og stóðu til kvölds, var ákveðið aö fresta þvi til morguns. Hins vegar afgrciddi neðri deild frumvarpiö i gærkvöldi. Þar eð neðri deild hefur gert litillegar breytingar á tekju- stofnafrumvarpinu þarf að senda það aftur til efri deildar, sem af- greiddi það fyrir nokkrum dögum. Verður ein umræða um frumvarpið i efri deild i dag og hefst þingfundur þar kl. hálf tvö, eða hálfum klukkutima fyrr en venjulega. Er það gert til þess að efri deild verði búin að afgreiða frumvarpiö, áður en fundur hefst i Sameinuöu Alþingi kl. 2. Herkulesvélin, er sennilega stærsta flugvél, sem notuð hefur veriö i sjúkraflug á islandi. Þessi mynd var tekin, er verið var að fara með sjúklinginn um borð i vélina. Ijósm. Heimir Stigsson. Bryggjurmr í Grindavík fóru á kaf í miklu flóði Stærsta flóð sem komið hefur í Þorlókshöfn Þó-Reykjavik. Gifurleg flóð voru i Grindavik og Þorlákshöfn i gærkvöldi. Allar bryggjur i Grindavik fóru i kaf, og mun sjórinn hafa veriö i 1 metra hæö yfir bryggjum i Grindavík, er flóðið var mest. Flóðhæðin náði hámarki, á sjötta timanum og var þá algjör- lega ófært eftir bryggjunum og hefði getað farið illa, ef ekki hefði verið frekar lygnt á höfninni. Guðsteinn Einarsson frétta ritari Timans i Grindavik sagði, að ekki væri vitað um tjón af völdumflóðsins, en menn gerðu ráð fyrir, að það væri eitthvað, en þó ekki eins mikið og varð i flóð- inu fyrr i vetur. Netabátarnir hafa ekki komizt á sjó i nokkra daga og er gert ráð fyrir að svo verði áfram. Bátarnir eiga allir net i sjó og telja menn vist, að þeir hafi orðið fyrir miklu veiðarfæratjóni. 1 Þorlákshöfn fór flóðið að sljákka um kl. 7 i gærkvöldi. begar það var mest fylgdi sjórinn bryggjuköntunum og mátti þvi engu muna að flæddi yfir bryggjúrnar. Það bjargaði þvi, að ekki hlauzt stórtjón af, að ékki var hvasst. Nokkurt brim var, en þess gætti ekki inni i höfninni. I Þorlákshöfn hafa ekki komið stærri flóö i manna minnum, en i gær, en einstaka sinnum hafa flóðin náð allt eins hátt upp. Margir bátar voru i höfninni, en ekki er vitað um að tjón hafi orðið á þeim, en þeir slógust talsvert saman, þegar flóðið var hvað mest.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.