Fréttablaðið - 17.05.2004, Blaðsíða 20
20 17. maí 2004 MÁNUDAGUR
BAGGIO KVADDUR
Roberto Baggio lék í gær sinn síðasta leik í
ítölsku deildakeppninni þegar Breschia
mætti AC Milan í Mílanó. Baggio skoraði
203 mörk í 451 deildarleik.
FÓTBOLTI
Svíinn Henrik Lars-son skoraði tvö
mörk í síðasta deildar-
leik sínum með Celtic
þegar það sigraði Dundee United 2-
1. Larsson skoraði 273 deildarmörk
með Celtic í 222 deildarleikjum.
Larsson hóf feril sinn með Höga-
borg BK í Svíþjóð árið 1989 en gekk
til liðs við Helsingborg árið 1992.
Larsson skoraði 50 mörk í 52 leikj-
um með Helsingborg og það vakti
athygli hollenska félagsins Feye-
noord.
Larsson lék með Feyenoord í
fjögur ár en með með Celtic í sjö ár.
Larsson er þriðji markahæsti leik-
maðurinn í sögu Celtic. Hann skor-
aði 240 mörk í öllum keppnum en
Bobby Lennox skoraði 273 en Jim-
my McGrory er langmarkahæstur
með 470 mörk. ■
Aftur unnu Danir
á lokasprettinum
Íslendingar töpuðu 25-23 fyrir Dönum í Vestmannaeyjum í gær.
HANDBOLTI Danir unnu Íslendinga
25-23 í vináttulandsleik í hand-
bolta í Vestmannaeyjum í gær.
Danir sigruðu einnig, 34-31, í jöfn-
um og spennandi leik á Seltjarnar-
nesi á laugardag.
Íslendingar byrjuðum betur í
leiknum í Eyjum og náðu mest
fjögurra marka forystu, 8-4. Dan-
ir unnu þann mun upp og var stað-
an jöfn, 10-10, í leikhléi. Jafnræði
var með liðunum allan seinni hálf-
leikinn en Danir reyndust sterk-
ari á lokasprettinum líkt og í
leiknum á laugardag.
Staðan var 22-22 þegar tvær
mínútur voru eftir og fengu Ís-
lendingar hraðaupphlaup sem
nýttist ekki. Í staðinn náðu Danir
forystu og þegar ein mínúta var
til leiksloka var staðan orðin 24-23
fyrir Dani. Síðasta sókn Íslend-
inga fór forgörðum og Danir skor-
uðu 25. mark sitt á síðustu sek-
úndunni.
Allir leikmennirnir í íslenska
hópnum léku í gær og dreifðist
markaskorunin mun meira en í
leiknum á laugardag. Hrafnhildur
Skúladóttir og Þórdís Brynjólfs-
dóttir voru markahæstar og skor-
uðu fjögur mörk hvor. Guðbjörg
Guðmannsdóttir, Hafrún Krist-
jánsdóttir og Inga Fríða Tryggva-
dóttir skoruðu þrjú mörk hver,
Jóna Margrét Ragnarsdóttir og
Guðrún Hólmgeirsdóttir tvö hvor
og Hanna G. Stefánsdóttir eitt.
Helga Torfadóttir lék allan leikinn
í markinu og varði 21 skot, þar af
þrjú vítaköst. Anja Kristensen var
markahæst Dana með sex mörk.
Leikirnir við Dani voru til und-
irbúnings fyrir leikina gegn
Tékka í umspili fyrir Evrópu-
keppnina sem fram fer í Ung-
verjalandi síðar á þessu ári. Fyrri
leikurinn fer fram hér á landi ann-
an laugardag en sá seinni í Tékk-
landi sunnudaginn 6. júní. Hópur-
inn sem leikur við Tékka verður
tilkynntur um næstu helgi. ■
FÓTBOLTI Inverness Caledonian
Thistle sigraði í skosku 1. deild-
inni á laugardag og vann sér þar
með rétt á að keppa í úrvals-
deildinni á næsta ári. Það er þó
ekki ljóst hvort félagið geti leik-
ið í úrvalsdeildinni vegna þess
að heimavöllur félagsins,
Caledonian Stadium, stenst ekki
kröfur sem gerðar eru til leik-
vanga í deildinni. Hugsanlega
verður félagið að leika heima-
leiki sína í Aberdeen sem er í
rúmlega 100 kílómetra fjar-
lægð.
John Robertson fram-
kvæmdastjóri Inverness, vill
leika í úrvalsdeildinni. „Við
erum úrvalsdeildarfélag með
úrvalsdeildarstuðningsmenn.
Mig langar ekki að tilkynna leik-
mönnunum að við ætlum ekki að
leika í úrvalsdeildinni,“ sagði
Robertson. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
14 15 16 17 18 19 20
Mánudagur
MAÍ
Fríir kynningartímar mán 17/5 og mið 19/5
kl 18:00, Faxafeni 8, Miklubrautarmegin
A I K I D O
Barna-, unglinga- og fullorðinshópar
Komið og takið þátt eða fylgist með
Nútíma sjálfsvarnarlist fyrir alla
Nánari upplýsingar í símum 822-1824 og 897-4675
http://www.aikido.is aikido@here.is
Sjálfsvörn Líkamsrækt
Ný námskeið að hefjast!
Æfingar á mán/mið 18:00, fim 20:30, fös 07:30 og lau 15:30
FÓTBOLTI Franska kvennaliðið í
fótbolta sigraði það rússneska 3-
0 í Selyatino í 3. riðli undan-
keppni Evrópukeppninnar. Mar-
inette Pichon skoraði tvö marka
Frakkanna og Hoda Lattaf eitt.
