Tíminn - 18.03.1972, Blaðsíða 1
SELJA ALLA
r
« iim«—mw—w^n—«ipfpr
BERNADETTA SAT AF SÉR
ALFRAMLEIÐSLU
ÞESSA ÁRS
OÓ-Reykjavik.
Skógarfoss er nú i Straum-
svikurhöfn og lestar þar 3200
lestir af áli. Er þetta með stærstu
álförmum, sem héðan hafa farið.
Ragnar Halldórsson, forstjóri
álverksmiðjunnar, sagði i gær, að
hann vonaðist til að hægt væri að
selja alla framleiðslu þessa árs.
Er það fyrst og fremst vegna
þess, að búið er að draga svo úr
álframleiðslu annars staðar,
vegna sölutregðunnar, að meira
jafnvægi er komið á markaðinn,
og mun verða hægt að losna við
meira af framleiðslunni hérna og
minna hleðst upp.
t fyrra hlóðst meira en
helmingur framleiðslunnar upp
hjá verksmiðjunni, en allar líkur
benda til.að álframíeiðslan i ár
verði seld.
Alverksmiðjan framleiðir nú
um 90% af framleiðslugetunni.
Hjá öðrum verksmiðjum i Vestur-
Evrópu er framleitt um 75% til
85% af getunni.
Ragnar sagði, að vissulega
stæði þetta allt til bóta, en verðið
er engan veginn til gott ennþá.
Markaðurinn hefur ekki lagazt
Mýgtútur
ávísana-
falsara
OÓ-Reykjavik.
Ávisanafalsararnir eru
hér eins og mý á mvkjuskán,
sagði Erik Hakansson,
gjaldkeri útibús Útvegs-
bankans að Laugavegi 105,
en hann náði tékkafalsara i
bankanum að kvöldi mið-
vikudags s.l. og afhenti hann
lögreglunni. Er þetta hvergi
nærri i fyrsta skipti sfem Erik
handsamar falsara, þvi i
fyrra tók hann einn, sem
reyndi að komast undan
þegar hann varð uppvis að
prettinum. Þá stökk Erik,
yfir afgreiðsluborðið, htjóp á
eftir falsaranum út á götu,
náði honum og hélt mannin-
um þar til lögreglan kom.
—Þeir virðast sækja til
okkar hér i útibúið, sagði
Erik, halda liklega að betra
sé að kom tékkunum i verð
hér, en i stóru bönkunum. En
afgreiðslufólkið er samhent
um að ná fölsurunum. Við
höldumtékkunum, sem ,við
sjáum,að eitthvað er athuga-
vert við og tefjum fyrir
þeim, sem framselja þá eins
og hægt er, þar til lögreglan
kemur, þvi sjálf viljum við
helzt ekki standa i slagsmál-
um við þessa menn.
A undanförnum árum
höfðum við hér i útibúinu náð
um 20 ávisanafölsurum, en
Framhald á bls. 10
svo ennþá,að um nokkra umtram-
eftirspurn sé að ræða.
PRESSUBALLIÐ I LONDON
KJ-Reykjavik.
Timanum barst i gær frétta-
tiikynning frá stjórn Blaða-
mannafélags íslands, þar sem
skýrt er frá þvi,að Bernadetta
Devlin liafi hætt við að þiggja
boðið á Pressuballið, sem efnt
var i gærkveldi.
Væntanleg koina Berna-
dettu hingað hafði vakið mikla
athygli, og höfðu ýmsir ein-
staklingar haft I frammi við-
búnað til að færa henni gjafir,
m.a. „cape”, peysur og dún-
sængur. En Bernadctta situr
enn i London.
; fer hvergi, þótt Pressuball sé i boði. Það þarf ekki að taka það fram, að
i er tekin i London. UPI.
Fréttatilkynning stjórnar B1
fer hér á eftir:
Stjórn Blaðamannafelags
Islands barst i gær.laust fyrir
klukkan 16.00, tilkynning frá
skrifstofu Flugfélags Islands i
Lundúnum, fjórum klukku
stundum áður en Pressuball
átti að hefjast. Þangað hafði
þá borizt bréf nokkrum
minútum áður þar sem ritari
Bernadettu Devlin segir, að
þingmaðurinn hafi ekki i
hyggju að fara til Islands, og
skili þvi farmiða sinum.
Félaginu hefur ekki borizt
nein frekari skýring á þessari
framkomu þingmannsins.
