Tíminn - 17.03.1972, Qupperneq 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
r
N
SE NDIÖIL A S TOÐIN HF
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Fært yfir
Möðrudals-
fjallgarð í
allan vetur
JK- Egilsstöðum.
Einmuna tfðarfar hefur verið
hér á Héraði sfðan um áramót þó
að all úrkomusamt hafi verið og
rignt mikið. Nú sfðustu daga
hefur verið þurrt og allhvasst.
Mikið hefur þornað til. Allir verið
eru nú værir og klaki vfða farinn
úr vegum hér um slóðir.
Til Húsavikur var farið á jeppa
um helgina og var billinn aðeins
fimm tima frá Egilsstöðum til
Húsavikur, og er vegurinn eins og
að sumardegi. Möðrudalsfjall-
garður mun hafa verið fær i svo
til allan vetur. Vekur það furðu
manna hér um slóðir, að vega-
gerðin virðist forðast að geta
þess, að þessi fjallvegur sé fær.
Virðist vera farið með þetta mál
eins og mannsmorð og ekkert ætl-
azt til að það fréttist. bó að færð
sé talin upp á öllum vegum lands-
ins, þá er aldrei minnzt á Möðru-
dalsfjailagarð, sem er n nú einu
sinni einu fjallvegurinn milli
tveggja landshluta.
A Héraði er fært frá innstu
dölum til sjávar, og er algjörlega
snjólaust, þannig að elztu menn
muna ekki annað eins.
Feiknaleg hreindýrahjörð er
fyrir innan bæinn Húsey i Hróars-
tungu. Bærinn er yzti bær i Tung-
unni og virðast dýrin, sem verið
hafa þarna alllengi, kunna vel við
sig úti við sjóinn.
FROSTLAUS
JÖRÐ
BJARGAR
VEGUNUM
ÞÓ-Reykjavík.
Engar teljandi skemmdir
hafa orðið á vegum hér sun-
nanlands i úrhellinu, sem ver-
ið hefur siðastliðinn sólar-
hring.
Starfsmenn hjá Vegagerð-
inni sögðu, að nokkrar litlar
aurskriður hefðu fallið i Hval-
firði, en þær væru ekki til
trafala. Þar sem frost er ekk-
ert i jörðu, hefur regnið sigið
mun fyrr i jörðina, og þar af
leiðandi situr miklu minna
vatn uppi, en ella.
Dagskrá út-
varps og sjón-
varps fylgir
með blaðinu
Sjómaður úr Eyjum fluttur í
lífshættu á sjúkrahús í London
Varnarliðsflugvél fór með klukkutíma fyrirvara með manninn ásamt læknum
KJ.-ÞÓ-Reykjavik.
21 árs gamall skipverji á
einum Vestmannaeyjabát-
anna slasaðist mjög mikið
laugardaginn 5. marz, er hann
lenti i spili bátsins, sem hann
var á. Maðurinn var strax
sendur með sjúkraflugvél til
Reykjavikur, þar sem aðgerð
vargerðá honum. Leið honum
sæmilega þangað til i gær, að i
Ijós kom að aðalslagæðin við
hjartað var rifin og hætta á að
hún rifnaði alveg inn að hjart-
anu. Ekki var hægt að fram-
kvæma aðgerð á honum hér á
landi, og var ieitað til varnar-
liðsins á Keflavikurflugvelli
með flugvél. Brást varnarliðið
fljótt við og gat með stuttum
fyrirvara sent hraðfleyga
flutningavél af gerðinni C-130
Herkules með manninn til
London en þar átti að fram-
kvæma aðgerð á honum I gær-
kvöldi.
Grétar ólafsson, læknir á
Landsspitalanum, sagði i gær,
að tveir læknar, þeir Arni
Kristinsson og Jón Hallgrims-
son hefðu farið með mennin-
um til London. Herkules vélin
fór frá Keflavik kl. 15 i gær og
var reiknað með 3 tima flugi
til Norphstop flugvallar við
London, en þaðan var maður-
inn fluttur á Hammersmith
sjúkrahúsið, þar sem aðgerð-
ina átti að gera i hjarta og
lungnavél.
