Tíminn - 18.03.1972, Síða 1

Tíminn - 18.03.1972, Síða 1
SELJA ALLA r « iim«—mw—w^n—«ipfpr BERNADETTA SAT AF SÉR ALFRAMLEIÐSLU ÞESSA ÁRS OÓ-Reykjavik. Skógarfoss er nú i Straum- svikurhöfn og lestar þar 3200 lestir af áli. Er þetta með stærstu álförmum, sem héðan hafa farið. Ragnar Halldórsson, forstjóri álverksmiðjunnar, sagði i gær, að hann vonaðist til að hægt væri að selja alla framleiðslu þessa árs. Er það fyrst og fremst vegna þess, að búið er að draga svo úr álframleiðslu annars staðar, vegna sölutregðunnar, að meira jafnvægi er komið á markaðinn, og mun verða hægt að losna við meira af framleiðslunni hérna og minna hleðst upp. t fyrra hlóðst meira en helmingur framleiðslunnar upp hjá verksmiðjunni, en allar líkur benda til.að álframíeiðslan i ár verði seld. Alverksmiðjan framleiðir nú um 90% af framleiðslugetunni. Hjá öðrum verksmiðjum i Vestur- Evrópu er framleitt um 75% til 85% af getunni. Ragnar sagði, að vissulega stæði þetta allt til bóta, en verðið er engan veginn til gott ennþá. Markaðurinn hefur ekki lagazt Mýgtútur ávísana- falsara OÓ-Reykjavik. Ávisanafalsararnir eru hér eins og mý á mvkjuskán, sagði Erik Hakansson, gjaldkeri útibús Útvegs- bankans að Laugavegi 105, en hann náði tékkafalsara i bankanum að kvöldi mið- vikudags s.l. og afhenti hann lögreglunni. Er þetta hvergi nærri i fyrsta skipti sfem Erik handsamar falsara, þvi i fyrra tók hann einn, sem reyndi að komast undan þegar hann varð uppvis að prettinum. Þá stökk Erik, yfir afgreiðsluborðið, htjóp á eftir falsaranum út á götu, náði honum og hélt mannin- um þar til lögreglan kom. —Þeir virðast sækja til okkar hér i útibúið, sagði Erik, halda liklega að betra sé að kom tékkunum i verð hér, en i stóru bönkunum. En afgreiðslufólkið er samhent um að ná fölsurunum. Við höldumtékkunum, sem ,við sjáum,að eitthvað er athuga- vert við og tefjum fyrir þeim, sem framselja þá eins og hægt er, þar til lögreglan kemur, þvi sjálf viljum við helzt ekki standa i slagsmál- um við þessa menn. A undanförnum árum höfðum við hér i útibúinu náð um 20 ávisanafölsurum, en Framhald á bls. 10 svo ennþá,að um nokkra umtram- eftirspurn sé að ræða. PRESSUBALLIÐ I LONDON KJ-Reykjavik. Timanum barst i gær frétta- tiikynning frá stjórn Blaða- mannafélags íslands, þar sem skýrt er frá þvi,að Bernadetta Devlin liafi hætt við að þiggja boðið á Pressuballið, sem efnt var i gærkveldi. Væntanleg koina Berna- dettu hingað hafði vakið mikla athygli, og höfðu ýmsir ein- staklingar haft I frammi við- búnað til að færa henni gjafir, m.a. „cape”, peysur og dún- sængur. En Bernadctta situr enn i London. ; fer hvergi, þótt Pressuball sé i boði. Það þarf ekki að taka það fram, að i er tekin i London. UPI. Fréttatilkynning stjórnar B1 fer hér á eftir: Stjórn Blaðamannafelags Islands barst i gær.laust fyrir klukkan 16.00, tilkynning frá skrifstofu Flugfélags Islands i Lundúnum, fjórum klukku stundum áður en Pressuball átti að hefjast. Þangað hafði þá borizt bréf nokkrum minútum áður þar sem ritari Bernadettu Devlin segir, að þingmaðurinn hafi ekki i hyggju að fara til Islands, og skili þvi farmiða sinum. Félaginu hefur ekki borizt nein frekari skýring á þessari framkomu þingmannsins. Þingmaðurinn hafði sjálfur fyrir nokkrum dögum fullvissað stjórn Blaðamanna- félagsins um, að hann myndi koma til landsins og sitja hóf