Þingmaðurinn hafði sjálfur
fyrir nokkrum dögum
fullvissað stjórn Blaðamanna-
félagsins um, að hann myndi
koma til landsins og sitja hóf
félagsins. Tók þingmaðurinn
þá sérstaklega fram,að það
myndi ekki bregðast að hann
kæmi. Astæðan fyrir þvi, að
stjórn Blaðamannafélagsins
hringdi til hennar til að fá
vissu fyrir að hún kæmi voru
þau afskipti sem Alþýðu-
bandalagið hafði haft af fyrir-
hugaðri ferð hennar hingað.
Alþýðubandalagið hefur til-
kynnt, að Bernadetta
komihingað á þessu vori i þess
boði. Blaðamannafélaginu
hafa borizt margar gjafir til
Bernadettu Devlin frá
aðdáendum hennar m.a. hafa
konur prjónað á hana og son
hennar peysur og útbúið dún-
sængur, og mun félagið að
sjálfsögðu koma þeim gjöfum
áleiðis.
Pressuball hófst i gærkvöldi
á Hótel Sögu á fyrirhuguðum
tima, enda mikið af öðrum
góðum gestum og vönduð dag-
skrá.
Já, þarna situr hún blessunin og
Bernadetta er í miðið — myndin
HÆGT AÐ K0MA A STAÐGREIÐSLU-
KERFI SKATTA INNAN TÍÐAR
- sagði Halldór Sigurðsson, fjórmólaróðherra, í stuttu viðtali við Tímann
EB-Reykjavik.
— Að sjálfsögðu fagna ég þvi að
málin eru leyst, svo að engin
óvissa þarf að vera um þessa
þætti þjóðmálanna lengur, sagði
Halldór E. Sigurösson, fjármála-
ráðherra, i viðtali við Timann i
gær, þegar skattafrumvörp rikis-
stjórnarinnar höfðu verið endan-
lega samþykkt á Alþingi.
— Ég vil endurtaka það, sem ég
hef áður sagt, sagði fjármála-
ráðherra ennfremur, að stefnt er i
rétta átt með þeim kerfisbreyt-
ingum, sem gerðar hafa verið og
hagsmuna þeirra, sem verr eru
settir i þjóðfélaginu, betur gætt en
áður með þessum breytingum.
Fyrst og fremst með niður-
fellingu persónuskatta og ég tel
það róttækustu breytinguna, sem
gerð hefur verið á skattkerfinu
um árabil. Mað þessum kerfis-
breytingum verður, áður en langt
um liður, hægt að koma á
staðgreiðslukerfi skatta, sem ég
tel til mikilla hagsbóta fyrir
gjaldendur og riki og sveitarfélög
og efnahagsmál þjóðarinnar yfir-
leitt.
— Þá vil ég endurtaka það, hélt
fjármálaráðherra áfram, að
áfram verður haldið við að vinna
að þessum málum, þ.e. tekjuöflun
rikisins og verkaskiptingu rikis
og sveitarfélaga, og nú fæst meiri
timi til að vina að þessum málum
og samráð verður haft við þá
aöila, sem samstarf verður að
hafa við i sambandi við þessi mál.
Ég hef lýst þvi yfir, að þetta verði
gert og staðfesti það hér með. Við
fyrstu umræðu um frumvarpið
um tekjuskatt og eignaskatt i efri
deild, lýsti ég yfir þvi, að stjórn-
málaflokkunum yrði gefinn
kostur á að eiga fulltrúa tii að
taka þátt i áframhaldandi endur-
skoðun skattkerfisins.
— Ég vil að siðustu segja það,
að með þvi að hefja þetta verk á
siðast liðnu sumri og afgreiða það
sem komið er, hefur mikið
áunnizt, sem verður mikill
stuðningur við endanlega
afgreiðslu tekjustofnamála rikis
og sveitarfélaga, sem ég vona að
verði á næsta Alþingi.
Aðalfundur miðstjórnar Framsóknar-
flokksins hefst n. k. föstudag
ÞÓ-ReykjavIk.
Aðalfundur tniðstjórnar
Framsóknarflokksins hefst
n.k. föstudag 24. marz. Aðal-
fundurinn veröur haldinn að
Hótel Loftleiðum — ráðstefnu-
sal. Allir fundir munu verða
haldnir á Loftleiðahótelinu.
Gert cr ráö fyrir, aö aðal-
fuiulur miðstjórnarinnar
standi i þrjá daga og hefst
fyrsti fundurinn kl. 14 á föstu-
dag.
Þeir aðalmenn I miðstjórn,
sem ekki geta mætt á fund-
inum, þurfa að tilkynna það til
flokksskrifstofunnar Hring-
braut 30 (simi 2-44-80). Jafn-
framt þurfa þeir að láta vara-
menn mæta.