Grétar sagði, að engin
hjarta- og lungnavél væri til á
íslandi, en bráðnauðsynlegt
að hún kæmi sem fyrst.
begar flugvélin kom til
Norphstop herflugvallarins
biðu þar læknar og sjúkrabill.
Skattafrum-
varpið sam-
þykkt f gær
Tekjustof nafrum varpið
afgreitt í dag
EB—Reykjavfk.
Tekju- og eignarskattsfrum-
varpið var samþykkt á Alþingi
siðdegis i gær við lok umræðna
um það i efri deild þingsins. Vonir
slóðu til um, að hægt yrði sömu-
leiðis að afgreiða frumvarpið um
tekjustofna svcitarfélaga á
Alþingi i gær, en þar eð tals-
verðar umræður urðu cnn um það
i þinginu, og stóðu til kvölds, var
ákveðið aö fresta þvi til morguns.
Hins vegar afgrciddi neðri deild
frumvarpiö i gærkvöldi.
Þar eð neðri deild hefur gert
litillegar breytingar á tekju-
stofnafrumvarpinu þarf að senda
það aftur til efri deildar, sem af-
greiddi það fyrir nokkrum
dögum. Verður ein umræða um
frumvarpið i efri deild i dag og
hefst þingfundur þar kl. hálf tvö,
eða hálfum klukkutima fyrr en
venjulega. Er það gert til þess að
efri deild verði búin að afgreiða
frumvarpiö, áður en fundur hefst
i Sameinuöu Alþingi kl. 2.
Herkulesvélin, er sennilega stærsta flugvél, sem notuð hefur veriö i sjúkraflug á islandi. Þessi mynd var
tekin, er verið var að fara með sjúklinginn um borð i vélina.
Ijósm. Heimir Stigsson.
Bryggjurmr í Grindavík
fóru á kaf í miklu flóði
Stærsta flóð sem komið hefur í Þorlókshöfn
Þó-Reykjavik.
Gifurleg flóð voru i Grindavik
og Þorlákshöfn i gærkvöldi. Allar
bryggjur i Grindavik fóru i kaf,
og mun sjórinn hafa veriö i 1
metra hæö yfir bryggjum i
Grindavík, er flóðið var mest.
Flóðhæðin náði hámarki, á
sjötta timanum og var þá algjör-
lega ófært eftir bryggjunum og
hefði getað farið illa, ef ekki hefði
verið frekar lygnt á höfninni.
Guðsteinn Einarsson frétta
ritari Timans i Grindavik
sagði, að ekki væri vitað um tjón
af völdumflóðsins, en menn gerðu
ráð fyrir, að það væri eitthvað, en
þó ekki eins mikið og varð i flóð-
inu fyrr i vetur.
Netabátarnir hafa ekki komizt
á sjó i nokkra daga og er gert ráð
fyrir að svo verði áfram. Bátarnir
eiga allir net i sjó og telja menn
vist, að þeir hafi orðið fyrir miklu
veiðarfæratjóni.
1 Þorlákshöfn fór flóðið að
sljákka um kl. 7 i gærkvöldi.
begar það var mest fylgdi sjórinn
bryggjuköntunum og mátti þvi
engu muna að flæddi yfir
bryggjúrnar.
Það bjargaði þvi, að ekki hlauzt
stórtjón af, að ékki var hvasst.
Nokkurt brim var, en þess gætti
ekki inni i höfninni.
I Þorlákshöfn hafa ekki komið
stærri flóö i manna minnum, en i
gær, en einstaka sinnum hafa
flóðin náð allt eins hátt upp.
Margir bátar voru i höfninni, en
ekki er vitað um að tjón hafi orðið
á þeim, en þeir slógust talsvert
saman, þegar flóðið var hvað
mest.