félagsins. Tók þingmaðurinn þá sérstaklega fram,að það myndi ekki bregðast að hann kæmi. Astæðan fyrir þvi, að stjórn Blaðamannafélagsins hringdi til hennar til að fá vissu fyrir að hún kæmi voru þau afskipti sem Alþýðu- bandalagið hafði haft af fyrir- hugaðri ferð hennar hingað. Alþýðubandalagið hefur til- kynnt, að Bernadetta komihingað á þessu vori i þess boði. Blaðamannafélaginu hafa borizt margar gjafir til Bernadettu Devlin frá aðdáendum hennar m.a. hafa konur prjónað á hana og son hennar peysur og útbúið dún- sængur, og mun félagið að sjálfsögðu koma þeim gjöfum áleiðis. Pressuball hófst i gærkvöldi á Hótel Sögu á fyrirhuguðum tima, enda mikið af öðrum góðum gestum og vönduð dag- skrá. Já, þarna situr hún blessunin og Bernadetta er í miðið — myndin HÆGT AÐ K0MA A STAÐGREIÐSLU- KERFI SKATTA INNAN TÍÐAR - sagði Halldór Sigurðsson, fjórmólaróðherra, í stuttu viðtali við Tímann EB-Reykjavik. — Að sjálfsögðu fagna ég þvi að málin eru leyst, svo að engin óvissa þarf að vera um þessa þætti þjóðmálanna lengur, sagði Halldór E. Sigurösson, fjármála- ráðherra, i viðtali við Timann i gær, þegar skattafrumvörp rikis- stjórnarinnar höfðu verið endan- lega samþykkt á Alþingi. — Ég vil endurtaka það, sem ég hef áður sagt, sagði fjármála- ráðherra ennfremur, að stefnt er i rétta átt með þeim kerfisbreyt- ingum, sem gerðar hafa verið og hagsmuna þeirra, sem verr eru settir i þjóðfélaginu, betur gætt en áður með þessum breytingum. Fyrst og fremst með niður- fellingu persónuskatta og ég tel það róttækustu breytinguna, sem gerð hefur verið á skattkerfinu um árabil. Mað þessum kerfis- breytingum verður, áður en langt um liður, hægt að koma á staðgreiðslukerfi skatta, sem ég tel til mikilla hagsbóta fyrir gjaldendur og riki og sveitarfélög og efnahagsmál þjóðarinnar yfir- leitt. — Þá vil ég endurtaka það, hélt fjármálaráðherra áfram, að áfram verður haldið við að vinna að þessum málum, þ.e. tekjuöflun rikisins og verkaskiptingu rikis og sveitarfélaga, og nú fæst meiri timi til að vina að þessum málum og samráð verður haft við þá aöila, sem samstarf verður að hafa við i sambandi við þessi mál. Ég hef lýst þvi yfir, að þetta verði gert og staðfesti það hér með. Við fyrstu umræðu um frumvarpið um tekjuskatt og eignaskatt i efri deild, lýsti ég yfir þvi, að stjórn- málaflokkunum yrði gefinn kostur á að eiga fulltrúa tii að taka þátt i áframhaldandi endur- skoðun skattkerfisins. — Ég vil að siðustu segja það, að með þvi að hefja þetta verk á siðast liðnu sumri og afgreiða það sem komið er, hefur mikið áunnizt, sem verður mikill stuðningur við endanlega afgreiðslu tekjustofnamála rikis og sveitarfélaga, sem ég vona að verði á næsta Alþingi. Aðalfundur miðstjórnar Framsóknar- flokksins hefst n. k. föstudag ÞÓ-ReykjavIk. Aðalfundur tniðstjórnar Framsóknarflokksins hefst n.k. föstudag 24. marz. Aðal- fundurinn veröur haldinn að Hótel Loftleiðum — ráðstefnu- sal. Allir fundir munu verða haldnir á Loftleiðahótelinu. Gert cr ráö fyrir, aö aðal- fuiulur miðstjórnarinnar standi i þrjá daga og hefst fyrsti fundurinn kl. 14 á föstu- dag. Þeir aðalmenn I miðstjórn, sem ekki geta mætt á fund- inum, þurfa að tilkynna það til flokksskrifstofunnar Hring- braut 30 (simi 2-44-80). Jafn- framt þurfa þeir að láta vara- menn mæta.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.