Með sigrinum hefur franska
kvennaliðið í fótbolta náð fimm
stiga forskoti í riðlinum en
framundan er hörku barátta Ís-
lendinga og Rússa um annað
sætið. Liðið sem lendir í öðru
sæti, og tvö af fjórum liðum sem
lenda í þriðja sæti, komast í um-
spil um þrjú sæti í lokakeppn-
inni á Englandi næsta sumar.
Íslendingar leika við Ung-
verja ytra annan laugardag og
við Frakka á Laugardalsvelli
fyrstu vikuna í júní. Í seinni
hluta ágústs leika Íslendingar og
Rússar á Laugardalsvelli og gæti
það orðið úrslitaleikurinn um
annað sætið. Rússar eiga eftir
leik við Frakka í Frakklandi og
Ungverja á heimavelli. ■
Norska kvenna-
knattspyrnan:
Medkila
tapaði
FÓTBOLTI Medkila, félag Hrefnu Jó-
hannesdóttur, tapaði 0-1 fyrir
Fløya á heimavelli í gær. Medkila
var nálægt því að ná sínu fyrsta
stigi í deildakeppninni en Fløya
skoraði sigurmarkið þegar ein
mínúta var komin fram yfir
venjulegan leiktíma. Hrefna lék á
miðjunni gegn Fløya en var skipt
út af á 82. mínútu.
Medkila leikur næst við Trond-
heims-Ørn í Þrándheimi. Félagið
hefur sigrað í öllum fimm leikjum
sínum í vor og er efst í deildinni.
Kolbotn er í öðru sæti deildarinn-
ar með þrettán stig. ■
STAÐAN Í 3. RIÐLI
Frakkland 5 5 0 0 22:1 15
Ísland 5 3 1 1 18:6 10
Rússland 5 2 2 1 11:6 8
Ungverjaland 6 1 1 4 6:19 4
Pólland 7 0 2 5 6:31 2
Evrópukeppni kvennalandsliða:
Frakkar unnu Rússa
SJÓNVARP
15.00 Ensku mörkin á Stöð 2.
15.00 NBA á Sýn. Útsending frá
leik Sacramento og Minnesota.
16.30 Helgarsportið á RÚV.
16.45 Fótboltakvöld á RÚV. Þáttur
um leikina í 1. umferð Lands-
bankadeildar karla.
17.55 Íslensku mörkin á Sýn. Þátt-
ur um leikina í 1. umferð Lands-
bankadeildar karla.
18.30 Saga EM í fótbolta á RÚV.
18.40 Ensku mörkin á Sýn.
19.35 Spænsku mörkin á Sýn. Öll
mörkin í 37. umferð spænsku
úrvalsdeildarinnar.
20.20 Meistaradeild UEFA á Sýn.
Útsending frá leik Barcelona og
Manchester United í nóvember 1994.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
23.20 Markaregn á RÚV. Sýndir
verða valdir kaflar úr leikjum 33.
umferðar í þýsku Búndeslígunnar.
ÞÓRDÍS BRYNJÓLFSDÓTTIR
Skoraði fjögur mörk gegn Dönum
í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FÓTBOLTI Meistarar Rosenborgar
töpuðu 2-0 fyrir Molde á heimavelli
í gær. Kai Røberg og Magne Hoseth
skoruðu mörk Molde. Meistararnir
töpuðu 4-1 fyrir Tromsø um síðustu
helgi og eru í áttunda sæti eftir sex
umferðir.
Ólafur Örn Bjarnason lék allan
leikinn með Brann sem vann Ham-
Kam 2-0 á heimavelli. Kristian Ysta-
as og Raymond Kvisvik skoruðu
mökin á fimm mínútna kafla seint í
leiknum.
Gylfi Einarsson lék í 51 mínútu
með Lillestrøm sem tapaði 1-0 fyrir
Vålerenga á heimavelli. Gylfi fékk
gott færi til að jafna sex mínútum
fyrir leikslok en Pa Dembo Touray í
marki Vålerenga varði með glæsi-
legum tilþrifum.
Hannes Þ. Sigurðsson lék síðasta
hálftímann með Viking sem gerði
jafntefli, 2-2, við Odd Grenland á
heimavelli en Veigar Páll Gunnars-
son lék ekki með Stabæk sem tapaði
0-2 fyrir Lyn á útivelli. ■
■ TALA DAGSINS
173
Norski fótboltinn:
Annað tap
Rosenborgar
Spænski boltinn:
Barca upp
fyrir Real
FÓTBOLTI Barcelona komst í ann-
að sæti spænsku úrvalsdeildar-
innar með 1-0 sigri Racing Sant-
ander í gær. Ronaldinho skoraði
markið úr vítaspyrnu á 16. mín-
útu. Carles Puyol, leikmaður
Barcelona, var rekinn af velli
um miðjan seinni hálfleik.
Í gærkvöldi tapaði Real
Madrid 2-1 fyrir Real Murcia og
var þetta fjórði ósigur meistar-
anna í röð. Luis García skoraði
tvisvar fyrir Murcia í fyrri hálf-
leik en Guti skoraði mark Real á
lokamínútu leiksins. David
Beckham var rekinn af velli á
35. mínútu fyrir að rífa kjaft við
dómarann.
Í lokaumferðinni leikur
Barcelona við Real Zaragoza á
útivelli en Real Madrid leikur
heima við Real Sociedad. ■
Skoska úrvalsdeildin:
Völlurinn
stenst ekki
kröfur